Morgunblaðið - 10.09.2006, Side 69

Morgunblaðið - 10.09.2006, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 69 menning Hómópatanám Um er að ræða 4 ára nám sem byrjar 21. og 22. okt. á vegum College of Practical Homoeopathy í Bretlandi. Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík. Kynning á náminu verður 22. sept. Upplýsingar gefur Martin í símum 567 4991 og 897 8190. Hómópataskólinn - Stofnaður 1993 www.homoeopathytraining.co.uk MIÐASALA HAFIN! HEIMILDARMYNDIN Óþægileg- ur sannleikur eða An Inconvenient Truth hefur vakið mikla athygli á undanförnum misserum, enda er þar um harla óvenjulega heimildarmynd að ræða. Myndin hverfist fyrst og fremst um myndskreyttan fyr- irlestur fyrrverandi forseta- frambjóðanda Bandaríkjanna, Al Gore, um þær hættur sem steðja að lífríki jarðar vegna umhverfismeng- unar og loftlagsbreytinga af manna völdum. Gore hefur ferðast um heiminn og haldið fyrirlesturinn í þrjátíu ár, en umhverfisvernd er eitt af hans helstu áherslumálum í póli- tíkinni. Ólíkt því sem ætla mætti um heimildarmynd sem fjallar um fræðslufyrirlestur hefur myndin hlotið sterkar viðtökur, hún hefur unnið til verðlauna og sópað til sín áhorfendum. Hér sjáum við allt aðra hlið á Al Gore en fjölmiðlar birtu okkur í aðdragana forsetakosning- anna árið 2000, í stað hins meinta spýtukarls sem Gore var sagður vera, birtist okkur skarpur og ein- beittur hugsjónamaður sem notar bæði gáfur sínar og þjálfun á vett- vangi stjórnmálanna til þess að beita sér fyrir knýjandi málefni. Því fyrir flestum sem sjá þessa mynd er hug- takið „gróðurhúsaáhrif“ orðið að við- kvæði sem við hugsum lítið um, en fyrirlestur Gore gengur út á það að sýna okkur skref fyrir skref og í skýru en vel rökstuddu máli, að við erum hreinilega fallin á tíma með að virða umhverfi okkar að vettugi. Hugmyndin um gerð mynd- arinnar mun hafa kviknað þegar að- standendur hennar heilluðust af fyr- irlestri Gore og stungu upp á að miðla honum í gegnum kvikmynd, svo hann gæti náð til breiðari áheyr- endahóps. Þar með má segja að verkefnið hafi orðið tvíþætt þar sem myndin miðlar annars vegar rök- semdum og fræðsluefni Gore, en fjallar á sama tíma um manninn sjálfan, pólitíkus sem var að margra mati kosinn forseti Bandarikjanna en missti stólinn í hendur bíræfins andstæðings síns vegna vafasamrar og umdeildrar framkvæmdar kosn- inganna í Flórída-fylki. Þannig miðl- ar kvikmyndin fyrirlestri Gore skref fyrir skref en fléttar inn í hana við- talsbrotum við Gore sjálfan þar sem hann lýsir því hvernig hann fyrst fékk áhuga á umhverfismálum, og lýsir áhrifavöldum úr persónulegu og faglegu lífi sínu. Gore lýsir því m.a. hvernig áföll á báðum sviðum hafa mótað sýn hans á það sem hon- um þykir mestu máli skipta í lífinu, og hvernig hann reis upp eftir áfall kosninganna árið 2000 og tók að ein- beita sér á ný að því sem hann hefur mesta ástríðu fyrir, þ.e. umhverf- ismálunum. Sjálfur málflutningur Gore er gríðarlega sterkur og einbeittur, og þó svo að um margt sé deilt varðandi það hver endanleg áhrif hlýnunar í lofhjúpi jarðar verða, sýnir hann svo ekki verður um villst að gróðurhúsa- áhrifin eru staðreynd og að nauðsyn- legum viðbrögðum við þeim hættum sem steðja að umhverfinu er drepið á dreif af öflum í pólitík og viðskipta- lífinu sem telja slík viðbrögð vinna gegn skammtímahagsmunum sín- um. Þannig má segja að Gore vinni í senn með vísindalega og pólitíska umræðu í fyrirlestri sínum, er hann leitast við að miðla vísindalegum staðreyndum og kenningum, um leið og hann tekur fyrir þá pólitísku orð- ræðu sem skapast hefur í kringum umhverfismál, og tekur á vel rök- studdan máta fyrir rök þeirra sem vilja draga úr mikilvægi umhverf- isverndar. Óþægilegur sannleikur er kvikmynd sem vekur áhorfendur svo sannarlega til umhugsunar og er mikilvægt framlagt til baráttunnar fyrir aukinni vitund um mikilvægi breyttra lífshátta í þágu umhverf- isverndar. Ekki af baki dottinn Reuters Umhverfisvernd „Myndin hverfist um myndskreyttan fyrirlestur Al Gore um þær hættur sem steðja að lífríki jarðar vegna umhverfismengunar og loftlagsbreytinga af manna völdum,“ segir meðal annars í dómi. Kvikmynd IFF. Háskólabíó. Leikstjórn: Davis Guggenheim. Fram koma: Al Gore ofl. Heimildarmynd. Bandaríkin, 100 mín. Óþægilegur sannleikur (An Inconvenient Truth)  Heiða Jóhannsdóttir AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Leikarinn Brad Pitt segist ekkiætla að giftast sinni heittelsk- uðu, Angelinu Jolie, fyrr en allir aðrir Bandaríkjamenn geti gengið í hjónaband. Vísar hann þar til bandarískra laga sem meina fólki af sama kyni að láta gefa sig sam- an. Pitt, sem áður var giftur leikkon- unni Jennifer Aniston, greindi frá þessu í nýjasta hefti tímaritsins Esquire. Pitt og Jolie eignuðust í maí dótturina Shiloh Nouvel en fyrir hafði Jolie ættleitt börn- in Maddox og Zahara. Pitt segist hik- laust geta mælt með ættleið- ingum og segist líta á börnin þrjú jafnt sem sín eig- in, hann geti ekki ímyndað sér líf sitt án neins þeirra. Pitt ber fjölskyldulífinu vel sög- una og segr þau Jolie dugleg að ræða málin við börnin sín. Nýverið var afhjúpuð vaxmynd af Shiloh í Madame Tussaud vax- myndasafninu í New York þar sem hún er sýnd sofa vært með foreldr- ana standandi yfir sér. Pitt leikur heimshornaflakkara í nýútkominni mynd sem nefnist Babel. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.