Morgunblaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 36
innlit
36 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Tíkin Snotra flaðrar upp umgestina, hin tígulega læða,Snæfríður, deplar hinsvegar ekki auga, kettirnir
Fróði og Sómi láta sér líka fátt um
finnast. Naggrísnum, herra Stubb,
er ekkert um þennan gestagang
gefið og leitar skjóls hjá konu sinni,
frú Rósu og börnunum þeirra fjór-
um. Húsfreyjan á þessu skemmti-
lega og óvenjulega dýragarðsheim-
ili er dýralæknirinn Sif Trausta-
dóttir sem ólst samt ekki upp í
sveit heldur í 101 Reykjavík.
Ást hennar á og umhyggja fyrir
þessum íbúum hússins er augljós.
„Ég hef alltaf laðast að dýrum.
Mamma hefur sagt mér að hún hafi
þurft að gæta mín sérstaklega þeg-
ar hundar og kettir voru nálægt því
ég rauk oft fyrirvaralaust að þeim
og vildi kyssa þá og faðma. Það
skipti engu máli þótt hundurinn
væri miklu stærri en ég,“ segir Sif
og hlær. „Ég átti alltaf gæludýr,
margar hvítar mýs, hamstur, páfa-
gauk og kisu. En hund fékk ég ekki
að eiga svo það var fyrsta gæludýr-
ið sem ég fékk mér þegar ég fór að
búa. Gæludýrin eru mér meira virði
en hin veraldlegu gæði. Þau veita
mér svo mikla gleði og ekki bara
mér heldur líka eiginmanni mínum,
þótt honum finnist stundum nóg
um fjöldann, og syni, sem nú er að
verða 10 ára.“
Sif segir að nærvera og sam-
skipti við gæludýr hafi góð áhrif á
heilsuna, andlega sem líkamlega.
„Ást þeirra er fölskvalaus, þau eru
fordómalaus og trygglynd. Ég held
að það sé það sem heilli mig. Nær-
vera þeirra og umönnun er stór
hluti af okkar heimilishaldi. Heim-
ilið væri ekki samt án þeirra. Okk-
ur finnst skemmtilegt að fylgjast
með dýrunum og lífsháttum þeirra
og ferli og ég held að ég geti sagt
að það hafi breytt lífsviðhorfi okkar
allra.“
Sjónvarpsteppið Glæsilegt bútasaumsteppi sem
frænka Sifjar gerði, að sjálfsögðu með fullt af kisum.
Dýrlegur Þennan konunglega, handgerða spegil fengu
hjónin í brúðkaupsgjöf fyrir nokkrum árum.
Kryddræktun Þetta basílíkum ræktar Sif sérstaklega fyrir
naggrísina, herra Stubb og frú Rósu og fjölskyldu.
Borðstofan Þetta fallega borðstofuborð keypti Sif í Góða hirðinum en bak við það er
hluti af bókasafni heimilisins en það er eitt af því skiptir húsfreyjuna miklu máli.
Forngripur Þennan ruggustól erfði húsfreyjan. Hann er í
miklu uppáhaldi jafnt hjá heimilismönnum sem dýrum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Lífsbjörg Sif dýralæknir með Snæfríði en hún bjargaði lífi læðunnar þegar átti að
lóga henni og tók með heim. „Það eiga margir dýralæknar eitt slíkt gæludýr.“
Vinir Tíkin
snotra og
naggrísinn
herra Stubbur
eru góðir vinir
og deila stund-
um gulrót-
unum.
Bjart Eldhúsið er hjarta heimilisins og útsýnið guðdómlegt.
Hugleiðsluhornið Hér hugleiðir Sif en hún er nýbyrjuð að læra
hugleiðslu. Lengst til vinstri er síðan prjónakarfan góða.
Sveitaheimili
og dýragarður
í borginni