Morgunblaðið - 15.02.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 21
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
NÝR ferðamannavegur milli Staf-
ness og Hafna, svonefndur Ósa-
botnavegur, hefur verið akfær um
tíma þótt verktakinn hafi ekki náð
að skila honum af sér. Er veg-
urinn orðinn vinsæll í helgarferð-
um, ekki síst í tengslum við skoð-
un á strandaða flutningaskipinu
við Hvalsnes. Með veginum opn-
ast ný hringleið á Reykjanesi og
aðgangur að merkum sögustöðum.
Lagður er nýr vegur á tveimur
stöðum og einnig er nýttur vegur
sem varnarliðið notaði. Nýi veg-
urinn er með malarslitlagi en veg-
urinn sem varnarliðið skildi eftir
er malbikaður. Hluti nýja vegar-
ins er með afar grófu yfirlagi þar
sem verktakar náðu ekki að ljúka
verkinu á tilskildum tíma fyrir
veturinn. Jónas Snæbjörnsson,
svæðisstjóri Vegagerðarinnar,
segir að vegurinn sé vel akfær
þótt ekki takist að ljúka honum
fyrr en í apríl. Að sögn Jónasar
verður ákveðið við endurskoðun
vegaáætlunar í þinginu í vetur
hvenær bundið slitlag verður lagt
á veginn en það segir hann að
kosti 80 milljónir kr.
Lengi lokað svæði
Umrætt svæði hefur verið lokað
í áratugi vegna starfsemi varn-
arliðsins sem rak þar fjarskipta-
stöð, Dye-5, og þar kom á land
frægur kafbátanjósnakapall.
Þarna standa ýmsar minjar frá
varnarliðinu. Reynir Sveinsson,
svæðisleiðsögumaður og forstöðu-
maður Fræðasetursins í Sand-
gerði, segir verst hvað náttúran
hafi spillst mikið vegna starfsemi
varnarliðsins.
„Nýja leiðin skapar mikil sókn-
arfæri fyrir ferðaþjónustuna.
Þetta er nýr og skemmtilegur
hringur um Suðurnesin. Nú getur
fólk ekið þennan hring og komið
við í Sandgerði, Garðinum og
Reykjanesbæ, í stað þess að
brenna beint í bæinn,“ segir
Reynir. Þarna er farið með sjón-
um alla leiðina frá Reykjanesi að
Garðskaga og víða á því svæði má
sjá stórkostlegt brim í suðvest-
anveðrum. Þá segir hann að veg-
urinn opni mikilvæga björgunar-
leið.
Meðal staða í nágrenni við nýja
veginn má nefna verslunarstaðinn
Básenda en þar lagðist verslun af
eftir mikil sjávarflóð árið 1799.
Gálgar eru háir klettar alveg við
veginn. Þar er sagt að sakamenn
hafi verið teknir af lífi. Þórshöfn
var helsti verslunarstaður Þjóð-
verja á 15. og 16. öld. Þar skammt
frá strandaði enska vöruflutninga-
skipið Jamestown á árinu 1881 og
Suðurnesjamenn fengu mikið af
úrvals timbri til bygginga.
Vantar útskot
Á svæði varnarliðsins eru góð
bílastæði en Reynir saknar þess
að ekki skuli hafa verið gert út-
skot á veginn til móts við Básenda
til að auðvelda ferðafólki að stöðva
bílana þar og ganga niður að
verslunarstaðnum. Jónas Snæ-
björnsson telur að það ætti að
vera sjálfsagt mál að gera stæði
þar í nágrenninu, enda væri þessi
vegur ekki síst hugsaður fyrir
ferðafólk. Hann segir þó ekkert
ákveðið í því efni.
Ný hringleið á Reykjanesi með Ósabotnavegi sem orðinn er akfær
Merkir sögustaðir opnast
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Í HNOTSKURN
»Ósabotnavegur liggur meðströndinni milli Stafness og
Hafna.
»Vegurinn er grófur en ak-fær og lýkur lagningu hans
ekki fyrr en í apríl. Eftir er að
ákveða hvenær varanlegt slit-
lag verður lagt á.
»Svæðið var áður lokaðvegna umsvifa varnarliðs-
ins sem skilur eftir sig töluvert
rask á umhverfinu.
»Með þessari leið opnast að-gangur að merkum sögu-
stöðum.
Grindavík | Bæjarstjórnir Grindavíkur og
Voga eru hvattar til að hafna tillögum
Landsnets um háspennulínuvæðingu
Reykjanesskagans, segir í ályktun sem
samþykkt var á opnum
fundi samtakanna Sól-
ar á Suðurnesjum í
Grindavík í fyrrakvöld.
Forsvarsmenn
Landsnets hafa kynnt
fyrstu hugmyndir sínar
um orkuflutning vegna
nýrra virkjana og ál-
vers við Helguvík. Í
ályktun fundarins í
Grindavík segir að ótækt sé að orkuflutn-
ingamannvirki verði látin skera Reykja-
nesskagann endilangt og hjarta fólk-
vangsins þvert. Rifjað er upp að
Sandgerðisbær hafi þegar hafnað tillögum
Landsnets um háspennulínur þvert yfir
Stafnes um Ósabotna vegna þeirra um-
hverfisspjalla sem slík mannvirki myndu
valda. „Háspennulínur skerða og koma í
veg fyrir aðra landnýtingu,“ segir þar.
Rifjuð er upp jarðfræðileg sérstaða
Reykjanesskagans á heimsvísu. Það,
ásamt nálægð við Bláa lónið, flugvöllinn
og höfuðborgina, skapi einstök tækifæri
fyrir ferðaþjónustuna. Stóriðjuáform sam-
ræmist illa langtímahagsmunum ferða-
þjónustunnar. Gríðarleg tækifæri séu til
útivistar en háspennulínur myndu rýra
útivistargildi svæðisins til muna.
Lítil umræða farið fram
„Lítil sem engin umræða hefur farið fram
um málið meðal íbúa Suðurnesja og þrátt
fyrir skiptar skoðanir íbúa er unnið að
framvindu málsins af fullum krafti. Áform
um álver í Helguvík snerta íbúa allra
sveitarfélaganna á Suðurnesjum þar sem
virkjanir með tilheyrandi umhverfisraski
myndu rísa í landi Grindavíkur, Voga og
Hafnarfjarðar, háspennulínur myndu fara
um þessi sömu sveitarfélög auk Sand-
gerðis, og álverið sjálft yrði staðsett í
Garðinum og Reykjanesbæ,“ segir enn-
fremur í ályktuninni.
Bæjarstjórnir
hafni línum
ÚTRÆÐI var til forna á Básendum sem eru skammt sunnan við Staf-
nes. Þar var ein af höfnum einokunarverslunarinnar og náði versl-
unarsvæðið yfir Hafnir, Stafnes og Miðnes. Útgerðin náði hámarki á
fyrstu tugum 18. aldar en þá voru milli 80 og 100 konungsbátar í Gull-
bringusýslu.
Básendar eru þó þekktastir fyrir sjávarflóðin sem gengu þar yfir að-
faranótt 9. janúar 1799. Eru það ein mestu sjávarflóð sem sögur fara af
við Íslandsstrendur. Þá missti kaupmaðurinn á staðnum allar eigur sín-
ar. Fólk varð að flýja og sumir urðu að skríða upp um þekjuna til að
komast út. Komst fólkið við illan leik til Stafness. Ein gömul kona fórst.
Enn má sjá minjar á Básendum um útgerð og búsetu fólks.
Verslunarstaðinn tók af í sjávarflóðum
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Fáskrúðsfjörður | Fjórða þjóðahá-
tíðin á Austurlandi verður haldin á
laugardag í félagsheimilinu Skrúð,
Fáskrúðsfirði. Að hátíðinni stendur
hálft hundrað manna af fimmtán
þjóðernum, auk bakhjarla eins og
Rauða krossins á Austurlandi.
Kristín Arna Sigurðardóttir, eða
Karna, er framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar.
„Undirbúningur hófst í nóvember
og fyrri þjóðahátíðir voru að ein-
hverju leyti lagðar til grundvallar, en
þó var ákveðið að hafa þema í hátíð-
inni, sem er listir og handverk og þá
sama hvort um er að ræða myndlist,
tónlist eða sviðslistir“ segir Karna.
„Við verðum með ljósmyndir, mynd-
list, listasmiðju, tónlistaratriði, leir-
og glerlist, íslenskt handverk og
fleira.“
Karna segir hátíðina að þessu
sinni með nokkuð öðru sniði en
venjulega og í raun reynt að ná sam-
an áhugasömu fólki og kafa ögn
dýpra en áður. Hún beri þess einnig
merki að eiga að höfða bæði til fólks
erlendis frá sem hefur sest að á
Austurlandi, sem og fólks sem starf-
ar tímabundið í fjórðungnum. „Þetta
skiptir máli og munstrið er breytt.
Við ákváðum að reyna sérstaklega
að ná til þeirra sem eru hér starfandi
til skamms tíma og eru jafnvel á för-
um.“
Ný skýrsla um innflytjendamál
Þjóðahátíðin er haldin á konudag-
inn og Karna segir eiginkonur
margra karla sem starfa við fram-
kvæmdirnar við Kárahnjúka og á
Reyðarfirði muni taka beinan þátt í
hátíðinni og vonandi lokka með sér
fleira fólk.
Dagskráin verður þannig að
klukkan tvö verður hátíðin opnuð
formlega með hátíðarræðu Helgu
Jónsdóttur, bæjarstjóra Fjarða-
byggðar. Þá flytur heiðursgestur há-
tíðarinnar, Amal Tamini frá Alþjóða-
húsi, ávarp. Þorvaldur Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi, afhendir
Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráð-
herra og Sæunni Stefánsdóttur for-
manni innflytjendaráðs, nýja skýrslu
um innflytjendamál á Austurlandi en
sú skýrsla hefur verið í vinnslu und-
anfarin misseri og er til þessa óbirt.
Þá er von á Valgerði Sverrisdóttur
utanríkisráðherra og ætlar hún að
fjalla um mannréttindamál. Ræður
verða allar túlkaðar á ensku.
Ræðuhöldin verða brotin upp með
tónlistaratriðum frá tónlistarskólum
Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
þar sem nemendur og kennarar
flytja heimstónlist. Þá syngja leik-
skólabörn á Fáskrúðsfirði og loks
flytja tónlistarkennarar frá Egils-
stöðum tónlist frá Úkraínu, Finn-
landi og Spáni af og til á hátíðinni. Í
kjölfar þessa hefst hátíðin með allri
sinni fjölbreytni og stendur fram
undir kvöld. Rauðakrossdeildin á
Stöðvarfirði verður með kaffisölu og
býður upp á bollur og pönnukökur.
Karna segir fólk áhugasamt um að
mæta, hún hafi heyrt frá nokkrum
sem mætt hafi á allar hátíðarnar
þrjár og þeir hlakki til þessarar. Hún
hefur ekki heyrt um skipulagðar
ferðir fólks frá Kárahnjúkum eða
Bechtel en segist muni leggja sitt að
mörkum til að svo verði.
Kostnaðaráætlun Þjóðahátíðar
hljóðar upp á um átta hundruð þús-
und krónur.
Í sumarfríi frá Nýja Sjálandi
Austfirðingurinn Karna býr um
þessar mundir á Nýja-Sjálandi en
þar sem nú eru sumarleyfi í landinu
og frí frá iðnhönnunarskóla í Well-
ington þar sem hún stundar nám,
kaus hún að koma heim til þess m.a.
að stjórna þjóðahátíðinni. Eftir þrjár
vikur snýr hún aftur til að ljúka þeim
tveimur árum sem eftir eru af nám-
inu. Hugurinn stendur svo til leik-
hússnáms í Tokýo.
Kafað dýpra í marga menn-
ingarheima Austurlands
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Nýbreytni Karna segir þjóðahátíð á Austurlandi verða með nýju sniði í ár.
Þjóðahátíð Austfirð-
inga haldin fyrir
íbúa og aðkomufólk
Djúpivogur | Sr. Sjöfn Jóhannes-
dóttir í Djúpavogsprestakalli hafnar
ásökunum Djúpavogshrepps um að
vanræksla á viðhaldi prestsbústaðar
á Djúpavogi sé af hennar völdum.
Í lögum um prestssetur segir að
prestssetrasjóður kosti viðhald
prestssetra. Í starfsreglum um
prestssetur segir að hvert lögboðið
prestssetur sé hluti af embætti
prestsins, sem sé vörslumaður
prestsseturs og beri ábyrgð á því
ásamt prestssetrasjóði. Í 4. gr. segir
að prestur ábyrgist og kosti minni
háttar lagfæringar og úrbætur sem
verður þörf á á prestssetri vegna
venjulegrar notkunar á því. Ef slíkra
framkvæmda verði þörf vegna lak-
legs ástands prestsseturs, sem
presti verður ekki gefin sök á, eða
þeirra er oftar þörf en eðlilegt má
telja miðað við aðstæður allar, megi
þó undanskilja prest ábyrgð og
kostnaði á því.
Ekki ábyrg
fyrir
viðhaldinu
Egilsstaðir | Flugstoðir hafa ráðið
Ársæl Þorsteinsson sem umdæm-
isstjóra fyrirtækisins á Austur-
landi. Ársæll gegnir nú starfi verk-
efnastjóra hjá Héraðsverki og
liggur ekki fyrir hvenær hann tek-
ur við hinu nýja starfi. Ingólfur
Arnarson gegndi áður starfi um-
dæmisstjóra en sagði því lausu um
áramót og hefur Jörundur Ragn-
arsson gegnt því í millitíðinni. Flug-
vellir eystra eru á Egilsstöðum,
Hornafirði, Norðfirði, Vopnafirði,
Breiðdalsvík og Fagurhólsmýri.
Umdæmisstjóri
Flugstoða
♦♦♦
AUSTURLAND