Morgunblaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Nýkomið í einkasölu sérlega gott 120 fm
atvinnuh. með innkeyrsludyrum, sérlega góð
staðsetning og óvenjurúmgóð lóð. Laust
strax. V. 18,5 millj.
Kaplahraun - Hf.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Höfum fengið í einkasölu mjög gott 408 fm
atvinnuhúsnæði, öll eignin við Kaplahraun Hf.
Eignin er á hornlóð og eru góð bílastæði að
norðan- og vestanverðu. Eigninni er hæglega
hægt að skipta upp í þrjú góð bil með stórum
innkeyrsludyrum. Mjög góð eign í góðu
ástandi. V. 62 millj.
Kaplahraun - Hf.
Nýkomið sérlega gott atvinnuhúsnæði með
góðri lofthæð og innkeyrsludyrum, 158,3 fm
endabil. Góð staðsetning, tilvalin eign fyrir
fiskvinnslu, léttan iðnað, íbúð o.fl. V. 21,5
millj.
Eyrartröð - Hf.
Nýkomið í sölu gott 360 fm atvinnuhúsnæði.
Góð lofthæð og innkeyrsludyr 4x4 metrar.
Byggingarréttur, rúmgóð lóð. Góð stað-
setning. Verðtilboð.
Melabraut - Hf.
Nýkomið í sölu mikið endurnýjað og glæsilegt
182 fm atvinnuhúsnæði, endabil, auk um 50
fm millilofts með góðum gluggum (skrifstofur,
kaffistofur o.fl.), samtals 230 fm.
Verslunargluggi - innkeyrsludyr 4x4 metrar.
Góð staðsetning og aðkoma. Laus strax. V.
27,5 millj.
Melabraut - Hf.
Brekkutröð - Hf.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Nýkomið nýlegt, vandað gott atvinnuhúsnæði, byggt 2005, 106,5 fm. 4 metra innkeyrsludyr,
góð lofthæð, malbikað plan. Fullbúin eign. V. 15,9 millj.
Kaplahraun - Hf.
162 fm atvinnuhúsnæði. Skipting eignar:
neðri hæð 120 fm, efri hæð 44 fm. Um er að
ræða rúmgóðan vinnslusal á fyrstu hæð
með góðum innkeyrsludyrum ásamt
búningsklefa og salerni, skrifstofu, kaffistofu
og lager á 2. hæð. Nánari upplýsingar á
skrifstofu Hraunhamars. V. 23,9 millj.
Mjög fallegt og afar vel skipulagt
341 fm einbýlishús sem stendur
á 1.704 fm glæsilegri lóð á frá-
bærum útsýnisstað í Laugarásn-
um auk 30 fm sérstæðs bílskúrs.
Húsið er tvær hæðir og kjallari og er bæði sérinngangur og innangengt í kjallara. Eignin skiptist m.a.
í forstofu, stórt hol, stórar stofur, borðstofu, rúmgott eldhús, fjölda herbergja auk fataherbergis,
nýlega endurnýjað baðherbergi á efri hæð
auk baðherbergis með sturtu í kjallara.
Útgangur úr stofu og hjónaherb. á um 40
fm svalir með frábæru útsýni yfir borgina.
Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni.
Nánari uppl. veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Dyngjuvegur
Einbýlishús í Laugarásnum á frábærum útsýnisstað
Í UMRÆÐUNNI undanfarið um
fangelsismál hefur gagnrýni nokk-
urra stjórnarandstöðuþingmanna
beinst að Birni Bjarnasyni dóms-
málaráðherra vegna stöðunnar í
fangelsismálum. Af því
tilefni vildi ég að eft-
irfarandi komi fram.
Ég var skipaður for-
stjóri Fangels-
ismálastofnunar 1. maí
2004 en Björn hafði þá
verið dómsmálaráð-
herra í tæpt ár. Þann
10. s.m. fól hann stofn-
uninni að skoða nánar
gögn varðandi bygg-
ingu nýs fangelsis á
Hólmsheiði sem var þá
tilbúið undir alútboð
sem og að endurskoða
frumvarp til laga um fullnustu refs-
inga.
Fangelsismálastofnun skilaði ráð-
herra skýrslu, dags. 12. október
2004, um markmið í fangelsismálum
og hugmyndir um heildaruppbygg-
ingu fangelsiskerfisins. Þar voru
gerðar athugasemdir við fyrirhug-
aða byggingu fangelsis á Hólmsheiði
og bent á að ekki væri gert ráð fyrir
ýmsum mikilvægum þáttum s.s að
fangelsið leysti ekki af hólmi Kópa-
vogsfangelsið þar sem vandinn væri
hvað mestur. Þá var bent á nauðsyn
verulegra endurbóta á Litla-Hrauni
og á Akureyri svo og að fangelsið í
Kópavogi hentaði illa lang-
tímaföngum en slíkar ábendingar
höfðu ekki komið fram
áður. Nauðsyn þess að
hætta rekstri Hegning-
arhússins í náinni
framtíð var öllum ljós.
Að ósk ráðherra út-
færði stofnunin nánar
þessar hugmyndir og
skilaði skýrslu þess
efnis 25. janúar 2005.
Skýrslu um fram-
kvæmdaáætlun var síð-
an skilað til ráðherra
14. mars 2005. Sam-
hliða þessu var, með
samþykki ráðherra,
unnið að frumteikningum.
Þann 22. mars 2005 samþykki rík-
isstjórnin framkvæmdaáætlunina og
var dóms- og fjármálaráðuneytinu
falin frekari útfærsla verksins. Á
fundi dómsmála- og fjármálaráð-
herra 25. maí s.á. var samþykkt
tímaáætlun um endurbætur á Ak-
ureyri og Kvíabryggju en ákveðið að
vinna frekar að framkvæmd áætl-
unarinnar varðandi Litla-Hraun og
Hólmsheiði. Tímasetning einstakra
framkvæmda réðst af lang-
tímaáætlun fjárlaga og undirbúningi
verksins. Til að flýta ferlinu var
Stefán P. Eggertsson verkfræð-
ingur ráðinn verkefnastjóri og skil-
aði hann ítarlegri skýrslu í sept-
ember 2005 um forathugun
fangelsanna í heild.
Frumáætlun fyrir uppbyggingu á
Kvíabryggju lauk í október 2005 og
samið við hönnuði í kjölfarið. Teikni-
vinnu er nú lokið og verkið tilbúið til
útboðs. Teikningum að endurbótum
á fangelsinu á Akureyri lauk í ágúst
2006 og er verkið tilbúið til útboðs.
Frumathugun á framkvæmdum á
Litla-Hrauni lauk í ágúst 2006 svo
unnt er að hefja hönnunar- og teikni-
vinnu. Stefnt var að því að bjóða
Fangelsismál í tíð Björns Bjarna-
sonar dómsmálaráðherra
Valtýr Sigurðsson
fjallar um fangelsismál » Á fundi Allsherj-arnefndar tók ég
sérstaklega fram að ég
teldi gagnrýni á Björn
Bjarnason vegna stöðu í
byggingamálum fang-
elsismála allsendis
óréttmæta.
Valtýr Sigurðsson
Í GREIN í Morgunblaðinu, sem
hét Fjallræða Steingríms Sigfús-
sonar, fjallaði ég um
samkomu VG á fjöll-
um og þau ummæli
Steingríms að
breyta stíflunni við
Kárahnjúka í minn-
isvarða.
Ég kallaði um-
mælin veruleikafirrt
ofstæki.
Steingrímur birtir
svargrein í Morg-
unblaðinu 6. þ.m. og
segir þar að nauð-
synlegt sé að Birgir
„fari rétt með þegar
hann fjallar um afstöðu annarra
manna“.
Síðan reynir hann að skýra um-
mæli sín á samkomunni með þeirri
undarlegu aðferð að leggjast í
hártoganir og útúrsnúninga á
sinni eigin ræðu.
Ég kann því illa að vera sak-
aður um að fara rangt með. Í út-
skrift af fréttinni, sem
birtist í Sjónvarpinu
26. ágúst. segir orð-
rétt: „og sagði (SJS)
meðal annars að enn
væri ekki of seint að
hverfa frá því að fylla
lónið. (Ég endurtek:
hverfa frá því að fylla
lónið). Þá yrði að vísu
stíflan mikla sem við
sáum áðan bæði dýr og
forljótur minnisvarði
um heimsku mannsins,
en þeir eru nú margir
slíkir vítt um veröld og
hún myndi þá bara fylla það safn
af minnisvörðum um mistök.
Þetta kalla ég veruleikafirrt ofs-
tæki.
Draugabanar
Steingrímur vék að fleiru um
mig, meðal annars að ég sé mikill
stuðningsmaður stóriðju „gott ef
ekki stóriðjustefnu ríkisstjórn-
arinnar eins og hún leggur sig“,
sagð́ ann.
Það getur verið snúið að hafa
samskipti við fólk, sem fylgist
ekki betur með en svo, að það bið-
ur um frí í vinnunni á morgun til
að mæta í jarðarför í gær.
Það er búið að jarða stór-
iðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Þeir,
sem enn berjast við þá dauðu
stefnu, eru eins og draugabanar í
grínmynd, – bara leikarar.
Fyrir liggur beiðni um stækkun
álvers í Straumsvík. Veit Stein-
grímur Sigfússon ekki að heimild
fyrir þeirri stækkun er í höndum
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, ekki
ríkisstjórnar. Það verða engir ál-
brjálaðir Sáronar úr framsókn-
arflokknum eða ríkisstjórn, sem
ákveða þá framkvæmd. Það gera
Hafnfirðingar einir. Sama verður
um hugsanlegt álver á Reykjanesi
og við Húsavík. Heimamenn ráða
þar, ekki ríkisstjórnin.
Jafnaðarmaður
Steingrímur dregur sérstaklega
fram í grein sinni að ég hafi gert
mér far um að halda á lofti að
Samfylkingin hafi samþykkt Kára-
hnjúkavirkjun. Að sjálfsögðu geri
ég það.
Við jafnaðarmenn eigum okkur
þann draum að Ísland verði öflugt
velferðarríki.
Við viljum hafa efni á stuðningi
við frumkvöðlastarfsemi, grunn-
rannsóknir og nýsköpun. Menn-
ingu og listnám alls konar. Við
viljum gjaldfrjálsa leikskóla og
heilsugæslu. Við viljum að aldraðir
og öryrkjar hafi sæmandi laun.
Við viljum auka fjölskyldu- og
vaxtabætur. Við viljum styðja
leigjendur með húsaleigubótum og
aldraða með þjónustuíbúðum. Við
viljum að landsbyggðin lifi, – ekki
bara tóri.
Jafnaðarmenn eru raunsæir og
vita að þessir draumar og aðrir
rætast ekki nema þjóðin sé rík,
meira að segja moldrík. Eina stór-
tæka leiðin til þess er að nýta auð-
lindir landsins og auka þannig
aflahlutinn, sem er til skiptanna.
Því studdum við jafnaðarmenn
stóriðju á Austurlandi.
Fjallræða Steingríms
Birgir Dýrfjörð fjallar
um stóriðjustefnu » Það er búið að jarðastóriðjustefnu rík-
isstjórnarinnar. Þeir,
sem enn berjast við þá
dauðu stefnu, eru eins
og draugabanar í grín-
mynd, – bara leikarar.
Birgir Dýrfjörð
Höfundur er í flokksstjórn
Samfylkingarinnar.
ÁSKRIFTARSÍMI 569 1100
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050