Morgunblaðið - 15.02.2007, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 57
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
eeeee
- B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
Golden Globe
VERÐLAUN
m.a. besta myndin3
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
RAIN MAN OG GOOD
MORNING VIETNAM
GÆTI ÞESSI MAÐUR ORÐIÐ
NÆSTI FORSETI?
Sjáið grínistann Robin Williams fara á
kostum sem næsti forseti Bandaríkjanna
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. sem besta mynd ársins7
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5
FRÁ LEIKSTJÓRA “THE LAST SAMURAI”
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
ÓSKARSTILNEFNINGAR8
RELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
H.J. MBL.
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
HJÁLPIN BERST
AÐ OFAN
eee
S.V. - MBL
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
ÓSKARSTILNEFNING
besta teiknimynd ársins1
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
EDDIE
MURPHY
BEYONCÉ
KNOWLES
JAMIE
FOXX
20% AFSLÁTTUR
EF GREITT ER MEÐ
SPRON-KORTI
ALPHA DOG kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.16 .ára.
ALPHA DOG VIP kl. 8 - 10:30 B.i.16 .ára.
PERFUME kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.12 .ára.
MAN OF THE YEAR kl. 8 - 10:30 B.i. 7 .ára.
BLOOD DIAMOND kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
BABEL VIP kl. 5 B.i.16 .ára.
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
MAN OF THE YEAR kl. 10:30 B.i. 7 ára
BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára DIGITAL
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
CHARLOTTE´S WEB m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
THE PRESTIGE kl. 10:30 B.i. 12 ára
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
DÖJ,KVIKMYNDIR.COM
eeee
LIB, TOPP5.IS
eee
SV, MBL
Til greina kemur að Si-enna Miller verði
næsta Bondstúlka. Fregnir
herma að hún muni leika á
móti Daniel Craig – sem
hún átti í stuttu ástarsam-
bandi við – í næstu Bond-
mynd. Breska blaðið Daily
Star hefur eftir heimildar-
manni að Sienna þyki hafa
allt til að bera, fegurð og
hæfileika, og þar að auki sé
hún bresk og fyrirmynd
annarra kvenna í tísku.
Sjálf viðurkenndi hún
fyrir ekki löngu að hún
væri til í að leika í Bond-
mynd: „Hver getur sagt nei
við James Bond?“
Bresku þungarokkararnir í IronMaiden hyggjast halda tón-
leika í hallargarði í Bangalore, en
þetta yrðu fyrstu tónleikar sveit-
arinnar á Indlandi. Tónleikarnir
eiga að fara fram þann 17. mars
nk. og að sögn hljómplötuútgefand-
ans EMI verður þetta í fyrsta sinn
sem fræg þungarokkshljómsveit
heldur tónleika í landinu. Hljóm-
sveitin var stofnuð árið 1975 og
nýjasta plata hennar náði öðru sæti
indverska hljómplötulistans. Iron
Maiden hefur staðfest að hljóm-
sveitin muni halda 12 tónleika í
mars og júní, þeir munu m.a. spila
á Eyðimerkurrokkhátíðinni í Dubai
í Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum hinn 9. mars. Þá munu þeir
félaga spila á Download-hátíðinni í
Donington Park á Englandi og á
Fields of Rock hátíðinni í Zwolle í
Hollandi, en báðir þessir tónleikar
verða haldnir í júní. „Það er okkur
afar kært að geta spila fyrir nýja
aðdáendur í löndum sem við höfum
aldrei komið til áður,“ sagði söngv-
ari Iron Maiden, Bruce Dickinson.
„Við höfum heyrt að indversku
aðdáendurnir séu afar háværir og
fíli þungarokkið í botn.“
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einsog er ertu tengdur spádómi sem
er að rætast. Ef þér líkar ekki hvern-
ig máli eru að þróast, er ekki of seint
að breyta spádómnum. Persóna í
meyjarmerkinu getur hjálpa þér að
snúa málum við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ástin er ekki eintal. Hún er samtal við
aðra sál. Ef einhver blaðrar og blaðr-
ar án þess að hlusta á hverju þú svar-
ar, þá er mál til komið að grípa inn í.
Þú hefur rétt á því að á þig sé hlust-
að.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er nóg að gerast í félagslífinu hjá
þér. Kannski af því að þig langar til
að vera innan við fólk. Eða kannski af
því að þú ert svo skemmtilegur núna.
Mundu að bíða eftir hlátrinum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag koma vandræðalega andartök
þar sem allt höktir, þar sem þér finnst
þú ekki raunverulegur og aðstæður
koma upp sem einhver veginn virka
ekki. Þegar þú lítur tilbaka verða
þetta bestu hlutar dagsins.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þegar þú ert öruggur, einblínir þú á
minnstu agnarögn af gagnrýni. En
þegar þér líður vel, einsog núna, þá
heyrirðu, sérðu og lest bara hluti sem
ýta undir sjálfsánægjuna. Og þannig á
það líka að vera.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú setur markið hátt og nærð því. Að
gera betur en fólk ætlast til af þér er
orðið þitt aðaláhugamál. Þú ættir að
gera slíkt hið sama þegar kemur að
persónulegum samböndum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú kemur í veg fyrir rifrildi af því að
þú hefur kerfi sem virkar. Virðing þín
fyrir hugmyndum og áliti annara
skapar fjölbreytileika og vinnur gegn
ótta. Vonandi eru aðrir tilbúnir til að
hlusta á þig. Sjáðu til þess.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér er að takast að klára málið. En
gengurðu fyrir adrenalíni í stað nátt-
úrulegrar orku? Athugaðu ástand þitt.
Heilalaus starfsemi er helsti óvinur
sannra afreka.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér er að takast að finna leiðina í
gegnum flókið völundarhús. Þú gætir
sparað þér tíma og orku með því að
tala við lærimeistara þinn. Eða finna
einhvern sem hefur farið leiðina á
undan þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leggðu traust á liðið þitt. Þeim sem
þykir vænt um þig munu styðja þig
nóg til að sanna fyrir þér að þeir
halda með þér, en eru samt það mikil
áskorun að þú ferð ekki að breyta
langtíma markmiðum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Afslöppun er ómissandi hluti af upp-
skrift þinni að velgengni. Garðrækt,
matreiðsla eða sundferð gefa undir-
meðvitundinni frelsi til að leysa
vandamál án þess að þú truflir hana.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er bæði öryggi og styrkleiki í töl-
um. Lausnin felst í að fá allan hópinn
til að vera fulltrúi þess sama. Ef ein-
hver getur gert það, þá er það þú. Þú
hefur samkennd með ólíkasta fólki.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Hvað er vatnsberi? Hann
er sá sem færir fólki sínu
lífsdrykkinn sem það getur
ekki lifað án. Kannski að
þú hafir nóg af vatni – það
kemur úr krana heima hjá
þér. Með tungli og sól í vatnsbera skaltu
hins vegar huga að því að færa fólki aðr-
ar lífsnauðsynjar, eins og hina einu
sönnu ást.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„AKKÚRAT núna er ég bókaður öll
laugardagskvöld út október sem
plötusnúður og alla föstudaga út maí
í X-Factor og svo eru skólakrakk-
arnir að rífast um virku dagana,“
segir Páll Óskar Hjálmtýsson plötu-
snúður og tónlistarmaður um dag-
skrána hjá sér á næstunni. „Reynd-
ar verð ég fljótt uppbókaður því ég
tek alltaf tveggja vikna frí á tveggja
mánaða fresti til að hlaða batteríin.“
Það eru ákveðna helgar og at-
burðir sem Páll Óskar er alltaf bók-
aður á eins og þegar Gay Pride á sér
stað eða menningarnótt auk þess
sem Evróvisjón-söngvakeppnin er
háannatími. „Ég spila á Nasa ef það
er eitthvað stórmerkilegt í gangi en
ég fíla ekki að spila á þessu almenna
djammi, mér finnst miklu skemmti-
legra að spila á árshátíðum og skóla-
böllum. Á þeim skemmtunum er
tímarammi og fólk þekkist persónu-
lega, þá er mun auðveldara að ná
upp stemningu, meðan maður er
stöðugt að lesa í liðið á djamminu.“
Ný plata í vinnslu
Spurður út í þessar vinsældir sem
skífuþeytir hlær Páll Óskar og segir
að þær komi örugglega til vegna
þess að hann láti alltaf eins og fífl í
vinnunni. „Ef maður stendur sig vel
dreifist orðsporið mjög hratt. Ég er
rosa þakklátur fyrir að vera bókaður
langt fram í tímann í bransa þar sem
atvinnuöryggið er lítið sem ekkert.
Ég elska vinnuna mín, hún er mitt
áhugamál, og ég held að það sé m.a.
ástæðan fyrir velgengninni,“ segir
hann með mikilli áherslu.
Auk skífuþeytinganna spilar Páll
Óskar heilmikið með Móniku hörpu-
leikari og kemur reglulega fram með
Milljónamæringunum.
„Svo í öllum þessum látum þykist
ég að vera að gera nýja plötu sem
kemur vonandi út í lok sumars.
Fyrsta smáskífan af plötunni, með
laginu „Allt fyrir ástina“, fer í spilun
von bráðar. Þetta er rosa teknóp-
lata, ég hef verið að máta lögin í
vinnunni og þau svínvirka.“
Tvö uppáhaldslög
Ekki er hægt að tala við Pál Óskar
án þess að spyrja hann út í Söngva-
keppni Sjónvarpsins í ár sem hann
segir vera nokkuð spennandi enda
ekki gefið hver fer með sigur af
hólmi.
„Ég á tvö uppáhaldslög í keppn-
inni; „Ég og heilinn minn“ sem
Heiða syngur af stakri snilld og
þokka og „Ég les í lófa þínum“ með
Eiríki Haukssyni, hann er töffari
með flott lag. Mér finnst líka tími til
kominn að gefa rokkinu og jað-
artónlistinni smápláss í Evróvisjón.“
Að lokinni undanúrslitakeppninni
í Sjónvarpinu á laugardaginn verður
Páll Óskar með Evróvisjónpartí á
Nasa þar sem hann þeytir skífum og
treður upp auk Mihai Traistariu frá
Rúmeníu og nýkrýndum fulltrúa Ís-
lendinga í Evróvisjón, hver sem það
verður.
Páll Óskar er uppbókaður skífuþeytir með plötu í vinnslu
Lætur eins
og fífl í vinnunni
Upptekinn „Reyndar verð ég fljótt uppbókaður því ég tek alltaf tveggja
vikna frí á tveggja mánaða fresti til að hlaða batteríin,“ segir Páll Óskar.
Evróvisjónpartí Páls Óskars á
Nasa, laugardagskvöldið 17. febr-
úar. Forsala á Nasa á föstudaginn
milli 13 og 17 og við innganginn.
Miðaverð kr. 1.900, húsið opnað kl.
23 og aldurstakmark 20 ár.