Morgunblaðið - 25.02.2007, Page 35
Hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 35
„… en þið hafið auðvitað
heyrt um gamla manninn
sem spáir í iljar á ungum
stúlkum,“ sagði kennarinn íbygg-
inn og hætti að tala um útþvældar
spádómslistir ásatrúarmanna. Eins
og byssubrennt rétti unga fólkið
úr sér undan fargi menningararfs-
ins og úr augum þess logaði ýmist
áhugi eða hneykslun. „Algjör
perri!“ hvæsti ein stúlkan og
nokkrir úr hópnum kröfðust þess
að fá nánari deili á málinu. Nývak-
in athygli nemendahópsins nægði
hins vegar til að ljúka kennslu-
stundinni. Bragðið hafði heppnast.
Að sjálfsögðu var þetta ekki svo
ýkja merkilegur atburður en í
sögu mannkyns hefur oft verið
gripið til svipaðra úrræða til að
hrista upp í syfjulegum áheyr-
endum. Til dæmis segir sagan að
prestar miðaldakirkjunnar, sem
gjarnan voru einu virku fjölmiðl-
arnir á sínum tíma, hafi stundum
kryddað guðsorðið með sögum af
Artúri konungi og köppum hans til
að fá söfnuði sína til að sperra eyr-
un. Og sögur af lífi og dauða Önnu
Nicole Smith vekja greinilega
meiri áhuga hjá fólki en spásagnir
um líf eða dauða íslensku krón-
unnar.
Dagana fyrir umrædda kennslu-
stund hafði hvorki krónan né Anna
heitin átt óskipta athygli lands-
manna. Það voru hins vegar fréttir
af hvers kyns ofbeldi og öfug-
uggahætti fyrr og nú. Fólk hafði
setið sem steini lostið yfir fréttum
af ógæfufólki úr Byrginu og harð-
ræði gagnvart umkomulausum
drengjum í Breiðavík en umræðan
um hvort tveggja hafði sterkan
kynferðislegan undirtón. Um svip-
að leyti var ítrekað fjallað um
dæmda barnaníðinga, alþjóðlega
klámhringi og ýmiss konar kyn-
ferðisofbeldi. Fátt þótti í frásögur
færandi annað en það sem virtist
eiga sér stað neðan þindar. Því var
ekki furða þótt saga af gamlingja
með afbrigðilegar spádómskúnstir
vekti viðbrögð hjá unglingunum.
Sú var tíðin að lögreglan brýndi
fyrir blaðamönnum að skýra ekki
opinberlega frá sjálfsvígum. Sann-
leikurinn væri sá að fréttir um að
maður hefði stytt sér aldur hryndu
einatt af stað fleiri harmleikjum.
Þær virtust hleypa kjarki í aðra
sem stæðu tæpt í lífinu. Gæti ekki
hugsast að öll þessi opinskáa um-
ræða um afbrigðilegt kynlíf og níð-
ingsverk gagnvart bágstöddum
hafi svipuð áhrif og grafi undan
siðferðisvitund þeirra sem tæpt
standa á því sviði? Spyr sá sem
ekki veit.
Þetta er Ísland í dag segir fólk
og yppir öxlum. Og jafnvel kennari
á sjötugsaldri, sem þolir hvorki
klám né grófyrði, grípur til þess
óyndisúrræðis að krydda dýr-
mætan menningararf með sögu af
upplognum perra.
Algjör perri!
Guðrún Egilson
smáauglýsingar mbl.is