Morgunblaðið - 15.02.2007, Page 28
Það var bók sem vakti meðmér drauminn um að heim-sækja Marokkó. HideousKinky eftir Esther Freud
(já barnabarnabarn hins eina sanna
Sigmund Freud) en sem barn ferðað-
ist hún um landið ásamt systur sinni
og hippanum móður sinni – sem var í
leit að sjálfri sér.
Fyrsta stopp mitt var Marrakesh,
stundum nefnd höfuðborg Suður-
Marokkó. Litrík, krydduð og sólrík.
Marrakesh hefði varla getað verið
„marokkóskari“ ólíkt t.d. iðnaðar-
borginni Casablanca sem geymir fátt
af sínum fornu töfrum. Að mæta ör-
þreyttur upp á hótel og uppgötva að
fyrir bókunarmistök var „rétti“ gisti-
staðurinn í 200 km fjarlægð vakti þó
takmarkaða kátínu, sem og hótel-
leitin í yfirfullri borg um miðja nótt
sem fylgdi í kjölfarið. Eftir það fór
Marrakesh hins vegar bara batnandi.
Spennandi kokkteill
Það er líka auðvelt að láta heillast
af þessari 970.000 manna borg þar
sem nútíð og fortíð tvinnast saman í
marokkó-afrískan kokkteil með
frjálslegri umferðamenningu, dæld-
uðum bílum og þar sem Fiat Uno
virðist með einróma samþykki hafa
verið krýndur konungur leigubíl-
anna. Slíkt eykur þó aðeins á sjarm-
ann sem Marrakesh býr yfir.
Hún kann líka að teygja sig yfir
töluvert stórt svæði en það er þó að-
allega hlutinn innan gamla bæjarins
eða medínunnar, svæði sem nær yfir
um 10 km radíus, sem heillar ferða-
menn og því gott að velja náttstað
með það í huga. Að gista í hefð-
bundnu marokkósku húsi – riad –
innan veggja medínunnar sveipar
dvölina óneitanlega vissum ævin-
týraljóma, en getur líka reynst dýrt
eigi gististaðurinn að mæta vestræn-
um stöðlum. Fjölda hótela er enda að
finna við útmörk medínunnar.
En það er inn í medínuna sem
ferðamaðurinn leitar aftur og aftur,
með stuttum hléum í nútímalegum
Guéliz-bæjarhlutanum, þar sem
kaffihús og verslanir í vestrænum
anda veita hvíld frá miðaldastemn-
ingu og mannþröng.
Prúttmarkaður Mannþröngin á götunum í nágrenni Djemaa el-Fna er mikil og auðvelt að týnast.
Ljósmynd/Hannes Sverrisson
Litríkir félagar Þeir eru óneitanlega skrautlegir á að líta þessir menn og
að sjálfsögðu kröfðust þeir greiðslu fyrir myndatökuna.
Gosflöskuveiðar Kvöldskemmtan heimamanna á Djemaa el-Fna.
Mögnuð Marrakesh
Hún er ævintýraleg, sólrík, krydduð og með litskrúðugara og fjölbreytilegra
mannlífi en við eigum að venjast hér heima á Fróni. Marokkóska borgin Marra-
kesh náði að heilla Önnu Sigríði Einarsdóttur upp úr skónum.
ferðalög
28 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Laust blaðberastarf
í þínu sveitarfélagi!
Sandgerði/Garður Harpa Lind, s. 845 7894
Hveragerði Úlfar, s. 893 4694
Selfoss Sigdór, s. 846 4338
Borgarnes Þorsteinn, s. 898 1474
Akranes Ófeigur, s. 892 4383
Keflavík Elínborg, s. 421 3463, 820 3463
Grindavík Kolbrún, s. 847 9458
Hringdu núna: