Morgunblaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 45. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÚTSJÓNARSEMI
HUGMYNDARÍKUM BÚNINGAHÖNNUÐUM ERU
ALLIR VEGIR FÆRIR FYRIR ÖSKUDAG >> 22
MARÍA ELLINGSEN OG
FRAMTÍÐARLANDIÐ
HUGMYNDIR
FYRIR ÞJÓÐINA >> 12
NÝ skýrsla Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, Unicef, um velferð barna og unglinga
í ríkustu löndum heims kom út í gær. Ís-
land var ekki með vegna ónógra gagna en
forstjóri Innocenti, rannsóknastöðvar
UNICEF, segir að þar sem gögn voru fyrir
hendi hafi Ísland komið vel út. Er landið til
dæmis í öðru sæti á eftir Svíþjóð þegar
kemur að heilsufari barna og tíðni ung-
barnadauða er minnst hér. Staða mennta-
mála er sögð í meðallagi hérlendis.
En 10% íslenskra ungmenna segjast hins
vegar vera einmana og utangarðs, meðal-
talið annars staðar er um 5%. | 16
Íslensk börn að
jafnaði heilsugóð
Morgunblaðið/RAX
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„VIÐ eigum engin meðul við þessu,“ segir
Guðríður Óskarsdóttir, skólastjóri í Set-
bergsskóla, og á þar við hversu erfitt sé að
eiga við það þegar mikil veikindi eru meðal
starfsmanna skólans
en þrettán þeirra voru
lagstir í flensu í gær.
Fleiri tugir barna
voru einnig lasnir og
vegna manneklunnar
voru elstu nemend-
urnir sendir heim.
Árstíðarbundna
flensan sem herjar nú
á landsmenn er í með-
allagi slæm. Hún hef-
ur hins vegar ekki náð
hámarki ennþá og því
viðbúið að fleiri leggist á næstu dögum og
vikum. Á hverju ári veðjar Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin (WHO) á af hvaða stofni
næsta flensa verði og í samræmi við mat
stofnunarinnar er framleitt bóluefni. Segja
má að WHO hafi hitt naglann á höfuðið að
þessu sinni, því hingað til hefur eingöngu
greinst flensa af A H3N2 stofni hér á landi,
líkt og stofnunin spáði.
Ákveðnir áhættuhópar
Mælst er til að allir eldri en 60 ára láti
bólusetja sig fyrir inflúensu árlega. Einnig
börn og fullorðnir, sem þjást af langvinnum
sjúkdómum.
Á hverju ári eru seldir milli 50 og 55 þús-
und skammtar af inflúensubólefni og hefur
sú tala haldist svipuð undanfarin ár. Ekki er
til miðlæg skrá um hverjir láta bólusetja sig.
Það horfir þó til betri vegar því slík skrá er í
undirbúningi.
Ekki er hefð fyrir því hér líkt og t.d. í
Bandaríkjunum að börn séu bólusett fyrir
flensu, en þó er ekkert sem mælir gegn því
þar sem bóluefnin eru álitin skaðlaus og
aukaverkanir yfirleitt óverulegar. Þórólfur
Guðnason, yfirlæknir hjá sóttvarnalækni,
bendir á að börn séu miklir smitberar og að
rætt hafi verið um að bólusetja þau. Það
myndi hins vegar skapa gríðarlegt álag á
heilsugæslustöðvar.
„Það er opinbert markmið heilbrigðisyf-
irvalda að fjölga inflúensubólusetningum og
þá einkum meðal áhættuhópa,“ segir Þór-
ólfur og bendir á að í haust hafi innkaup á
bóluefni verið boðin út og í því sé gert ráð
fyrir 60 þúsund skömmtum sem yrðu veru-
lega niðurgreiddir af hinu opinbera. Verði
þeir allir nýttir mun fjórðungur þjóðarinnar
vera bólusettur árlega.
Sóttvarnalæknir telur að bólusetning
verndi allt að 60–80% bólusettra gegn inflú-
ensu. Hins vegar má ekki gleyma því að á
veturna ganga ýmsar misslæmar umgangs-
pestir sem bóluefnið hefur engin áhrif á.
WHO telur að bólusetningar gegn inflúensu
geti dregið úr sjúkrahúsinnlögnum aldraðra
utan stofnana sem nemur 25–30% og jafn-
framt geti þær dregið úr heildardánartíðni
aldraðra um 39–70% þegar inflúensufarald-
ur gengur.
Bóluefni
fyrir fjórð-
ung þjóð-
arinnar
Eftir Silju Björk Huldudóttur
og Rúnar Pálmason
TOLLGÆSLAN í Reykjavík lagði
fyrir síðustu helgi hald á lang-
stærstu sendingu af efedríntöflum
sem fundist hefur hér á landi, eða
alls um 220.000 töflur sem rann-
sóknir benda til að innihaldi allar
blöndu af efedríni og koffíni. Efnin
eru vinsæl meðal sumra íþrótta-
manna þar sem þau þykja auka
brennslu og þol en efedrín er ólög-
legt hér á landi. Að sögn Harðar
Davíðs Harðarsonar, aðaldeildar-
stjóra Tollgæslunnar í Reykjavík,
er þetta stærsta slíka sendingin
sem náðst hefur. Nokkur þúsund
töflur hefðu hingað til talist stór
sending. Málið var í gær sent til
lögreglunnar í Reykjavík til frek-
ari rannsóknar.
„Við stöðvuðum sendinguna fyr-
ir síðustu helgi, þar sem okkur
grunaði að innihaldið væri annað
en uppgefið var,“ segir Hörður, en
í innihaldslýsingu var uppgefið að
sendingin innihéldi fæðubótarefni í
töfluformi. Efnið var sent til grein-
ingar hjá Rannsóknarstofnun í
lyfja- og eiturefnafræðum sem
staðfesti að um efedrín og koffín
væri að ræða.
Að sögn Magnúsar Jóhannsson-
ar, læknis og prófessors við Há-
skóla Íslands, er efedrín örvandi
efni skylt amfetamíni en hefur
veikari verkun. Segir hann lyfið
hafa verið notað lengi sem lyf þar
til fyrir tveimur árum að það var
tekið af markaði víðast hvar í heim-
inum og bannað þar sem sannað
þótti að lyfið hefði afar hættulegar
aukaverkanir og er heilablæðing
þeirra alvarlegust.
Að sögn Magnúsar var blanda af
efedríni og koffíni um árabil notað
sem megrunarlyf í Danmörku.
Segir hann lyfið einnig hafa verið
vinsælt hjá íþróttamönnum þar
sem það þykir auka brennslu og
þol. Bendir Magnús á að lyfið hafi
hins vegar verið ólöglegt innan
íþróttahreyfingarinnar svo áratug-
um skipti.
Lögðu hald á 220.000
ætlaðar efedríntöflur
Efedrín bannað vegna hættulegra aukaverkana á borð við heilablæðingu
Í HNOTSKURN
»Efedrín er örvandi efniskylt amfetamíni.
»Það var notað sem lyfþar til fyrir tveimur ár-
um er það var tekið af
markaði og bannað.
»Efedrín þykir aukabrennslu og þol.
MILDI var að ekki hlaust slys af þegar pallur
losnaði af vörubíl í hringtorgi á Vesturlands-
vegi í gær. Á pallinum var mikill fleygur sem
verið var að flytja og varð óhappið þegar bíll-
inn ók inn í ytri hringinn og féll hlassið í innri
hring. Þar var hinsvegar enginn bíll á því
augnabliki og telur lögreglan það mikla mildi.
Lögreglubíll ók næst á eftir bílnum fyrir til-
viljun og tók skýrslu.
Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson
Mildi að ekki varð slys er hlass féll af vörubifreið