Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 34
kvikmyndir/bækur
34 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hannibal Lecter kom fram ásjónarsviðið í bókinniRauða drekanum. Síðankomu Lömbin þagna og
Hannibal og nú er Uppruni Hannibals
kominn bæði á bók og hvíta tjaldið.
Uppruni Hannibals er í raun eins og
nafnið bendir til undanfari hinna bók-
anna, því hún segir frá bernsku
Hannibals og æsku og endar á komu
hans til Bandaríkjanna, þar sem hinar
taka við. Það er svo tímanna tákn að
bókin kom í kjölfar kvikmyndarinnar,
en fyrri bækurnar voru allar kvik-
myndaðar eftir útkomu þeirra. Það
verður ekki um Harris sagt, að hann
hafi haft snör handtök við sögu
Hannibals. Rauði drekinn kom út
1981, Lömbin þagna kom út 1988,
Hannibal 1999 og sú nýjasta kom út í
fyrra. Á hvíta tjaldinu hefur Anthony
Hopkins unnið ótvíræðan leiksigur –
og fengið Óskarsverðlaun fyrir – með
sannfærandi persónu sem er fyllilega
samboðin öllu því versta í fari Hanni-
bals og líka þeirri heillandi og hættu-
legu heimsmennsku sem hann býr yf-
ir. Í mínum huga er vart til eftir-
minnilegri setning en þegar mann-
ætan Hannibal Hopkins fylgist með
kvalara sínum til margra ára í lok
kvikmyndarinnar Lömbin þagna og
segir: Ég fæ gamlan vin í kvöldmat.
Lætur sig svo hverfa í mannfjöldann.
Lömbin þagna er sterkasta bók
Harris um Hannibal Lecter. Í Hanni-
bal daprast honum flugið nokkuð og í
Uppruna Hannibals fatast honum frá-
sögnin frekar, sem krefst snöggtum
meiri þolinmæði og umburðarlyndis
af lesandanum en fyrri bækurnar. En
þrátt fyrir þær gloppur fer Harris
fimum höndum um spennuna og ekk-
ert vantar upp á hryllinginn, þar er
hvergi slegið undan, heldur stöðugt
gefið í.
Sitt er hvað gæfa eða gjörvileiki
Í Uppruna Hannibals kemur fram,
að Hannibal Lecter er af aðalsættum;
fæddur í Litháen 1933, í kastala sem
forfaðir hans, Hannibal grimmi, lét
reisa á sínum tíma. Hannibal Lecter
er áttundi afkomandinn sem ber þetta
nafn. Móðir Hannibals á hins vegar
rætur að rekja til Mílanó.
Sex ára eignast Hannibal systurina
Mischa og í bókinni tíundar Harris
fyrst blíða bernsku þeirra systkina og
afburðagáfur Hannibals. Þegar kem-
ur að innrás Þjóðverja, flýr fjöl-
skyldan kastalann og býr um sig í
skógarhýsi, þar sem hún dvelur unz
stríðsgæfan fellur af herjum Hitlers
og sovézki herinn rekur flóttann. Þeg-
ar þýzk steypiflugvél í árás á sov-
ézkan skriðdreka hrapar við dvalar-
stað þeirra, farast foreldrar
Hannibals, kennari og þjónar. Hanni-
bal og Mischa eru tekin af litháískum
landráðamönnum, sem fara nú ráns-
hendi um landið. Hungur sverfur að
og svikararnir eta Mischa, en Hanni-
bal sleppur áður en hann deilir þeim
örlögum með systur sinni og er bjarg-
að um borð í sovézkan skriðdreka.
Drengurinn hefur misst málið og her-
mennirnir fara með hann í Lecter-
kastala sem nú er orðinn heimili mun-
aðarleysingja. Þar er til þess tekið
hversu góður Hannibal er við minni
máttar, en óvæginn við þá sem láta
hina kenna aflsmunar. Þegar hann er
þrettán ára, kemur föðurbróðir hans,
velmetinn listmálari búsettur í
Frakklandi, og tekur drenginn með
sér heim, þar sem hann elst upp hjá
frænda sínum og japanskri eiginkonu
hans. Á sinn japanska hátt tekst
henni að vinna Hannibal út úr skel-
inni og þegar hann rýfur þögnina,
kemur í ljós að gáfur hans hafa engan
hnekki beðið og hann er yngstur
manna tekinn inn í læknaskóla í
Frakklandi. En svo ofurseldur er
hann myrkri hatursins og hefni-
girninnar að hann má ekki taka gleði
sína á ný. Sitt er hvað gæfa eða
gjörvileiki. Blindaður af heiti um
hefnd fyrir Mischa veður hann áfram
í vígamóð og er svo heillum horfinn að
hann lætur ekki staðar numið, þegar
morðingjar Mischa eru frá, heldur
heldur morðum og mannáti áfram og
gengur æ lengra í geðvillu sinni og
glæpum. Reyndar fremur Hannibal
ekki sitt fyrsta morð í hefndarskyni
fyrir Mischa, heldur hefnir hann með
því fyrir móðgun við greifynjuna og
dauða frænda síns. Hann er þá þrett-
án ára og morðinu fylgir mannát;
Hannibal gerir sér mat úr kinnum
fórnarlambsins. Þar með er kominn
fyrsti vísirinn að því skrímsli sem við
þekkjum úr hinum bókunum og kvik-
myndunum.
Miskunnarlaus morð og mannát
1951 heimsækir Hannibal Lecter
bernskustöðvarnar í Litháen, þar sem
hann finnur jarðneskar leifar Mischa
og grefur þær með viðhöfn. Einn af
svikurunum, sem tóku þau systkinin á
sínum tíma, starfar nú við landa-
mæraeftirlit og verður komu Hanni-
bals var. Hann fer á staðinn til þess að
drepa hann, en þess í stað verður
Hannibal honum að bana og gerir sér
mat úr kinnum hans. Hefndin er sæt!
Bókin segir síðan frá því hvernig
Hannibal kemur fleiri morðingjum
systur sinnar fyrir kattarnef. Og
Harris er ekkert að tvínóna við hlut-
ina heldur lýsir gjörðum Hannibals út
í æsar svo hugmyndaflug lesandans
kemst þar hvergi að. Það gerir hins
vegar franskur lögregluforingi, sem á
endanum handtekur Hannibal, en
verður að sleppa honum aftur vegna
skorts á sönnunum og velvildar al-
mennings, sem þykir ekkert verra að
gert sé upp við gamla stríðs-
glæpamenn, þótt með hrottalegum
hætti sé.
Svo fastur verður Hannibal í þessu
morðóða mannáti, að hann fyrirgerir
öllu; þar á meðal sambandinu við jap-
önsku vinkonu sína. En þrátt fyrir
makk sitt við myrkravöldin ferst hann
ekki heldur fer í bókarlok til fram-
haldsnáms í Bandaríkjunum.
Það er franski leikarinn Gaspard
Ulliel sem fer með hlutverk Hanni-
bals í myndinni um uppruna hans.
Hann hefur sagt að það hafi verið allt
annað en árennilegt að feta í fótspor
Anthony Hopkins; hann hafi hins veg-
ar getað leikið upp á eigin spýtur
framan af, en eftir því sem leið á kvik-
myndina og hann nálgaðist Hannibal
Hopkins í aldri hlaut hann að draga
vaxandi dám af persónu hans. Kvik-
myndin er kunnáttusamlega gerð,
reyndar nokkuð þunglamaleg, en á
engu að síður sínar góðu stundir, sér-
staklega hvað kvikmyndatökuna
varðar. Burðarásinn; hryllingurinn,
er svo hamslaus og yfirþyrmandi að
það hálfa væri miklu meira en nóg.
Skólapilturinn Loftur gekk svo
langt, að hann hlaut að farast á myrk-
urstigum. Skólapilturinn Hannibal
Lecter heldur hins vegar á vit lífsins í
Vesturheimi. Það má vel hafa verið
öllu fyrir beztu að Loftur skyldi týn-
ast, því góður galdur gat aldrei orðið
hans, heldur hefði hann haldið áfram
að tapa sér allt til enda, alveg eins og
Hannibal Lecter.
Sakamálin gerðu hann
að höfundi Hannibals
Thomas Harris fæddist 1940 í
borginni Jackson í Tennessee, flutti
með fjölskyldunni til Mississippi og
nam ensku við Baylorháskólann í
Waco í Texas og útskrifaðist þaðan
1964. Á skólaárunum tók hann í
blaðamennsku og 1968 lá leið hans til
New York, þar sem hann starfaði hjá
Associated Press með sakamál sem
sérgrein.
Hryðjuverkin á Ólympíuleikunum í
München 1972 kveiktu á rithöfund-
inum í honum og 1975 kom fyrsta
bókin; Svartur sunnudagur, sem segir
frá því að hryðjuverkamenn hyggjast
beita fyrir sig loftbelg á úrslitaleikinn
í ruðningi. Bókin varð metsölubók og
var kvikmynduð og hefur verið bent á
að hún sé fyrsta bandaríska sagan um
hryðjuverkaárás í Bandaríkjunum.
1981 kynnti hann svo Hannibal til
sögunnar í bókinni Rauða drekanum.
Eftir þeirri bók hafa reyndar verið
gerðar tvær kvikmyndir; 1986 og
2002, þegar Anthony Hopkins var
orðinn Hannibal. Bókin Lömbin
þagna hefur unnið til þrennra verð-
launa ( Anthony Awards Best Novel,
World Fantasy Best Novel og Bram
Stoker Best Novel) og Hannibal var
tilnefnd til Bram Stoker-verðlauna.
Allar bækurnar um Hannibal hafa
verið kvikmyndaðar og Lömbin
þagna vann til fimm Óskarsverð-
launa; Bezta myndin, Bezti leikstjór-
inn (Jonathan Demme), Bezta leik-
konan (Jodie Foster), Bezti leikarinn
(Anthony Hopkins) og Bezta handrit
unnið úr bók (Ted Tally).
Thomas Harris hefur græðzt mikið
fé á bókum sínum og kvikmyndun
þeirra. Það er því fátt sem rekur á eft-
ir honum við ritstörfin, enda ber tím-
inn sem Harris hefur varið til bók-
anna með sér að hann hrapar ekki að
neinu í vinnubrögðum sínum. Menn
hafa tengt sögu Hannibals reynslu
hans úr réttarsalnum og rannsóknum
á málum fjöldamorðingja. Hefur
margt verið tínt til, þegar menn
benda á tengsl raunveruleikans og
söguheimsins.
Framleiðendur nýjustu mynd-
arinnar, Dino og Martha De Laur-
entiis, segir að í kynningarferð á kvik-
myndinni Rauða drekanum
(endurgerð 2002; Lömbin þagna var
kvikmynduð 1991 og Hannibal 2001)
hafi fólk iðulega spurt af hverju
Hannibal Lecter væri þetta skrímsli.
Í Hannibal er minnzt á systur hans
Mischa og með þá vísbendingu fóru
þau til Thomas Harris og stungu upp
á því að hann gerði uppruna Hanni-
bals skil í nýrri bók. Harris var að
sögn tregur til, en lét svo tilleiðast og
þegar til kom heillaðist hann svo af
Hannibal sínum, að hann krafðist
þess að fá að skrifa kvikmynda-
handritið líka sem var auðsótt mál.
Thomas Harris er maður dulur og
hefur því forðast fjölmiðla eftir beztu
getu. Engar persónulegar upplýs-
ingar er að finna á bókarkápu eða
heimasíðu hans. Peter Webber sem
leikstýrði kvikmyndinni um uppruna
Hannibals segir rithöfundinn hafa
verið ófáanlegan út af heimili sínu í
Miami og því hafi hann orðið þess
heiðurs aðnjótandi að fá að heim-
sækja hann. Það eitt hafi verið mikil
forréttindi.
Webber hefur stór orð um þekk-
ingu Harris og hæfileika til þess að
festa sér öll smáatriði í minni. Eins og
alfræðibók hefur hann sagt á einum
stað.
Sterkasti þráður bókarinnar
Lömbin þagna og kvikmyndarinnar
er samband Lecters og Sterling rann-
sóknarlögreglumanns, sem Jodie
Foster lék. Þrátt fyrir glervegg í mill-
um þeirra tókst þeim að skila til
áhorfenda því mjög svo sérstæða
sambandi, sem bókin lýsti mjög vel. Í
Hannibal fór Julianne Moore með
hlutverk Sterling og alveg eins og sú
bók stóð hinni að baki, kveikir kvik-
myndin aldrei viðlíka spennu milli
Lecter og Sterling og stendur þó eng-
inn veggur í milli þeirra. Lömbin
þagna endar á útskrift Sterling frá
lögregluskólanum og samtali þeirra,
þar sem Lecter fer fram á vopnahlé,
en Sterling hafnar því. Í Hannibal
hefur hún eftirförina um leið og hann
snýr aftur til Bandaríkjanna frá Ítal-
íu, tekst á endanum að ná honum, en
þá gefa þau sig hvort öðru og flýja
saman. Sá endir er satt að segja hálf-
hallærislegur eftir það sem á undan
er gengið, enda breytti Harris end-
inum, þegar að kvikmyndun sögunnar
kom.
Þeirri spurningu hvort Harris hafi
nú svipt síðustu hulunni af Hannibal
Lecter má halda opinni. 2005 gerði
hann tveggja bóka samning við Ban-
tam Books og er Uppruni Hannibals
sú fyrri, en ekkert liggur á lausu um
hina. Hvor tveggja endir bókarinnar
Hannibal og kvikmyndarinnar getur
gagnast hugsanlegu framhaldi, ef
Harris hefur lyst á því. Í bókinni læt-
ur Harris þau Lecter og Sterling
sjást saman í Argentínu 30 árum eftir
flóttann frá Bandaríkjunum, en kvik-
myndin endar hins vegar á því að leið-
ir skilja og Hannibal flýgur einn til
framtíðarinnar. Það má náttúrlega
krydda frekar frásögnin með því sem
hefur drifið á daga söguhetjanna síð-
ustu 30 árin eða svo, sundur og sam-
an. Sú saga getur þó varla orðið ann-
að en fleiri tilbrigði við stef, sem við
þegar kunnum alltof vel. Og haldi
Harris uppteknum hætti kemur bók-
in ekki út fyrr en 2019, þegar höfund-
urinn er 79 ára. Það er spurning,
hvort Hannibal Lecter lifir það af!
En Harris getur allt eins látið hér
staðar numið. Með Uppruna Hanni-
bals hefur hann sent okkur þau skila-
boð, að skrímslið sem við þekkjum
fyrir eigi sér rætur í því sálarstríði,
sem Hannibal tapaði í foreldramiss-
inum og aðskilnaði þeirra systk-
inanna. Þar með má Hannibal vera
allur; dulúðin er horfin, augað alsjá-
andi svo andann grunar ekkert meir.
Við erum búin að fá Hannibal
Lecter í kvöldmat.
Sagan öll Mischa og Hannibal. Hannibal yngri: skrímslið í mótun. Skrímslið fullkomnað: Hannibal eldri. Sterling (Jodie Foster) og Hannibal.
Höfundurinn Thomas Harris.
Í fjórðu bókinni um Hannibal
Lecter, sem þegar er komin í kvik-
mynd, segir Thomas Harris frá
uppruna þessarar geðvilltu mann-
ætu og morðingja. Freysteinn
Jóhannsson fjallar um skrímslið
Hannibal og skapara þess.
freysteinn@mbl.is
Ég fæ gamlan vin í kvöldmat