Morgunblaðið - 15.02.2007, Qupperneq 48
HALLGRÍMUR Helgason opnar á
morgun í Gallery Turpentine sýn-
ingu undir heitinu „The Kodak Mo-
ments“. Flokkurinn samanstendur
af svart-hvítum grafíkverkum, 110
að tölu, sem unnin voru á árunum
2004–2007. Þau eru prentuð með
nýjustu tækni og fjalla öll um lífið
innan veggja heimilisins; sambönd
og sambúð, foreldra, börn og barn-
ing kynja. Að því er segir í frétta-
tilkynningu er heiti myndaflokksins
sótt í heim ljósmyndunar en Kodak-
fyrirtækið hefur lengi kallað dýrustu
augnablikin í lífi fólks „Kodak Mo-
ments“. Hinsvegar hefur teiknarinn
það fram yfir ljósmyndarann að geta
kafað undir hamingjubrosandi yf-
irborð gæðastundanna. Sýningin
fjallar því ekki einungis um ham-
ingjuástand hinnar vestrænu fjöl-
skyldu heldur veltir einnig fyrir sér
birtingarformi þess.
Hallgrímur segir umfjöllunarefnið
hafa kviknað sjálfkrafa fyrir þremur
árum þegar listamaðurinn stofnaði
til fjölskyldu sem nú telur fjóra á
heimili. Hann dregur þó ekki upp
beinar myndir af eigin fjölskyldu
heldur er um að ræða verk sprottin
fram úr leynihólfum undirmeðvit-
undarinnar. „Bestu verkin koma
þegar maður hættir að hugsa og
leyfir myndinni sjálfri að fylla papp-
írinn. Þá verður þetta eins og bein
útsending úr sálinni. En fyrst verður
maður auðvitað að ná að tengja sig,
ná sambandi við þá gömlu, ekki
ósvipað og miðlar gera: Afstilla hug-
ann en beintengja hönd við hjarta.“
Á sýningunni er fjallað á hispurs-
lausan hátt um skin og skúrir í sam-
böndum fólks, um vandfundið jafn-
vægi í samvinnu kynjanna, um
ofurgleði og ofurþreytu foreldra-
hlutverksins. Einnig er spegli
brugðið upp að sambúð fólks og
sambúðarformum, hamingju- og
skilnaðarstundum, frumást jafnt
sem endurást.
Þá fjalla margar myndanna um
hinn eilífa núning kynjanna og erf-
iðleika þeirra við að leika þau nýju
hlutverk sem tíminn hefur samið
þeim. Þá er einnig tæpt á nokkrum
hámálum samtíðar líkt og heimilis-
ofbeldi, makameðvirkni að
ógleymdu Byrgisheilkenninu.
Gallery Turpentine stendur við
Ingólfsstræti 5, 101 Reykjavík.
Hallgrímur Helgason
sýnir í Gallery Turpentine
Móðir og barn Hallgrímur hefur lengi vakið athygli fyrir myndir sínar.
Það er nóg að gera hjá Páli Ósk-
ari Hjálmtýssyni þessa dagana,
en hann tekur sér þó tíma til að
hvíla sig inn á milli. » 57
fólk
Hljómsveitirnar The Killers og
Arctic Monkeys voru sigurveg-
arar bresku tónlistarverð-
launanna í gærkvöldi. » 51
verðlaun
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
H
in hægláta og
trygglynda eig-
inkona Óðins,
Frigg, féll betur
að ímynd kvenna í
kristnu samfélagi 13. aldar en hin
sjálfstæða og óstýriláta frjósem-
isgyðja Freyja. Af þeim sökum
bregður Snorri
Sturluson á það
ráð að gera fyrr-
nefndu gyðjunni
hærra undir höfði
í verkum sínum
en ástleitinni kyn-
systur hennar.
Trúlegra er hins
vegar að í heiðn-
um sið fyrri alda
hafi Freyja þótt
allra kvengoða
merkust og átrúnaður á hana verið
meiri og lifað lengur en á aðrar gyðj-
ur.
Nokkurn veginn þannig hljómar
kenning þjóðfræðingsins Ingunnar
Ásdísardóttur sem sett er fram í ný-
útkominni bók hennar, Frigg og
Freyja Kvenleg goðmögn í heiðnum
sið. Bókin er afrakstur rannsóknar
sem Ingunn gerði fyrir meist-
araritgerð sína við Háskóla Íslands
og er gefin út í ritröðinni Íslensk
menning á vegum Reykjavík-
urAkademíunnar og Hins íslenska
bókmenntafélags.
„Rannsóknir síðustu áratuga hafa
tengst mikið kvengoðum, bæði í nor-
rænni goðafræði og víðar. Tilhneig-
ingin hefur verið sú að slá öllum gyðj-
um saman í eina alltumlykjandi
móðurgyðju,“ segir Ingunn og út-
skýrir að sig hafi langað að skoða það
með tilliti til Friggjar og Freyju,
helstu gyðja hinna tveggja goðahópa
norræna goðaheimsins, ása og vana.
Frigg betri fyrirmynd
„Rannsókn mín tekur vitaskuld
mikið mið af verkum Snorra Sturlu-
sonar, en þau eru önnur okkar aðal-
heimilda - hin er náttúrulega eddu-
kvæðin. Snorri er að skrifa á
kristnum tíma, hann er auk þess karl-
maður og skáld. Af því draga bæði
Heimskringla og Snorra-Edda mik-
inn dám. Hann gerir t.d. Óðni
kannski hærra undir höfði en ástæða
er til. Það er alls ekki víst að Óðinn
hafi verið æðsti guðinn eða sá guð
sem mestur átrúnaður var á af karlg-
uðunum, en skáldin setja hann í dálít-
ið forsæti því hann er þeirra sérstaki
guð.“
Ingunn segir Snorra róa á sömu
mið varðandi Frigg: „Frigg er kona
Óðins og hlýtur því að vera æðst. Hún
er líka gyðja sem hentar betur þeirri
kristnu heimsmynd sem komin er á
þegar Snorri skrifar. Hún er ekkert
mikið að hlaupa útundan sér frá eig-
inmanni sínum og er einnig hin harm-
ræna móðir Baldurs, sem grætur
þegar hann deyr. Sú ímynd passar
mjög vel við Maríumyndina og Frigg
hæfir því betur sem æðsta gyðjan og
fyrirmynd kvenna á kristnum tíma
heldur en Freyja sem var frjósem-
isgyðja, sjálfstæð og ástgjörn.“
Fyrst og fremst kennslurit í
skáldskap og bragfræði
Ingunn sýnir skáldskaparhug-
sjónum Snorra engu að síður skiln-
ing. „Tilgangur Snorra með Snorra-
Eddu er að skrifa kennslubók í skáld-
skap og bragfræði. Það þarf því ekki
endilega að hafa verið grundvall-
aratriði að segja frá heiðninni alveg
rétt og hann virðist leyfa sér að laga
hana til og setja fram mynd sem er
ástættanleg í hans samfélagi. Hann
er mjög áfram um að viðhalda skálda-
listinni og notar til þess ýmis meðul.“
Hvort þessi framsetning Snorra
hafi haft einhver áhrif á kvenímynd
þess tíma segist Ingunn ekki vilja
staðhæfa. „Á þessum tíma er kaþ-
ólskan í öndvegi og ímynd Maríu
sterk. Við vitum ekki um margar kon-
ur sem voru að yrkja og þar af leið-
andi að kynna sér þessi skáldskap-
arfræði Snorra, svo ekki er gott að
átta sig á því hvort þessi mynd hafi
haft einhver afgerandi áhrif. Hitt er
ljóst að Friggjarmyndin er í svo
miklu meira samræmi við hina
kristnu fyrirmynd að hún hefur bara
bætt þar í.“
Snorri Sturluson gerði minna úr hlut-
verki Freyju í heiðni en efni stóðu til
Trygg Teikning Hans Racke-
Madsens af hinni trygglyndu eig-
inkonu Óðins.
Sjálfstæð Ingunn
Ásdísardóttir segir að í
heiðnum sið hafi Freyja
þótt allra kvengoða
merkust. Hér getur að
líta teikningu Hans
Racke-Madsens af ást-
argyðjunni í Úlfurinn
bundinn.
Maríuímynd Friggjar
Ingunn
Ásdísardóttir
staðurstund
Steinunn Sigurðardóttir fjallar
um nýja franska kvikmynd um
leikskáldið Moliere, sem hún
segir mjög góða. » 50
kvikmyndir
Noel Gallagher, forsprakki Oas-
is, er búinn að semja átta lög
fyrir næstu plötu sveitarinnar,
og Liam bróðir hans tvö. » 56
tónlist
Ekki er ólíklegt að breska leik-
konan Sienna Miller verði
næsta Bondstúlka, enda bæði
falleg og hæfileikarík. » 57
fólk
|fimmtudagur|15. 2. 2007| mbl.is