Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 11
fangelsum hér heima og þá hafi farið
að bera á að erlend burðardýr voru
fengin til að reyna að koma fíkniefn-
unum framhjá íslenskri tollgæslu.
Flest á vegum Íslendinga, þótt það
hafi ekki fengist staðfest í öllum til-
vikum. Sum þessara burðardýra
náðust og lentu í íslenskum fangels-
um. Að sjálfsögðu tókst kunnings-
skapur með þeim og Íslendingunum
sem fyrir voru, sem allt í einu kom-
ust í ný og betri sambönd í erlendum
fíkniefnaheimi. „Á þessu tímabili
upplýstist meðal annars að menn
reyndu að skipuleggja stórsmygl á
meðan þeir sátu í fangelsi,“ segir Jó-
hann.
Það er að sjálfsögðu erfitt að festa
hendur á nákvæmlega hvenær
skipulögð glæpastarfsemi í
tengslum við fíkniefnainnflutning
teygði anga sína hingað. Tilraunir
norrænna Vítisengla, eða Hell’s
Angels, til að ná hér fótfestu í upp-
hafi árs 2002 eru þó skýrt dæmi um
slíkt. Nítján danskir Vítisenglar
voru stöðvaðir við komuna til lands-
ins og meinuð landganga. Þeir höfðu
m.a. hlotið dóma fyrir morð, mann-
drápstilraunir, mannrán, fíkniefna-
smygl og ofbeldisbrot. Danska lög-
reglan hafði fundið gögn í fórum
þeirra, þar sem fram kom að fram-
tíðarmarkmið samtakanna var að
skipta Evrópu upp í þrjú umráða-
svæði og stofna deildir sem víðast,
þar á meðal á Íslandi.
Nokkrum mánuðum síðar spurðist
að allmargir Vítisenglar hefðu ætlað
að koma með farþegaferjunni Nor-
rænu til landsins, en hætt við förina.
Fyrri dæmi um áhuga Vítisengla á
Íslandi voru þekkt. Þannig fékk lög-
regla upplýsingar um það árið 1997
að nektarstaðir á Íslandi tengdust
kanadískum fyrirtækjum í eigu þar-
lendra Vítisengla.
Þótt Vítisenglum hafi ekki tekist
að koma ár sinni fyrir borð hér á
landi, þá hafa Íslendingar tengst
samtökunum. Í ágúst 2002 var m.a.
skýrt frá hótunum Vítisengla í garð
starfsmanna íslenska sendiráðsins í
Kaupmannahöfn. Þeir heimtuðu að
fá afhentan Íslending, sem hafði
komist í skuld við þá vegna fíkni-
efnaviðskipta.
Menn úr norskum bifhjólasamtök-
um gerðu líka tilraunir til að koma
hingað til lands. Sex félögum í
klúbbnum Savage MC, sem tengist
Vítisenglum, var meinuð landganga
á Seyðisfirði í júlí 2002 og fimm
norskum Vítisenglum var vísað úr
landi þegar þeir komu til Keflavíkur
í desember ári síðar.
Enn voru danskir bifhjólamenn
efur skotið rótum á Íslandi
yfirvöld í Evrópu eiga við ramman
reip að draga. Fíkniefnamarkaður-
inn veldur þar mestum vanda.
Framleiðsla, dreifing og sala á
verksmiðjuframleiddum fíkniefn-
um, s.s. amfetamíni, færist mjög í
vöxt og hvergi er framleitt meira
af þeim en í Evrópu.
Lausleg net glæpamanna
Europol segir að uppbygging
skipulagðrar glæpastarfsemi hafi
breyst á undanförnum árum. Þótt
vissulega séu til glæpasamtök, sem
starfi eftir stigskiptu valdakerfi,
séu mörg þeirra lausleg net
glæpamanna, sem hafi ákveðið
sjálfstæði þótt þeir sameinist í
verkefnum fyrir yfirmann, einn
eða fleiri. Þessi glæpanet taki að
sér verkefni af ýmsum toga, sam-
kvæmt eftirspurn og gróðavon.
„Þetta þýðir hins vegar ekki að
glæpasamtökin séu óskipulögð.
Finna má skipulag í því sem virð-
ist glundroðakennt og síbreytilegt
fyrirkomulag glæpasamtaka,“ seg-
ir í skýrslunni.
Loks skal svo gripið niður í
skýrsluna þar sem rætt er um
hvernig stækkun Evrópusam-
bandsins, með tilheyrandi nið-
urfellingu á raunverulegum landa-
mærum, hefur ýtt undir starfsemi
skipulagðra glæpasamtaka. Frjálst
flæði vöru og fólks auðveldar
glæpasamtökum starfið, á meðan
enn ríkja stjórnskipuleg landa-
mæri sem gera löggæslu erfitt fyr-
ir. Ríki, sem skipulögðum glæpa-
samtökum hafi ekki þótt fýsileg
hingað til, séu nú auðveldari bráð
en áður og sameiginlegur gjald-
miðill, evran, auðveldar fjármagns-
flutninga milli landa. Þar sem
glæpasamtökin verði sífellt al-
þjóðlegri í starfsemi sinni verði
löggæslustarfsemi að taka upp
sama háttinn.
Arnar Jensson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra,
fer á næsta ári til Europol sem
tengifulltrúi. Hann segir að hlut-
verk sitt þar sé enn ómótað, enda
hafi íslenska lögreglan ekki átt þar
fulltrúa áður. Hins vegar sé ljóst
að Europol einbeiti sér að aðgerð-
um gegn hryðjuverkum og skipu-
lagðri glæpastarfsemi. Forgangs-
röðunin sé mismunandi, en sitt
hlutverk verði að koma íslenskri
lögreglu í nánari tengsl við Euro-
pol.
Innflytjendagengi taka völdin
í Danmörku
Danska lögreglan sendi nýlega
frá sér skýrslu, þar sem metin var
staða skipulagðrar glæpastarfsemi
hjá þessari nágrannaþjóð okkar.
Ekki kemur á óvart að Danir eru
sem fyrr að kljást við bifhjólasam-
tökin Hell’s Angels og Banditos.
Lögreglan hefur gengið hart fram
gegn þessum hópum og sitja fjöl-
margir félagar þeirra í dönskum
fangelsum, en mörg dæmi eru
jafnframt um að menn hafi forðað
sér úr landi og reynt að hasla sér
völl annars staðar. Þannig starfa
danskir Vítisenglar til dæmis á
Norður-Írlandi og á eyjunni
Curacao í Karíbahafi og danskir
meðlimir Banditos hafa lagt
áherslu á aukna starfsemi í Asíu.
Danir greina töluverðar breyt-
ingar í þessum heimi, því nú hafa
ýmsir glæpahópar manna af er-
lendum uppruna haslað sér völl í
Danmörku. Má þar nefna glæpa-
menn frá Eistlandi, Lettlandi og
Litháen. Litháar komu m.a. við
sögu í stórum fíkniefnamálum á
síðasta ári og glæpaklíkur þaðan
stunduðu stórfelldan þjófnað.
Serbneskir glæpamenn hafa einnig
verið áberandi og í sumum tilvik-
um tekið upp samstarf við glæpa-
klíkur bifhjólasamtaka. Af öðrum
hópum, sem hafa skotið upp koll-
inum í Danmörku, má nefna Alb-
ana og Nígeríumenn, en síðar-
nefndi hópurinn stundar m.a. ýmis
fjársvik, líkt og borið hefur á hér á
landi.
Á síðasta ári sagði Lene Esper-
sen, dómsmálaráðherra Danmerk-
ur, að það yrði forgangsverkefni
lögreglunnar að ráða niðurlögum
ofbeldisfullra innflytjendagengja,
sem réðu nú lögum og lofum í
dönskum undirheimum. Liðsmenn
þessara gengja þættu svo hrotta-
fengnir, að jafnvel fylgismenn
Hell’s Angels og Banditos óttuðust
þá.
mest í Evrópu
Morgunblaðið/Sverrir
Stöðvaðir Vítisenglar hafa reynt
að koma ár sinni fyrir borð á Ís-
landi.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 11
Kaunas er næst stærsta borg
Litháen og þar er vagga skipu-
lagðrar glæpastarfsemi í land-
inu. Vitað er að þar fer fram
mikil framleiðsla á fíkniefnum.
Margir þeirra Litháa sem
hafa komið við sögu lögreglu
og tollvarða hér á landi hafa
komið frá Kaunas, eða haft
tengsl við borgina. Má þar
nefna að maðurinn sem fannst
látinn í höfninni í Neskaupstað,
með fíkniefni í maganum, var
frá Kaunas. Landi hans, sem
var dæmdur í ágúst sl. fyrir að
reyna að smygla tæpum tveim-
ur lítrum af amfetamínbasa á
flöskum, sagðist hafa keypt
flöskurnar í heimabæ sínum,
Kaunas. Og tveir landar
þeirra, sem reyndu að smygla
4 kílóum af amfetamíni í bif-
reið með Norrænu á síðasta
ári, voru frá Kaunas.
Framleiðslu-
staðurinn
»Menn hljóta að
hugleiða hvað er að
gerast þegar við náum
40–60 þúsund skömmt-
um. Hvað átti að gera
við allt þetta efni hér?
Morgunblaðið/Kristinn
Fíkniefni E-töflur og kókaín, sem lögreglan hefur gert upptæk.