Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 29
Fyrsta barnið fæddist andvana
Ég gifti mig ung. Maðurinn minn
var einbirni einstæðrar móður.
Borghildur hét móðir hans og var
vinnukona fyrst með hann hjá góð-
um hjónum en svo fór hún hálf-
nauðug til föður síns þegar ráðskona
hans dó, til að hjálpa honum við bú-
skapinn. Hún fékk bílfar austur en
svo varð hún að ganga mestalla leið-
ina frá Selfossi austur í Rangár-
vallasýslu. Maðurinn minn fermdist
árið sem afi hans dó, þá var móð-
urbróðir hans tekinn við jörðinni,
hann eignaðist 14 börn.
Eftir ferminguna bað Borghildur
foreldra mína fyrir son sinn, ég man
ekki eftir honum þá, en hann kom
alltaf heim af og til eftir þetta. Þegar
ég var 12 ára fór ég að líta hann öðr-
um augum en annað fólk, hann var
þá 19 ára. Það mynduðust einhver
tengsl sem maður býr ekki til sjálf-
ur, andleg tengsl, við vorum vinir og
skrifuðumst stundum á, en gerðum
ekki alvöru úr neinu fyrr en við gift-
um okkur. Þá var ég 23 ára gömul.“
Varstu þá aldrei með neinum öðr-
um?
„Nei, það var ekki pláss fyrir
neinn annan, er ekki og mun aldrei
verða. Ég er eins manns kona. Ef ég
tek tryggð við eitthvað þá er það al-
gjört, hvort sem það er maður, jurt
eða skepna. Ég hef heldur aldrei
drukkið vín né reykt sígarettu.
Maðurinn minn, Leó Viggó Jó-
hannsen, starfaði í Reykjavík þegar
við hófum búskap og ég gerði það
líka. Ég vann á prjónastofunni Malín
í fimm ár en hann var við uppskipun
á höfninni. Þá mokuðu menn bæði
kolum og salti í poka og báru þá svo
Morgunblaðið/Sverrir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 29
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
HEFUR ÞÚ SÉÐ
SKAMMDEGIS-
ÞUNGLYNDI?
Ef vetrardrunginn dregur þig niður þá
getur hjálpað að auka hreyfingu og nýta
alla birtu sem gefst. Gönguferð í hádeginu
margborgar sig.
Endurnýjaðu svefnherbergið
Ármúla 10 • Sími: 5689950RO
YA
L
20%
afsláttur
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM RÚMGÖFLUM, NÁTTBORÐUM,
RÚMTEPPUM OG SÆNGURFATNAÐI ÞESSA VIKU.
AFHENDING FYRIR JÓL.
Fullkomnaðu
verkið með
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700