Morgunblaðið - 25.02.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 47
FRAMHALDSNÁM í kenn-
aradeild HA til diplómu- eða meist-
araprófs er nú í boði áttunda starfs-
árið með aukinni fjölbreytni og
nýjungum.
Lestrarfræði
Umfangsmesta nýj-
ungin er nám í lestr-
arfræði, ætlað kenn-
urum á öllum
skólastigum. Við
skipulagningu þess
hefur verið gengið út
frá þeirri forsendu að
læsi sé grundvall-
arfærni í nútíma sam-
félagi og að tækifæri
til lestrarnáms teljist
til mannréttinda. Þess
vegna er mikilvægt að
kennarar séu vel að
sér um lestur og að
þeir þekki aðferðir við lestr-
arkennslu og rannsóknir á notagildi
þeirra.
Námi í lestrarfræðum er ætlað að
efla kennara í starfi og auka þekk-
ingu og færni í læsi og lestr-
artengdum þáttum. Þeir sem braut-
skrást úr náminu eiga að þekkja vel
hagnýtt gildi kenninga og rann-
sókna í lestrarfræðum fyrir skóla-
starf. Skyldunámskeið í námsleið-
inni fjalla um tengsl máls og
nemanda, fyrstu skrefin í lestr-
arnáminu og lestur til náms. Að
auki er unnt að sækja námskeið um
leshömlun sem er á sérsviði sér-
kennslufræða. Kennsla í lestr-
arfræðum hefst haustið 2007 og
dreifist á tvö háskólaár.
Leiðsögn
Þá verður kennt í fyrsta skipti
valnámskeið um leiðsögn kenn-
aranema og kennara sem eru nýir í
starfi. Rannsóknir benda til þess að
fyrstu starfsár kennara séu þeim
erfiðust. Með því að efla kunnáttu
innan skóla við að taka á móti og
veita nýbrautskráðum kennurum
faglega leiðsögn í starfi má auðvelda
fyrstu starfsárin, koma í veg fyrir
að sumir hætti störfum og síðast en
ekki síst stuðla að meiri framförum í
starfinu.
Þetta námskeið verður í boði á
haustmisseri 2007, fáist næg þátt-
taka. Kennari sem hefur áhuga á
námskeiðinu þarf að innrita sig í
diplómu- eða meistaranám en er í
sjálfsvald sett hvort hann tekur
fleiri námskeið.
Kennslufræði á
meistaranámsstigi
Kennslufræðanám til kennslu-
réttinda hefur verið ein vinsælasta
námsleið háskólans síðan 1994. Það
hefur oftast verið í boði annað hvert
ár og hefst á ný næsta haust. Námið
er ætlað einstaklingum
sem hafa bakkalárpróf
eða aðra menntun í
kennslugreinum
grunn- eða framhalds-
skóla. Að námi loknu
er sótt um leyfisbréf til
kennslu til mennta-
málaráðuneytisins.
Námið hefur hingað til
ekki verið á meist-
aranámsstigi en verður
það frá og með haust-
inu 2007. Námið mun
því taka ýmsum breyt-
ingum, einkum þó síð-
ari hluti þess sem verð-
ur nú að öllu leyti sameiginlegur
með meistaranáminu. Áfram verður
opin námsleið á bakkalárstigi ætluð
iðnmeisturum og öðrum sem ekki
geta innritast í meistaranám á há-
skólastigi.
Fyrirkomulag kennslufræð-
anámsins er þannig að kenndar eru
15 einingar á háskólaári og er því
hægt að taka 30 eininga nám á
tveimur árum. Þeir sem hafa meiri
menntun en bakkalárpróf og iðn-
meistarar, sem hafa haft nema,
þurfa í sumum tilvikum aðeins að
taka fyrra árið til að geta sótt um
leyfisbréf fyrir framhaldsskóla-
kennslu.
Aukin fjölbreytni
Fyrstu starfsár diplómu- og
meistaranámsins var einungis í boði
nám með áherslu á stjórnun skóla-
stofnana og sérkennslufræði. Þessi
áherslusvið verða áfram en nú er
tekið upp það fyrirkomulag að
kenna sérhæfð námskeið annað
hvert ár í stað árlega.
Sameining kennslufræðináms til
kennsluréttinda og meistaranáms
skapar möguleika á aukinni fjöl-
breytni, t.d. að bjóða áherslusvið um
leiðsögn í skólastarfi, hlutverk um-
sjónarkennara og skólaþróun-
arfræði, auk sérstaks námskeiðs um
kynjajafnrétti og fjölmenningu vor-
ið 2009. Þá má nefna námskeið þar
sem lögð er áhersla á siðfræði og
lífsleikni. Til að auka fjölbreytni
námsins er verið að undirbúa fleiri
áherslusvið en þau sem hér eru
nefnd.
Ennfremur er möguleiki á að
sníða framhaldsnámið að áhugasvið-
um einstaklinga. Það er hægt að
gera með þrennu móti: Nemandi
getur tekið sérhæfð námskeið í öðr-
um innlendum háskólum, farið utan
til skiptináms á vegum HA eða sótt
um að taka einstaklingssniðið sér-
fræðinámskeið við HA. Þannig
stunduðu nemendur á yfirstandandi
háskólaári nám í kennslufræði
myndlistar.
Fyrirkomulag námsins
Fyrirkomulag svokallaðs diplóm-
unáms er þannig að hægt er að taka
15 eininga próf (Dipl.Ed.) á einu til
tveimur árum og 30 eininga próf
(Dipl.Ed.) á einu ári eða lengri tíma.
Enn fremur er hægt aða taka 60
eininga meistarapróf (M.Ed.) á
tveimur til fjórum árum eða lengri
tíma eftir atvikum. Þetta gildir jafnt
um nýja námið í lestrarfræðum sem
eldra nám á öðrum sviðum.
Framhaldsnámið er þannig að
kennt er í nokkrum kennslulotum á
hverju misseri en þess á milli hafa
kennarar og nemendur samskipti, á
WebCT, með tölvupósti og símleiðis.
Umsóknarfrestur um ofangreint
framhaldsnám við kennaradeild HA
rennur út 15. mars nk.
Lestrarfræði og fleiri
nýjungar
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
skrifar um lestrarfræði sem
nýjung í framhaldsnámi við
kennaradeild Háskólans á Ak-
ureyri, sem jafnframt býður
upp á fleiri nýjungar
»Námi í lestrarfræð-um er ætlað að efla
kennara í starfi og auka
þekkingu og færni í
læsi …
Ingólfur Ásgeir
Jóhannesson
Höfundur er prófessor og braut-
arstjóri framhaldsnáms við kenn-
aradeild Háskólans á Akureyri.
TENGLAR
..............................................
Nánari upplýsingar og námskrá eru á
heimasíðu Háskólans á Akureyri:
www.unak.is.
Fréttir á SMS
,
Höfum fengið í einkasölu glæsilegt einbýli á
þessum frábæra stað. Eignin er 340 fm að
stærð en þar af er mjög góður 62 fm
tvöfaldur bílskúr og 100 fm 3ja herbergja
séríbúð á jarðhæð. Eignin er í mjög góðu
standi að utan og hefur fengið gott viðhald
í gegnum árin, m.a. er nýbúið að skipta um
allar þakrennur o.fl. Eignin er sérlega vel
staðsett á hraunlóð á besta stað í bænum.
V. 67 millj. Sölumaður Hraunhamars verður
á staðnum.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sævangur 47 - Hf. - Glæsilegt einbýli
Opið hús í dag, sunnudag,
milli kl. 15.00-16.00
Markarvegur 5, Fossvogi, einbýli
Opið hús í dag kl. 14-16
Skrifstofur okkar í Reykjavík og Hafnarfirði
eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
Sími: 533 6050 www.hofdi.is
Glæsilegt einbýlishús við Markarveg í Fossvogi. Húsið er á tveimur hæðum og bílskúr stendur sér.
Sérlega falleg arkitektahönnuð lóð með lágvöxnum gróðri, lýsingu og pöllum. Náttúrusteinflísar á
gólfum og falleg innrétting í eldhúsi. Útgangur úr borðstofu og stofu út í garð. Á efri hæð er hol og
þrjú rúmgóð svefnherbergi ásamt baðherbergi. Húsið er sérlega bjart og aðlaðandi og lóðin er í
sérflokki. Ásett verð 75 millj.
Allir velkomnir að skoða húsið í dag kl. 14-16,
Sölumaður Höfða á staðnum.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
GULLENGI 13, 3.H.TH.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15 OG 17
Til sýnis í dag mjög glæsileg 127 fm. 4ra – 5 herb. Íbúð á 3.hæð (efstu)
í þessu 6 íbúða húsi sem er staðsett innarlega í botnlanga. Allar inn-
réttingar mjög vandaðar og allt innréttað í stíl, þ.e innréttingar, hurðir
og fl. Massívt Iberaro parket á gólfum. Glæsilegt eldhús með borðkrók
í útskotsglugga. 3 rúmgóð herbergi og svalir út frá svefnherbergi. Stór-
ar stofur, aðalstofa, borðstofa og sjónvarpsstofa. Svalir frá stofu með
fallegu útsýni suður-austur-norður. Þvottahús innan íbúðar. Nýstands-
ett baðherbergi. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Verð 29,7 millj.
Garðar og Heiðrún taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 15 og 17.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
BYGGINGARLÓÐ ÓSKAST Í KÓPAV.
Vatnsendasvæðið, Kórar,
Rjúpnahæð austur-vestur.
Hef verið beðinn að útvega byggingarlóð fyrir ákveðinn fjársterkan
aðila. Þau svæði sem koma til greina er Þingahverfið og Hvörfin við
Vatnsenda ásamt Kórahverfinu.
Óskað er eftir lóð undir einbýlishús á einni hæð ásamt því að leyfi
væri fyrir kjallara að hluta eða öll leyti.
Nánari upplýsingar gefur Ólafur B Blöndal,
löggiltur fasteignasali. GSM 6-900-811
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.Sími 588 4477
Fjárfestar – Tækifæri
Til sölu í einni heild 7 nýjar, glæsilegar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í
nýju, glæsilegu lyftuhúsi ásamt 3 stæðum í bílskýli. Allar íbúðirnar
eru í leigu til trausts aðila. Fullbúnar og fullinnréttaðar með öllum
húsgögnum og húsbúnaði.
Upplýsingar gefa Bárður í síma 896 5221 og
Ingólfur í síma 896 5222 .