Morgunblaðið - 25.02.2007, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
sunnudagur 25. 2. 2007
atvinna mbl.isatvinna
Gestir í vikunni 10.951 » Innlit 19.790 » Flettingar 153.741 » Heimild: Samræmd vefmæling
NÝ DEILD Í PÍPULÖGN
ÞETTA ERU MIKLAR FRAMFARIR FYRIR FAGIÐ, SEGIR GESTUR
GUNNARSSON, KENNARI VIÐ IÐNSKÓLANN Í HAFNARFIRÐI >> 20
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 55
Veður 8 Minningar 55/59
Staksteinar 8 Menning 62/71
Blogg 8 Sjónspegill 64
Vikuspegill 16/18 Leikhús 68/69
Daglegt líf 20/39 Myndasögur 70
Þjóðlífsþankar 27 Dægradvöl 72/73
Hugsað upphátt 35 Staðurstund 74/75
Forystugrein 40 Dagbók 76/77
Reykjavíkurbréf 40 Víkverji 76
Umræðan 42/51 Velvakandi 77
Bréf 50/51 Bíó 74/77
Auðlesið efni 54 Sjónvarp 78
* * *
Innlent
Ólafur Jóhann Borgþórsson víg-
ist í dag til prests í Seljaprestakalli.
Hann er 25 ára og verður þar með
yngsti starfandi prestur landsins.
Vígslan fer fram við athöfn í Dóm-
kirkjunni. » Baksíða
Erindi talsmanns neytenda vegna
útskriftargjalds símreikninga barst
Símanum á föstudaginn var og er
eftir að taka afstöðu til þess. » 4
Michael Gallager, fram-
kvæmdastjóri tilbúinna rétta hjá
Whole Food Markets í Bandaríkj-
unum, og Valentin Dumitrescu, osta-
meistari verslanakeðjunnar, heim-
sóttu Mjólkurbú Flóamanna á
Selfossi til að kynnast framleiðslu á
skyri og ostum. » 6
Úthlutað verður 100 milljónum
króna úr Umhverfis- og orkurann-
sóknarsjóði Orkuveitu Reykjavíkur
en 95 umsóknir bárust um styrki úr
sjóðnum. Heildarfjárhæð umsókna
nam 450 milljónum króna. » Forsíða
Á fundum Valgerðar Sverr-
isdóttur utanríkisráðherra með
ráðamönnum Úganda kom fram að
þeir meta mjög samstarf þjóðanna.
Utanríkisráðherra sagði að þeir
hefðu þakkað Íslendingum fyrir
margvíslega aðstoð og óskað eftir
frekari samvinnu á ýmsum sviðum.
» 4
Lyfjakostnaður hefur farið ört
vaxandi frá því fyrstu líftæknilyfin
komu á markað árið 1996 og fyrirséð
er að sú þróun haldi áfram, en að
sama skapi hafa lífsgæði sjúklinga
batnað svo líkja má við byltingu. Bú-
ið hefur verið til kerfi til að meta
jafnvægi gagnsemi og kostnaðar, en
þar er sparnaður ekki meginatriði
heldur að vel sé að málum staðið.
» 10
Á árinu 2005 greiddi slysa- og
bráðadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss 909.987 kr. fyrir túlka-
þjónustu fyrir útlendinga en í fyrra
reyndist kostnaðurinn 2.819.325 kr.
Sjálfsagt eru einhverjar verðlags-
breytingar milli ára og fleira en meg-
inskýringin á kostnaðaraukningunni
liggur í fjölda þeirra sem þurfa
túlkaþjónustu. Þessar tölur koma
fram í samtali við Ingibjörgu Sig-
urþórsdóttur aðstoðardeildarstjóra.
» 38
Erlent
Giorgio Napolitano, forseti Ítal-
íu, fór þess í gær á leit við Romano
Prodi að hann sæti áfram sem for-
sætisráðherra en leitaði jafnframt
sem fyrst eftir stuðningsyfirlýsingu
þingheims við stjórn sína. Prodi
sagði af sér á miðvikudag eftir ósigur
í atkvæðagreiðslu á þingi. » 16
Viðskipti
Lánshæfismatsfyrirtækið
Moody’s hefur hækkað lánshæfismat
íslensku viðskiptabankanna þriggja,
Landsbanka, Glitnis og Kaupþings
og fá langtímaskuldbindingar þeirra
einkunnina Aaa sem er hæsta ein-
kunn sem fyrirtækið gefur. Kemur
hækkunin til vegna breyttrar að-
ferðafræði Moody’s við útreikning
lánshæfis. Mat Moody’s varðandi
skammtímaskuldbindingar bank-
anna er óbreytt, það er P-1, sem er
hæsta einkunn sem gefin er.
» Baksíða
VILJI Vestmannaeyinga er að allur
vafi verði tekinn af hvað jarðgöng
varðar áður en ákvörðun um fram-
tíðarsamgöngur við Vestmannaeyjar
verður tekin, að sögn Elliða Vign-
issonar bæjarstjóra. Bæjarráð Vest-
mannaeyja samþykkti m.a. ályktun
22. febrúar sl. um að leggja til við
stjórnvöld „að óháðu ráðgjafarfyrir-
tæki á sviði jarðvegsrannsókna og
jarðgangagerðar verði falið að
leggja mat á þörf fyrir frekari rann-
sóknir vegna jarðganga milli lands
og Eyja og væntanlegan kostnað af
þeim ef svo ber undir“.
Elliði sagði að meginniðurstaða
fundar fulltrúa Siglingastofnunar og
Landgræðslunnar í Vestmannaeyj-
um í fyrrakvöld hefði verið sú að
ekkert væri því nú til fyrirstöðu að
hefja verklegar framkvæmdir við
gerð ferjulægis í Bakkafjöru innan
örfárra vikna.
„Hvað Bakkafjöru varðar kom það
berlega í ljós á fundinum að sá kost-
ur er jafnvel enn nærtækari, áreið-
anlegri og öflugri samgöngubót
heldur en við höfum hingað til þorað
að vona,“ sagði Elliði. „Samkvæmt
upplýsingum frá Det Norske Veritas
er sexfalt öruggara að sigla til
Bakkafjöru en Þorlákshafnar og ein-
ungis gert ráð fyrir að 1–2% daga á
hverju ári falli ferðir alveg niður. Í
mínum huga er það algerlega ljóst að
samgöngubót sem þessi myndi efla
vaxtar- og búsetuskilyrði í Vest-
mannaeyjum enn frekar, þótt sann-
arlega sé þetta ekki jafngóður kost-
ur og jarðgöng.“
Opinbert hlutafélag
Gert er ráð fyrir því að fyrirhuguð
ferjuhöfn í Bakkafjöru verði í eigu
sveitarfélaganna Vestmannaeyja-
bæjar og Rangárþings eystra. Elliði
segir að sveitarfélögin hafi rætt um
rekstrarform hafnarinnar að beiðni
stýrihóps um gerð ferjulægis í
Bakkafjöru. Niðurstaðan úr þeim
viðræðum hafi orðið sú að stofnað
verði opinbert hlutafélag um ferju-
lægið. Gert er ráð fyrir því að Vest-
mannaeyjabær muni eiga 60% í fé-
laginu og Rangárþing eystra 40%.
Aðspurður hvort höfnin verði opin
öðrum skipum en fyrirhugaðri ferju
segir Elliði að það verði eigenda
hafnarinnar að ákvarða notkun
hennar á hverjum tíma.
Vafa um göng verði eytt
Ferjulægið í Bakkafjöru mundi verða í
meirihlutaeigu Vestmannaeyinga
Morgunblaðið/Sigurgeir
Fundur Um 200 manns sóttu fund í Vestmannaeyjum þar sem niðurstöður
rannsókna um möguleika á gerð ferjuhafnar í Bakkafjöru voru kynntar.
VEIÐIÁHUGINN leyndi sér ekki hjá veiðimanninum
unga sem var á höttunum eftir hornsílum í Kópavogs-
læk á dögunum. Víst er að veiðigleðin yfir hverju föng-
uðu síli er jafn gegnheil og sú sem hríslast um „stóru
strákana“ á bökkum laxveiðiánna þegar hann tekur.
Hornsílin finnast nánast um allt norðurhvel jarðar
og halda sig ýmist í söltu vatni, ísöltu eða fersku. Þau
eru yfirleitt 5–10 sentímetra löng.
Morgunblaðið/Ómar
Á hornsílaveiðum
MIKIÐ fjölmenni er á Landsfundi
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sem fer fram á Grand
Hóteli í Reykjavík um helgina. Í
umræðum um kosningaáherslur í
gærmorgun kom meðal annars
fram að aðeins einn þátttakandi
mætti á landsfundinn á hjóli en
aðrir komu akandi.
Magnús Bergsson gat þess að
mikill bílafloti hefði verið fyrir ut-
an hótelið og í framhaldi spurði
hann hvað margir hefðu komið
gangandi á fundinn. Varð fátt um
svör. Þá spurði hann hve margir
hefðu tekið strætisvagn og fékk
sömu viðbrögð. Í ljós kom að hann
var sá eini sem hafði komið hjól-
andi á fundinn en nánast allir
réttu upp hönd þegar hann spurði
hve margir hefðu komið á bíl. „Ég
held að við ættum nú að líta okkur
aðeins nær og ekki aðeins tala um
hlutina heldur líka framkvæma
þá,“ sagði hann og var ábendingu
hans fagnað með dynjandi lófa-
klappi.
Einn á hjóli
hjá VG
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
gudrung@mbl.is
Á ÁRINU 2005 greiddi slysa- og
bráðadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahús 909.987 kr. fyrir túlka-
þjónustu fyrir útlendinga en í fyrra
reyndist kostnaðurinn 2.819.325 kr.
Verðlagsbreytingar milli ára og
fleira kemur til en helsta skýringin
liggur í fjölda þeirra sem þurfa
túlkaþjónustu. Þetta kemur fram
samtali við Ingibjörgu Sigurþórs-
dóttur aðstoðardeildarstjóra sem
Morgunblaðið birtir í dag. Hún segir
einnig að aðstoð við útlendinga sé
orðin mun meiri þáttur í starfi deild-
arinnar en áður var og fari vaxandi.
„Þetta er einn af hinum „ósýnileg-
um þáttum“ í starfi okkar,“ segir
Ingibjörg. Túlkaþjónustan Inter
Cultural sér um að útvega túlka á 35
tungumálum fyrir slysa- og bráða-
deild LSH „Við útvegum við túlka
fyrir allar deildir LSH, en neyðarút-
köll túlka koma langflest frá slysa-
og bráðadeild,“ segir Angelica Cantu
Dávila, verkefnastjóri Inter Cult-
ural. Hún kveður túlkastörfin vel
borguð og því ásókn í þau en 82 túlk-
ar eru nú starfandi hjá fyrirtækinu.
„Þeir sem starfa hjá okkur eru
verktakar og eru í annarri vinnu
með, alltaf má kalla í túlka á dag-
vinnutíma og svo höfum við túlka á
vakt á öðrum tímum. LSH hefur
nafnalista yfir túlka og svo má
hringja í neyðarsíma fyrirtækisins.“
Mæðravernd og ungbarnavernd
útlendra kvenna er vaxandi, ekki síst
á höfuðborgarsvæðinu.
Um 20% skjólstæðinga Heilsu-
gæslunnar Efra-Breiðholti eru af er-
lendu bergi brotin og tala litla sem
enga íslensku.
„Ekkert hefur verið þýtt af
fræðsluefni fyrir erlenda foreldra á
vegum heilsugæslunnar, það þyrfti
að gera,“ segir Solveig Jóhannsdótt-
ir ljósmóðir. Hún kveður túlka-
þjónustu notaða í samskiptum við
erlenda foreldra en þó ekki eins
mikið og þörf væri á – vegna kostn-
aðar.| 38
Þörf fyrir túlkaþjónustu
hefur stóraukist hjá LSH
Í HNOTSKURN
» Tekið hefur allt upp ífimm tíma að fá túlk og
hefur meðferð þá seinkað sem
því nemur.
» Brýnt er að aðgangur aðfræðsluefni fyrir verðandi
foreldra sé til á ýmsum tungu-
málum.
»Hér er ekki í boði BA-prófí túlkafræðum eins og er
við háskóla víða í Evrópu.