Morgunblaðið - 08.10.2006, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 77
menning
Umsóknarfrestur 27.október 2006.
www.nordiskkulturfond.org
Norræni menningarsjóðurinn
sækist eftir nýjum forstjóra
á skrifstofunni í Kaupmannahöfn.
Afþreyingarbókmenntirskrifaðar fyrir konur virð-ast bera með sér álíka svip
sama hvaða öld þær eru skrifaðar
á. Áður fyrr voru þær þó meiri
bókmenntir, t.d. bækur Jane Aus-
ten, en rauðu ástarsögurnar sem
tröllriðu bókaskápum kvenna
seinustu áratugi tuttugustu aldar.
Markaðurinn sér mikinn gróða í
að selja konum riddarann á hvíta
hestinum og hefur fjöldaframleitt
ástarsögur með afar slæmum les-
vænlegum árangri að mati grein-
arhöfundar. Árið 1996 urðu þátta-
skil í ástarsöguskrifunum þegar
breski rithöfundurinn Helen Fi-
elding gaf út bókina Bridget Jon-
es’s Diary, kom þá fram ný gerð
af ástarsögum sem höfðar betur
til nútímakvenna en Rauða serían.
Flestar konur lásu Bridget Jones,
fundu sig í henni og vildu vera
hún, Miss Jones-æði gekk yfir
heiminn og Sex and the City bætt-
ist í hópinn. Enda fjalla þessar
nýju ástarsögur iðulega um unga
stórborgarkonu í lífskreppu og
ástarleit, eins og Bridget Jones og
persónurnar í Sex and the City.
Ólíkt rauðu ástarsögunum eruþetta glaðlegar bækur sem
draga ekki upp mynd af fullkom-
inni konu en líkt og rauðu ást-
arsögurnar eru þær ekki raunsæj-
ar. Aðalpersónunni gengur
yfirleitt allt í haginn, býr í iðu
stórborgar og fyrir utan vinnuna
snýst lífið um að versla, hitta vin-
ina, djamma, drekka og tala um
karlmenn. En vegna eigin klaufa-
skapar eða óvæntra atburða þarf
aðalsöguhetjan að breyta lífs-
mynstri sínu eða takast á við eitt-
hvað ólíkt því sem hún er vön.
Bókin fjallar svo um það hvernig
hún leitar leiða út úr ýmsum að-
stæðum sem tengjast breyting-
unum og hvernig lífsviðhorfin
breytast í leiðinni, yfirleitt til
batnaðar. Í leit að lausn kynnist
aðalpersónan karlmanni sem hún
þolir ekki í fyrstu. Eins og í
rauðu ástarsögunum eru þeir
ímynd karlmennskunnar, Mr.
Darcy- eða Mr. Big-gerðin, þeir
eru í góðum stöðum og valds-
mannslegir. Fyrir miðri bók upp-
götvar aðalpersónan ást sína til
þessa óþolandi manns og seinni
helmingurinn af bókinni fer í að
leita lausna á því hvernig eigi að
vinna ást hans. Þegar nálgast
enda bókar kemst hún að því að
þessi maður ber líka ást til henn-
ar og allt endar vel. Líkt og í
rauðu ástarsögunum eru skila-
boðin til kvenna þau að ást karl-
manns sé lausn allra vandamála.
Saga af stúlku sem þarf aðslaka á. Finna sjálfa sig.
Verða ástfangin. Og uppgötva
hvernig straujárn er notað …“
Svona hljómar innihaldslýsingin á
bókinni The Undomestic Goddess
sem Sophie Konsella gaf út á
seinasta ári, það þarf ekki að orð-
lengja það að þegar stúlkan upp-
götvar straujárnið verður hún
ástfangin. Sophie Konsella er ein
af Barbörum Cartland þessarar
ástarsagnagerðar en henni skaut
upp á stjörnuhimininn með „Sho-
paholic“-bókum sínum. Önnur í
þessum bókmenntageira sem hef-
ur hlotið álíka frægð og Konsella
er Marian Keyes.
Vissulega eru þetta yfirleittskemmtilegar bækur og góð
afþreying en eins og með Rauðu
seríuna er þetta nútímaævintýri
þar sem það er sama hvað konan
er í góðri stöðu eða þykist vera
sjálfstæð þá snýst allt um að finna
þann eina rétta, falla í arma hans
og lifa hamingjusöm til æviloka.
Bækurnar hafa líka þau klassísku
einkenni ástarsagna að ef þú ert
búin að lesa nokkrar þá ertu búin
að lesa þær allar.
Hamingjusöm til æviloka
» „Bækurnar hafa líkaþau klassísku ein-
kenni ástarsagna að ef
þú ert búin að lesa
nokkrar þá ertu búin að
lesa þær allar.“
Morgunblaðið/Eyþór
Bækur Bridget Jones-legar ást-
arsögur höfða betur til ungra
kvenna en Rauða serían. ingveldur@mbl.is
AF LISTUM
Ingveldur Geirsdóttir
DAGSKRÁ: Sunnudag 8. okt.
HÁSKÓLABÍÓ Salur 1
Kl. 16.00 Gasolin
Kl. 18.00 The Secret Life of Words
Kl. 20.00 The US vs. John Lennon
Kl. 22.30 Mezcal
HÁSKÓLABÍÓ Salur 2
Kl. 16.00 Frozen City
Kl. 18.00 We Shall Overcome
Kl. 20.30 Life in Loops
Kl. 22.30 Daft Pink’s Electroma
HÁSKÓLABÍÓ Salur 3
Kl. 18.00 The Sun
Kl. 20.30 The Sweet Hereafter
HÁSKÓLABÍÓ Salur 4
Kl. 22.00 The Time for Drunken
Horses
TJARNARBÍÓ
Kl. 14.00 Anna and the Moods
Kl. 16.00 Before Flying Back to the
Earth
Kl. 18.00 Glue
Kl. 20.00 Falkenberg Farewell
Kl. 22.00 Fresh Air
IÐNÓ
Kl. 14.00 When Children Play in the
Sky
Kl. 16.00 When Children Play in the
Sky
Kl. 18.00 Short Film Program 2
Kl. 20.00 Act Normal
Kl. 22.00 The Girl is Mine
Dóma um myndir Kvikmyndahá-
tíðar er að finna á síðu 75.
TENGLAR
..............................................
www.filmfest.is
Kvikmyndahátíð
í Reykjavík
Fréttir á SMS