Morgunblaðið - 15.02.2007, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Og hvaða knattspyrnufélag ætlar þú að kaupa þegar þú verður orðinn stór, Geiri minn?
VEÐUR
Það er ánægjulegt að dagblöðum erað fjölga. Þau eru að verða fimm
eins og þau voru. Auk Morgunblaðs-
ins, Fréttablaðsins og Blaðsins er Við-
skiptablaðið, sem Óli Björn Kárason
stofnaði á sínum tíma, orðið að dag-
blaði, sem kemur út 5 daga vikunnar.
Innan tíðar verður DV aftur gert að
dagblaði, sennilega sex daga vik-
unnar og í dag bætist nýtt vikublað í
hópinn, sem er Króníkan.
Síðastnefnda blaðið mun ekki síztvekja athygli vegna þess að því er
ritstýrt af kraftmiklum konum, sem
láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Með því verður fylgzt hvort efnisval
og efnistök verða önnur en á þeim
blöðum, sem karlar stýra. Í þeim efn-
um getur Króníkan orðið áhugaverð.
Það á eftir að koma í ljós hvort fjár-hagslegur grundvöllur er fyrir
rekstri þessara blaða en sú staðreynd
ein að svo mikill áhugi er á blaða-
útgáfu á tímum netmiðla og annarra
miðla nútímans hlýtur að hlýja þeim
um hjartarætur sem lengi hafa unnið
við blöð.
Gagnstætt því sem margir haldafagna þeir hinir sömu fjölgun
blaðanna. Litróf þeirra verður
breiðara og skemmtilegra. Sam-
keppnin öðru vísi.
Margir hafa spáð því á und-anförnum árum að tími blað-
anna sé að líða. Grózkan í útgáfu dag-
blaða og vikublaða bendir ekki til
þess. Fríblöðin hafa hleypt krafti í
blaðaútgáfuna þótt þau standi nú í
vaxandi mæli frammi fyrir alvöru lífs-
ins bæði hér og annars staðar.
Morgunblaðið býður nýja keppi-nauta á blaðamarkaðnum vel-
komna til leiks.
STAKSTEINAR
Lífleg blaðaútgáfa
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
-.
-/
-0
-'
-1
2'1
2-0
2-
2(
'0
3 4!
3 4!
3 4!
4!
4!
)
%
! 5
3 4!
3 4!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
6
2(
/
7
(
8
7
/
/
(
2'
4!
!
4!
3 4!
3 4!
4!
4!
4!
)*4!
! "12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
0
.
'
6
1
2-6
6
2(
7
2'
.
4!
4!
9 4!
4!
! 4!
4!
3 4!
4!
4!
9! :
;
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
:;
=
7- >
!! <
=2 =2* *% 9
=2
>
?
@ 2
2
/
* >3
2
3
<6 =
* >-62-(:>)
2
"
9
2
>
? %
6 7
A9 *4
*B
"3(4?
?<4@"AB"
C./B<4@"AB"
,4D0C*.B"
618
.--
6>1
6>0
066
/6/
8-0
''-
--''
-.'8
-016
(..
-/'6
-8'.
''6/
-1'.
8'1
816
8'.
(0/
-(66
-/00
-/.(
-/'/
'.'7
'6'8
.>0
->8
->'
->/
->6
6>.
6>'
6>0
.>.
->/
->-
->0
6>(
6>.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Aðalheiður Jónsdóttir | 13. febrúar
Beltin spennt
Maður hefur varla við að fylgjast
með breyttum kröfum í
flugferðum. Undan-
farið hef ég tekið eftir
aukinni áherslu á að
sitja kyrr í sætinu með
sætisbeltin spennt,
helst allan tímann. Þar
áður var mikil áhersla lögð á að
hreyfa sig sem mest um farþega-
rýmið til að ferðin hefði ekki slæm
áhrif á líkamann. Það er eins og
þessar reglur séu settar til að bregð-
ast við einhverju sem gerist […]
Meira: fararstjorinn.blog.is
Margrét Sverrisdóttir | 13. febrúar
Mjög sátt þjóð
Nú er það þjóðarsátt um náttúru-
vernd og minnkandi
stóriðju, en það vill svo
vel til að hún á ekki
lengur að vera aftur-
virk – eins og skilja
mátti á Jóni, formanni
Framsóknar, í haust –
heldur á hún að byrja að virka 2010
þegar búið verður að spilla Þjórs-
árverum og fleiri náttúruperlum og
setja niður nokkur smærri álver hér
og þar á landinu. Þetta eru máttlaus
viðbrögð […]
Meira: margretsverris.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 14. febrúar
Dýrt spaug?
Áramótaskaupið var mjög veglegt
síðast, með þeim veg-
legri frá upphafi. […]
En það er stórundar-
legt að kostnaður við
þetta efni sé trún-
aðarmál. Ríkisútvarpið
er eign allra lands-
manna og þar eiga engin leyndarmál
að vera, allavega ekki í þessum geira
að mínu mati. Ég verð því að taka
undir það sem kemur frá stjórn-
arandstöðunni og um leið undrast af
hverju þögn er um kostnaðinn.
Meira: stebbifr.blog.is
Kristján Jónsson | 13. febrúar
Fólk semur lög
Lögfræðingar fóru hamförum gegn
Morgunblaðinu fyrir
að birta myndir af
hæstaréttardómurum
sem milduðu úrskurð
héraðsdóms í máli
gegn kynferðisglæpa-
manni. Okkur er sagt
að gagnrýni á hæstarétt sé aðför
gegn þrískiptingu valdsins og sjálf-
stæði dómstóla, hvorki meira né
minna. Og ef við viljum herða refs-
ingar gegn glæpum af þessu tagi sé
rétt að krefja Alþingismenn svara.
Þeir eigi að hækka refsirammann en
dómarar verði alltaf að miða úr-
skurði sína við lagabókstafinn og
fordæmi, eldri dóma í sambæri-
legum málum.
Gott og vel. En nú gefur refsi-
ramminn möguleika á miklu þyngri
refsingu en reyndin varð og hvers
vegna myndi það þá breyta ein-
hverju að hækka rammann enn
meira með nýjum lögum? Eiga ekki
dómarar eftir sem áður að miða við
gömlu fordæmin? Og í því sambandi
mætti líka spyrja hve langt aftur í
tímann þeir sæki fordæmin. Hvar
eru mörkin? Getum við búist við því
að einhvern tíma muni dómari vísa
til þess að hegnt hafi verið fyrir
stuld með húðstrýkingu, mörg for-
dæmi séu fyrir því í gömlum dóm-
um?
Þetta sýnir fáránleikann í að segja
málið útkljáð með því að vísa til
dómafordæma. Notkun fordæma er
háð tíðarandanum eins og annað og
er ekki endanlegt svar við spurning-
unni um persónulega afstöðu og
ábyrgð dómara. Viðbrögð margra
lögfræðinga við myndbirtingunni
minna helst á óhljóðin sem sumir
kollegar mínir í fjölmiðlastétt reka
upp þegar einhver setur spurning-
armerki við vinnubrögð okkar. Við
erum ekki heilög – en það eru dóm-
arar ekki heldur.
Auðvitað eru dómarar oft í vanda,
það er ekki rétt að þeir hlaupi stöð-
ugt eftir sveiflum tíðarandans. En
jafnframt verða þeir að sætta sig við
að lög eru mannanna verk en ekki
guðleg opinberun. Þess vegna er
sjálfsagt að gagnrýna niðurstöður
hæstaréttar ekki síður en annað sem
gert er. Og stundum getur verið
nauðsynlegt að hrista upp í rykfölln-
um stofnunum með óvenjulegum að-
ferðum, beita sjokkmeðferð.
Meira: kjoneden.blog.is
BLOG.IS
STEFÁN Már Stefánsson, prófessor
í Evrópurétti við Háskóla Íslands,
segir að ef Ísland gangi inn í Evrópu-
sambandið sé það bundið lagareglum
þess hvað varðar stjórnun fiskveiða
nema um sé að ræða beinar undan-
þágur sem Ísland fái í aðildarsamn-
ingum. Þá kunni einnig í aðildarvið-
ræðum að koma upp kröfur um
skaðabætur vegna tapaðra veiða hjá
þeim ríkjum sem veitt hafi innan ís-
lensku lögsögunnar fyrir útfærslu
hennar á sínum tíma.
Fram kom í fréttum Ríkisútvarps-
ins fyrir skömmu að ráðgjafi sjávar-
útvegsstjóra Evrópusambandsins
segði að reglan um hlutfallslegan
stöðugleika ætti að tryggja að Íslend-
ingar myndu sjálfir ákveða hverjir
veiddu í lögsögunni ef Ísland gengi í
Evrópusambandið.
„Ef við göngum inn í Evrópusam-
bandið og ef við fáum ekki beinar
undanþágur í aðildarsamningum er-
um við bundin af lagareglum þess og
getum engu breytt um það.“
Stefán Már sagði að það væri út af
fyrir sig rétt að það væru teknar
meirihlutaákvarðanir í ráðherra-
ráðinu um hvað mætti veiða mikið og
því væri síðan úthlutað til aðildarríkj-
anna. Það væri gert á grundvelli regl-
unnar um hlutfallslegar stöðugar
veiðar. Hins vegar hefði ekki komið
fram hjá aðstoðarmanninum að regl-
an um hlutfallslegar stöðugar veiðar
væri mjög laus í reipunum og að
stofnanðri bandslagsins hefði mjög
víðtækt mat um það hvað teldist hlut-
fallslegar stöðugar veiðar og gætu
hvernær sem er með lögjöf breytt
því. Auk þess hefði framkvæmda-
stjórnin gefið til kynna í Grænbók um
fiskveiðar frá árinu 2001 að tekið yrði
hugsanlega upp allt annað kerfi í
framtíðinni.
„Aðalatriðið er að ef við göngum
inn í Evrópusambandið og fáum ekki
beinar undanþágur í aðildarsamning-
um þá erum við bundnir af þessu
regluverki, sem er háð meirihluta-
ákvörðunum,“ sagði Stefán Már.
Hann sagði aðspurður að reglan
um hlutfallslegar stöðugar veiðar
kæmi fram í reglugerð frá árinu 2003
og hefði verið með einum eða öðrum
hætti í eldri reglugerðum. Reglu-
gerðum mætti hins vegar breyta með
meirihlutaákvörðunum og því ekki á
vísan að róa í þeim efnum. Við yrðum
að hlíta slíkum ákvörðunum nema við
fengjum beinar undanþágur í aðild-
arviðræðum.
Stefán Már sagði að einnig væri
vert að hafa í huga að ef til aðildarvið-
ræðna kæmi gætu komið fram kröfur
um fiskveiðikvóta frá öðrum þjóðum,
þar á meðal þeim þjóðum sem töpuðu
rétti til fiskveiða á sínum tíma þegar
fiskveiðilögsagan var færð út.
Verðum bundin af
lagareglum ESB