Morgunblaðið - 15.02.2007, Page 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Grunn- og framhaldsnám við Háskóla Íslands er kynnt í Háskólabíói við Hagatorg
Nýtt grunn- og framhaldsnám er kynnt í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð
Það gerist hjá okkur
Stúdentar og kennarar Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands
taka vel á móti þér á Háskóladeginum laugardaginn 17. febrúar kl. 11-16
www.khi.is
www.hi.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Austan og
norðaustan 13–23
m/s og rigning.
Hvassast og mest
úrkoma suðaustan til. Læg-
ir síðdegis. » 8
Heitast Kaldast
8°C 1°C
Í DAG verður opnuð endurinnréttuð
verslun Bakarameistarans í Mjódd, en sú
verslun var opnuð árið 1996, fyrst versl-
ana fyrirtækisins fyrir utan upphaflegu
verslunina í Suðurveri.
Nú eru verslanirnar orðnar sex talsins
og eru uppi áætlanir um að fjölga þeim
enn frekar á næstu árum. Þannig hefur
Bakarameistarinn fengið úthlutað 12.000
fermetra stórri lóð við Hádegismóa í
Reykjavík.
Starfsmenn Bakarameistarans eru nú
178 talsins en voru 28 árið 1995. Við-
skiptavinir á degi hverjum eru nokkur
þúsund og ársvelta fyrirtækisins nemur
um 550 milljónum króna. | B12
Morgunblaðið/G.Rúnar
Færa út
kvíarnar
Verslunum Bakarameist-
arans fjölgað næstu árin
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞORBJÖRG Helga Vigfúsdóttir, formaður
leikskólaráðs Reykjavíkurborgar, segir að um-
hverfissvið hafi markvisst unnið „öflugt starf“
til að draga úr svifryki. Rætt hafi verið um að
e.t.v. þyrfti sérstakt átak í febrúar og mars
þegar svifryksmengunin væri mest. Í Morg-
unblaðinu í gær var skýrt frá niðurstöðum
Jóns Benjamínssonar umhverfisfræðings um
niturdíoxíðsmengun, NO2, við á fimmta tug
leikskóla Reykjavíkur sem kynntar voru undir
lok síðasta áratugar. Þar kom fram að NO2-
mengunin var yfir heilsuverndarmörkum við
20 leikskóla í borginni, ef miðað er við núver-
andi mörk.
Þorbjörg segist aðspurð aldrei hafa séð
þrjár skýrslur um niðurstöður mælinga Jóns
en þær voru gerðar á árunum 1997–1999.
Hún hefði spurst fyrir um loftmengunar-
mælingar en aldrei fengið upplýsingar um
þessar skýrslur.
Jónína Lárusdóttir, leikskólastjóri Fálka-
borgar í Breiðholti, sagði starfsfólk leikskóla
lengi hafa beðið eftir aðgerðum til að minnka
mengun. Hún segir mengunina við skólann,
sem er í Elliðaárdal, stundum svo mikla að
starfsmenn „fari helst ekki út“. Niðurstöð-
urnar voru „sláandi“. „Við tökum eftir því að
undir vissum kringumstæðum gefum við börn-
um meira astma-púst heldur en venjulega,“
segir Jónína. „Þetta er orðið miklu algengara
en það var. Við fögnum umfjölluninni. Þetta er
það sem við höfum verið að tala um. Suma
daga förum við ekki út með börnin […] Við
bjóðum þeim ekki upp á þetta.“ Spurð um að-
gerðir borgarinnar til að minnka mengun við
skólana segist Jónína „alltaf hafa beðið eftir
því að það yrðu viðbrögð“. „Það er orðið langt
síðan þessar niðurstöður voru kynntar á leik-
skólastjórafundi og þetta var bráðalvarlegt
mál. Þetta var alveg sláandi. Það var nokkrum
vörubílastæðum lokað á alvarlegustu svæð-
unum í borginni og því ekki rétt sem kom
fram í frétt Morgunblaðsins í gær að ekkert
hefði verið gert.“
Börnin ekki út suma
daga vegna svifryks
Allar niðurstöður | 15
Morgunblaðið/Ásdís
SNORRI Sturluson gerði Frigg hærra
undir höfði en Freyju í verkum sínum þar
sem fyrrnefnda gyðjan féll betur að ímynd
kvenna í kristnu samfélagi. Þetta segir
Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur og
þýðandi, sem nýverið gaf út bókina Frigg
og Freyja – Kvenleg goðmögn í heiðnum
sið.
Að sögn Ingunnar var tilgangur Snorra
með Snorra-Eddu að viðhalda skáldalist-
inni og því hafi hann leyft sér að setja
fram mynd af heiðnum sið sem viðunandi
var í hans samfélagi. Hin trygga eig-
inkona Óðins og harmræna móðir Baldurs
passi óneitanlega betur við Maríuímynd
kristninnar en hin óstýriláta Freyja. Lík-
legara er þó að til forna hafi Freyja þótt
kvengoða merkust. | 48
Frigg hampað á
kostnað Freyju
Morgunblaðið/G.Rúnar
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra kveðst hafa áhyggjur af
áhrifum mögulegs heilsársvegar
yfir Kjöl. Segist hann ekki vilja
taka af skarið um það verkefni fyrr
en fram hefur farið mat á áhrifum
af lagningu slíks vegar á umhverfi,
skipulag hálendisins og á ferða-
mennsku.
Í umhverfismati sem fylgir nýrri
samgönguáætlun er komist að
þeirri niðurstöðu að meiri umfjöll-
un þurfi að vera um nýtingu og
skipulag hálendisins áður en hægt
verði að gera tillögur um lagningu
heilsársvega um hálendið.
„Mér líst ágætlega á þessa stytt-
ingu leiðanna en ég hef áhyggjur af
áhrifunum á hálendið,“ segir
Sturla spurður um þær hugmyndir
sem kynntar hafa verið um heils-
ársveg yfir Kjöl. „Ég vil fara mjög
varlega og að fram fari umfjöllun
um skipulag hálendisins og vandað
umhverfismat. Ég hef óskað eftir
því að Ferðamálaráð fjalli um fyr-
irhugaðan hálendisveg á forsend-
um ferðaþjónustunnar og að ég fái
síðan umsögn þess um hálendis-
veg. Ég vil því ekki taka af skarið
um þetta verkefni fyrr en það hef-
ur verið metið gagnvart umhverf-
inu og skipulagi á hálendinu og
gagnvart áhrifum á ferða-
mennsku,“ segir Sturla.
Komið að öðrum að hægja á
Sturla segir í viðtali í Morgun-
blaðinu í dag að tímabært sé orðið
að settir verði miklir fjármunir í
samgöngumálin og að önnur verk-
efni verði að bíða. ,,Núna tel ég að
komið sé að því að uppbygging
samgöngumannvirkjanna fái aukið
rými og að hægja verði á öðrum
framkvæmdum ef þörf krefur í
efnahagslífinu,“ segir Sturla og
bætir við að ef á þurfi að halda
verði aðrir að bíða með fram-
kvæmdir í þágu stöðugleikans.
Áhyggjur af áhrifunum
Samgönguráðherra segist ekki vilja taka af skarið um heilsársveg yfir Kjöl
Miðopna
BRIDGEHÁTÍÐIN hefst í kvöld
og stendur fram á sunnudag en
forspilið hófst klukkan sex í Ráð-
húsi Reykjavíkur í gær. Hér sjást
(f.v.) þeir Jón Steinar Gunn-
laugsson hæstaréttardómari,
Pakistaninn Zia Mahmood, Davíð
Oddsson seðlabankastjóri en
fjórði maðurinn er Pólverjinn
Jacek Pszczola.
Hátíðin er haldin í samstarfi
Bridgesambands Íslands, Ice-
landair og Bridgefélags Reykja-
víkur. Efnt verður til óopinbers
landsleiks milli íslenska landsliðs-
ins og liðs Zia. Auk hans og
Pszczola eru í því Sam Lev og
Reese Milner. Hægt er að fylgjast
með allri hátíðinni á vefnum
bridgebase.com. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forspil að
Bridgehátíð
í Reykjavík