Morgunblaðið - 15.02.2007, Side 27
ferðalög
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 27
ÁHUGAMENN um byggingarlist
ættu ekki að láta hina merkilegu
turnbyggingu Turning Torso fram
hjá sér fara næst þegar þeir eiga leið
um Málmey eða Kaupmannahöfn.
Turninn er staðsettur á hafnarsvæði
við miðborg Málmeyjar og er verk
spænska arkitektsins Santiago Cala-
trava. Áður hafði hann gert skúlp-
túrinn Twisting Torso sem kveikti
hugmynd hjá forstjóra sænska fast-
eignafélagsins HSB um að fá Cala-
trava til að hanna turnbyggingu í
svipuðum stíl.
Þetta gekk eftir og var hafist
handa við byggingu Turning Torso
sumarið 2001 en hann var formlega
tekinn í notkun í lok ágúst 2005.
Hann er 190 metra hár og alls 54
hæðir en af öðrum mannvirkjum í
Skandinavíu eru aðeins brúarstólp-
arnir í Eyrarsundsbrúnni hærri.
Byggingin er samsett úr níu
kubbaeiningum sem hver um sig er
fimm hæðir auk hæða sem eru milli
kubbanna. Það sem gerir turninn
hins vegar sérstakan er sveigjan eða
snúningurinn sem á honum er. Alls
er húsið um 4.200 fermetrar og í því
er 147 íbúðir auk skrifstofurýmis.
Engan útsýnispall er að finna í
Turning Torso því talið var að slík
aðstaða yrði of plássfrek og truflandi
fyrir íbúa turnsins. Þó geta hópar
leigt sér ráðstefnu- og fundar-
herbergi á toppi byggingarinnar. Þá
er upplýsingamiðstöð um mann-
virkið að finna í nærliggjandi bygg-
ingu.
Þrátt fyrir að stutt sé liðið frá því
að turninn var tekinn í notkun hefur
hann þegar unnið til fjölda alþjóð-
legra verðlauna og var m.a. í fyrra
kjörinn besti nýi skýjakljúfurinn.
Skýjum ofar í Malmö
Turning torso Hann er óneitanlega
bæði sveigður og snúinn.
Að vera í nálægð við náttúr-una hefur löngum heillaðfólk og nú hafa Danir
ákveðið að draga að ferðamenn
með þetta í huga. Í sumar mun í
fyrsta sinn í Kaupmannahöfn verða
opnað fljótandi hótel niðri við höfn
undir nafninu Copenhagen Living.
Þar munu gestir geta notið þess
besta sem bærinn býður upp á og
líka þess besta sem hafið hefur
fram að færa. Fyrirtækið Water-
land stendur fyrir þessum ósköpum
og ekkert verður til sparað, en hót-
elið mun vera sérhannað í bak og
fyrir og efniviðurinn í háum gæða-
flokki. Þetta verður lúxushótel og
herbergin koma til með að vera að-
eins tólf talsins. Þau munu verða
innréttuð bæði með sérhönnuðum
húsgögnum og sígildum. Gluggar
verða stórir svo hægt sé að njóta
útsýnar yfir haf og himin.
Flöskuskeyti út
um gluggann
Hótelið verður staðsett á höfn-
inni, aðeins nokkur hundruð metra
frá skipinu Viva sem er veitingahús
sem sama fyrirtæki, Waterland, er
að byggja en það mun þjónusta
gesti hins fljótandi hótels í hví-
vetna.
Mikil uppbygging er í hót-
elbransanum í Kaupmannahöfn um
þessar mundir og áhugi fyrir
hverslags nýjungum. Vaxandi eft-
irspurn er til að mynda eftir hót-
elum sem hafa mikla sérstöðu og
svarið við þeirri eftirspurn er með-
al annars fljótandi hótel. Danir vita
sem er að sjórinn hefur aðdrátt-
arafl hjá mannfólkinu og að þó svo
að fólk sé statt í borg vilja þeir
bjóða því upp á snertingu við hafið.
Og þeir láta ekki duga að reisa
fljótandi hótel, heldur stendur til
að byggja fljótandi húsnæði við
höfnina með íbúðum sem hinn al-
menni borgari getur búið í. Margur
heillast jú af tilhugsuninni um að
geta hent flöskuskeyti út um
gluggann heima hjá sér beint út í
sjó sem svo mun kannski enda í
New York eða Bombay.
Þar sem höfnin í Kaupmanna-
höfn er ekki lengur aðeins iðnaðar-
svæði vilja Danir skoða sem flesta
möguleika á hvernig megi nýta
hana og breyta henni í kraftmikið
og áhugavert svæði þar sem fólk
getur komist í snertingu við náttúr-
una og notið nálægðarinnar við haf-
ið.
Hafið skipar enda stóran sess í
huga Dana og er stór hluti af sögu
þeirra, allt frá steinöld og víkinga-
tímanum fram til dagsins í dag.
Heillandi höfn Danir vilja skapa kraftmikið svæði við höfnina.
Fljótandi hótel í
Kaupmannahöfn
-hágæðaheimilistæki
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Miele S381 Tango Plus ryksuga
með 1800W mótor
Verð áður kr. 24.600
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
Hebafilter sem hreinsar loftið af
ofnæmisvaldandi efnum.
Kolafilter sem hreinsar óæskilega lykt.
Hentar vel fyrri þá sem eru með gæludýr.
Parketbursti úr hrosshárum sem skilar
parketinu glansandi.
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er innbyggt í vélina.
Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur Miele heimilistækin
í einni glæsilegustu heimilistækjaverslun landsins.
AFSLÁTTUR
35%
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn