Morgunblaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 29
Upplýsingar um borgina:
www.ilove-marrakesh.com
www. marrakesh.travell-
erspoint.com
Nokkrir góðir veitingastaðir innan
veggja medínunnar:
Le Marrakchi
Place Jemaa el Fna, angle rue des
Banques
sími: (212) 44 44 33 77
Dar Mimoun
1 Derb ben Amrane
(212) 44 44 33 48
Og ef peningar eru engin fyrir-
staða þá er veitingastaðurinn í
þessari 17. aldar höll þar sem sjálf-
ur Winston Churcill gisti heim-
sóknarinnar virði.
Dar Essalam
170 Riad Zitoune El Kedim
(212) 24 44 35 20
Trumbusláttur og töfrar
Djemaa el-Fna
Marrakesh var stofnuð árið 1062 af
soldáninum Youssef ben Tachfin. Það
er heldur ekki laust við að við borgina
loði enn þeir austurlensku töfrar í
anda 1001 nætur, sem aldalöng versl-
un með munaðarvarning og litrík
þjófagengi hafa gefið henni. Andi for-
tíðar lifir að minnsta kosti góðu lífi á
Djemaa el-Fna torginu sem myndar
þungamiðju medínunnar. Það er
enda ómögulegt annað en láta
heillast af því sem fyrir augu ber, það
er líka hér sem allt gerist og hingað
draga fæturnir mann aftur og aftur.
Djemaa el-Fna er jafnan iðandi af
lífi, en það er þó fyrst er húma tekur
að fjörið hefst fyrir alvöru. Þungir
tónar trumbusláttar skapa undirleik
fyrir ævintýralegt sjónarspilið sem
fyrir augu ber – hljóðfæraleikarar,
dansarar, fjöllistamenn, slöngutemj-
arar og sögumenn í bland við kaup-
menn, listafólk, almenna borgara og
svo að sjálfsögðu túristana sem ýmsir
líta á sem kærkomna bráð.
Upp liðast svo reykurinn frá mat-
sölubásunum á meðan sulturinn
vaknar við ilm af krásum sem eru allt
frá nýkreistum appelsínusafa til
kryddmikilla marokkóskra rétta og
jafnvel sviðahausa – sem reynast
ekki séríslenskt lostæti eftir allt sam-
an. Henna-skreytingar og þurrkuð
skordýr eru svo meðal þess varnings
sem er til sölu á torginu sjálfu en
hefðbundnari sölubásar með leð-
urvarning, vatnspípur, skart og fatn-
að skapa tengingu við verslun-
arhverfið, hið svonefnda „souq“, í
útjaðri torgsins til norðurs.
Prúttað, skoðað og slappað af
Það er ekki óvarlegt að áætla að
skoðunarferð um medínuna í Marra-
kesh taki um tvo daga, þó vissulega
sé auðvelt að dvelja þar mun lengur.
Þannig er til að mynda auðvelt að
ráfa tímunum og jafnvel dögum sam-
an um verslunarhlutann þó því fari
fjarri að það sé völundarhús af sama
toga og medínan í menningarborg-
inni Fes.
Engu að síður má hér líka hafa
mjög svo gaman af því að virða fyrir
sér litríka kryddhrauka, lifandi fið-
urfénað og handverksfólk við vinnu í
verslunum og verkstæðum sem opn-
ast út á þröngar göturnar.
Þegar hitinn síðan reynist of mikill
er kærkomið að tylla sér niður á einu
litlu kaffihúsanna og panta glas af dí-
sætu myntutei áður en haldið er á ný
í prúttslaginn sem öll innkaup í med-
ínunni fela óumflýjanlega í sér.
Söguslóðir og fagrir garðar
Skoðunarferð um Marrakesh þarf
þó ekki bara að fela í sér ráf milli
sölubása og verslana, því ekki er síð-
ur gaman að virða fyrir sér mannlífið
og þær sögufrægu byggingar sem
borgin hefur að geyma.
Konunglega hverfið – Kasbah – er
þannig einkar skemmtilegur við-
komustaður, sem og gyðingahverfið –
Mella og ekki vekur Koutoubia-
mínarettan, sem gnæfir yfir borginni,
minni áhuga. En þessi 12. aldar 70
metra hái turn er elsta og best varð-
veitta mínarettan sem um getur –
jafnvel utan landamæra Marokkó.
Ali ben Youssef, 12. aldar mosku sem
er sú stærsta í borginni, geta þeir
sem tilheyra öðrum trúarbrögðum en
múslimar þá notið þess að virða fyrir
sér utan frá, á meðan að allir eru vel-
komnir Palai el-Badi, þekktustu höll
Marrakesh sem byggð var á síðari
hluta 16. aldar. Jardin Majorell-
garðinn sem nú er í eigu hátísku-
hönnuðarins Yves Saint Laurent er
sömuleiðis vel heimsóknarinnar virði
og leiðist mönnum dvölin innan borg-
armúranna er alltaf auðvelt að
bregða sér í dagsferðir út frá Marra-
kesh.
annaei@mbl.is
Marokkóskt góðgæti Sviðin féllu í góðan jarðveg á matarmarkaðinum.
Kaupmaður í medínunni Þurrkaðir ávextir, hnetur, fræ og krydd eru seld í tonnavís og ilmurinn í loftinu eftir því.
Lostæti Matarvagn hlaðinn margskonar góðgæti.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 29
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com