Morgunblaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 6
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
NORSK stjórn-
völd hækkuðu
verulega tilboð
sitt um viðbótar-
greiðslur í þróun-
arsjóð EFTA á
samningafundi
EFTA-ríkjanna
og Evrópusam-
bandsins í Bruss-
el í gær. Þar með
minnkaði bilið í
viðræðunum
verulega og lík-
legt er, sam-
kvæmt heimild-
um Morgun-
blaðsins, að sam-
komulag um
stækkun Evr-
ópska efnahags-
svæðisins náist á
næstu vikum.
Í samningavið-
ræðunum hefur
hingað til verið
rætt um að Ís-
land bæti um 150
milljónum króna
eða um 1,6 millj-
ónum evra á ári við þær 550 milljónir, sem
þegar eru greiddar í styrki til fátækari ríkja
ESB. Á fundinum í gær mun hins vegar
hafa verið rætt um að Ísland greiddi 1,4
milljónir evra til viðbótar, eða um 125 millj-
ónir króna.
Krafa ESB á hendur Norðmönnum hefur
verið að þeir bæti við um 70 milljónum evra
árlega, eða rúmlega sex milljörðum ís-
lenzkra króna. Á fundinum í gær var krafa
ESB á hendur Noregi komin niður í 63
milljón evrur, en Norðmenn buðu 53 millj-
ónir evra viðbótargreiðslu á ári.
Tilboð um tollkvóta fyrir fisk
ESB gerði Íslandi tilboð um aukið toll-
frelsi á fiski í síðustu viku, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Það hljóðar upp á
tollfrjálsan innflutningskvóta á m.a. humri,
sem myndi fela í sér niðurfellingu tolla af
fiski, sem íslenzk fyrirtæki selja til ESB,
upp á allt að 700.000 evrur, eða um 62 millj-
ónir króna. Ísland telur þetta tilboð skref í
áttina, en þó ekki fullnægjandi.
Minna bil
í EES-
viðræðum
Í HNOTSKURN
» EES-samning-urinn hefur ekki
tekið gildi gagnvart
Rúmeníu og Búlg-
aríu, sem gengu í
ESB fyrir rúmum
sex vikum.
» Dragist þettaástand á langinn,
mun það valda erf-
iðleikum í EES-
samstarfinu.
» ESB hefurstöðvað alla
ákvarðantöku um
nýja EES-löggjöf
þar til samningar
nást.
6 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
og Ómar Friðriksson
LÖGREGLUYFIRVÖLD eru þegar
byrjuð að skoða hvort boðuð kaup-
stefna sem nefnist SnowGathering,
stangast á við lög. Að henni stendur
hópur fólks í klámmyndaiðnaði.
Kaupstefnan á að fara fram hér á
landi 7.–11. mars og er reiknað með
að um 150 manns verði á henni.
Kaupstefnan mun síðast hafa verið
haldin í Austurríki. Þeir sem standa
að samkomunni eru eigendur hol-
lenskrar klámsíðu. Þeir sem boðað
hafa komu sína eru nokkrar klám-
myndaleikkonur og fulltrúar fyr-
irtækja sem versla með klámefni. Á
heimasíðu kaupstefnunnar er að
finna myndir af síðustu kaupstefnu,
en þar er bæði um að ræða klám-
fengnar myndir og myndir af fólki að
skemmta sér. Þar er einnig að finna
upplýsingar um Ísland og tengla á
heimasíður Hótel Sögu, Icelandair
og Iceland Express. Einnig er þar að
finna upplýsingar um dagskrá kaup-
stefnunnar, en þátttakendur áforma
að fara á skíði til Akureyrar, skoða
Gullfoss og Geysi og fara í Bláa lónið.
Á heimasíðunni segir að á Snow-
Gathering gefist fólki tækifæri til að
mynda viðskiptatengsl, hitta fólk og
ræða viðskipti eftir að hafa notið æv-
intýralegs dags í vetrarsólinni.
Kaupstefnan á Íslandi verði stærri
og betri en sú sem haldin var á síð-
asta ári.
Hörð viðbrögð
Fréttir af þessari kaupstefnu hafa
kallað á hörð viðbrögð, ekki síst á
ýmsum bloggsíðum. Vakin er athygli
á því að þessi samkoma sé haldin á
baráttudegi kvenna, 8. mars og spurt
hefur verið hvort þessi samkoma sé í
samræmi við lög.
Stígamót brugðust strax við þegar
fréttir bárust af málinu. Sendu sam-
tökin ríkisstjórn, öllum þingmönn-
um, Lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðis, Ríkislögreglustjóra og
Borgarstjórn, bréf, þar sem vakin er
athygli á fréttatilkynningu sem er að
finna vefsíðu með klámefni, en í
henni er boðað til kaupstefnunnar á
Íslandi.
Stígamót vekja athygli á því að ef
heimasíður þeirra sem styrkja þessa
samkomu séu skoðaðar komi í ljós að
þar sé um að ræða klám í sinni gróf-
ustu mynd. Augljóst sé að fjölmargir
af stjórnendum risaklámframleiðslu-
fyrirtækja ætli að flykkjast til Ís-
lands. Markmiðið sé viðskiptalegs
eðlis. Stígamót benda á að um sé að
ræða nýjar víddir í kaupum og sölu á
konum í íslenskum veruleika.
Engir fundir á Hótel Sögu
Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri á
Hótel Sögu, sagði að hótelið tengdist
þessu ekki á nokkurn hátt að öðru
leyti en því að þetta væri hópur sem
hefði pantað gistingu á hótelinu. Hót-
elið hefði reyndar fengið upplýsingar
um það fyrir 3–4 dögum hvers eðlis
hópurinn væri. „Hópurinn er ekki
með neina fundi hjá okkur. Þetta er
eins og hver annar túristahópur sem
gistir hjá okkur og borðar morg-
unmat.“ Hrönn sagðist hafa haft
samband við forsvarsmann hópsins
þegar hún frétti af því hvers eðlis
hópurinn væri. Hún sagðist hafa beð-
ið um að tengill á Hótel Sögu yrði
fjarlægður af heimasíðu sem hóp-
urinn hefur sett upp. Hún sagðist
hafa fengið yfirlýsingu frá Christinu
Ponga, skipuleggjanda ferðarinnar,
þar sem kæmi fram að um væri að
ræða skemmtiferð. Í yfirlýsingunni
kæmi einnig fram að fréttir um að
hér ættu að fara fram klámmynda-
tökur væru úr lausu lofti gripnar.
Hrönn sagði að hótelið hefði ekki
forsendur til að kanna hvað gestir
þess væru að gera í ferðum sínum.
Hún sagði að sér væri ekki kunnugt
um að neitt hótel yfirheyrði fólk fyrir
fram um hvaða erindi það ætti til
landsins. Hrönn sagðist ekki hafa
áhuga á að gerast einhver talskona
fólks sem starfaði í klámmyndageir-
anum, en hún teldi sig hafa fullvissu
um að hópurinn væri ekki að koma til
Íslands til að taka upp klámmyndir.
Þó að margir hafi vanþóknun á
þeim sem framleiða og eiga viðskipti
með klámefni hafa vaknað spurn-
ingar um hvernig stjórnvöld eða lög-
reglan geta gripið inn í SnowGather-
ing. Sumir lýsa samkomunni sem
skemmtiferð en aðrir líta þetta öðr-
um augum. Það er ljóst að sumar
myndir sem birtar eru á heimasíð-
unni af síðustu SnowGathering eru
klámfengnar, en meirihluti þeirra er
svipaður og sjá má á ýmsum íslensk-
um heimasíðum sem fjalla um
skemmtanalíf á Íslandi.
Komist lögregluyfirvöld að þeirri
niðurstöðu að ástæða sé til að grípa
inn í myndu þau væntanlega gera
það á grundvelli 210. greinar hegn-
ingarlaga, en þar er fjallað um refs-
ingar við því að búa til og dreifa
klámi. Þar segir að allt að 6 mánaða
fangelsi liggi við því „að búa til eða
flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, út-
býta eða dreifa á annan hátt út klám-
ritum, klámmyndum eða öðrum slík-
um hlutum, eða hafa þá opinberlega
til sýnis, svo og að efna til opinbers
fyrirlestrar, eða leiks, sem er ósið-
legur á sama hátt.“
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga-
móta, segir að ljóst sé að um mjög
stóra dreifingaraðila á grófu klámi af
öllu tagi sé að ræða og á vefsíðunni
sé einnig að finna tilvísanir í vændi.
Engin spurning sé að þetta brjóti í
bága við lög og því hljóti yfirvöld að
bregðast við og koma í veg fyrir
kaupstefnuna.
Klámkaupstefna eða skemmtiferð?
Um 150 manns í klámiðnaði á leið til Íslands Stígamót vekja athygli lögreglu á málinu
SnowGatering Kaupstefnan í
Reykjavík er kynnt á netinu.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
UNGUR ökumaður skapaði mikið
hættuástand á götum höfuðborgar-
svæðisins með glæfralegum akstri í
gærkvöldi og að sögn lögreglu mátti
þakka fyrir að ekki hlaust af stór-
slys. Maðurinn ók á allt að 190 km
hraða og var honum veitt eftirför
frá Ártúnsbrekku, um Kópavog og
Breiðholt áður en tókst að stöðva
hann á Sæbraut.
Eftirförin hófst efst í Ártúns-
brekkunni á móts við Höfðabakka á
ellefta tímanum í gærkvöldi. Þaðan
lá leiðin vestur Miklubraut, um
Skeiðarvog, austur Suðurlands-
braut, yfir grasflöt við enda hennar
þar sem leikskólinn Steinahlíð er, út
á aðrein og á móti umferð niður á
Reykjanesbraut, upp Smiðjuveg í
Kópavogi, hring í iðnaðarhverfinu
um græna og rauða götu, til baka og
út á Stekkjarbakka, um Höfða-
bakka, Fálkabakka, Arnarbakka og
Álfabakka, aftur út á Reykjanes-
braut og að Sæbraut við Súðarvog
þar sem lögreglunni á þremur bíl-
um tókst að króa ökumanninn af.
Allar umferðarreglur brotnar
Ríkharður Steingrímsson úti-
varðstjóri kom inn í eftirförina í
Breiðholtinu. Hann segir að öku-
maður bifreiðarinnar hafi reynt allt
sem hann hafi getað til að komast í
burtu og hraðinn hafi verið allt að
190 km. Hann hafi farið yfir á rauðu
ljósi, ekið á móti umferð, ekki virt
hindranir og stöðvunarmerki lög-
reglu og í raun brotið allar umferð-
arreglur sem hægt hafi verið að
brjóta. „Hann ætlaði sér aldrei að
stöðva, það var augljóst á aksturs-
laginu,“ segir Ríkharður.
Mikil hætta
Að sögn Ríkharðs var talsverð
umferð þar sem eftirförin átti sér
stað og erfitt að eiga við hana þar
sem minnstu mistök hefðu getað
valdið stórslysi. Árekstur í Breið-
holtinu hefði tengst ofsaakstrinum
og ökumaðurinn hefði ekið utan í
kyrrstæðan bíl við Pizza Hut við
Sprengisand. Lögreglan hefði
þrengt að bílnum á mótum Arnar-
bakka og Álfabakka og hefði munað
litlu að maðurinn æki þar framan á
lögreglubíl en hann hefði komist
framhjá lokuninni, ekið meðfram
bensínstöð Olís, yfir umferðareyju
og aftur út á Reykjanesbraut. Lög-
reglan á bílnum sem hóf eftirförina
ók tvívegis á bifreiðina og í þriðja
sinn þegar bílinn var stöðvaður. Í
þessum lögreglubíl voru tveir lög-
reglumenn og fundu þeir til minni-
háttar eymsla eftir árekstrana.
Allir lögreglubílar höfuðborgar-
svæðisins voru í viðbragðsstöðu en
fimm bílar tóku þátt í sjálfri eftir-
förinni. Þrír menn um tvítugt voru í
bílnum og voru þeir færðir á lög-
reglustöð.
Eftirför vítt og breitt um
borgina á 190 km hraða
Morgunblaðið/Júlíus
Glæfraakstur Ungur maður ók bílnum og var hann ásamt tveimur farþegum færður á lögreglustöð.
!
"
#
"
!
"
#
$
Í HNOTSKURN
»Eftirförin hófst efst í Ár-túnsbrekkunni á móts við
Höfðabakka á ellefta tímanum
í gærkvöldi.
»Hún endaði við Súðarvogþar sem lögreglunni á
þremur bílum tókst að króa
ökumanninn af.