Morgunblaðið - 25.02.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 31
Liverpool á níunda áratugnum.
Kappinn var ekki í vafa um að hann
myndi smellpassa inn í hópinn enda
talaði hann reiprennandi ensku. Það
runnu hins vegar á hann tvær grím-
ur þegar hann mætti á fyrstu æf-
inguna og skyldi ekki orð af því sem
mönnum fór á milli.
Undirgrundin er uppfull af Púl-
urum á leið á Nývang. Þeir taka
samviskusamlega undir með Johnny
Cash í slagaranum ástsæla, Ring of
Fire. Þar með er tónninn gefinn fyr-
ir það sem koma skal en Nývangur
er, eins og menn þekkja, einskonar
hringleikahús.
Hressir þremenningar eru vel
nestaðir til ferðarinnar – hver með
sinn lítrann af San Miguel. Spán-
verji nokkur horfir á þá spyrjandi
augum. „Viltu sopa?“ spyrja þeir og
rétta flöskurnar í átt að honum.
„Ha, nei. Ég drekk bara Estrella.“
Þetta kallar maður að vera fljótur
að hugsa.
Á leiðinni upp á yfirborðið heldur
söngurinn áfram. „Við erum stillt-
ustu stuðningsmenn landsins...,“
glymur nú um ganga. Ha? En þá er
vísan botnuð. „... þegar við förum
með sigur af hólmi. En þegar við
lútum í gras...“ Já, hér er best að
bremsa af orðbragð sem ekki hæfir
Morgunblaðinu.
Ekki þarf að fjölyrða um leikinn.
Börsungar komust snemma yfir og
virkuðu líklegir til að valta yfir gest-
ina. En með hægðinni sneri Liver-
pool leiknum sér í hag og vann að
lokum með tveimur mörkum frá
aldavinunum Craig Bellamy og
John Arne Riise. Hér er freistandi
að segja golfbrandara en mér skilst
að Logi Ólafsson sé búinn að tæma
þann brunn.
Óviðjafnanlegar söngbækur
Púlararnir eru margfalt færri á
pöllunum en samt lætur hátt í þeim
enda búnir að bera vel af olíu á
tálknin. Stuðningsmenn Barca taka
líka lagið annað veifið en ljóst er að
söngbækur þeirra standa söng-
bókum gestanna langt að baki. Orð-
ið „puta“ er þó atkvæðamikið. Þeir
reyna þó að hvetja sína menn allt til
enda: „Vamos Lio, Vamos Ronny“
og „Vamos Guddy,“ eftir að okkar
maður kemur til skjalanna. Allt
kemur fyrir ekki.
Þegar flautað er til leiksloka
stingur David Blayne við stafni og
lætur Katalónana hverfa með einni
handarhreyfingu. Púlararnir eru
einir eftir á pöllunum og því er ekki
að neita að maður fær gæsahúð á
lokastigi þegar þeir byrja: „Walk
on, walk o-o-o-on, with hope in your
heart... “ Liverpool-liðið er sann-
arlega ekki eitt á ferð, hvorki í
Barselónu né annars staðar.
Sigrinum er ákaft fagnað í mið-
borginni um kvöldið og eflaust langt
fram á morgun. Sú athöfn var ekki
við hæfi barna og viðkvæmra sála
en ekki er betur vitað en allir hafi
komið ósárir undan nóttu. Undirrit-
aður lét sér nægja að spóka sig
stundarkorn á Römblunni en náði
þó að sjá undarlega sjón. Íturvaxin
valkyrja hafði bersýnilega gleymt
næríunum heima og einhverjir ær-
ingjar léku sér að því að svipta Liv-
erpool-treyjunni, sem hún var í ein-
um fata, upp um hana. Lét hún sér
þetta í léttu rúmi liggja og dillaði
bossanum framan í vegfarendur.
Allt má að sætum sigri loknum.
Daginn eftir er allt öðruvísi um
að litast á Römblunni. Eitthvað er
eftir af Púlurum á svæðinu en lík-
amlegt atgervi þeirra er heldur lak-
ara en kvöldið áður, þar sem þeir
sitja álútir og fá sér afréttara. En
sálin er við hestaheilsu – og syngur
hástöfum.
Það síðasta sem ég hef af þessum
hörkutólum að segja á spænskri
grundu er á flugvellinum á föstudag
en tvö þeirra koma í humátt á eftir
mér í röðinni út í rana. Með þeim er
Ameríkani sem augljóslega hefur
haft spurn af leiknum. „Þetta var
ekkert, lagsi,“ segja Púlararnir,
brattir sem fyrr. „Bíddu bara eftir
seinni leiknum á Anfield. Þar verða
lyktir mála eftirfarandi,“ halda þeir
áfram og teikna upp markatöflu.
„Liverpool 8 - Barcelona 0.“
»Ég man þegar ég
var lítill og við töp-
uðum bikarleik. Mér
var svo misboðið að ég
sparkaði útvarpinu
niður stigann. Það
brotnaði í þúsund mola.
orri@mbl.is
Leirlistaverk til sölu
- einstakt tækifæri
Um er að ræða leirlistaverk
eftir Kolbrúnu Björgólfsdóttur
(Koggu).Verkið er eitt það stærsta
verk sem unnið hefur verið á
Íslandi sinnar tegundar.Verkið var
unnið 1991 með sérstakri vinnslu-
aðferð sem þróuð var af listaman-
ninum.Aðeins 3 verk af svipaðri
stærð voru unnin. Hæð verksins er
u.þ.b. 165 cm.
Allar nánari
upplýsingar veitir
Guðrún í síma 840 4044
www.lysi.is
Omega-3
F I S K I O L Í A
Gjöf náttúrunnar til þín
Má taka með lýsi.
Omega-3 fiskiolía byggir upp ónæmiskerfið á
marga vegu og hefur jákvæð áhrif á:
Omega-3 fiskiolía inniheldur hátt hlutfall Omega-3
fitusýra, einkum EPA og DHA sem eru okkur
lífsnauðsynlegar.
Fjöldi rannsókna víða um heim hafa sýnt fram á
jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsuna.
sjón
hjarta og æðakerfi
blóðþrýsting
kólesteról í blóði
liði
rakastig húðarinnar
minni
andlega líðan
námsárangur
þroska heila og
miðtaugakerfis
á meðgöngu
Lista- og menningarráð Kópavogs
auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna / viðburða
á sviði menningar og lista í Kópavogi.
Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir
geta sótt um styrki úr sjóðnum.
Unsóknum skal skilað á þar til gerðum umsóknar-
eyðublöðum fyrir 25. mars nk., ásamt fylgiskjölum.
Eyðublöðin fást á skrifstofu
Tómstunda- og menningarsviðs Fannborg 2, 2. hæð
og á heimasíðu Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is
Lista- og menningarráð Kópavogs veitir styrki til menn-
ingarstarfs í Kópavogi tvisvar á ári, í október og apríl.
Lista- og menningarráð Kópavogs
Menningarstarf
í Kópavogi