Morgunblaðið - 15.02.2007, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
eee
Ó.H.T RÁS 2
eeee
-ROKKLAND Á RÁS2
eeeee
BAGGALÚTUR.IS
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
8 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 6 STUTTMYND
The Pursuit of Happyness kl. 8 og 10.20
Dreamgirls kl. 5.40, 8 og 10.20
The Pursuit of Happyness kl. 5.30, 8 og 10.30
The Pursuit of Happyness LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
Rocky Balboa kl. 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Vefurinn hennar Karlottu m/ísl. tali kl. 3.40
Night at the Museum kl. 5.40, 8 og 10.20
Anna and the moods m/ensku tali kl. 4, 6 og 7 STUTTMYND/ótextuð
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4 og 5 STUTTMYND
Apocalypto kl. 10.10 B.i. 16 ára
Köld slóð kl. 5.45 B.i. 12 ára
Síðasta lotan!
Byggð á sannri sögu um
manninnn sem reyndi
það ómögulega!
Frábær stórmynd sem slegið hefur í gegn
eee
DÓRI DNA - DV
YFIR 25.000 GESTIR
eee
V.J.V. - TOP5.IS
eee
S.V. - MBL
ATH! BÓKIN SEM MYNDIN ER BYGGÐ Á
HEFUR VERIÐ ENDURÚTGEFIN
HJÁLPIN BE
RST
AÐ OFAN
eee
S.V. - MBL
1TILNEFNING TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
eee
H.J. - MBL
eeee
VJV - TOPP5.IS
“Stallone lokar seríunni
með glæsibrag”
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
eeee
S.V. - MBL
Stórsniðug og snjöll mynd
með afbragðs tónlist og
óvenjulegri sögu
eeee
K.H.H. - FBL
Frá framleiðendum Litlu lirfunnar ljótu!
700
kr fy
rir fu
llorð
na
og 5
00 k
r fyr
ir bö
rn
eee
M.M.J - Kvikmyndir.com
eee
S.V. - MBL
SÍÐ
US
TU
SÝ
NIN
GA
R
ÓSKARSTILNEFNINGAR3
SÍÐ
US
TU
SÝ
NIN
GA
R
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
Þeir HelgiHjaltalín
Eyjólfsson og
Pétur Örn
Friðriksson
eru með sýn-
ingar er bera
heitið „Mark-
mið“ í Kling
& Bang gall-
eríi, tvær
einkasýn-
ingar í samvinnu.
Þar fara saman ný verk og verk
sem eru endurgerð að þau verða
jafn ný og ógerðu verkin sem
kvikna með byggingavörubækl-
ingnum. Þar verður sýningin sjálf
endurgerðin frekar en verkin sjálf.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Auður Andrea Skúladóttir held-ur sína fyrstu einkasýningu á
veitingastaðnum Geysi í Geysishús-
inu, Aðalstræti 2.
Auður Andrea er 16 ára langveik
stúlka. Verk hennar eru einstök
eins og listamaðurinn sjálfur – lit-
skrúðug fantasía, full af gleði og
bjartsýni á lífið.
Sýningin stendur til 1. mars nk.
Góugleði verður haldin í Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 20. febrúarkl. 18. Góugleðin hefst í kirkjunni þar sem boðið verður upp á söng-
atriði, en bræðurnir Sigmundur og Gunnar Jónssynir syngja íslenska dú-
etta og einsöngslög. Síðan verður kvöldverður í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Gunnar Hauksson, formaður Fellasóknar, leiðir samveruna, sr.
Svavar Stefánsson sér um gamanmál og Vinabandið sér um tónlistina.
Nauðsynlegt er að skrá sig í s: 557 3280 fyrir kl. 16 á mánudag. Verð
2.000 kr.
Tónlist
Café Paris | DJ Lucky spilar soul, funk,
reggae, gömlu og nýju hiphop/rnb
Café Rosenberg | SRB vinnur að nýrri plötu
og verður efni af henni leikið á tónleikunum
ásamt eldra efni. SRB skipa Helgi Þór Inga-
son á harmonikku, Matthías Stefánsson á
fiðlu, Ólafur Sigurðsson á mandólín, Ólafur
Þórðarson á gítar, Kormákur Bragason á gít-
ar og Grétar Ingi Grétarsson á kontrabassa.
Hallgrímskirkja | Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson munu flytja perlur ís-
lenskra sálma í eigin útsetningum sunnu-
daginn 18. febrúar. Listvinafélag Hallgríms-
kirkju stendur fyrir tónleikunum sem hefjast
kl. 20, miðaverð er 1.500 kr. (námsmenn
500 kr.). Ath breyttan tíma.
Kaffi Amsterdam | Útgáfutónleikar fyrstu
breiðskífu íslensku rokkhljómsveitarinnar
Envy of Nona 16. febrúar. Húsið opnað kl. 21.
Breiðskífan verður á kynningarverði, 1.000
kr., frítt inn.
Salurinn, Kópavogi | TÍBRÁ: Terem kvartett
& Diddú í kvöld kl. 20. Rússnesku snilling-
arnir í hinum óviðjafnanlega Terem kvartett
með sín þjóðlegu rússnesku hljóðfæri eru
þegar orðnir átrúnaðargoð í heimalandi
sínu. Þeir eru komnir aftur í Salinn og hafa
boðið Diddú að syngja með sér. Auka-
tónleikar á morgun, föstudaginn 16. feb., kl.
20. Nánar á www.salurinn.is Miðaverð:
2.000 kr. í s: 570 0400 og á salurinn.is
Myndlist
101 gallery | Stephan Stephensen, aka
president bongo. If you want blood… You’ve
got it! Sýningin stendur til 15. feb. Opið
þriðjudaga til laugardaga kl. 14–17.
Anima gallerí | Aðalheiður S. Eysteinsdóttir.
Lágmyndir. Sýningin stendur til 24. feb. Op-
ið þri.–lau. kl. 13–17 www.animagalleri.is
Art-Iceland.com | Myndlistarsýning í Mið-
stöð símenntunar Hafnarfirði. Þar gefur að
líta fjölbreytt verk 10 listamanna. Olíuverk,
grafík, og teikningar. Sýningin stendur til 16.
febr. og er opin á kennslutíma skólans.
Artótek Grófarhúsi | Borgarbókasafni. Sýn-
ing á verkum Guðrúnar Öyahals myndlist-
armanns. Á sýningunni eru lágmyndir unnar
í tré og ýmis iðnaðarefni s.s. gler, nagla,
sand og rafmagnsvír. Sjá nánar á www.arto-
tek.is Sýningin stendur til 18. febrúar.
Café Karólína | Sýning Kristínar Guðmunds-
dóttur samanstendur af textaverkum á gla-
samottur og veggi. Verkin sem skiptast í tvo
hluta, annars vegar minningar barns um að-
varanir þeirra eldri og svo hins vegar syndir
þeirra eldri og hvernig hægt sé að forðast
þær.
Café Mílanó | Faxafeni 11. Flæðarmálið –
Ljósmyndasýning Rafns Hafnfjörð. Opið kl.
8–23.30 virka daga, kl. 8–18 laugardaga og
kl. 12–18 sunnudaga.
Energia | Haf og land. Málverkasýning
Steinþór Marinó Gunnarsson. Sýningin er
opin frá kl. 8–20 og stendur til 1. mars.
Gallerí | Samkeppni um útilistaverk. Sýning
á innsendum tillögum um gerð útilistaverks
við Hellisheiðarvirkjun. Opið alla virka daga
frá kl. 8.30–16. Sjá nánar www.or.is/gallery
Gallerí Lind | Kópavogi. Kjartan Guðjónsson
er listamaður febrúarmánaðar. Kjartan er
fæddur 1921 og var einn af upphafsmönnum
Septembersýningarinnar sem hélt uppi
merkjum afstrakt málverksins á árunum
1947–1952. Til 23. febrúar.
Gallerí Úlfur | Baldursgötu 11. Sýning Þór-
halls Sigurðssonar – Fæðing upphafs. Þór-
hallur er sjálfmenntaður málari fyrir utan að
hann var í eitt ár í fornámi MHÍ og í ár á
myndlistarbraut í lýðháskóla í Danmörku. Til
20. febrúar. Opið mán.–föst. kl. 14–18, laug.
og sun. kl. 16–18.
Gerðuberg | RÚRÍ: Tími – Afstæði – Gildi.
Sýning frá glæstum listferli. Opin virka daga
frá kl. 11–17 og um helgar frá kl. 13–16. Sýn-
ingin stendur til 15. apríl.
Hafnarborg | Hrafnhildur Inga Sigurð-
ardóttir sýnir tæplega 40 málverk, máluð á
þessu ári og því síðasta og eru öll verkin ol-
íumálverk. Myndirnar eru minningarbrot frá
ferðalögum um Ísland. Til 4. mars.
Yfirlit yfir listferil. Dröfn Friðfinnsdóttir
(1946–2000) lét mikið að sér kveða í ís-
lensku listalífi. Hún haslaði sér völl í einum
erfiðasta geira grafíklistarinnar, tréristunni.
Til 4. mars.
Hallgrímskirkja | Mynd mín af Hallgrími. 28
íslenskir myndlistarmenn sýna útfærslur
sínar á hinni alkunnu mynd Hjalta Þorsteins-
sonar af Hallgrími Péturssyni.
Hrafnista, Hafnarfirði | Olga Steinunn
Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 2. mars.
i8 | Sýning á verkum Kristins E. Hrafns-
sonar stendur yfir til 24. febrúar. Opið er
þri.–föst. kl. 11–17 og laug. kl. 13–17.
Karólína Restaurant | Listagilinu á Ak-
ureyri. Jónas Viðar sýnir málverk. Sýningin
stendur til 4. maí. Nánar á www.jvd.is
Kling og Bang gallerí | Helgi Hjaltalín og
Pétur Örn sýna tvær einkasýningar í sam-
vinnu. Þar fara saman ný verk og verk sem
eru endurgerð að þau verða jafn ný og
ógerðu verkin sem kvikna með bygg-
ingavörubæklingnum. Þar verður sýningin
sjálf endurgerðin frekar en verkin sjálf.
Listasafn ASÍ | Leiðsla. Eygló Harðardóttir
sýnir skjáverk, málverk á pappír, teikningar
og þrívíð verk, unnin með safnrýmið í huga.
Til 25. febrúar. Aðgangur er ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Jóns Óskars – Les Yeux de L’ombre Jaune
og Adam Batemans – Tyrfingar. Opið alla
daga nema mánudaga 12–17.
Listasafn Reykjanesbæjar | Duus-húsum.
Sýning Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur og
Arons Reys Sverrissonar. Sýningin ber heit-
ið Tvísýna og um er að ræða málverk í anda
raunsæisstefnu.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
safnið – Gleymd framtíð. Sýningin sam-
anstendur af 100 vatnslitamyndum sem
voru málaðar á árunum 1981–2005. Mynd-
irnar eru flestar í eigu Errós og hafa ekki
verið sýndar hér á landi áður. Myndefnið er
fjölbreytt og byggist á klippimyndum. Sýn-
ingarstjóri er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir.
D er ný sýningaröð sem nefnd er eftir einum
sýningarsal hússins og er hugsuð sem fram-
tíðarverkefni safnsins. Með henni vill safnið
vekja athygli á efnilegum myndlist-
armönnum. Fyrst til að sýna verk sín í sýn-
ingaröðinni er Birta Guðjónsdóttir.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Á
sýningunni Foss eru tengsl listar og náttúru
rannsökuð í gegnum verk fjögurra lista-
manna sem nálgast viðfangsefnið á afar
ólíkan máta. Listamennirnir eru: Hekla Dögg
Jónsdóttir, Ólafur Elíasson, bandaríska lista-
konan Pat Steir og Rúrí. Sýningarstjóri er
Hafþór Yngvason.
K-þátturinn. Á sýningunni eru verk og ferill
Kjarvals skoðuð út frá hugarheimi Kjarvals í
því skyni að varpa nýju ljósi á verk hans fyrir
samtímann. Sýningarstjóri er myndlist-
armaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson sem
hefur í verkum sínum kannað sýn Íslendinga
á náttúruna og verk Kjarvals.
Kjarval og bernskan. Sýning í norðursalnum
fyrir börn þar sem varpað er ljósi á ýmsa
forvitnilega snertifleti Kjarvals við æskuna.
Verkin á sýningunni varpa ljósi á og eru upp-
spretta hugleiðinga um ólíkar aðstæður
barna fyrr og nú. Alla sunnudaga kl. 14 er
dagskrá fyrir börn í salnum.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Safnið og
kaffistofan opin laugardaga og sunnudaga
kl. 14–17. Nánar á www.lso.is
Listasalur Mosfellsbæjar | Kjarna, Þver-
holti 2, í Bókasafni Mosfellsbæjar. Sýningu
Bryndísar Brynjarsd. „Hið óendanlega rými
og form“ lýkur laugard. 17. febrúar. Bryndís
verður við síðasta daginn kl. 12–15. Í verkum
hennar leika saman form og hið óendalega
rými. Opið virka daga kl. 12–19, lau. kl. 12–15.
Listhús Ófeigs | Skólavörðustíg 5. Bjarni H.
Þórarinsson, Ómar Stefánsson og Guð-
mundur Oddur Magnússon samstarfsverk-
efnið Cosmosis-Cosmobile. Guðmundur
Oddur bræðir saman á sinn hátt mynd-
heima þessara tveggja listamanna. Þetta er
sölusýning stendur til 28. febr. Opið á versl-
unartíma.
Skaftfell | Framköllun, sýning Haraldar
Jónssonar, hefur verið framlengd til 20.
febrúar. Sýningin er opin frá kl. 13–17 allar
helgar eða eftir samkomulagi. www.skaft-
fell.is
Þjóðarbókhlaðan | Sigurborg Stefánsdóttir
sýnir bókverk til 28. feb. Bókverk eru mynd-
listarverk í formi bókar.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, sænsku og
þýsku. Margmiðlunarsýning og gönguleiðir í
nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Vissir þú að
meðal þess sem framleitt var í Iðn-
aðarbænum Akureyri var súkkulaði, skinn-
kápur, skór, húsgögn og málning? Á Iðn-
aðarsafninu á Akureyri gefur á að líta þá
framleiðslu sem fram fór á Akureyri á síð-
ustu öld auk véla, verkfæra, auglýsinga og
sveinsstykkja. Opið á laugardögum kl. 14–16.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Að-
alstræti 16, er lokuð. Opnað að nýju 3. mars.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn |
Spari bækur. Sýning Sigurborgar Stef-
ánsdóttur Bókverk eru myndverk í formi
bókar. Í bókverki eru eiginleikar bókarinnar,
svo sem umfang, band, síður, og svo fram-
vegis notaðir í myndlistarlegum tilgangi.
Bókverkin eru einstök verk eða framleiddar
í takmörkuðu upplagi.
Sýningin Upp á Sigurhæðir – Matthías Joch-
umsson. Matthías Jochumsson var lyk-
ilmaður í „þjóðbyggingu“ 19. aldar. Menn
þekkja best sálmana, þjóðsönginn og
Skugga-Svein en skáldpresturinn skildi eftir
sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýn-
ingin stendur út febrúar.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Á árunum
1965–1980, ferðaðist danski ljósmyndarinn
Mogens S. Koch alls tíu sinnum til Græn-
lands með Hasselblad-myndavél sína. Af-
rakstur ferðanna er yfir 100 þúsund myndir
en aðeins örsmátt brot af þeim er á sýning-
unni. Til 18. febr.
Skotið: Menjar tímans – Sissú. Sýningin
fjallar um áferð og athafnir sem verða til við
breytingar í umhverfi mannsins og eru
myndirnar brotabrot af menjum og tíma-
sveiflu í byggðu umhverfi á Reykjavík-
ursvæðinu. Til 20. febr.
Minjasafnið á Akureyri | Sýndar eru 70
óþekktar myndir og er almenningur beðinn
um aðstoð við að setja nafn á andlit og heiti
á hús. Hefur þú séð annað eins? Nokkrir
sjaldséðir gripir sem gestir geta spreytt sig
á að þekkja. Aðrar sýningar: Akureyri – bær-
inn við Pollinn & Eyjafjörður frá öndverðu.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns |
Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1
hefur verið sett upp yfirlitssýning á íslensk-
um gjaldmiðli og öðru efni í eigu safnsins.
Þar er einnig kynningarefni á margmiðl-
unarformi um hlutverk og starfsemi Seðla-
banka Íslands. Sýningin er opin mán.–föst.
kl. 13.30–15.30. Gengið er inn um aðaldyr
bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is
Þjóðmenningarhúsið | Á sýningunni Hand-
ritin eru sýnd nokkur merkustu skinnhandrit
miðalda, svo sem Konungsbækur Eddu-
kvæða og Snorra Eddu, Flateyjarbók og val-
in handrit lagabóka, kristilegra texta og Ís-
lendingasagna, og auk þess nokkur
mikilvæg pappírshandrit frá seinni öldum.
Leiðsögn fyrir hópa og nemendur.
Á lokaspretti sýningarinnar Íslensk tísku-
hönnun 23.–27. febrúar verður sýndur nýr
fatnaður frá hönnuðunum; Spaksmanns-
spjörum, Ástu Guðmundsdóttur, Þorbjörgu
Valdimarsdóttur, Rósu Helgadóttur, Önnu
Guðmundsdóttur, Dóru Emilsdóttur, Rögnu
Fróða, Jónu B. Jónsdóttur og Steinunni Sig-
urðardóttur.
Dans
Hótel Borg | Gyllti salurinn. Milongan
(tangódansleikur) hefst kl. 21 í kvöld og
stendur til kl. 24. Kl. 20–21 er opinn tími fyr-
ir byrjendur. Aðgangseyrir er 500 kr. Allir
velkomnir. Sjá tango.is
Tony’s County og Ölfushöll | The 67 Dance
Floor Groovers snúa skífum fram til kl. 3.
Frítt inn, aldurstakmark.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Fimmtud. 15. febr.
býður Ármann Reynisson í vinjettukaffi í
staðurstund
Myndlist
Litskrúðug
fantasía
Myndlist
Tvær
einkasýningar
Tónlist
Góugleði í Fella- og Hólakirkju