Morgunblaðið - 10.09.2006, Page 52
Fallegt 172,5 fm hús á stórri lóð
með sérstæðum 40 fm bílskúr.
Samtals 212,5 fm. Á hæðinni er
baðherbergi, eldhús, borðstofa, dagstofa með arni, tvö svefnherbergi. Nýleg
stofa með óvenju góðri lofthæð, arin. Í kjallara eru tvö herbergi og snyrting.
Lóðin er óvenju stór og glæsileg. V. 47 m. 5950
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Digranesvegur - Fallegt einbýlishús
52 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Mjög glæsilegt 258 fm einbýlishús á tveimur hæðum á frá-
bærum útsýnisstað innst í lokaðri götu. Eignin skiptist m.a.
í samliggjandi glæsilegar bjartar stofur, mjög vandað opið eldhús með eyju, 4 góð herb. auk
fataherbergis, sjónvarpsherbergi og flísalagt baðherb. auk gestasnyrtingar. Allar innréttingar,
hurðir og fataskápar eru úr hlyni. Hiti er í öllum gólfum, aukin lofthæð á báðum hæðum og harð-
viðargluggar og útihurðir í öllu húsinu.
Innfelld lýsing í loftum efri hæðar og
næturlýsing í hluta veggja. Stór viðar-
verönd með skjólveggjum og tvennar
svalir. Tvöfaldur innbyggður bílskúr.
Gríðarlega fallegs útsýnis nýtur af efri
hæð hússins yfir til Snæfellsness og að
Reykjanesinu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Hraunás - Garðabæ
Glæsilegt einbýlishús á frábærum útsýnisstað
Skeifunni 11 Sími 534 5400 www.klettur.is
KRISTNIBRAUT 69, ÍBÚÐ 0301
OPIÐ HÚS SUNNDAGINN 10. SEPTEMBER
MILLI KL. 16:00 OG 17:00
Fasteignasalan Klettur kynnir: Fallega fjögurra herbergja íbúð með
bílskýli. Íbúðin er á 3ju hæð í litlu fjölbýli með glæsilegu útsýni yfir
Esjuna og sundin.
Öll gólfefni í íbúðinni er eikar-plankaparket nema á baðherbergi
og þvottahúsi en þar eru flísar á gólfi. Allar hurðir og innréttingar
eru úr eik. Sannarlega góð eign á góðum stað, stutt er í leiksvæði
á opnu svæði við hlið hússins og opið svæði er einnig í norður
sem gefur eigninni gott og óskert útsýni í þá átt. Stutt er í skóla
og leikskóla sem og í þjónustumiðstöð og verslun í nágrenni eign-
arinnar.
Sölumaður Kletts fasteignasölu tekur á móti gestum.
(Gsm 821 5404 Guðmundur)
Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasts.
FYRIR réttum áratug stóð ég í
fyrsta sinn á barmi Dimmugljúfra
og gleymi aldrei þeirri stundu. Ég
var agndofa. Magnað, var eina
orðið sem þá kom mér í hug. Á
þeim tíma voru þessi einstæðu
gljúfur fáum kunn.
Nú vita allir um til-
vist þeirra og fólk
hefur streymt þangað
nú síðustu árin að sjá
þau og annað um-
hverfi Kárahnjúkanna
sem nú standa hnípn-
ir og sárir og bíða ör-
laga sinna.
Kaffæringin
vofir yfir
Ég flaug með Óm-
ari Ragnarssyni yfir
svæðið um miðjan
ágúst. Hrifning og reiði börðust
um völdin í huga mér. Afleiðingar
ofbeldisaðgerða virkjanasinna
skera í augun þegar flugvélin
sveimar yfir framkvæmdasvæðinu.
Hver náttúruperlan af annarri
gleður hins vegar þegar vélin
stingur sér niður í gljúfrin og flýg-
ur yfir nágrennið. Öræfakyrrðin
umlykur manneskju á göngu um
Kringilsárrana þar sem sérstæðar
náttúrumyndanir vekja furðu og
hvert lítið blóm vekur aðdáun. Til-
hugsunin um lónið mikla, sem inn-
an skamms kaffærir ómetanlegt
landsvæði, sker í hjartað. Það
landsvæði verður aldrei end-
urheimt.
Það hefur verið bæði ótrúlegt og
sárt að fylgjast með tilurð Kára-
hnjúkavirkjunar allt frá því byrjað
var að kynna hugmyndina til þessa
dags. Hópur andmæl-
enda var ekki fjöl-
mennur í upphafi og
afl hans og aðgerðir
máttu sín lítils gagn-
vart fjársterkum
framkvæmdaöflum og
stjórnvöldum sem
hirtu lítt um fagleg
rök. Þar var í raun
við algjört ofurefli að
etja, og minnisstæð
eru orð Halldórs Ás-
grímssonar í ágúst
2001 þegar Skipulags-
stofnun hafði fellt
þann úrskurð að virkjunaráform-
unum skyldi hafnað vegna mikilla
óafturkræfra náttúruspjalla: „Það
er stefna stjórnvalda að þessi
virkjun verði byggð og þessi úr-
skurður Skipulagsstofnunar breyt-
ir engu þar um,“ segir Halldór Ás-
grímsson í DV 3. ágúst það ár.
Barátta til framtíðar
En dropinn holar steininn. Á Al-
þingi börðust Vinstri græn hetju-
lega gegn málinu og eru enn að.
Nú vildu ýmsir Lilju kveðið hafa.
Og þótt virkjunin verði að veru-
leika skilar sér til framtíðar ótrú-
leg elja mótmælenda við að draga
upplýsingar fram í dagsljósið og
vekja fólk til vitneskju um það
sem hefur verið að gerast, til um-
hugsunar um landsvæðið sem
sökkva skal og þannig fórnað um
alla framtíð, um umfang fram-
kvæmdanna, um kostnaðinn og
vafasama arðsemi verkefnisins í
heild, en fyrst og fremst um þetta
ofbeldi mannsins gagnvart nátt-
úrunni.
Kunningi minn lýsti því nýlega
fyrir mér þegar hann fór fyrst upp
að Kárahnjúkum og virti fyrir sér
framkvæmdirnar af útsýnispall-
inum. Nákvæmlega á þeim stað er
fátt sem hrífur hugann nema
menn séu þannig innstilltir að hrí-
fast af stórvirkum vinnuvélum og
hrikalegu jarðraski. Hann sagðist
hafa velt fyrir sér hverju andstæð-
ingar virkjunarinnar væru eig-
Hryllingurinn við Kárahnjúka
má aldrei aftur eiga sér stað
Kristín Halldórsdóttir skrifar
um umhverfismál og stóriðju » Þökk sé öllum þeimsem hafa lagt sitt lóð
á vogarskálarnar til að
vekja og upplýsa, opna
augu fólks fyrir ómet-
anlegum náttúruperlum
öræfanna
Kristín Halldórsdóttir
LÆKNAFÉLAG Íslands (L.Í.)
hefur endurtekið mótmælt samein-
ingu sjúkrahúsanna í Reykjavík.
L.Í. hefur mótmælt sameiningunni
á þeim forsendum, fyrst og fremst,
að hún hindri annars vegar nauð-
synlega samkeppni hátæknisjúkra-
húsa um starfsfólk og
þjónustu og komi hins
vegar í veg fyrir nauð-
synlegt valfrelsi sjúk-
linganna. Frelsi þeirra
til að velja. Skoðum
þetta nánar.
Með röksemda-
færslu sinni vill L.Í.
greinilega meina það
að tvö hátæknisjúkra-
hús eigi að fá að keppa
á samkeppnismarkaði
höfuðborgarsvæðisins
um sjúklinga og allt
nauðsynlegt starfsfólk.
Allavega lækna. Og
L.Í. vill ennfremur að
sjúklingar fái að velja
milli sjúkrahúsanna
þegar þeir þurfa á
þjónustu þeirra að
halda. Til að röksemd-
ir L.Í. fái staðist þurfa
eftirfarandi forsendur
að liggja fyrir að mati
undirritaðs:
Að a. m. k. tvö há-
tæknisjúkrahús
verði rekin á höf-
uðborgarsvæðinu
þar sem hvort
tveggja sjúkrahús-
anna hafi rými,
tæknilegan búnað
og faglega mönnun
til að geta veitt alla
lögbundna heil-
brigðisþjónustu nú-
tíma hátæknisjúkrahúss.
Að a. m. k. tvö fullbúin hátækni-
sjúkrahús á höfuðborgarsvæðinu
verði hvort um sig með viðunandi
bráðaþjónustu og vaktaskipulag á
öllum deildum allan sólarhringinn
allt árið um kring.
Að hæft fagfólk fáist til að unnt
verði að manna a. m.
k. tvö fullbúin há-
tæknisjúkrahús.
Að nægir fjármunir
fáist til að reka a. m.
k. tvö hátækni-
sjúkrahús á svæð-
inu.
Að það verði lagt í
hendur sjúklinganna
sjálfra – eða að-
standenda þeirra –
að ákveða hvar þeir
vilji leggjast inn
þegar sjúkrahúss-
vistar er þörf í stað
þess að byggja
ákvörðunina á lækn-
isfræðilegum og
fjárhagslegum for-
sendum, eins og gert
er í dag.
Án ofangreindra for-
sendna telur undirrit-
aður að hugmyndir
L.Í. um valfrelsi sjúk-
linganna og raunveru-
lega samkeppni há-
tæknisjúkrahúsa gangi
alls ekki upp. Og þegar
framsettar forsendur
L. Í. eru skoðaðar í al-
vöru verður okkur öll-
um strax ljóst að rök-
semdir læknafélagsins
standast hvorki fag-
lega né fjárhagslega –
og eru því bara stað-
lausir stafir.
Á meðan L.Í. treystir sér ekki til
að koma með gáfulegri röksemda-
færslu, málstað sínum til stuðnings,
verðum við að líta svo á, að hin
raunverulegu rök þoli einfaldlega
ekki dagsbirtuna.
Staðlausir stafir lækna um
valfrelsi og samkeppni
Gunnar Ingi Gunnarsson fjallar
um hugmyndir L.Í. um valfrelsi
sjúklinga og samkeppni há-
tæknisjúkrahúsa
» ... þegarframsettar
forsendur L. Í.
eru skoðaðar í
alvöru verður
okkur öllum
strax ljóst að
röksemdir
læknafélagsins
standast hvorki
faglega né fjár-
hagslega – og
eru því bara
staðlausir stafir.
Gunnar Ingi
Gunnarsson
Höfundur er læknir.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn