Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 22

Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 22
lífshlaup 22 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ É g er fæddur í Palestínu 1. júlí 1939, í Tulkarm á vesturbakk- anum, sem þá tilheyrði Jórd- aníu. Við vorum níu systkinin, mamma sinnti heimilinu og pabbi vann á landi afa; þar voru ræktaðir ávextir og grænmeti. Þetta var mjög frjósamt land og ég man hvað mér fannst gaman að ganga um appels- ínulundina. Í minningunni er bernska mín björt og áhyggjulaus. En svo komu gyðingarnir.“ Hér verða snögg umskipti í rödd Jabali. Eins og kuldi úr vatnsglasinu hafi setzt á raddböndin. Svo þiðna þau aftur og hann heldur rólegur áfram: „Ísraelsmenn höfðu heiminn á bak við sig og þeir hröktu okkur í burtu. Ég man að síðasta uppskeran sem við fengum var 1948. Það var góð upp- skera þetta ár og pabbi vann á ökr- unum með vopnaða menn með sér. Einn daginn þegar ég mætti í skólann sagði húsvörðurinn að það yrði eng- inn skóli því það þyrfti að skjóta skjólshúsi yfir flóttamenn frá Jaffa. En skólahald féll ekki bara niður þennan daginn, flóttafólkinu fjölgaði svo skólinn varð ekki skóli aftur.“ – Heyrðir þú frásagnir flóttafólks- ins? „Ég fékk ekki að koma inn í skóla- húsið. En skammt fyrir utan bæinn var komið upp flóttamannabúðum. Þar heyrði ég alveg hræðilega hluti; hryllilegustu sögurnar sagði fólk frá Der Yasin, en þar höfðu farið um hryðjuverkasveitir undir stjórn Beg- in, sem síðar varð forsætisráðherra Ísraels. Sem betur fer sá ég ekki margt ljótt, en drengurinn ég heyrði miklu, miklu meira en nóg af hryllingi.“ – Þú segir að pabbi þinn hafi unnið með vopnavernd. Kom til vopnaðra átaka? „Já, það kom til skotbardaga. Mönnum var auðvitað þvert um geð að vera reknir af jörðum sínum og gyðingar sóttu af sömu hörku og þeir sýna enn þann dag í dag.“ – Misstir þú einhvern þér nákom- inn í þessum átökum? „Sem betur fer féll enginn af nán- um ættingjum mínum. En bezti vinur minn, sonur eins af verkamönnum afa, féll fyrir byssukúlum gyðinga. Hann var níu ára eins og ég.“ – Hvernig varð þér við? „Óttinn hafði okkur auðvitað á valdi sínu, svo bættust reiðin og sorgin við. Þetta varð allt eitthvað svo tilgangs- laust.“ Einn góðan veður- dag var landið tekið Jabali er annars hugar. Svo tekur hann upp þráðinn aftur. „Einn góðan veðurdag var búið að taka landið af okkur. Þeir drógu ein- faldlega línu og handan hennar var megnið af landinu hans afa, sem við áttum nú ekki meir. Ég gat ekki leng- ur gengið mér til gleði um appel- sínuekrurnar. “ – Hvernig leið þér þá? „Það var mjög sérstök tilfinning að standa þarna og horfa yfir til landsins horfna. Smáskiki af landinu hans afa lenti okkar megin við línuna og þar gátum við ræktað grænmeti og ávexti fyrir okkur. Á báðar hendur voru arabafjölskyldur, sem líkt var komið fyrir. Arababændurnir beittu hesti fyrir plóginn, en gyðingabændurnir keyrðu sínar dráttarvélar. Þetta voru tveir nálægir en um leið gjörólíkir heimar. Það var mikið um smygl á báða bóga. Og við læddumst stundum yfir línuna til þess að fá eld!“ Fjölskylda Jabali fór til Sýrlands og beið það versta af sér í fjallaþorpi, sem var vinsæll ferðamannastaður. Þá sá Jabali snjó í fyrsta skipti. Fjöl- skyldan bjó áfram í Tulkarm. En lífið var með allt öðrum og þrengri hætti en áður. – Hvaða tilfinningar barstu til gyð- inga? Nú hugsar Jabali sig um. Hann segir svo hægt: „Ég hata ekki gyð- inga sem þjóðflokk. Ég hef hins veg- ar aldrei skilið af hverju svona var farið með okkur og af hverju þeir njóta svo mikillar samúðar á Vest- urlöndum sem raun ber vitni. Vesturlandabúar horfa flestir fram hjá því hvernig stofnun Ísraelsríkis bitnaði á Palestínuaröbum. Og þeir loka augunum enn fyrir ástandinu.“ Frá Palestínu til Patreksfjarðar Við höldum áfram að fara yfir lífs- hlaup hans: „Ég tók stúdentspróf 1956 og hugði á nám í Egyptalandi, en til þess þurfti eins árs undirbúningsnám. Ég fór til Kúveit og tók þar próf, sem opnaði mér dyr háskólans í Alex- andríu. Þangað fór ég til náms í við- skiptafræði.“ – Hvernig kunnir þú við þig í Egyptalandi? „Þegar til kom ekkert of vel! Ég var vinstrisinnaður á þessum árum og vinstrimenn voru hreint ekki vin- sælir í Egyptalandi Nassers. Egypt- um er tamt að gæða vald guðlegu eðli og Nasser lét smátt og smátt taka sig í guðatölu. Ástandið í landinu átti ekki við mig. Og þegar ég kom heim einn daginn og sá starfsmann leyniþjónustunnar við húsdyrnar, þá ákvað ég að fara. Leyniþjónusta Nassers var með augu á hverjum fingri og lét okkur vita af því að fylgzt væri með hverju okkar fótmáli. Ég fór til Íraks ásamt skóla- bróður mínum og við héldum náminu áfram í Bagdad. Í gegnum palest- ínsku stúdentasamtökin fékk ég svo styrk til náms í A-Þýzkalandi. Sósíal- ísku ríkin voru á þessum tíma mjög svo örlát á námsstyrki við okkur og ég fór til Leipzig að læra hagfræði. En námið var mjög marxismaskotið og ég sá ekki fram á að það yrði mér að nokkru gagni í Jórdaníu. Ég söðl- aði því um og fór í læknisfræði. Það nám vissi ég að mundi nýtast mér.“ En leið Jabali lá ekki til Jórdaníu. „Í Leipzig kynntist ég góðri, ís- lenzkri konu, Guðrúnu Finn- bogadóttur, við fluttum til Íslands og giftum okkur hjá bæjarfógeta. Ég byrjaði mitt kandídatsár á Landspít- alanum; fyrst á fæðingardeild og svo á barnadeild. Síðan fórum við til Patreksfjarðar, þar sem ég starfaði í tvö ár, fyrst sem aðstoðarhéraðslæknir og síðan hér- aðslæknir.“ – Af hverju Patreksfjörður? „Ég þurfti að taka hluta kandídats- ársins úti á landi svo ég fór til land- læknis, sem þá var Sigurður Sigurðs- son, og hann spurði hvort ég væri tilbúinn að fara til Patreksfjarðar. Ég sagði bara já og fór!“ – Hvernig tóku Patreksfirðingar því að fá araba sem héraðslækni? „Patreksfirðingar tóku mér vel. Ég man að ég byrjaði á því að fara út í búð og kaupa kaffi og meðlæti og þá hópuðust börnin að mér og fylgdu mér í halarófu. Þau voru svo spennt að sjá hvernig alvöruarabi liti út!“ Og Jabali hlær við minningunni. Það er léttara yfir honum þegar hann talar um Patreksfjörð en Palestínu. – Hvernig var að vera úti á landi? „Fólkið var ágætt. Og starfið allt öðruvísi en í borginni. Við áttum góða daga fyrir vestan. En ég varð að koma suður aftur til þess að klára kandídatsárið og það gerði ég á lyfjadeild Landakotsspít- ala og skurðdeild Borgarspítalans.“ – Þú hefur starfað þarna á þremur höfuðsjúkrahúsum Reykjavíkur, sem þá voru. Fannstu einhvern mun á spítölunum? „Ekki annan en þann að það var misjafnt að starfa á ólíkum deildum. En samstarfsmenn og sjúklingar voru hverjir öðrum líkir.“ – Nú er búið að sameina þessi sjúkrahús í eitt. Hvað segir þú um þá þróun? „Satt að segja veit ég ekki nægi- lega mikið til þess að mynda mér ein- hverja skoðun á því. Það eina sem ég veit er að allir þeir, sem ég þekkti, eru ekki lengur starfandi!“ Skrifaðu bara og sheikinn borgar Eftir fjögur ár á Íslandi lá leið Ja- bali til Dubai 1972. Af hverju Dubai? „Vinur pabba hafði farið til Dubai og starfaði þar. Hann útvegaði mér vinnu í sjúkrahúsi, þar sem ég starf- aði í tvö ár. Það var mjög sér- kennilegt að vinna þarna og satt að segja fannst mér það leiðinlegt. Það var allt í lagi að sinna eldra fólkinu. Það mundi tímana tvenna; hafði þurft að hafa fyrir hlutunum og var þakk- látt fyrir flestar þær breytingar sem nútímavæðingin færði þeim. Mér fannst mjög gaman og gefandi að spjalla við þetta fólk. Yngra fólkið hugsaði allt öðruvísi. Því fannst sjálfsagt að fá allt upp í hendurnar fyrirhafnarlaust. Það slengdi sér bara í stólinn hjá mér og sagði: Þú átt að skrifa upp á vottorð fyrir mig. Hvernig vottorð? spurði ég. Um að ég þurfi að fara til London, eða eitthvað annað. Og hvers vegna? Skrifaðu bara eitthvað og þá borgar sheikinn ferðina! Ég gafst einfaldlega upp á þessu kerfi og ég kom aftur til Íslands.“ Hér vann Jabali í hálft ár við rönt- genlækningar og fór síðan í fram- haldsnám í þeim í Þýzkalandi. Að því loknu var eldri sonurinn, Fahad Fal- ur, kominn til náms í Nancy Lorraine í Norður-Frakklandi. Guðrún kom þangað með yngri soninn; Ómar, og að loknu framhaldsnáminu í Þýzka- landi var fjölskyldan öll samankomin í Frakklandi. Þau Jabali og Guðrún slitu samvistir. Synir þeirra starfa báðir við kvikmyndagerð í Reykjavík. Í 17 ár starfaði Jabali í Nancy Lor- raine. „Ég var aðstoðarlæknir en gat ekki orðið fullgildur opinber embætt- ismaður af því ég var ekki með franskan ríkisborgararétt.“ Í miðjum klíðum var Jabali kippt út úr sínu daglega lífi; hann veiktist, fékk slag og lamaðist vinstra megin. –Hvernig tókstu á afleiðingum þess áfalls? „Það var erfitt. Verst var að átta sig á því hversu erfitt varð að gera svo margt, sem ég hafði áður fram- kvæmt umhugsunarlaust. Það var svo margt að bögglast fyrir mér. Eitt var að ég gat ekki ekið bíl og það kom iðulega fyrir að ég missti af strætó af því að ég ætlaði mér ekki nógan tíma til þess að komast út á stoppistöð. Mér fannst þetta allt saman ákaflega gremjulegt í fyrstu, en svo var auðvit- að ekki um annað að ræða en að taka á málum og þjálfa sig upp aftur. Það tók mig langan tíma að ná mér, en mér tókst að verða vinnufær aftur og fara til míns starfa í sjúkrahúsinu. Þá gerðist það að gyðingaprófessor varð yfirmaður deildarinnar. Þarna voru yfirlæknarnir guðir og hann tók það Enginn er dagur vonar Morgunblaðið/RAX Íslenzkur arabi Krakkarnir á Patreksfirði eltu Abdel Fattah El-Jabali í halarófu. Þau voru svo spennt að sjá hvernig alvöruarabi liti út! Hann heitir Abdel Fattah El-Jabali, er fæddur Pal- estínuarabi og var 9 ára þegar land feðranna var tekið af fjölskyldu hans. Eftir náms- og starfsferil í níu löndum eyðir hann nú efri árunum á Íslandi. Freysteinn Jóhannsson ræddi við Jabali um lífs- hlaup hans og landið fyrir botni Miðjarðarhafsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.