Morgunblaðið - 15.02.2007, Qupperneq 22
Norn Neðri hlutinn er gamalt hné-
pils af mömmu sem teygja er þrædd
í mittið á. Blússan og skikkjan er
saumuð úr bómullarefni sem
er 140 cm á breidd og fæst í
Rúmfatalagernum á 299 kr.
metrinn. Einn metri dugar í
búninginn. Hattur er vafinn
úr svörtum pappa en utan á
hann er lagt svart blúnduefni
með silfurblettum sem einn-
ig fæst í Rúmfatalagernum á
299 kr. metrinn. Hálfur
metri er nóg í bæði hatt og
belti. Sprotinn er kínversk-
ur matarprjónn. Kostnaður
er innan við 500 kr.
|fimmtudagur|15. 2. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það eru ekki aðeins matar-
skammtarnir sem hafa stækk-
að sl. 15–20 ár heldur einnig
matarílát, diskar og áhöld. » 24
hollusta
Marokkóska borgin Marrakesh
er ævintýraleg heim að sækja
enda fjölda áhugaverðra hluta
að sjá. » 28
ferðalög
Breski fatahönnuðurinn Paul
Smith er í hópi þeirra sem sýna
hönnun sína á tískuvikunni í
London. » 26
tíska daglegt
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Dreymir þig um að vera sjónvarp? Eða ösku-haugur? Hvort tveggja er mögulegt. Ef fögurprinsessa eða sjóræningi heillar fremur erekkert því til fyrirstöðu heldur. Og allt þetta
þarf ekki að kosta nema brot af því sem hefðbundnir
öskudagsbúningar kosta úti í búð.
Með pínulítilli útsjónarsemi, dágóðum skammti af
ímyndunarafli, góðum skærum og nál og spotta má
breyta gamalli flík í glæsilegan búning sem er þar að
auki einstakur í sinni röð. Venjulegir þekjulitir eða máln-
ingarlímband í mismunandi litum geta líka komið sér vel
og ef einhver lumar á gömlum efnisbútum, gluggatjöld-
um, blúndum eða slaufum eru hugmyndaríkum bún-
ingahönnuðum allir vegir færir. Liggi slíkar gersemar
ekki á lausu á heimili þeirra sjálfra er aldrei að vita nema
þær leynist í kistlum og skápum heima hjá ömmu eða
töntu.
Andlitsmálning og fylgihlutir
Ekki er verra að oftast sleppur buddan betur frá
heimagerðum öskudagsbúningum en þeim sem fást í
verslununum. Algengt verð á slíkum klæðum er hátt í
fimm þúsund krónur og jafnvel meira þegar fylgihlutir
eru keyptir með.
Fyrir þá sem vilja tilþrif í útliti má komast býsna langt
með því að eiga í handraðanum góða öskju með andlits-
málningu og jafnvel svolítið mótunarvax. Með þannig út-
búnaði má skapa hin hryllilegustu skrímsli sem njóta sín
einna best í látlausum klæðnaði. Svartar buxur, dökkur
bolur og skikkjan frá í fyrra dugar jafnvel prýðilega.
Stundum þarf heldur ekki mikið til að gamlir búningar
öðlist nýtt líf. Þannig getur nýr fylgihlutur, s.s. hárkolla,
djöflastafur eða vampírutennur gerbreytt ásýndinni
þannig að búningurinn sjálfur þurfi ekki að vera svo til-
komumikill. Ágætis úrval er af slíkum hlutum í leik-
fangaverslunum víða um land.
Í raun eru ekki mörg ár síðan algengast var að bún-
ingar væru hannaðir og útbúnir heimavið. Hver man
ekki eftir öllum sjónvarpskrökkunum sem íklæddir
gömlum pappakassa fyrir ofan mitti urðu að fréttamönn-
um í fremstu röð? Eða draslskrímslinu sem nældi dósir,
tuskubúta, kexpakkaumbúðir og annað tilfallandi rusl
utan á sig svo úr varð lifandi öskuhaugur?
Einn besti kosturinn við slíka búningagerð er að þann-
ig er hlutverkaleik krakkanna okkar engar hömlur sett-
ar. Í stað þess að fara út í búð og skoða úrvalið af annars
vegar stelpu- og hins vegar strákabúningum sem fram-
leiðendur úti í heimi hafa tilreitt, er ráð að spyrja börnin
hvað þau dreymir um að vera. Sé svarið geimfari er bara
að bretta upp ermarnar og draga fram álpappírinn úr
neðstu skúffunni í eldhúsinu.
Ef tíminn er knappur má alltaf grípa til gamla drauga-
bragðsins og klippa tvö göt á gamalt lak og bregða því
yfir sig. Baula svo með myrkri og holri röddu: „Búú-
úúúúúú!“
Prinsessa Grunnurinn er gamall
sparikjóll sem var orðinn of stuttur á
eigandann. Amma tók sig þá til og
skeytti gömlum gardínubútum,
blúndum, kögri og efnisafgöngum
sem hún átti í fórum sínum neðan við
og útkoman eru þessi glæsiklæði
sem hvaða eðalborin ungfrú
sem er gæti verið stolt af. Eng-
in er prinsessa án kórónu en ef
slíka er ekki að finna á heim-
ilinu má alltaf föndra hana úr
glanspappír og glimmerlími eða
kaupa hana úti í búð.
Logi geimgengill Jakk-
inn var fenginn að láni hjá
félaga sem iðkar karate og
innundir er gömul síðbrók.
Ljós efnisafgangur var rifinn
í strimla og vafinn upp eftir
fótleggjunum og vel notaðir
ullarsokkar settir utanyfir.
Sjónauki og hulstur utan af
myndavél var þrætt upp á breitt
belti og sylgjan klædd með ál-
pappír. Punkturinn yfir i-ið
er svo geislasverð sem ungi
pilturinn átti í fórum sínum
en var á sínum tíma keypt
í Leikbæ.
Sjóræningi Þessi ungi
maður ákvað sjálfur að
búa til sinn eigin bún-
ing og með góðfúslegu
leyfi foreldra sinna
klippti hann ermarnar
af gamalli spariskyrtu
sem var orðin of stutt.
Sú var raunin líka með
sparibuxurnar og því
var upplagt að stytta
þær enn frekar svo úr
yrði brók sem væri
hentug fyrir sjóræn-
ingja. Gömul slæða af
mömmu er prýðileg á
hausinn og leik-
fangahnífinn átti ungi
maðurinn í dótinu sínu
en fæst ella úti í búð.
Blöðrurnar gegna svo
hlutverki fall-
byssukúlna.
Með álpappír og gömlu
sparifötin að vopni
Kókkistan hans Jónasar Hall-
dórssonar geymir heilmikla
sögu og er með rassafar eftir
langar setur. » 26