Morgunblaðið - 08.10.2006, Side 19
væri ekki mismunun? En að mínu
mati er það ekki svo, svona nám-
skeið er sértæk aðgerð sem leitast
við að jafna mun kynjana og leið-
rétta þá mismunun sem er í stjórn-
málum í dag, þar eru karlar hið
ríkjandi kyn. Það er í raun eft-
irspurn eftir svona kennslu t.d. í
framkomu, ræðumennsku og fund-
arstjórn. Reynsla mín er sú að
mikilvægast er að ná konum saman
einmitt til að hvetja þær til þátt-
töku. Þær halda að þær þurfi að
kunna allt mögulegt til að taka
þátt í sveitarstjórnum, þær hræð-
ast kerfið. Mér finnst þetta mik-
ilvægt því konur kalla á fleiri kon-
ur, það er mín reynsla,
margfeldisáhrif af hverri konu eru
dýrmæt og það er líka dýrmætt að
fá þessa umræðu fram á kosn-
ingaári.“
Í máli Margrétar kom fram að
þegar leitað sé til kvenna séu þær
oftast með um 70 stunda vinnuviku
á bakinu alls.
„Ég hef gert könnun á þessu og
veit að þær sinna gjarnan 40
stundir vinnuviku, 18 stunda heim-
ilisstörfum og 15 stundum í fé-
lagsstörf á viku.
Það sýnist augljóst að leitað sé
til duglegra kvenna sem varla geta
bætt við sig – þetta er mín nið-
urstaða.“
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
nefndur til sögunnar vegna öflugra
stjórnmálanámskeiða fyrir konur,
telur Sigríður Anna Þórðardóttir
hjá Sjálfstæðisflokki þörf á meiru í
þessa átt?
„Ég tel að þetta framtak sé
mjög gagnlegt en vísa jafnframt til
að stjórnmálanámskeið sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur í mörg ár
haldið fyrir konur sérstaklega hafa
verið mjög vinsæl og fjölsótt og
eru því síendurtekin. En mér
finnst þetta virðingarvert hjá Fem-
ínistafélaginu að brydda upp á
þessu og spennandi að sjá hvað
kemur út úr þessu.
Ég tel að öll skólun á þessum
vettvangi sé af hinu góða fyrir alla
þá sem hugsa sér að hasla sér völl
í pólitík eða vilja kynnast stjórn-
málum betur. Svona námskeið,
bæði fyrir konur og karla, eru
mjög mikilvægur þáttur í starfi
stjórnmálaflokks t.d. Sjálfstæð-
isflokksins. Ég býst við að þetta sé
gert núna af hálfu Femínistafélags-
ins vegna þess að nú eru flokkar
að stilla upp á lista hjá sér og vilja
auka hlut kvenna. Kvenréttinda-
félagið hefur líka verið gríðarlega
mikilvægur vettvangur fyrir konur,
– þar hafa konur úr öllum flokkum
átt sameiginlegan vettvang. Kven-
réttindafélag Íslands er eitt af
elstu félögum landsins. Ég tel að
okkur miði í rétta átt við að fjölga
konum á áhrifastöðum en það þarf
að gera miklu betur, enn meiri
breytinga er þörf, ekki síst í launa-
málum. Fjárhagslegt sjálfstæði
kvenna er lykill að þátttöku þeirra
í stjórnmálum og til áhrifa á öðrum
sviðum samfélagsins.“
Í fréttatilkynningu sem Fem-
ínistafélagið sendi frá sér segir:
„Vonir standa til að skólinn virki
hvetjandi fyrir konur til að gefa
kost á sér í prófkjörum en einnig
til að kjósa aðrar konur og leið-
rétta þannig þá kynjaskekkju sem
virðist vera rótföst í stjórn lands-
ins.“
Það er sem sé ekki nóg að konur
bjóði sig fram, það þarf að kjósa
þær til stjórnmála- og áhrifastarfa.
Þar geta þær konur sem ekki vilja
sjálfar fram á sviðið komið til
skjalanna, hvar í flokki sem þær
standa. Í prófkjörum er þetta oft-
ast góður möguleiki. Konur þurfa
að mynda breiðfylkingu til að auka
hlut kvenna í stjórn landsins,
hvaða stjórnmálaskoðun sem þær
hafa, þær ættu hvorki að vanmeta
þær konur sem bjóða sig fram né
heldur mátt sinn til að koma þeim
áfram á þingi, sveitarstjórnum eða
innan stofnana og fyrirtækja.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 19
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
22
92
7
Beint morgunflu
g
Fuerteventura
frá 37.895 kr.*
37.895 kr.
Hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð
30. jan., á Oasis Royal íbúðahótelinu ***.
Netverð á mann.
*
59.890 kr.
- allt innifalið
Gisting í tvíbýli í viku á Jandia Mar
hótelinu **** með allt innifalið. 30. janúar.
Netverð á mann.
- Kanaríeyjan sem sló í gegn
hjá Íslendingum í sumar
Ótrúlegt verð!
í vetur