Morgunblaðið - 25.02.2007, Page 46
46 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Sérlega vandaðar og glæsilegar eignir fyrir þá sem vilja minnka við sig.
Vandaðar íslenskar innréttingar frá Brúnás eru í öllum íbúðum, svo og tæki
af viðurkenndri gerð frá Ormson auk mynddyrasíma. Flísar á böðum og
innihurðir eru frá Agli Árnasyni ehf. Parket á sýningaríbúð er frá Agli Árnasyni
ehf. Lyftur eru í öllum stigahúsum sem ganga niður í bílageymslu. Á aðal-
hurðum verða sjálfvirkir hurðaopnarar.
Svæðið er við sjóinn og þar liggja skemmtilegar gönguleiðir meðfram
ströndinni. Sjóbaðs/sólbaðströnd í göngufæri.
Ökuleiðir til og frá hverfinu eru greiðfarnar, stutt í Smáralind og miðbæ
Garðabæjar.
Stúdíó, stórar 2ja og 3ja herb. íbúðir í boði. VERÐ frá 16,0 – 42,0 millj.
BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ SÖLUFULLTRÚUM AKKURAT
Ingvar Ragnarsson / 822-7300 • Þóra Þrastarsdóttir / 822-2225
Ásdís Halldórsdóttir / 897-3474 • Þórður Ingi Marelsson / 824-5002
17.JÚNÍTORG – SJÁLANDI – GARÐABÆ - 50 ÁRA OG ELDRI
Upplýsingar gefa sölufulltrúar Akkurat á
skirfstofu. • 594-5000 • www.akkurat.is
Fullbúin sýningaríbúð í húsi nr. 5, íbúð 308!
Glæsileg húsgögn og innbú frá EGG – Smáratorgi
Sérlega vandað parket frá Agli Árnasyni
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Opið hús í dag milli kl. 15.00-16.00.
Hraunhamar fasteignasala kynnir mjög glæsilega 96 fermetra 3ja herbergja íbúð með sérinngangi, vel staðsetta í
Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, tvö herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Fallegar innréttingar. Gólfefni eru parket og flísar. Góð afgirt verönd. Verð 25,9 millj.
Jón Borgar tekur á móti áhugasömum, væntanlegum kaupendum
í dag, sunnudag, milli kl. 15.00.-16.00.
Laxalind 10 - Kóp. - Opið hús
Glæsileg tvílyft raðhús með
innbyggðum bílskúr, samtals
172 fm. Húsin afhendast í
sumar, fullbúin að utan og
fokheld að innan. Frábær
hönnun, einstök staðsetning
og útsýni. Byggingaraðili
Steinval ehf. Verð 30-31 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hólmvað 38-52 - Rvk. - Glæsileg raðhús
Ágústa Hauksdóttir, Freyja Sigurðardóttir, Magnús Emilsson, löggiltir fasteignasalar – Sími 520 7500 – Fax 520 7501 – www.hraunhamar.is
VANRÆKSLA Sjálfstæð-
isflokksins í samgöngumálum síð-
ustu kjörtímabil kom berlega í ljós
í samgönguáætlun
fyrir næstu ár. Van-
rækslan er vandræða-
lega augljós fyrir
Sturlu Böðvarsson
samgönguráðherra.
Hann gerði ágæta til-
raun til þess í Morg-
unblaðinu á föstudag
að svara gagnrýni
minni og Samfylking-
arinnar á metnaðar-
og árangursleysi rík-
isstjórnarinnar í sam-
göngu- og vega-
málum.
Við lestur þess
svars stendur það eitt eftir að von-
brigði ráðherrans með lakan af-
rakstur síðustu kjörtímabila eru
sár. Ástæðan er fyrst og fremst
metnaðarleysi sjálf-
stæðismanna í sam-
félagslegum málefnum.
Það kemur ekki síst
fram í samdrætti og
niðurskurði á fé til
vegamála.
Því er nú, nokkrum
vikum fyrir kosningar,
hlaupið í það skjól af
ráðherranum að skrifa
pólitískan pönt-
unarlista þar sem á að
gera allt fyrir alla.
Stærstu verkefnin eru
ekki einu sinni í hinni
eiginlegu áætlun, t.d. breikkun
Suðurlands- og Vesturlandsvegar,
heldur eru þau sett á listann sem
sérstök fjármögnun án þess að sagt
sé hvað eigi í raun að gera, hvernig
eða hvenær.
Vegna vanrækslusyndanna er
áætlunin í besta falli ótrúverðug.
Hvar er til dæmis Suðurstranda-
vegurinn sem átti að leggja fyrir
árið 1999 og átti að vera sérstök
samgönguframkvæmd vegna kjör-
dæmabreytinga sem ekki hefði
áhrif á aðrar framkvæmdir?
Svar: Nú átta árum síðar er
stefnt að því að ljúka honum árið
2018. 19 árum síðar.
Er nema von að menn setji
hljóða þegar ríkisstjórnin lætur
eins og nú sé allt hægt? Bara velja
framkvæmd úr konfektkassanum.
Nei, ferðin var aldrei farin
Sturla, og þið undirbjugguð ykkur
ekki heldur. Nú blasir árangurs-
leysið nakið við.
Ég veit að það er vont. En það
venst. Enda er komið að leið-
arlokum í stjórnartíma hægriflokk-
anna. Vonum seinna. Nýir tímar
taka við þar sem viðsnúningur þró-
unarinnar í átt frá engilsaxneskum
ójöfnuði til norræna velferðarrík-
isins hefst strax í vor.
Vanrækslusyndir í
samgöngumálum
Björgvin G. Sigurðsson svarar
grein Sturlu Böðvarssonar
Björgvin G.
Sigurðsson
»Nú blasir árangurs-leysið nakið við. Ég
veit að það er vont. En
það venst.
Höfundur er þingmaður Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi.
Fréttir
í tölvupósti