Morgunblaðið - 10.09.2006, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 55
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í GREIN í Morg-
unblaðinu fyrir
nokkru er viðtal við
bónda sem hefur
verið að rækta upp
lítt gróna mela og
sandhóla með að-
stoð landgræðsl-
unnar í sínu eigin
heimalandi. Þetta
átak landgræðsl-
unnar heitir Bændur græða landið.
Hvaða land? Sín eigin heimalönd fyrir
sínar eigin skepnur og fær viðurkenn-
ingu landgræðslunnar. Hann segir að
hún sé mikils virði og sýni að það sé
hægt að láta uppgræðslu og sauð-
fjárrækt fara saman.
Já, það er sannarlega eina færa
leiðin, og heitir ræktunarbúskapur, þá
bera fjáreigendur ábyrgð á sínum
skepnum á sínu eigin landi og myndu
því sjá til þess að það bæri ekki skaða
af.
En hvað með viðkvæman hálend-
isgróðurinn, fjöllin og víða stór-
skemmd afréttalönd þar sem eru tug
þúsundir skepna nagandi gróðurinn
allt sumarið án þess að eigendur beri
nokkra ábyrgð á skemmdunum á
gróðri sem þær valda. Það heitir rán-
yrkja og er fyrir löngu aflögð hjá öll-
um siðmenntuðum þjóðum.
Er ekki grátbroslegt að við skulum
sitja rænulaus föst í fortíðinni. Þó all-
ir sem vilja vita, viti þvílíkan skaða við
völdum landinu okkar að óþörfu-
.Vaknið kæru landsmenn og samein-
ist um þá kröfu að hér sé stundaður
ræktunarbúskapur sem gangi ekki
stöðugt á landgæðin eins og hingað
til. Ef ekki, hvar endar það?
HERDÍS ÞORVALDSDÓTTIR,
leikkona og fyrrverandi formaður
Lífs og lands.
Hver er sjálfum sér næstur
Frá Herdísi Þorvaldsdóttur:
Herdís
Þorvaldsdóttir
Falleg, rúmgóð og vel skipulögð 85 fm 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í
lyftuhúsi ásamt 25 fm sérstæðum bílskúr. Fallegar innréttingar. Suð-
vestursvalir. Sérlega glæsilegt útsýni. Sérþvottahús. Húsvörður. Í
húsinu er þjónustumiðstöð frá Reykjavíkurborg.
Íbúðin er laus til afhendingar nú þegar. Verð 29,5 millj.
HRAUNBÆR
FYRIR ELDRI BORGARA
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
www.heimili.is
Sérlega björt og falleg um 122 fm sérhæð og bílskúr á þessum
vinsæla stað. Stór og góð stofa og borðstofa með tvöföldum
dyrum út á mjög góðar suðvestursvalir. Þrjú svefnherbergi.
Fallegur og vel hirtur garður með grasflöt og trjágróðri. Rúmgóð
geymsla og bílskúr. Verð 33,5 millj.
Opið hús í dag frá kl. 14-16. Hörður og María
taka vel á móti gestum.
Selvogsgrunn 7 - opið hús í dag
Biskupsgata 23 og 27 - Raðhús á einni hæð
OPIÐ HÚS Á MORGUN MÁNUDAG MILLI KL. 17 OG 18
Einstaklega glæsilegt og vandað nýtt
raðhús, tilbúið til innréttingar, á einni
hæð auk bílskúrs, stutt frá útivistar-
paradís í Grafarholtinu. Frábært skipu-
lag, timburverönd í garði. Eignin er
laus til afhendingar við kaupsamning.
V. 34,0 m. 5340
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Opið hús
Opið hús í Bólstaðarhlíð 32, efri hæð, í dag, sunnudag.
Hér er um að ræða 160 fm stórglæsilega og mikið end-
urnýjaða efri sérhæð með 3 svefnherbergjum. Íbúðin
öll hefur verið endurnýjuð og er með nýjum gólfefnum.
Eldhúsinnrétting er frá Húsasmiðjunni og eru tæki
einnig mjög vönduð, m.a. er uppþvottavél auk tvöfalds
ísskáps með klakavél. Þrjú góð svefnherbergi, tvö þeirra
með eikarskápum. Dimmer er í herbergjum og á gólf-
um íbúðarinnar er eikarparket. Baðherbergi er flísalagt í
hólf og gólf með baðkari. Hurðir eru allar úr eik og eru
vandaðar. Sérgeymsla í kjallara, þvottahús. Bílskúr er
stór og rúmgóður. Sölumenn Fasteignakaupa taka á
móti gestum í dag á milli kl. 16.00 og 18.00.
SÍÐUSTU 60 ár
hafa verið miklir
umbrotatímar í
stjórn- og þjóð-
málum hér á landi.
Nokkrir eldri
stjórnmálaflokkar
hafa verið lagðir nið-
ur og í stað þeirra
stofnaður stjón-
málaflokkur, eða samtök fjögurra
flokka, sem höfðu það að aðalmark-
miði að ná völdum í Reykjavík, eftir
langan valdatíma Sjálfstæðisflokksins
þar. Samtökin kölluðu sig Reykjavík-
urlistann. Í kosningum 1994 unnu þau
borgina og stjórnuðu henni þangað til
í sumar. Í vor náðist ekki samkomulag
um áframhaldandi samstarf flokk-
anna.
Mörgum þótti gamli Alþýðuflokk-
urinn vilja ráða alltof miklu í sam-
starfinu og að hann væri með tvö höf-
uð, en ég læt aðra um að dæma um
það. Þá má einnig geta þess að margir
voru líka óánægðir eftir 11 ára sam-
starf Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks.
En fleira kom þar til. Margir fram-
sóknarmenn töldu að formaður Fram-
sóknarflokksins væri búinn að færa
flokkinn langt af sinni gömlu braut og
flokkurinn orðinn einstaklings-
hyggjuflokkur. Að lokum sá hann sitt
óvænna og sagði af sér flokksforyst-
unni. Hann tilkynnti á blaðamanna-
fundi á Þingvöllum að hann hefði þá
þegar ákveðið að skipta sér ekki
meira af pólitík. Að kvöldi sama dags
ræddu blaðamenn í Reykjavík við for-
manninn í Sjónvarpinu og meðal ann-
ars var spurt hvort varaformaðurinn
tæki þá strax við varaformennskunni.
Þá komu vöflur á formanninn. Hann
sagðist ætla að gegna þingmennsk-
unni fram að flokksþingi Fram-
sóknaflokksins, sem hann teldi æski-
legt að haldið yrði væntanlega í
september. Tímann þangað til ætlaði
hann að nota til að ferðast um landið
og ræða við sína menn. Ég verð að
segja eins og er að ég gapti af undrun.
Halldór hefur hingað til ekki verið
þekktur fyrir að skipta um skoðun á
nokkurra klukkustunda fresti. En
hvernig ætlaði hann að segja af sér
formennsku og hætta að skipta sér af
pólitík, en vera samt þingmaður og
foringi Framsóknarflokksins? Mér er
ómögulegt að skilja það. Og til hvers
þurfti hann að hafa meira en tvo mán-
uði til að ferðast um landið og hitta
sína menn? Ætlaði hann að ferðast
fótgangandi? Ég get ómögulega skilið
heljarstökk hans öðruvísi en svo að
hann hafi ekki getað hugsað það á
annan hátt en þann að hann yrði fyrir
flokksþingið búinn að tryggja það að
allir valdamestu menn í flokknum
yrðu honum þóknanlegir. Er ekki
venjan í flestum félögum að varafor-
maður taki við ef aðalmaður segir af
sér, eða forfallast um tíma?
Svo leið vikutími, þá tilkynnti Jón
nokkur Sigurðsson að hann hefði
ákveðið að bjóða sig fram til for-
mannsembættis Framsóknarflokks-
ins á næsta flokksþingi. Halldór var
ekki lengi að velja eftirmann sinn.
Þess vegna get ég ekki skilið að það
hafi þurft að taka hann svo langan
tíma að velja hina æðstu menn flokks-
ins. Ég hef áður orðið þess var að
Halldór er mjög ráðríkur, en þó hefði
ég aldrei trúað því að á sama sólar-
hringnum segði hann af sér for-
mannsembættinu og lýsti jafnframt
yfir að hann ætlaði ekki að skipta sér
meira af pólitík, en nokkrum klukku-
stundum seinna tilkynnti hann að
hann ætlaði ekki að segja af sér þing-
mennsku fyrr en í haust. Hvers konar
hringlandi er þetta? Hver getur tekið
mark á svona manni? Þetta held ég að
hafi aldrei gerst hjá neinum flokks-
formanni hér á Íslandi. Ég er viss um
að nafn fárra verður lengur geymt í
Íslandssögunni.
SIGURÐUR LÁRUSSON,
frá Gilsá.
Hugleiðingar um þjóðmál
Frá Sigurði Lárussyni:
Sigurður Lárusson