Morgunblaðið - 15.02.2007, Side 56
56 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16
LITTLE CHILDREN kl. 8 B.i. 14
/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
BYGGÐ Á METSÖLUSKÁLDSÖGU PATRICK SUSKIND
SJÁIÐ EINA MERKUSTU
MYND ÁRSINS EN
MYNDIN HEFUR
SLEGIÐ Í GEGN Í
EVRÓPU
ATH! BÓKIN HEFUR VERIÐ
ENDURÚTGEFIN Í TENGSLUM VIÐ
FRUMSÝNINGU MYNDARINNAR
HVERSU LANGT ERTU TILBÚINN AÐ GANGA
TIL AÐ HYLJA GLÆP
ÓSKARSTILNEFNINGAR2eeeeÞ.T. KVIKMYNDIR.IS
GOLDEN GLOBE TILNEFNING
BESTI LEIKARI : WILL FERRELL eeeeV.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
RÁS 2
FOR
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FYRSTA KVIKMYND BYGGÐ Á RAUNVERULEGU SAKAMÁLI SEM ER
FRUMSÝND ÁÐUR EN MÁLIÐ HEFUR VERIÐ TEKIÐ FYRIR Í DÓMSSAL
PERFUME kl. 8 B.i. 12 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 6 - 8 LEYFÐ
PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 6 - 9 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 9 B.i. 16 ára
STRANGER THAN FICTION kl. 5:50 B.i. 16 ára
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Byrgismál
NÝJUSTU fréttir í Byrgismálum
eru að ríkið ætlar að selja húsnæðið
og þá væntanlega að friða ríkissam-
viskuna í eitt skipti fyrir öll. Þrátt
fyrir að ákveðnir aðilar hafi ekki
reynst standa undir þeim skyldum
sem á þá voru lagðar má slíkt alls
ekki lenda á fólki sem er veikt bæði á
sál og líkama og á sér kannski hvergi
skjól. Þrátt fyrir allt þá er hug-
myndin góð að hafa samastað og
langtímameðferð fyrir þá sem eiga
erfitt í vímuefnamálum og eiga jafn-
vel líka við geðvandamál að stríða.
Slík meðferð verður að sjálfsögðu að
vera undir stjórn heilbrigðisstétta og
meðferðarsérfræðinga og takmarkið
að skila fólki út í lífið á ný.
Lokaorð mín eru því: Ekki selja
húsnæði Byrgisins, það er gott hús, á
frábærum stað. Það þarf að skipta
um fólk og skúra og mála og setja allt
á fullt aftur.
Zilver.
Andlát Önnu
13. FEBRÚAR sl. veltir Víkverji fyr-
ir sér miklum áhuga lesenda á and-
láti Önnu Nicole. Víkverji skilur ekk-
ert í þessu. [… í opna skjöldu …].
Kommon. Þetta er nú einhvers konar
„gáfumannatepruskapur". Þetta var
íturvaxin ljóska á alla kanta. „Svaka
skvísa" hefði verið sagt hér í eina tíð.
Sáum líka myndir af henni þéttvax-
inni fyrir nokkru. Ekki minnkuðu nú
mjólkurbúin tvö við það! Hún var að
vísu svolítið ýkt á alla kanta. Kannski
brothætt greyið og reiddi e.t.v. ekki
vitið í þverpokum. Þó veit maður
ekkert um það. Konur með þetta út-
lit gjalda stundum fyrir það. (Sbr.
Marilyn M.) En er Víkverji hissa á
áhuga lesenda, sem eru án efa í
meirihluta karlmenn. Kveðja til Vík-
verja.
Valdimar Gaulverji.
Mótmæli vegna hækkunar
fasteignagjalda
ÉG er íbúi í Lækjasmára í Kópavogi
þar sem álögð fasteignagjöld hafa
hækkað verulega núna í janúar sl.
Við hjónin höfum haft fasta tölu í af-
slátt sem núna var tekinn af en mað-
urinn minn er ellilífeyrisþegi. Þetta
er virðingarleysi og vísa ég í bækling
eftir mætan mann sem er fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju.
Bæklingurinn heitir Lát engan líta
smáum augum á elli þína, og bendi ég
ráðamönnum í Kópavogi á að lesa
hann. Auk þessa verðum við íbúar
hér um slóðir fyrir verulegu ónæði af
framkvæmdum vegna byggingar há-
hýsis hér á Smáratorgi og verulegrar
slysahættu í kjölfar mikillar umferð-
ar vegna þess að engin gönguljós eru
hér í kring. Ég spyr: hvert stefnir
hér í þessu sveitarfélagi; er það ekki
fyrir fólkið sem hér býr?
Hildur Hilmarsdóttir.
Heyrnartæki tapaðist
Heyrnartæki tapaðist fyrir 3-4 vik-
um, sennilega í Austurbænum. Þar
sem ég er mjög háður þessu tæki, vil
ég vinsamlega biðja væntanlegan
finnanda að hafa samband í síma
5535663 eða 849466. Svanur fund-
arlaun.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
80ára af-mæli.
Áttatíu ára er í
dag Sólveig
Erna Sigfús-
dóttir, Hellum í
Bæjarsveit. Af
því tilefni mun
fjölskyldan
gleðjast saman
hinn 17. febrúar.
Hlutavelta | Þrír vinir í Kópa-
vogi söfnuðu dóti fyrir tombólu
sem þeir héldu svo við Smára-
lind. Tombólumiðinn kostaði
100 krónur og ágóðinn var sam-
tals 2.326 krónur sem þeir
færðu Kópavogsdeild Rauða
krossins. Vinirnir heita Viktor
Freyr Sigurðsson, Jóhannes
Kristjánsson og Illugi Njálsson
og eru þeir á 7. og 8. aldursári.
Félögunum þótti athyglisvert
og gleðilegt að fólk sem átti leið
hjá gaf þeim peninga án þess að
kaupa miða og fá eitthvað í staðinn.
Þannig tókst þeim líka að safna hærri
upphæð. Með á myndinni er Inga Rún
Kristjánsdóttir, tveggja ára.
Hvað er þettablogg? Er það
eitthvað annað en
venjulegar aðsendar
greinar, sem birtast
hér í Morgunblaðinu
dag hvern? Sennilega
er bloggið eitthvað
annað. Það er persónu-
legra. Öðru vísi skrifað.
Það gefur höfundi færi
á að tjá sig um málefni
líðandi stundar á
stundinni. Það er ekki
eins formlegt og að-
send grein í blaði.
En það þjónar sama
tilgangi. Hinn almenni
borgari tjáir sig um
þau mál sem eru á döf-
inni og önnur mál.
Víkverji hefur heldur haft horn í
síðu þessa bloggæðis en hefur skipt
um skoðun. Ekki sízt vegna þess að
yfirleitt virða bloggarar það frelsi,
sem þeir búa við. Þeir misnota það
ekki.
Bloggið er líka ólíkt aðsendum
greinum að því leyti að það er oft fullt
af fréttum í skrifum bloggara þótt
þeir taki kannski ekki eftir því sjálfir.
Bloggið er ótrúlega mikið lesið.
Vinsælustu bloggarar geta náð til
býsna stórs hóps á skömmum tíma.
Þeir, sem hafa ríka þörf fyrir að tjá
sig og koma skoðunum sínum á fram-
færi ættu að prófa bloggið. Það er
einföld aðferð til þess að
koma skoðun til skila.
Það gerist með miklum
hraða og nær til ótrú-
lega stórs hóps.
Víkverji vill hvetja
fólk til þess að byrja að
blogga á mbl.is. Þar er
bezta bloggið og það
sem vekur mesta at-
hygli og nær mestum
lestri. Það væri ánægju-
legt ef landsbyggð-
arfólk gerði meira af því
að blogga. Þar er kjörin
leið til þess að koma á
framfæri margvíslegum
upplýsingum úr heima-
byggð.
Þeir sem hætta í
stjórnmálum eiga stundum erfitt
með að fá ekki reglulega útrás fyrir
skoðanir sínar eins og þeir höfðu
tækifæri til meðan þeir störfuðu á op-
inberum vettvangi. Fyrir þá er kjörið
að byrja að blogga. Þá eru þeir eftir
sem áður reglulegir þátttakendur í
opinberum umræðum og geta verið
vissir um töluvert stóran hóp, sem les
þá.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
bloggið af hinu góða. En það merki-
lega er að það dregur ekki úr ásókn í
birtingu greina í Morgunblaðinu sem
hefur sjaldan ef nokkru sinni verið
meiri en nú. Bloggið er þáttur í lýð-
ræði 21. aldarinnar,
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er fimmtudagur
15. febrúar, 46. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem
heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8,21).
Lagasmiðurinn Noel Gallagher,forsprakki sveitarinnar Oasis,
ræðir nýja plötu hljómsveitarinnar
í nýjasta tölublaði breska tónlistar-
tímaritsins NME. Segist Gallagher
hafa samið átta lög sem hann sé
nokkuð sáttur við, og að bróðir
hans, söngvarinn Liam Gallagher
hafi samið eitt eða tvö. Ætlunin
mun vera að setjast niður með upp-
tökustjóranum Dave Sardy og
ræða hugmyndir að næstu plötu.
Oasis gaf síðast út geislaplötuna
Don’t Believe the Truth árið 2005,
en á síðasta ári gaf sveitin út safn-
plötuna Stop the Clocks.
Tónlistarmaðurinn Pete Dohertyhefur enn eina ferðina verið
dæmdur fyrir breskum dómstólum,
en það sem helst þykir merkilegt
við það er að alræmd fíkniefna-
neysla hans kom þar hvergi nærri.
Doherty hefur
misst ökuleyfið
í tvo mánuði
fyrir að hafa
ekið án öku-
skírteinis og
ótryggður. Do-
herty var stöðv-
aður vegna
ógætilegs öku-
lags í nóvember
á síðasta ári og
hafði þá ekki ökuskírteini sitt með-
ferðis, síðar kom svo í ljós að bif-
reið hans var ótryggð. Missir Do-
herty því ökuleyfið í tvo mánuði og
þarf auk þess að greiða 300 punda
sekt. Þá varaði dómarinn við því að
hann gæti átt á hættu að enda í
fangelsi ef hann endurtæki athæfið.
Sean Curran, lögmaður Dohertys
segir skjólstæðing sinn hins vegar
ekki eiga sök á því að bifreiðin var
ótryggð þar sem Doherty hafi beð-
ið umboðsmenn sína um að sjá um
að tryggja bifreiðina, en að það
hafi hins vegar ekki verið gert.
Söngkonan og nú leikkonanBeyonce Knowles prýðir hina
eftirsóttu forsíðu á sundfatahefti
tímaritsins Sports Illustrated að
þessu sinni. Hún sat fyrir í gulu og
bleiku bikiníi frá House of Dereon,
tískuvörumerkinu sem hún stofnaði
sjálf ásamt móður sinni, Tínu
Knowles.
Fleiri mynd-
ir af henni eru
inni í blaðinu.
Þær voru
teknar á bað-
strönd á Flór-
ída. Á forsíð-
unni segir:
„Draumastúlk-
an hefur aldrei
sést svona
fyrr,“ og er vísað þar til hlutverks
Beyonce í kvikmyndinni Dreamg-
irls. Vegur Beyonce á öðrum svið-
um en söngnum fer því sífellt vax-
andi – fyrir skömmu völdu
lesendur vefjarins AskMen.com
hana vinsælustu „fantasíukær-
ustuna“.
Fólk folk@mbl.is