Morgunblaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AÐALMEÐFERÐ Í BAUGSMÁLINU
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
J
ón Ásgeir Jóhannesson hélt
í gær áfram að gefa skýrslu
vegna meintra stórfelldra
bókhaldsbrota sem hann og
Tryggvi Jónsson eru sak-
aðir um að hafa framið árið 2001.
Þessi meintu brot snerta færslur í
bókhaldi Baugs með bréf í breska
smásölufyrirtækinu Arcadia, kredit-
reikning frá SMS-verslunarfélaginu í
Færeyjum og kreditreikning frá
Nordica sem Jón Ásgeir kallaði í gær
„frægasta reikning Íslandssögunn-
ar.“
Í öllum tilvikum eru þeir Jón Ás-
geir og Tryggvi sakaðir um að hafa
með þessu látið líta svo út að afkoma
Baugs væri betri en raunin var.
Ákæruliður 14 varðar meint ólög-
mætt meiriháttar bókhaldsbrot sem
ákæruvaldið telur að snúist um sýnd-
arviðskipti með hlutabréf í Arcadia.
Látið hafi verið líta svo út að þau hafi
verið seld Kaupþingi í Lúxemborg til
að búa til hagnað í bókhaldi Baugs
fyrir árið 2000 en sú sala hafi aldrei
átt sér stað.
Fyrsta færslan sem ákært er fyrir
átti sér stað í mars 2001 en þá var
bókfærð sala á hlutabréfum Baugs í
Arcadia til Kaupþings í Lúxemborg
fyrir 332 milljónir, með færsludegi
31. desember 2000. Telur ákæruvald-
ið að upphæðin hafi verið færð til
eignar á viðskiptamannareikningi
Kaupþings og þar með myndað til-
hæfulausa skuld. Tryggvi hafi síðan
látið færa í bókhald Baugs endur-
kaup félagsins á framangreindum
hlutabréfum í Arcadia fyrir 544 millj-
ónir sem stofnframlag í A-Holding.
Með þessu hafi ranglega verið búinn
til hagnaður í bókhaldi Baugs upp á
164 milljónir. Seinna hafi færslurnar
verið leiðréttar.
Ekki glámskyggni
Jón Ásgeir sagðist, aðspurður af
saksóknara, ekki muna nákvæmlega
hvernig hann leit á þessar færslu á
sínum tíma en tók fram að hann hefði
talið fyllilega eðlilegt, og í samræmi
við reglur, að þessi hlutabréf væru
færð í reikningum félagsins á mark-
aðsvirði en ekki kaupverði, enda
hefði verið um skammtímaeign að
ræða. Þá taldi hann hugsanlegt að
hann hefði litið svo á að færslan ætti
við um framvirka samninga. Sigurð-
ur Tómas var þá fljótur að benda á að
hvergi væri neitt rætt um framvirka
samninga í gögnum sem fylgdu um-
ræddum færslum, heldur sölu. Að-
spurður sagðist Jón Ásgeir telja að
Baugur hefði áfram haft öll réttindi
yfir þessum bréfum og atkvæðisrétt í
krafti þeirra. Hann tók ítrekað fram
að hann þekkti ekki til hlítar þær
færslur sem ákært er út af en þær
tengdust fjármögnun félagsins. Sig-
urður Tómas spurði einnig hvort það
hefði ekki vakið athygli Jóns Ásgeirs,
sem hefði sagst fylgjast vel með árs-
reikningsskilum, að krafa Baugs á
hendur Kaupþingi í Lúxemborg,
hefði skyndilega hækkað um 330
milljónir. Jón Ásgeir sagði svo ekki
vera og að ekki væri um óvenjulega
glámskyggni að ræða af hans hálfu.
Spurður af verjanda sínum sagði
Jón Ásgeir að tilgangurinn með
færslunum tengdist skuldaskipan í
félaginu en Tryggvi Jónsson gæti þó
skýrt þetta betur. Sjálfur hefði hann
ekki gefið fyrirmæli um þessar
færslur.
Í ákærulið 15 er fjallað um ein-
hvern frægasta reikning síðustu ára,
kreditreikninginn frá Jóni Gerald
Sullenberger upp á 62 milljónir sem
Jón Ásgeir og Tryggvi eru sakaðir
um að hafa látið útbúa að tilhæfu-
lausu til að hægt væri að fegra árs-
hlutauppgjör. Útgáfa kreditreikn-
ingsins þýddi að Nordica var í 62
milljón króna skuld við Baug.
Jón Ásgeir sagði að reikningurinn
hefði verið gefinn út vegna vand-
ræðalagers sem hefði safnast upp í
verslunum Baugs. Ætlunin hefði
verið að hreinsa þau mál upp en síð-
an setja kraft í að auka viðskipti
Baugs við Nordica upp í 3 milljónir
Bandaríkjadali á ári. Nordica gæti
nýtt þau viðskipti til að greiða niður
reikninginn.
Saksóknarinn benti á móti á að á
10 ára tímabili hefðu viðskipti Nor-
dica og Baugs numið um 700 millj-
ónum. Álagningin hefði verið lág og
það hefði þýtt að með kreditreikn-
ingnum hefði Nordica verið að afsala
sér öllum ávinningi af viðskiptunum.
Jón Ásgeir sagðist ekki geta sagt til
um það. Þá vísaði saksóknari í vitn-
isburð Sigríðar Gröndal sem var
fjármálastjóri Baugs og Aðfanga frá
1993–1998 en hún hefði sagt að á
þessum árum hefði engin skuld orðið
til hjá Nordica. Jón Ásgeir sagðist
ekki geta staðfest það, enda hefði
hann ekki skoða undirliggjandi gögn
og hann vissi ekki til hvaða bókhalds-
lykla hún væri að vísa. Hann sagði al-
veg ljóst að til hefði orðið vand-
ræðalager með vöru Nordica sem
kvartað hefði verið yfir innan Baugs
og samkomulag hefði orðið milli hans
og Jóns Geralds um að hann gæfi út
þennan kreditreikning samhliða
ákvörðun um að viðskipti við hann
yrðu stóraukin. Síðar hefði komið í
ljós að fjárhagsstaða Nordica var
mun verri en hann hefði talið og þá
hefði verið gengið í að lækka kred-
itreikninginn í bókhaldinu í varúðar-
skyni. Saksóknarinn spurði einnig
hvers vegna það hefði legið svo á að
gefa kreditreikninginn út, daginn
fyrir lok uppgjörstímabilsins og
sagði Jón Ásgeir að Tryggvi hefði
verið mikið á ferðalögum á þessu
tímabili og þurft að ljúka mörgum
málum rétt fyrir uppgjörslokin. Lög-
regla hefði hins vegar af einhverjum
ástæðum ákveðið að einblína á þenn-
an reikning en líta ekki á heildar-
myndina.
Kaffi frá Færeyjum
Síðasti ákæruliðurinn sem Sigurð-
ur Tómas spurði um varðar meintan
tilhæfulausan reikning frá SMS-
verslunarfélaginu í Færeyjum sem
Baugur á 50% í. Saksóknarinn benti
m.a. á að annar færeysku feðganna
sem eiga hinn helminginn, hefði við
yfirheyrslur sagt að Tryggvi hefði
óskað eftir útgáfu tilhæfulauss
reiknings. Gestur Jónsson og Jón
Ásgeir bentu á móti á að hann hefði í
þessari yfirheyrslu kvartað undan
tungumálaörðugleikum en yfir-
heyrslan fór ekki fram á færeysku.
Jón Ásgeir sagði að um ákveðinn
misskilning hefði verið að ræða milli
aðfanga- og fjármálasviðs um þær
tekjur sem menn teldu sig eiga inni
hjá SMS. Þá hefðu viðskipti sem
stóðu að baki reikningnum gengið til
baka þegar umboðsmenn fyrir kaffi-
tegundirnar á Íslandi komu í veg fyr-
ir að Baugur keypti þær í gegnum
Færeyjar.
Morgunblaðið/Júlíus
Feðgar Faðir Gests Jónssonar, Jón Skaftason, fyrrverandi þingmaður, yfirborgarfógeti og sýslumaður í Reykja-
vík, leit inn í dómsal í fyrradag. Feðgarnir ræða hér við Jakob Möller og Brynjar Níelsson í stuttu hléi.
Frægasti reikningurinn
Í HNOTSKURN
Dagur 3
» Saksóknari heldur áframað spyrja Jón Ásgeir Jó-
hannesson út í ákæruna og
lýkur við spurningar vegna
ákæruliða 14, 15 og 16.
Tryggvi Jónsson er einnig
ákærður vegna þessara liða.
» Verjandi Jóns GeraldsSullenberger leggur fram
bókun þar sem ákvörðun
dómsformanns um að vísa
honum úr dómsal er mótmælt.
» Ákæruliður 14 varðarmeint ólögmætt meirihátt-
ar bókhaldsbrot vegna hluta-
bréfa í Arcadia. Tilgangurinn
hafi verið að auka hagnað í
bókhaldi Baugs fyrir árið
2000. Jón Ásgeir segist ekki
muna hvernig hann mat þess-
ar færslu á sínum tíma en
taldi hugsanlegt að hann
hefði talið að um framvirka
samninga væri að ræða.
» Í ákærulið 15 er fjallaðum kreditreikninginn frá
Jóni Gerald Sullenberger upp
á jafnvirði um 62 milljóna
króna. Saksóknari segir hann
tilhæfulausan og bendir á að
hann hafi verið bókaður dag-
inn fyrir lok uppgjörs-
tímabilsins. Jón Ásgeir segir
reikninginn vegna „vand-
ræðalagers“.
» Í lið 16 er ákært fyrir út-gáfu tilhæfulauss reikn-
ings upp á 44 milljónir hjá
SMS í Færeyjum sem var og
er í 50% eigu Baugs. Jón Ás-
geir segir að um ákveðinn
misskilning hafi verið að
ræða og að viðskipti hafi
gengið til baka. Tryggvi geti
veitt nákvæmari svör.
» Enn var deilt um spurn-ingar saksóknarans og
dómsformaður lét óþolinmæði
sína glögglega í ljós vegna
þess að þær taka mun lengri
tíma en áætlað var.
Meint bókhaldsbrot í brennidepli
á þriðja degi aðalmeðferðarinnar
TÍMINN sem Sigurður Tómas
Magnússon, settur ríkissaksóknari,
hefur notað til að taka skýrslu af
Jóni Ásgeiri Jóhannssyni var sem
fyrr tilefni deilna og hnútukasts í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Dómsformaðurinn beindi því nokkr-
um sinnum til saksóknarans að
spyrja hnitmiðaðri spurninga og
undir lok dómþingsins dró hann
beinlínis dár að saksóknaranum sem
frábað sér slíkt af hálfu dómarans.
Atvikið varð þegar Brynjar Níels-
son, verjandi Jóns Geralds Sullen-
berger, var að yfirgefa dómsalinn til
að flytja annað mál í dómhúsinu.
Brynjar kvaðst verða fljótur að ljúka
því og sagði Arngrímur Ísberg,
dómsformaður að það hefði kannski
átt að gera hann að saksóknara. Sig-
urður Tómas tók þessu ekki vel og
sagði að þótt hann væri ekki hör-
undssár maður myndi hann kjósa að
dómari gerði ekki grín á kostnað
saksóknara og gætti hlutleysis. Arn-
grímur sagðist ekki vera að gera það
en saksóknarinn væri ótrúlega lang-
orður.
Lokið í júní?
Við upphaf aðalmeðferðarinnar í
gær lögðu verjendur Jóns Ásgeirs
og Tryggva fram bókun þar sem lýst
var áhyggjum af því að þótt aðeins
væru liðnir tveir dagar af aðal-
meðferðinni væri hún nú þegar öll
úr lagi gengin, eingöngu vegna þess
að saksóknarinn hefði farið langt
umfram þau tímamörk sem hann
hefði sjálfur sett sér. Ef þetta gengi
svona áfram yrðu menn að setjast
niður „og fara yfir hvenær í júní við
ætlum að ljúka þessu.“ Gestur sagði
að hann hefði aldrei á 30 ára lög-
mennskuferli kynnst því að tíma-
áætlun væri vanvirt með þessum
hætti. Spurningum saksóknarans
hefði með réttu átt að vera lokið í
gærmorgun.
Sigurður Tómas benti á móti á að
upphaflega hefði verið ætlunin að
spyrja Tryggva Jónsson fyrstan
sakborninga en því hefði verið
breytt og skýrði það að hluta að
teygst hefði á skýrslutöku yfir Jóni
Ásgeiri. Áætlunin myndi jafnast út
þar sem skemmri tími myndi fara í
skýrslutöku af Tryggva Jónssyni.
Þrættu Gestur Jónsson og Sig-
urður Tómas Magnússon, settur rík-
issaksóknari í málinu, töluvert um
þetta efni. Bar m.a. á góma mál-
flutningsræðu saksóknarans fyrir
Hæstarétti í fyrra Baugsmálinu,
sem fór fram yfir tilsettan tíma, og
spurningar Gests til Jóns Geralds
Sullenberger, þegar hann bar vitni í
fyrra Baugsmálinu, en Sigurður
Tómas spurði hvort Gestur hefði virt
tímaáætlun í því tilviki.
Kastast í kekki