Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 25
Children og Völundarhúsið – El La-
berinto del Fauno/Pan’s Labyrinth
eru einnig meðal mynda sem líkleg-
ar eru til afreka 2007.
„Tres amigos“
Óháðir kvikmyndagerðarmenn
settu sterkan svip á síðustu afhend-
ingarhátíð og eru vissulega að gera
góða hluti. Í ár eru það hins vegar
þrír mexíkóskir kvikmyndaleik-
stjórar og handritshöfundar sem
láta heldur betur til sín taka. Þeir
eru Alejandro Gonzalez Inarritu,
Guillermo Del Toro og Alfonso
Cuaro, gjarnan kallaðir „Vinirnir
þrír“. Inarritu er leikstjóri og hand-
ritshöfundur Babel, sem hlaut sjö
tilnefningar; Völundarhúsið, eftir
del Toro, hlaut sex, m.a. fyrir frum-
samið handrit og í flokknum Besta
erlenda mynd ársins. Mynd Cuar-
ons, Mannsbörn – Children of Men,
hafði þrjár upp úr krafsinu, m.a. fyr-
ir besta handrit byggt á áður birtu
efni.
Í heild eru tilnefningarnar mun al-
þjóðlegri en oftast áður. Í Babel tala
sögupersónurnar á fimm tungu-
málum og japanska hljómar ein-
göngu í Bréfum frá Iwo Jima. Önnur
bandarísk mynd, Apocalypto, sem
tilnefnd er til nokkurra minniháttar
verðlauna, er á máli frumbyggja
Ameríku. Tvær leikkonur sem koma
fram í myndum á öðru tungumáli en
ensku eru tilnefndar: Penelope Cruz
fyrir Volver og Rinko Kikuchi, sem
stelur löngum köflum í Babel. Þá er
hin spænsk/mexíkósk/bandaríska
Völundarhúsið ein þeirra mynda,
sem flestar tilnefningar fá í ár.
Mjótt á munum
Hvernig sem fer verður keppnin
tvísýnni í kvöld en oftast áður, ég hef
á tilfinningunni að 79. afhendingin
verði kvöld senuþjófa og óvæntra
sigurvegara. Tilnefningarnar hafa
sjaldan verið dreifðari, að auki er
Dreamgirls, myndin með flestar til-
nefningarnar (átta, sem er óvenjulág
tala), ekki í slagnum um aðalverð-
launin.
„Öruggir sigurvegarar“ eru því
óvenjufáir. Ég spáði Helen Mirren
Óskarnum eftir frumsýningu
Drottningarinnar í sumar og ætla að
standa við það. Það var áður en Judi
Dench heillaði mig upp úr skónum í
Hugleiðingum um hneyksli – Notes
on a Scandal, hún er sannarlega vís
með að setja strik í reikninginn í
flokki aðalleikkvenna. Og þá er kom-
inn tími til að vinda sér í spámanns-
spjarirnar …
BESTA MYND ÁRSINS
Sem fyrr segir hefur AMPAS látið
sér fátt um Scorsese finnast til
þessa. Ég veðja á að nú verði breyt-
ing á. „Loksins, loksins“ segir hann
vonandi í nótt, annars liggja Danir í
því. Fáar myndir leikstjórans hafa
hlotið betri dóma en Þeir fráföllnu,
sem fjallar um skipulagða glæpa-
starfsemi, líkt og Goodfellas og Cas-
ino, sem hvorug þótti verðug verð-
launanna. Hún er byggð á Hong
Kong-spennumyndinni Infernal
Affairs – Mou gaan dou (’02), endur-
unnið efni er almennt síður til þess
fallið að bæta stöðu mynda í hópi út-
valinna en frumsamið. Upp á móti
vegur kjarnmikið, tæpitungulaust
handrit Williams Monahans, frá-
bært útlit og tæknivinna og leikur
Leonardos Di Caprios og Martins
Sheens. Þó svo að Scorsese hafi gert
betur breytir það engu um að mögu-
leikar hans eru miklir og Hinir frá-
föllnu á firnasterka spretti.
Eastwood er ólíkt farsælli en
Scorsese, hefur hlotið þrjár tilnefn-
ingar og unnið Óskarinn tvisvar –
fyrir The Unforgiven (’93) og Million
Dollar Baby, sem var tekin framyfir
The Aviator Scorseses fyrir þremur
árum. Bréf frá Iwo Jima gefur Ósk-
arsverðlaunamyndunum hans ekk-
ert eftir, það gerir Mystic River
reyndar ekki heldur, en AMPAS
hunsaði gjörsamlega þá minnis-
stæðu mynd. Það er ekki líklegt, ef
Hinir fráföllnu gleymist, að Aka-
demían endurtaki leikinn frá 2004 og
hampi frekar hinni margslungnu Ba-
bel. Misjafnri mynd með einhverjum
bestu myndskeiðum og mögnuðustu
atriðum sem sáust í fyrra. Sagan af
Babelsturninum í Biblíunni hermir
frá því hvernig Guð dreifði mann-
kyninu um allar jarðir og gaf því
mörg og mismunandi tungumál.
Mynd Innaritus fjallar um hnatt-
væðingu og hvernig heimurinn hefur
skroppið saman frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Persónurnar
eru úr flestum heimshornum en
tengjast á einhvern hátt innbyrðis.
Babel fjallar jafnframt um hugðar-
efni sem a.m.k. þeir sem komnir eru
yfir miðjan aldur velta gjarnan fyrir
sér: Sakleysið og hvernig og hvenær
það glutrast niður.
Litla ungfrú sólskin og Drottn-
ingin eru dásamlegar myndir en
eiga sjálfsagt minni möguleika. Litla
ungfrúin eygir veika von, hún hefur
hlotið afburðadóma, gnótt verð-
launa, er hvers manns hugljúfi og
tekur á grafalvarlegum þjóðfélags-
vanda á sinn grínaktuga hátt.
Nánast allar myndirnar hafa þeg-
ar verið frumsýndar eða forsýndar
og séðar af greinarhöfundi.
Athugið að þeim sigurstrangleg-
asta í hverjum flokki er stillt efst –
síðan koll af kolli.
Merktu þína spá í ferninginn.
The Departed – Hinir brottföllnu
Babel
Letters from Iwo Jima – Bréf frá
Iwo Jima
Little Miss Sunshine – Litla
ungfrú sólskin
The Queen – Drottningin
Ef ég fengi að ráða: Litla ungfrú
sólskin.
Hverja vantar? United 93.
BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Það hefur komið ljóslega fram að
ég spái Martin Scorsese tvöföldum
sigri í ár, fyrir mynd og leikstjórn.
Sú skoðun er ekki eintóm óskhyggja
né réttlætiskrafa, þungt vegur að
starfsbræður hans hafa þegar valið
Scorsese leikstjóra ársins fyrir Hina
fráföllnu. Þeirra val ræður úrslitum
á kjöri sigurvegarans í flokknum.
Það er þó alls ekki einhlítt að sá sem
er kjörinn af DGA verði sjálfkrafa
óskarsverðlaunahafi.
Keppendurnir eru allir valin-
kunnir hæfileikamenn með East-
wood og Innaritu í humátt á eftir
Scorsese. Frears og Drottningin
sjálfsagt of bresk til að hljóta um-
talsverðan meðbyr hjá akademíunni.
Að mínum dómi var United 93 ein
besta myndin á árinu sem var að
líða. Átakanleg og grípandi sviðsett
heimildarmynd, líkt og nokkur fyrri
verk Pauls Greengrass. Hann fjallar
á hreinskilinn hátt um atburð sem
snerti alla bandarísku þjóðina, það
hefur sjálfsagt eitthvað að segja. Á
móti honum vinnur að myndin er
ekki tilnefnd sem besta mynd ársins,
það eitt rýrir umtalsvert möguleika
leikstjórans.
Martin Scorsese, Hinir fráföllnu
Alejandro Gonzalez Inarritu,
Babel
Clint Eastwood, Bréf frá Iwo
Jima
Stephen Frears, Drottningin
Paul Greengrass, United 93
Ef ég fengi að ráða: Martin Scor-
sese.
Hvern vantar? Kevin Macdonald
Síðasti konungur Skotlands – The
Last King of Scotland.
BESTI KARLLEIKARI
Í AÐALHLUTVERK
Einn af mörgum tvísýnum flokk-
um, en botninn er fenginn í málið.
Þegar þessar línur eru skrifaðar (20.
febrúar) er undirritaður nýkominn
af forsýningu á Síðasta konungi
í kvöld?
Í tíu ár hefur NTV boðið upp á Skrifstofu- og tölvunám. Á þessum tíma hefur
námskeiðið þróast mikið og breyst í takt við tímann og vinnumarkaðinn.
Það er samdóma álit þeirra sem ljúka náminu að það sé krefjandi en umfram
allt uppbyggilegt, styrkjandi og skemmtilegt.
- Windows stýrikerfið
- Word ritvinnsla
- Excel töflureiknir
- Power Point kynningarefni
- Access gagnagrunnur
- Internetið & Tölvupóstur
Tölvunám - 96 stundir
- Verslunarreikningur
- Bókhald
- Tölvubókhald Navision MBS®
Viðskiptagreinar - 108 stundir
- Tímastjórnun og
markmiðasetning
- Sölutækni og þjónusta
- Framsögn og framkoma
- Mannleg samskipti
- Streitustjórnun
- Atvinnuumsóknir
Sjálfstyrking - 30 stundir
- Auglýsingatækni
- Markhópagreining
- Gerð birtingaráætlana
- Gagnvirk tenging forrita
- Flutningur lokaverkefnis
Lokaverkefni - 24 stundir
Í tölvuhlutanum er lögð áhersla á þau forrit sem
nemandi þarf að kunna á til að öðlast TÖK-skírteini
sem er alþjóðleg viðurkenning á tölvukunnáttu hans.
NTV er eini skólinn þar sem öll 7 TÖK prófin og
alþjóðlegt prófskírteini er innifalið í náminu.
Kenndur er sá hluti verslunarreiknings sem mest er
notaður á skrifstofunni og tekin fyrir flest þau atriði sem
þarf til að færa bókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
NTV leggur mikið upp úr því að ná fram því besta úr
hverjum og einum nemanda. Það er ekki nóg að búa
yfir þekkingu og hæfileikum. Nemandinn þarf einnig
að þekkja styrk sinn og veikleika, kunna að stýra tíma
sínum, setja sér skýr markmið og kunna að selja öðrum
hugmyndir sínar og skoðanir.
„Skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins“ segja margir.
Unnið er í 3-4 manna hópum að markaðssetningu á
vöru eða þjónustu. Lokaverkefnisvinnan er skemmtileg,
krefjandi og framsett á þann hátt að hún taki á flestum
þáttum námskeiðsins.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn - Hlíðasmára 9 - Kópavogi
„Frábært og hnitmiðað!“ lýsir náminu best!
Fyrir tíu árum og þremur börnum síðan fór ég
af vinnumarkaði. Því fannst mér erfitt að fara
að vinna aftur, ég var ekki tilbúin að takast á
við nútíma skrifstofuumhverfi.
Eftir Skrifstofu- og tölvunámið fékk ég strax
góða skrifstofuvinnu þar sem ég er að nýta
mér flest það sem kennt var í náminu.
SKRIFSTOFU-
& TÖLVUNÁM
Bryndís Gísladóttir - Inpro ehf.
Næsta námskeið:
Morgunnámskeið - Alla virka daga frá kl. 8:30-12:30. Byrjar 19. mars og lýkur 30. maí.
Námið gefur 10 einingar til stúdentsprófs og skiptist í 4 flokka:
ATH! - Síðasta Skrifstofu- og tölvunámskeiðið á vorönn!