Morgunblaðið - 17.02.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HALLDÓR Halldórsson, formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, segir að stefnt sé að því að
leggja fram tillögur um breytta
tekjuskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga á landsþingi sveitarfélaganna
23. mars nk. Á árlegum samráðs-
fundi ríkis og sveitarfélaga í gær
var ákveðið að Halldór, fjár-
málaráðherra og félagsmálaráð-
herra myndu setjast yfir þessi mál.
Á dagskrá fundarins voru efna-
hags- og kjaramál, tekjustofnar
sveitarfélaga, verkaskipting ríkis
og sveitarfélaga og önnur mál.
Á fundinum var ákveðið að hefja
formlegar viðræður um að sveit-
arfélög taki við verkefnum sem
ríkið sinnir í dag. Í því sambandi
var rætt um málefni fatlaðra og
aldraðra. Enn fremur var ákveðið
að fara yfir óljós skil verkefna ríkis
og sveitarfélaga á fleiri sviðum.
Halldór sagði að sveitarfélögin
hefðu lagt fram tillögur um að
sveitarfélögin fengju hlutdeild í
fjármagnstekjuskatti og einnig af
skatti af einkahlutafélögum, en
slíkum félögum hefur fjölgað mikið
undanfarin ár, sem hefur leitt til
tekjuskerðingar hjá sveitarfélög-
unum. „Þetta er mjög stórt mál og
við viljum ná fram vilja ríkisstjórn-
arinnar til að fara einhverja slíka
leið,“ sagði Halldór og bætti við að
þetta hefði verið mjög góður sam-
ráðsfundur.
Á fundinum var einnig rætt um
framkvæmd kostnaðarmats laga-
frumvarpa og tímamörk til að
ljúka fráveituframkvæmdum.
Samráðsfundurinn var haldinn í
samræmi við ákvæði samstarfs-
sáttmála frá febrúar 2006 um að
efla formlegt samstarf ríkis og
sveitarfélaga.
Fundinn sátu af hálfu ríkisins
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra og Árni M. Mathiesen
fjármálaráðherra ásamt embætt-
ismönnum. Af hálfu Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sátu fundinn
Halldór Halldórsson, formaður
sambandsins, fulltrúar úr stjórn
þess, framkvæmdastjóri og starfs-
menn.
Tillögur lagðar fram í mars
Árlegur samráðs-
fundur ríkis og
sveitarfélaga
Morgunblaðið/G. Rúnar
Samráð Fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra ræddu við fulltrúa
sveitarfélaganna í gær um tekjuskiptingu og ýmis sameiginleg mál.
GEIR H. Haarde forsætisráðherra opnar formlega ár-
lega ljósmyndasýningu Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands í Gerðarsafni í Kópavogi klukkan 15 í dag.
Á sýningunni eru rúmlega 200 myndir eftir um 40
ljósmyndara og veitir Glitnir verðlaun fyrir bestu
myndir ársins 2006 í níu flokkum og félagið í einum.
Aukasýning verður í kjallara Gerðarsafns með mynd-
um frá Kárahnjúkum og í tilefni sýningarinnar kemur
út bókin Myndir ársins 2006 í samvinnu við Eddu út-
gáfu. Sýningin verður opin til og með 18. mars.
Ljósmynd/Eyþór Árnason
Blaðaljósmyndarar í Gerðarsafni
Gerðarsafn Brynjar Gunnarsson sýningarstjóri og Árni Torfason, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hef-
ur tekið til skoðunar mál sem tengj-
ast hugsanlegum brotum flugfélag-
anna Icelandair og Iceland Express
gegn neytendum með töku svo-
nefndra gjalda á flugfarþega.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir ráðuneytið hafa tek-
ið málið upp. Enn hafi ekkert erindi
um það borist ráðuneytinu eða
Flugmálastjórn. Á þessu stigi máls-
ins liggi því ekki fyrir aðrar upplýs-
ingar en þær sem komið hafi fram í
fréttum. Vegna þessara frétta hafi
verið farið yfir málið í ráðuneytinu
en þar sé nú verið að meta hvort og
þá hvernig verði brugðist við.
Það sem varði loftferðalög snúi
að samgönguráðuneytinu og sömu-
leiðis það sem varði gjaldtöku flug-
umferðarinnar. Annað snúi vænt-
anlega að samkeppnisyfirvöldum.
„Við vitum ekki til þess að loft-
ferðalög hafi verið brotin,“ segir
Sturla.
Í gær sendi talsmaður neytenda
Icelandair bréf þar sem hann til-
kynnti að athugað yrði hvort brotið
hefði verið gegn réttindum og hags-
munum neytenda með töku svo-
nefndra gjalda á flugfarþega.
Gjöld
flugfélaga
skoðuð
KER hf., fyrrum eigandi Olíufé-
lagsins, var í gær dæmt í Héraðs-
dómi Reykjavíkur til að greiða Sig-
urði Hreinssyni frá Húsavík,
15.000 kr. í skaðabætur vegna
tjóns sem Sigurður varð fyrir af
verðsamráði olíufélaganna. Var fé-
lagið jafnframt dæmt til að greiða
Sigurði 500.000 kr. í málskostnað.
Dómurinn var fjölskipaður og skil-
aði einn dómaranna, Sigrún Guð-
mundsdóttir, séráliti og vildi dæma
Sigurði 36 þúsund kr. bætur.
Steinar Þór Guðgeirsson, hrl. og
lögmaður Sigurðar, segist ánægð-
ur með niðurstöðuna þó að fjár-
hæðin hefði mátt vera hærri. ,,Lög-
fræðilega séð er ég sáttur við
þennan áfangasigur,“ segir hann
og vísar til þess að málið eigi að öll-
um líkindum eftir að koma til kasta
Hæstaréttar. Kristinn Hallgríms-
son, lögmaður Kers, sagðist í sam-
tali við Fréttavef Morgunblaðsins í
gær vera ósáttur við dóminn og að
honum yrði áfrýjað til Hæstarétt-
ar.
Steinar Þór segir að lögfræði-
stofa hans, Lögfræðistofa Reykja-
víkur, sé nú með um það bil 150
mál, aðallega frá einstaklingum, en
einnig frá fyrirtækjum og einu
sveitarfélagi, sem væru af sama
toga og mál Sigurðar og beindust
gegn olíufélögunum. ,,Það er alltaf
að bætast við frá degi til dags,“
segir hann. Steinar Þór segir að
þessi mál verði skoðuð í framhaldi
af þessum dómi en menn bíði einn-
ig niðurstöðu Hæstaréttar. Sagði
hann að ótrúlega margir hefðu
gögn undir höndum um viðskipti
sín við olíufélögin frá þeim árum
sem um ræðir, m.a. útprentanir
vegna kortaviðskipta. „Það var
ákveðið að fara með þetta mál sem
einskonar prófmál og er miðað er
við þessa niðurstöðu á ég von á að
það muni fjölga í þeim hópi sem
hefur leitað til okkar,“ segir hann.
Neytendasamtökin fagna dómn-
um í gær í yfirlýsingu og segja að á
annað hundrað neytendur hafi leit-
að á sínum tíma með gögn til sam-
takanna. Þau muni í framhaldi af
þessum dómi fara yfir málið með
lögmanni sínum, Steinari Guð-
geirssyni.
„Neytendasamtökin telja þessa
niðurstöðu afar mikilvæga, ekki
síst í ljósi þess að í fyrri dómi Hér-
aðsdóms var lögð mjög mikil sönn-
unarbyrði á hendur neytandans og
að honum hafi borið að fá dóm-
kvadda matsmenn til að meta tjón
sitt,“ segir m.a. í yfirlýsingu sam-
takanna.
Héraðsdómur var fjölskipaður í
málinu þeim Skúla Magnússyni,
Birgi Þór Runólfssyni og Sigrúnu
Guðmundsdóttur héraðsdómara.
Lögmannsstofa með 150 mál gegn félögunum og fleiri bætast við hvern dag
15 þúsund kr. bætur vegna
verðsamráðs olíufélaganna
Í HNOTSKURN
» Héraðsdómur sýknaðiKer í málinu í desember
sl. en Hæstiréttur lagði fyrir
dóminn að fjalla efnislega
um tiltekna dómkröfu.
» Fallist er á mat dóm-kvaddra matsmanna á að
verulegar líkur séu á að
framlegð á hvern seldan
lítra bensíns 1996 til 2001
hafi verið a.m.k. 7,8% hærri
vegna saknæmrar og ólög-
mætrar háttsemi.
FYRIR orð forsætisráðherra og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra hefur
Matthías Halldórson landlæknir valið
fagaðila til að mynda teymi sem mun
taka að sér að meta þörf fyrrverandi
vistmanna Breiðavíkurheimilisins annars
vegar og Byrgisins hins vegar fyrir að-
stoð. Frá þessu er greint á vefsíðu Land-
læknisembættisins, landlaeknir.is.
Í frétt landlæknis segir að þeim sem
telja sig þurfa á aðstoð að halda sé bent
á að hringja í síma 543 4074 virka daga
milli kl. 9 og 16 fyrir 31. mars næstkom-
andi.
Vistmenn leiti
til landlæknis
FORSETI Afríkuríkisins Djíbútís, Ismail
Omar Guelleh, heimsækir Ísland dagana
19. febrúar og 20. febrúar nk. Með honum
í för verða utanríkisráðherra Djíbútís,
Mahmoud Ali Youssouf, og sveit embættis-
manna, vísindamanna og sérfræðinga.
Heimsóknin til Íslands er sprottin af sam-
vinnu forseta Djíbútís, forseta Íslands,
Ólafs Ragnars Grímssonar, og hagfræð-
ingsins Jeffrey Sachs, forstöðumanns
Earth Institute við Columbia-háskólann í
Bandaríkjunum, um það hvernig íslensk
reynsla, þekking og tækni gætu nýst við
virkjun jarðhita í sex löndum í austan-
verðri Afríku.
Forsetinn mun m.a. heimsækja Hellis-
heiðarvirkjun, höfuðstöðvar Orkuveit-
unnar og Glitni og ræða við forseta Ís-
lands. Utanríkisráðherra Djíbútís mun
eiga viðræður við Valgerði Sverrisdóttur
utanríkisráðherra.
Forseti Djíbútís
heimsækir Ísland
AÐEINS 2% borg-
arbúa fóru á reið-
hjóli til vinnu, 7%
með strætó, 12%
gangandi og 3% á
annan hátt skv.
símakönnun sem
Félagsvís-
indastofnun gerði
fyrir umhverfis-
svið borgarinnar.
73% fóru á eigin
bíl og 4% sem farþegar. Í ljós kom m.a.
að 79% karla keyra sjálfir en 67%
kvenna. 80% fólks á aldrinum 35–54 ára
keyrir sjálft. Ljóst er af þessari könnun
að hjón nota ekki einn bíl til að fara til
og frá vinnu heldur fara þau hvort í sín-
um.
Könnunin var gerð í síma á tímabilinu
17. nóvember til 9. desember 2006. Úr-
takið var 1.200 Reykvíkingar á aldrinum
16–80 ára. Svarhlutfall var 63%.
Fáir ganga eða
hjóla til vinnu
HÁSKÓLADAGURINN er í dag og frá
klukkan 11 til 16 kynna allir háskólar
landsins námsframboð sitt á grunn- og
meistarastigi.
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bif-
röst, Háskólinn í Reykjavík, Hólaskóli –
Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli
Íslands og Listaháskóli Íslands kynna
námsframboð sitt í Borgarleikhúsinu.
Í Kennaraháskóla Íslands kynna kenn-
arar og stúdentar námið og í Háskólabíói
kynna allar ellefu deildir Háskólans náms-
framboð sitt.
Háskólarnir
kynna námið
SNJÓFLÓÐ féll á moksturstæki Vegagerð-
arinnar á Hrafnseyrarheiði í gær. Tækið
skemmdist ekki og starfsmaður Vegagerð-
arinnar slapp ómeiddur. Hann þurfti að
ganga spölkorn til að komast í farsíma-
samband og biðja um hjálp. Núverandi leið
milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar liggur
frá Þingeyri yfir Hrafnseyrarheiði.
Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun
og segir að vart hafi orðið við snjóflóð í
fjalllendi austanlands. Ferðamenn eru vin-
samlegast beðnir að hafa það í huga.
Snjóflóðahætta
í fjalllendi