Morgunblaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 49
SAFNPLATAN Hver
er sinnar kæfu
smiður er mest
selda plata vik-
unnar, sem og í
síðustu viku. Þar
er á ferðinni plata
sem inniheldur
margar af skær-
ustu gamanperlum
Ladda frá áratuga
ferli hans sem einn helsti gamanleikari þjóð-
arinnar.
Næskomandi laugardag verður grínsýningin
Laddi 6-tugur frumsýnd í Borgarleikhúsinu en
þar fer hinn nýlega sextugi Laddi með gam-
anmál eins og honum einum er lagið. Líklegt er
að margir góðkunningjar eigi eftir að reka inn
nefið, til dæmis Dengsi og Elsa Lund.
Kæfusmiðurinn
Laddi!
ÞEIR bræður Kar-
íus og Baktus hafa
síðustu misseri al-
ið manninn á Ak-
ureyri þar sem þeir
hafa troðið upp í
leikhúsinu.
Þeir félagar lögðu
svo land undir fót á
dögunum og hyggj-
ast skemmta höf-
uðborgarbúum í Borgarleikhúsinu. Skemmst
frá því að segja er uppselt á allar sýningar í höf-
uðborginni fram til 15. apríl og bætt hefur verið
við nokkrum aukasýningum.
Platan með lögunum úr leikritinu selst vel í
samræmi við eftirspurnina en það er hljóm-
sveitin 200.000 naglbítar sem hefur rokkað
þessar þekktu barnavísur vel upp.
Svangir bræður
sitja hér!
BANDARÍSKA söngkonan
og lagasmiðurinn Norah
Jones situr sem fastast í
öðru sæti Tónlistans,
aðra vikuna í röð á listan-
um.
Það er þriðja plata henn-
ar, Not Too Late, sem
tryggir henni sætið, en
platan kom út hér á landi
fyrr í mánuðinum.
Jones sló samstundis í
gegn þegar hún gaf út sína fyrstu plötu, Come
Away With Me, í febrúar árið 2002. Platan end-
aði á að seljast í átján milljónum eintaka víða
um heim sem verður að teljast nokkuð góður
árangur frumraunar.
Önnur platan, Feels Like Home, kom svo út
tveimur árum síðar og þó hún hafi ekki selst í
eins mörgun eintökum og fyrirrennarinn var
henni víðast hvar vel tekið.
Norah Jones
ekki of sein!
ÍSLENSKU tónlist-
arverðlaunin voru fyrst
veitt á dögunum og af því
tilefni var gefinn út
geisladiskur með lögum
þeirra hljómsveita sem
tilnefndar voru til verð-
launa á hátíðinni.
Flytjendurnir eru eins
ólíkir og þeir eru margir,
allt frá Voces Thules til
Baggalúts, frá Jóel Páls-
syni til Hafdísar Huldar.
Á plötunni er svo að sjálfsögðu lagið „Please
Don’t Hate Me“ með Lay Low sem fékk flest
verðlaun á hátíðinni, meðal annars sem söng-
kona ársins. Auk þeirra má finna lög með
Ghostdigital, Skúla Sverrissyni, Ásgerði Júní-
usdóttur, Benna Hemm Hemm og fleiri.
Uppskeruhátíð
tónlistar!
!
"# $ $ $!$%&'$( )*(+!$,-.'$/$ 0 $($ $1 /! '$ $2 )'
$-"'$/3+!'$.*$4$0 '$% $50 4'$$"#$4$56)
0
0
,+##
12
7
43$84
7$49
-+$2# 4
:0
1*$4$;4 ) #$<
:0
<3 ( $;+
$ 0
7$$4$ $=> $?
1 >$1 4
- ??
%@ $-
80 $.4 4
:0
0)4)
:0
-
??
A
.4
$ 4
B
->
:0
C !$, 0
-+
1 $<#
2!/ $2
<4?? $D0
2 $ $ $ E! $ 0(
4$44$
% $4F$3 $0
-+'$1!#$4$
<4 $ 1*$4$;4 )
%4=@$ G#(+
0
H/ $4$-
1 /
D $!4$0$9
A I4
1#$ $
1$4$3 $044
J $# ( 74
0? $4
$1
K4! 4 $4
744
% 0$K4 I4
)$/$5
<330 $ $0 4L$K ?
$43 $I )
;$;#
"
$)) $I )
< ?46
1
5.,
KM $. I
1
1
1
1
$"#
14N-.;
1+ $ 3!
$"#
1
$"#
A
1
1
$"#N2
5.,
A
A
D
A
5.,
; 0
A
A
10
10
.O,5N$"
5.,
Fátt er eins háð tíðaranda ogtíma og fyndni, ekki sístþegar búið er að festa hana
á bók. Iðulega les maður gamlar
bækur sem sagðar eru meistaralega
fyndnar og það eina sem er fyndið
við þær er að einhverjum hafi þótt
þær fyndnar. Þetta á eðlilega helst
við þegar gamansemin er um of
bundin við samtímaatburði eða
byggist á fólki sem er vel þekkt á
þeim tíma er bókin er skrifuð en
ekki einhverjum áratugum síðar.
Það er helst ef höfundurinn glímir
við mannlegt eðli sem bók getur
haldið gildi sínu árum eða áratugum
saman, eins og til að mynda í Cold
Comfort Farm eftir Stellu Gibbons
sem kom fyrst út í Bretlandi fyrir
rúmum sjötíu árum.
Cold Comfort Farm segir fráFlora Poste, ungri stúlku sem
misst hefur foreldra sína. Þar sem
hún kærir sig ekki um að vinna fyrir
sér, ákveður hún að finna viðeigandi
ættingja til að búa hjá. Fyrir ýmsar
sakir velur hún Cold Comfort Farm,
þar sem Ada Doom, ættmóðirin,
ekkja Fig Starkadder, ræður ríkj-
um. Nafnið á bænum gefur vel til
kynna með hvaða brag lífið er á
þeim slóðum, í Howling sýslu í Sus-
sex.
Ábúendur á Cold Comfort Farm
eru hver öðrum óárennilegri, hvort
sem það er Amos Starkadder, sem
er ofsatrúarmaður með eigin söfn-
uð, Judith, sem beinir sjúklegri þrá-
hyggju að syni sínum, Seth, flag-
aranum mikla, myndarlegum og
dýrslegum í senn, hatar kvenfólk en
fær ekki frið fyrir því, Reuben bróð-
ir hans, sem er þunglyndur ræfill
við fyrstu sýn, Elfine, sem heldur til
á heiðum úti í grænu skikkjunni
sinni og svo má lengi telja en fjöl-
skyldutengsl eru flókin og verða
eiginlega æ flóknari eftir því sem
líður á söguna. Ada Doom er svo yf-
ir og allt um kring, heldur öllum á
bænum í heljargreipum þó ekki
komi hún út úr herbergi sínu nema
tvisvar á ári en þar situr hún vegna
atviks í æsku - hún sá eitthvað
hroðalegt í eldiviðarskúrnum sem
legið hefur á henni eins og mara alla
tíð (við fáum aldrei að vita hvað það
var og heldur ekki hvað hún gerði
föður Floru, þó Starkadder-fólkinu
verði tíðrætt um það, en við sögu
kom geit og Amos Starkadder).
Nú brestur mig þekking á sveita-rómantík þriðja og fjórða ára-
tugar síðustu aldar en úr þeim bók-
um sem ég hef þó lesið frá þessum
árum þekki ég fjölmargar persónur
eða eiginlega erkitýpur sem fá við-
eigandi meðferð í Cold Comfort
Farm. Einnig er ég handviss um að
hr. Meyerburg, sem Flora kallar
aldrei annað en hr. Mybug, á sér
sterka tilvísun í David Herbert
Lawrence, höfund Lady Chatter-
ley’s Lover, enda er Mybug af-
skaplega upptekinn af kynlífi - ekki
er hægt að ganga með honum úti því
allar hæðir eru fyrir honum eins og
ungmeyjabrjóst, þrútnir brum-
hnappar minna hann á geirvörtur
og hreinar meyjar og stofnar
trjánna á getnaðarlimi.
Í lokin nær Flora markmiðum sín-
um, að bjarga Starkadder-slektinu.
Seth verður kvikmyndastjarna, Elf-
ine giftist Reubern og fær yfirráð
yfir búgarðinum, Judith snýr þrá-
hyggju sinni að sálfræðingi og síðan
að gömlum evrópskum kirkjum sem
verða henni óþrjótandi áhugamál,
Amos gerist farandpredikari vestur
í Ameríku, nema hvað, og svo má
áfram telja. Meira að segja ættmóð-
irin ógurlega ákveður að venda sínu
kvæði í kross og skemmta sér í Par-
ís.
Galdurinn við Cold ComfortFarm er að Stella Gibbon glím-
ir við sveitarómatíkina sem enn veð-
ur uppi, dýrkun einfaldara lífs þeg-
ar allir voru í takti við náttúruna -
sjá til að mynda bandalög menntaðs
miðstéttafólks um að hætta að
kaupa nýja hluti í nokkra mánuði,
rómantíska and-neysluhyggju
þeirra sem veitist auðvelt að neita
sér um gæði sem þeir eru búnir að
kaupa. Hún er líka beittur femínisti
og dregur það vel fram að mínu
mati hvernig frjálslyndi í kynferð-
ismálum á þessum tíma var eig-
inlega helst verkfæri karla til að
gera konur tilkippilegri, nokkuð
sem gengið hefur aftur og aftur, sjá
til að mynda kynlífsbyltingu áttunda
áratugarins sem snerist að mestu
um kynfrelsi karla og sama má svo
segja um klámvæðingu okkar tíma.
Cold Comfort Fram er því ein af
þessum tímalausu bókum sem beina
sjónum innávið, skyggnist inn í
mannshjartað sem breytist aldrei,
því miður (og sem betur fer).
Tímalaus gamansemi
Vísbendingar Kápurnar á Cold Comfort Farm gefa sínar vísbendingar um hvernig tíðarandinn hefur breyst.
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Iðulega les maðurbækur sem sagðar
eru meistaralega fyndn-
ar og það eina sem er
fyndið við þær er að ein-
hverjum hafi þótt þær
fyndnar.
arnim@mbl.is