Morgunblaðið - 15.02.2007, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SAGAN öll nefnist nýtt tímarit
um söguleg efni sem kemur út
í fyrsta sinn hér á landi
fimmtudaginn 22. febrúar.
Í blaðinu, sem kemur út
mánaðarlega, verður fjallað
um mannskyns- og Íslands-
söguna í máli og myndum. Í
fyrsta tölublaði er meðal ann-
ars grein um fyrstu íbúa
Reykjavíkur, sem kunna að
hafa verið rostungaveiðimenn
en ekki bændur eins og almennt hefur verið talið.
Þá er stór grein eftir Guðna Th. Jóhannesson
um hlerunarmál.
Ritstjóri tímaritsins er Illugi Jökulsson.
Tímarit
Sagan öll
á Íslandi
Forsíða fyrsta
tölublaðs.
JAZZKLÚBBURINN
Múlinn fagnar í ár 10
ára starfsafmæli sínu og
blæs af því tilefni til
sextán tónleika dag-
skrár.
Þeir fyrstu í röðinni
fara fram í kvöld á
Domo Bar í Þingholts-
stræti 5. Þar stígur á
stokk hljómsveitin The
Riot en hana skipa þeir Björn Thoroddsen, Hall-
dór Bragason, Jón Ólafsson, Jón Rafnsson og
Ásgeir Óskarsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er þúsund króna
aðgangangseyrir, 500 krónur fyrir námsmenn.
Tónleikar
Múlinn fagnar
10 ára afmæli
The Riot
Á LAUGARDAGINN hefjast
sýningar á Pétri og úlfinum í
Kúlunni í Þjóðleikhúsinu.
Bernd Ogrodnik smíðaði allar
brúðurnar og leikmyndina úr
linditré og íslensku birki og
stjórnar brúðunum sjálfur.
Rússneska tónskáldið Sergei
Prokofief samdi bæði texta og
tónlist í Pétri og úlfinum á
einni viku árið 1936 með það
fyrir augum að leiða unga hlustendur inn í heim
sígildrar tónlistar. Sýningar fara fram laugardaga
og sunnudaga kl. 13.30 og 15.00. Nánari upplýs-
ingar og miðasala eru á vef Þjóðleikhússins,
www.leikhusid.is.
Brúðuleikhús
Pétur og úlfurinn
í Þjóðleikhúsinu
Bernd Ogrodnik
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Í KJÖLFAR þess að verkið Hvíta-
sunnudagur eftir Kjarval kom ný-
lega í leitirnar í Danmörku hafa
margir velt fyrir sér hvort mikið af
verkum eftir gömlu meistarana sé
ófundið.
„Það er líklega töluvert, sér-
staklega á Norðurlöndunum þar
sem myndlistarmenn okkar voru
mikið við nám. Það er alveg viðbúið
að það séu til verk sem eigi eftir að
koma í ljós, sérstaklega eftir Þor-
vald Skúlason, Svavar Guðnason og
Nínu Tryggvadóttur og það eru
örugglega ekki öll kurl komin til
grafar hvað Kjarval snertir því að
hann flæktist víða og var mik-
ilvirkur,“ segir Aðalsteinn Ingólfs-
son listfræðingur.
Aðalsteinn segir að þau verk sem
hann hafi mestan áhuga á að finna
eigi að vera hér á landi.
„Það var til maður sem hét Krist-
inn Pétursson, hann var málari og
það eru heimildir um að þegar hann
bjó í Hveragerði, á árunum fyrir síð-
ara stríð, hafi hann verið farinn að
búa til abstrakt lágmyndir úr tré og
þessar myndir hafi síðan allar verið
eyðilagðar þegar hann flutti þaðan.
Ég held að það komi aldrei í ljós en
ef það gerist þætti mér það mjög
áhugavert.
Það var líka hálfíslensk kona sem
hét Ingibjörg Stein Bjarnason. Hún
var í slagtogi við franska abstrakt-
listamenn í byrjun fjórða áratug-
arins og eru heimildir um að þá hafi
hún sýnt með þeim verk sem voru al-
veg abstrakt. Það ganga sögur um
það að eitthvað sé til af þessum
myndum hugsanlega í París eða
New York og það er annar fundur
sem ég yrði mjög kátur yfir.“
Aðalsteinn segir að Íslendingar
eigi að hætta að hafa áhyggjur af því
sem er úti í heimi og frekar skoða
það sem er nær og er að týnast.
„Við eigum að setja peninga í að
rannsaka sögu óþekktari listamanna
sem skipta máli í listasögunni frekar
en að vera að elta uppi örfá verk eft-
ir þá þekktu.“
Borgaraleg skylda
„Þessi verk sem ekki er vitað hvar
eru niðurkomin eru líklega inni á
einkaheimilum og þá getur auðvitað
verið viss hætt á því að eigendurnir
viti ekki hvað þeir eru með í hönd-
unum, því verkið er kannski komið í
hendur þriðju kynslóðar, og fer bara
upp á háaloft,“ segir Harpa Þórs-
dóttir, deildarstjóri sýningardeildar
hjá Listasafni Íslands.
Harpa er nú að setja upp sýningu
á verkum Jóhanns Briem og Jóns
Engilberts og segir að ágætlega hafi
gengið að hafa uppi á verkum þeirra.
„Við auglýstum bara hér á Íslandi og
fengum ágæt viðbrögð. Ég treysti á
að fólki þyki eftirsóknarvert að
segja frá verkum sem það á ef við
auglýsum sérstaklega eftir þeim og
kannski mætti kalla þetta borg-
aralega skyldu eða skyldu almenn-
ings við íslenskan menningararf, ef
má segja svo.“
Aðspurð hvaða verk hún væri sér-
staklega til í að finna svarar Harpa
að henni hefði þótt gaman að finna
meira af veggteppum Júlíönu
Sveinsdóttur fyrir sýningu sem hún
vann að í Listasafni Íslands árið
2003. „Ég veit að þau er að finna í
Danmörku, hún óf allt þar og sýndi.
En það má heldur ekki gleyma því
að það er ekki endilega kappsmál að
fá öll verk heim. Það er líka gaman
að vita af íslenskum verkum erlendis
á söfnum og heimilum, við viljum
frekar vita hvar verkin eru heldur
en að draga þau öll heim.“
Harpa segir samt að þegar lyk-
ilverk komi í leitirnar sé mjög gam-
an að fá þau inn á söfn.
„Listasöfnin hafa takmarkaða
peninga til að kaupa gömul verk og
eiga í erfiðleikum með að keppa við
einstakling með fullar hendur fjár.
Stundum verðum við að höfða til
samvisku fólks gagnvart sameig-
inlegu okkar menningu. Það er ekki
óeðlilegt að verkið fari á því verði
sem markaðurinn setur en þá má
spyrja hvar verkið eigi heima út frá
sögunni.“
Skráning grundvallaratriði
Kristín G. Guðnadóttir listfræð-
ingur, og einn höfundur bókarinnar
um Kjarval, segir að þau hafi ekki
fundið öll verkin sem þau leituðu að
fyrir bókina. „Eftir ýmsum króka-
leiðum fundum við mörg en það var
erfiðara að finna þau sem voru er-
lendis. Hvítasunnudagur var eitt af
verkunum sem ég leitaði mikið að og
varð því mjög ánægð þegar það kom
í leitirnar.“
Kristín segir að skráning verka sé
grundvallaratriðið upp á að vita hvar
þau eru niðurkomin og því sé mik-
ilvægt að söfnin fái nægt fjármagn
og fólk til að vinna að því.
Fleiri verk þekktra íslenskra listamanna eiga líklega eftir að koma í ljós
Eigum að líta okkur nær
JÓHANNES Kjarval málaði verkið á árunum 1917–1919 og er það undir
kúbískum áhrifum. Verkið kom í leitirnar nýlega í Danmörku og verður
selt á uppboði 27. febrúar hjá listaverkasalanum Bruun Rasmussen.
Hvítasunnudagur
UMSÖGN um
Skuggaleik, óp-
eru Karólínu Ei-
ríksdóttur, birt-
ist í febrúarhefti
hins virta og víð-
lesna óp-
erutímarits
Opera. Lokanið-
urstaða gagn-
rýnandans Hil-
ary Finch er
stutt og laggóð, að hér sé á ferð-
inni ópera sem henti fullkomlega
til að ferðast með og sýna á
listahátíðum; Skuggaleikur geti -
og ætti - að ná langt.
Finch nefnir nokkur atriði nið-
urstöðu sinni til grundvallar. Texti
Sjóns er sagður henta vel hófstilltri
en jafnframt blæðbrigðaríkri og
orkumikilli tónlist Karólínu. Þá
segir að þó leikmynd sé í lágmarki,
sé sýningin „dáleiðandi sjónræn
upplifun“, þökk sé lýsingu, hreyfi-
myndum, búningum og hreyfingu
söngvaranna. Að lokum segir að
Guðni Franzson stjórni hljómsveit-
inni af „máttugri nákvæmni“.
Skuggaleikur, í leikstjórn Mess-
íönu Tómasdóttur og Ástrósar
Gunnarsdóttur, var frumsýndur
18. nóvember á síðasta ári. Um var
að ræða samvinnuverkefni
Strengjaleikhússins og Íslensku óp-
erunnar.
Fjallað um
Skuggaleik
í Opera
Óperan sögð hafa
burði til að ná langt
Karólína
Eiríksdóttir
BANDARÍSKUR prófessor er
handhafi einna hæstu verðlauna
sem veitt eru á sviði ljóðlistar. Það
er Claremont Graduate-háskólinn í
Bandaríkjunum sem hefur umsjón
með hinum eftirsóttu Kingsley
Tufts-ljóðaverðlaunum sem í ár
falla í skaut Rodney Jones, kennara
í ensku við Southern Illinois-
háskólann. Var ljóðabók hans
Salvation Blues lögð valinu til
grundvallar.
Þó að upphefðin sé mikil felur
það að vinna til Kingsley Tufts-
ljóðaverðlaunanna í sér annað en
heiðurinn einn þar sem verðlauna-
féð nemur að andvirði tæpra sjö
milljóna króna.
Eric McHenry, ljóðskáld frá
Seattle, hlaut Kate Tufts Disco-
very-verðlaunin, einnig á vegum
Claremont Graduate, fyrir bók sína
Potscrubber Lullabies. Fær hann
að andvirði 700.000 króna í sinn
hlut.
Sjö milljóna
ljóðaverðlaun
KAMMERKÓRINN Carmina mun
flytja Requiem eða Sálumessu eftir
spænska endurreisnartónskáldið
Tomás Luis de Victoria í fyrsta sinn á
Íslandi á tónleikum í Kristskirkju í
mars nk.
Victoria var fremsta tónskáld
Spánverja á 16. öld og sálumessan
þykir hans merkasta verk. Hún var
samin við andlát Maríu keisaraynju
árið 1603 en Victoria hafði verið hirð-
tónskáld hennar um áratuga skeið.
Sálumessan er samin fyrir sex radda
kór og þykir tónlistin sérlega áhrifa-
mikil. Auk sálumessunnar mun
Carmina flytja verk eftir endurreisn-
artónskáldin Cristóbal de Morales og
Josquin des Prez.
Kammerkórinn Carmina verður
einnig meðal flytjenda á Stockholm
Early Music Festival, stærstu hátíð
Svíþjóðar á sviði endurreisnar- og
barokktónlistar, sem fram fer í
Stokkhólmi dagana 6.-10. júní nk.
Tónleikar kórsins fara fram í
Finnsku kirkjunni í miðbæ Stokk-
hólms 8. júní kl. 18 og verða þeir
hljóðritaðir af sænska ríkisútvarpinu.
Á tónleikunum mun Carmina flytja
íslenska efnisskrá með lögum úr Mel-
ódíu, sem er íslenskt tónlistarhandrit
frá miðri 17. öld. Carmina flutti sömu
efnisskrá á Sumartónleikum í Skál-
holti í fyrrasumar og er geisladiskur
með tónlistinni væntanlegur innan
skamms.
Kammerkórinn Carmina var stofn-
aður sumarið 2004 með það að mark-
miði að flytja kórtónlist endurreisn-
arinnar á Íslandi. Meðlimir kórsins
eru allir þrautþjálfaðir söngvarar og
hafa hlotið mikilsverða reynslu innan
ýmissa kóra.
Á tónleikunum í Kristskirkju munu
fjórir söngvarar úr BBC Singers, The
Tallis Scholars og Westminster Ab-
bey-kórnum í Lundúnum slást í hóp
með félögum í Carminu. Stofnandi
Kammerkórsins Carminu og stjórn-
andi á tónleikunum er Árni Heimir
Ingólfsson tónlistarfræðingur.
Tónleikarnir í Kristskirkju verða
17. og 18. mars og hefjast kl. 16 báða
dagana. Miðasala hefst í 12 tónum,
Skólavörðustíg 15, í dag, fimmtudag,
og er miðaverð kr. 2500 en 1000 fyrir
námsmenn gegn framvísun nem-
endaskírteinis.
Kammerkórinn Carmina með tónleika í Kristskirkju í mars og í Stokkhólmi í júní
Flytja kórtónlist
endurreisnar-
innar á Íslandi
Tónleikar Kammerkórinn Carmina flytur Sálumessu eftir hinn spænska
Tomás Luis de Victoria í Kristskirkju í mars, miðasala hefst í dag.
♦♦♦