Morgunblaðið - 15.02.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 11
FRÉTTIR
SÖFNUNIN Börn hjálpa börnum
2007 hefst í dag, fimmtudaginn 15.
febrúar, og munu grunnskólabörn
um allt land ganga í hús og safna
framlögum í sérmerkta bauka. Söfn-
unin hefur verið árlegt söfnunar-
átak ABC barnahjálpar síðan 1998 í
samvinnu við grunnskóla landsins.
Um 3.000 börn hafa að meðaltali
tekið þátt í söfnuninni ár hvert og
hefur söfnunarféð runnið óskert til
uppbyggingar skólastarfs, heima-
vista og barnaheimila í Indlandi,
Pakistan og Úganda og hafa margar
byggingar risið á þessum árum
vegna söfnunar barnanna og fjöldi
barna komist í skóla.
Í ár verður lögð áhersla á að safna
fyrir byggingu heimavista og skóla í
Pakistan og Kenýa auk Úganda ef
vel gengur.
ABC barnahjálp byggði 3 skóla í
Pakistan á síðasta ári og nú stendur
yfir bygging fjórða skólans í Pak-
istan og heimavistar fyrir stúlkur í
Úganda auk þess sem nýlega var
komið á fót heimavist fyrir götubörn
í Kenýa. Ráðgert er að hjálpa þús-
undum nauðstaddra barna í þessum
löndum og skiptir söfnunin Börn
hjálpa börnum miklu máli í því sam-
hengi.
Söfnunarreikningurinn er nr. 515-
14-110 000, kt. 690688-1589.
Árlegt söfnunarátak ABC
Góður árangur Við vígslu ABC-skólans í Peshawar í Pakistan í desember
2006. Skólinn var byggður á síðasta ári fyrir söfnunarfé.
PÁLL Torfi Önundarson, yf-
irlæknir á Landspítala, segir
að ekki sé hægt að túlka álit
umboðsmanns Alþingis um
stöðu yfirlækna sérgreina á
LSH með öðrum hætti en að
hann taki undir meginathuga-
semd læknanna um að skýra
þurfi ákvæði laga um stöðu og
ábyrgð yfirlækna með tilliti til
stöðu þeirra sjúklinga sem
eru til lækninga hjá þeim
starfseiningum spítalans sem yfirlæknarnir eru
yfir.
Þrír yfirlæknar á Landspítala sendu umboðs-
manni erindi árið 2005 og skilaði umboðsmaður
ítarlegu áliti fyrr í þessum mánuði. Páll Torfi
segist líta svo á að álit umboðsmanns Alþingis
feli í sér alvarlegan áfellisdóm yfir stjórnsýslu
Landspítalans og heilbrigðisráðuneytisins. Fullt
tilefni hafi verið til kvörtunarinnar sem ekki
hafi fengið málefnalega umfjöllun innan spít-
alans og ráðuneytisins á árunum 2001–2005.
Þetta hafi rýrt trú almennings og starfsmanna á
stjórnsýslu þessara aðila.
Bera höfuðábyrgð
á starfsemi sérgreina sinna
Páll Torfi sagði að meginkvörtun yfirlækn-
anna hafi verið vegna skipurits sjúkrahússins og
ábyrgðar og valds sviðsstjóra lækninga sem
þeim var falið með starfslýsingu árið 2000.
Páll Torfi leggur áherslu á að í áliti umboðs-
manns komi fram að fagleg ábyrgð og skyldur
sviðsstjóra lækninga samkvæmt starfslýsingu
og greinargerð með skipuriti Landspítalans fari
á svig við lög um heilbrigðisþjónustu. Yfirlækn-
ar sérgreina, sem skulu hafa sérþekkingu á við-
komandi grein, beri samkvæmt lögum höfuð-
læknisábyrgð á starfsemi sérgreina sinna.
Hvorki lækningaforstjóri né sviðsstjórar megi
yfirtaka þessa lögboðnu ábyrgð. Hlutverk sviðs-
stjóra byggist á framseldum lagaheimildum for-
stjóra og lækningaforstjóra og sé fjármálaleg
ábyrgð auk eftirlits- og samræmingarhlutverks.
Þá bendir Páll Torfi á að í álitinu komi fram að
starf sviðsstjóra sé ekki tímabundið verkefni og
auglýsa þurfi fyrri stöður sviðsstjóra.
Í áliti umboðsmanns segir að það sé hans mat
að fullnægjandi lagaheimild hafi staðið til þess
að skipta starfsemi Landspítala upp í ákveðin
svið og fela sérstökum sviðsstjórum að fara með
stjórn þeirra í umboði frá forstjóra og fram-
kvæmdastjóra lækninga spítalans. Páll Torfi
segir að um þetta hafi aldrei verið nein deila og
yfirlæknarnir hafi ekki kvartað yfir þessu.
Páll Torfi segir að sjúklingar eigi kröfu á því
að fyrir hverri sérgrein læknisfræðingar sem
starfa á Landspítala fari yfirlæknir, sem ráðinn
sé á grundvelli læknisfræðilegrar sérþekkingar
sinnar á viðkomandi grein í þeim tilgangi að
bera ábyrgð á starfsemi og lækningum viðkom-
andi sjúklings. Þennan lækni eigi að ráða með
auglýsingu og að uppfylltu hæfnismati lögboð-
innar matsnefndar m.t.t. kunnáttu í viðeigandi
sérgrein.
„Tekur undir meginathuga-
semdir yfirlæknanna“
Páll Torfi
Önundarson
Í TILEFNI af þeirri umræðu sem
fram hefur farið síðustu vikur um
lífsreynslu og stöðu þeirra sem
voru börn á upptökuheimilum hins
opinbera á árum áður hefur hópur
fólks tekið sig saman um að halda
sálgæslusamveru í Laugarneskirkju
næstkomandi sunnudag, 18. febr-
úar, kl. 17.
Fyrir hópnum fer Rósa Ólöf
Svavarsdóttir hjúkrunarfræðingur,
en hún kom nýlega fram í Kastljósi
Sjónvarps og greindi frá reynslu
sinni. Ásamt henni munu leiða sam-
komuna Bjarni Karlsson prestur og
Flosi Karlsson læknir.
Til þessarar sálgæslusamveru er
öllum sem voru börn á upptöku-
heimilum boðið að koma og deila
reynslu sinni. Skipt verður í
smærri samtalshópa og mun læknir
eða prestur leiða samtal hvers
hóps.
Kl. 19 verður súpa og meðlæti í
boði heilsufyrirtækisins Maður lif-
andi en kl. 20 mun haldin hin mán-
aðarlega kvöldmessa í Laugarnes-
kirkju, sem að þessu sinni verður
helguð umhugsun um menningu
gömlu upptökuheimilanna og fyr-
irbæn fyrir minningum þeirra sem
þar áttu sína daga. Rósa Ólöf mun
þar greina frá lífi sínu og trú, sr.
Bjarni prédikar, sr. Hildur Eir
Bolladóttir þjónar ásamt Sigurbirni
Þorkelssyni meðhjálpara en djass-
kvartett Gunnars Gunnarssonar
leikur og Kór Laugarneskirkju leið-
ir gospelsöng. Að lokum býður
Gunnhildar Einarsdóttur kirkju-
vörður upp á messukaffi í safn-
aðarheimilinu.
Sálgæslusamvera
fyrir börn gömlu
upptökuheimilanna
Þegar viðkvæm húð
þín sendir „SOS“...
Velkomin í kynningu
í dag og á morgun,
föstudaginn 16. feb.,
kl. 13–17
Cellular Nurturing System
Bjóðum 10% kynningarafslátt og kaupauka.
Laugavegi 80 • Sími 561 1330
www.sigurboginn.is
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 51
sími 561 1680
Lager-
sala
70%
afsláttur!
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
E
L
36
25
0
02
.2
0
0
7
Það styttist
í vorið
Glæsilegur fatnaður
við öll tækifæri.
Kringlunni · sími 5684900
www.kello.is
Opið til kl. 21 í kvöld