Morgunblaðið - 15.02.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 17
ERLENT
Í HNOTSKURN
»Royal setur sér það mark-mið komist hún til valda að
árlega verði byggðar 120.000
nýjar íbúðir fyrir fátæka
Frakka.
»Hún boðar að ungmennisem komast ítrekað í kast
við lögin verði send í sérstakar
búðir þar sem heragi ríki.
»Kjörtímabil forseta Frakk-lands er fimm ár.
Eftir Baldur Arnarson
og Boga Þór Arason
ÞAÐ VAR ekki seinna vænna fyrir
Segolene Royal, forsetaefni franskra
sósíalista í kosningunum í vor, að
svara þeirri gagnrýni andstæðinga
hennar að hana skorti hugmyndir og
skýra framtíðarsýn þegar hún kynnti
stefnuskrá í hundrað liðum fyrir
framan fimmtán þúsund stuðnings-
menn sína í París um síðustu helgi.
Hún hefur mælst með minna fylgi en
hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy í
hverri könnuninni á fætur annarri og
kominn var tími til að snúa taflinu við.
Ekki voru þó allir jafn hrifnir af sýn
sósíalistaleiðtogans, sem stjórnmála-
skýrendur telja nær fullkomna and-
hverfu hugmynda Sarkozys um minni
ríkisumsvif. Hún þótti jafnframt hafa
gefið sterklega til kynna í stefnuræðu
sinni að ekki yrði leitað inn á miðjuna
heldur lögð áhersla á vinstristefnu.
Þykir það nokkuð djarfur leikur.
Royal boðar m.a. hækkun lægstu
launa, úr 1.250 evrum á mánuði, eða
um 110.500 krónum, í 1.500 evrur, eða
132.600 krónur. Hún vill ennfremur
festa 35 stunda vinnuvikuna í sessi,
einhverja heilögustu kú franskra sósí-
alista sem hægrimenn telja hamla
hagvexti í landinu. Hún hyggst auka
eftirlit ríkisins með bönkum og fjöl-
miðlum og lofar að auka fjárframlög
ríkisins til vísindarannsókna um 10%
á ári.
Royal hyggst og afnema lög sem
auðvelda smáfyrirtækjum að ráða og
reka starfsfólk. Hún lofar að bjóða
ungu fólki vaxtalaus lán að andvirði
10.000 evra, sem svarar 880.000
króna, til að stofna eigin fyrirtæki og
hyggst skapa hálfa milljón niður-
greiddra starfa fyrir unga fólkið.
Þeim sem kaupa íbúð í fyrsta skipti
verða einnig boðin vaxtalaus veðlán.
Ljóst er að loforðin kosta sitt. Eric
Besson, talsmaður sósíalista í efna-
hagsmálum, áætlar að kostnaðurinn
nemi 35 milljörðum evra, eða sem
svarar um 3.100 milljörðum króna.
Sarkozy, sem hefur boðað skatta-
lækkanir, hefur reyndar áætlað að til-
lögur sínar kosti franska ríkið um 30
milljarða evra, en segir að hluti fjár-
ins skili sér aftur í ríkissjóð með aukn-
um hagvexti.
Ríkisrekinn orkuiðnaður
Aukin þátttaka almennings í lýð-
ræðisferlinu í gegnum „borgaralega
dómstóla“ er ofarlega á stefnuskrá
Royal.
„Stjórnmál munu ekki lengur fara
fram án ykkar, fólksins,“ sagði Royal
um tillögu sem án efa er ætlað að slá á
vantraust almennings gagnvart
stjórnmálaelítunni í París. Raunar er
sjálf stefnuskráin niðurstaða slíks
samráðs, tillögurnar eru afrakstur
þriggja mánaða „ráðgjafarfunda“ á
netinu, flokksfunda og þúsunda við-
tala við kjósendur vítt og breitt um
landið.
Meðal róttækari tillagna Segolene
Royl er sameining orkurisanna EDF
og Gaz de France í eitt, ríkisrekið fyr-
irtæki.
Gagnrýnisraddirnar voru einna há-
værastar frá fulltrúum viðskiptalífs-
ins og hagfræðinga sem vara við
auknum ríkisumsvifum. Fyrrgreind-
ur Besson telur hins vegar að aukinn
sparnaður og tekjur muni lækka
skuldir ríkisins og tryggja að ekki
þurfi að hækka skatta.
Hinn umdeildi Jean-Marie Le Pen
sparaði ekki stóru orðin og sagði að
stefnuskráin minnti á byltingarráðið
sem stjórnaði París 1792–1794. Royal
lagði hins vegar áherslu að umbætur
sínar í efnahags-, mennta-, félags-,
innflytjenda- og umhverfismálum
myndu leiða til „sanngjarnara og öfl-
ugra“ Frakklands.
Segolene Royal veðjar
á vinstri áherslurnar
Stefnuskrá í
hundrað liðum
misjafnlega tekið
Reuters
Forsetaefni Segolene Royal veifar til stuðningsmanna sinna úr röðum
franskra sósíalista eftir að hún kynnti stefnuskrá sína á sunnudag.
DÖNSK heimildarmynd um ástand-
ið á Strandvænget, sem er stofnun
eða heimili fyrir þroskaheft fólk á
Fjóni, hefur vakið uppnám í Dan-
mörku. Var myndin tekin á laun og
sýnir berlega ótrúlegt skeytingar-
leysi og niðurlægjandi framkomu við
fólkið. Hún sýnir hins vegar líka, að
álagið á starfsfólkið er allt of mikið.
Þetta mál hefur verið tekið upp á
þingi og þar lýstu þingmenn úr öllum
flokkum hneykslan sinni á því sem-
fram kom í heimildarmyndinni. Hef-
ur verið lagt til að eftirlit með
Strandvænget verði hert og einnig
öðrum stofnunum að sögn Politiken.
Þá hefur Pia Kristensen, formaður
félagsmálanefndar þingsins, lagt til,
að settar verði ákveðnar siðareglur
fyrir fólk í umönnunarstéttum. Það
geti haft þær til hliðsjónar í starfi
sínu og þá áttað sig betur á hvenær
ekki er allt með felldu.
Eftir að myndin var sýnd, bárust
tvær kærur til lögreglunnar vegna
ástandsins á Strandvænget og ekki
þykir ólíklegt, að höfðað verði opin-
bert mál á hendur fjórum starfs-
mönnum stofnunarinnar. Fengu þeir
leyfi til að skoða heimildarmyndina
áður en hún var sýnd opinberlega og
fóru síðan allir í veikindaleyfi.
Marie Sonne, varaformaður í sam-
tökum fólks í umönnunarstéttum, er
mjög hneyksluð á því, sem myndin
opinberaði, og hún hvetur yfirvöld til
að auka menntun á þessu sviði en í
Danmörku er hún ekki sambærileg
við það, sem hún er annars staðar á
Norðurlöndum.
Þroska-
heftir
óvirtir
Föstudaginn 16. febrúar: Hótel Húsavík kl. 17.00–19.00
Laugardaginn 17. febrúar: Skjólbrekku í Mývatnssveit kl. 14.00–16.00
Allir velkomnir!
Orka, náttúra og nytjar
Opinn kynningarfundur Landsvirkjunar um virkjunarkosti í Þingeyjarsýslu