Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 61
Mercedes Benz 280C. Benz Sport
Edition árgerð 1995. Mint condition
og Custom rims. 850 þús. Endilega
hringið í síma 892 2659.
M. BENZ E220 CDI SKRÁÐUR ‘05
(módelár ‘06). Flottur díselbíll, fæst á
frábæru verði 4.400 þús., vel útbúinn,
Elegance, t.d. parktrónik, olíufíring,
símabúnaður, nýjasti liturinn coba-
nite. Óaðfinnanlegur bíll.
Sími 893 2878.
Ford Transit 1983. Mjög góður hús-
bíll til sölu, fullgerður að innan, ek.
52.320 km. Einnig með Dodge 1989,
ófullgerður að innan, en lítið ekinn.
Uppl. í síma 892 9064/565 0264.
FORD F350 Crew Cab Lariat 6,0
dísel turbo, ek. 22 þ. km. Dökkblár/
silver. 4 d. Sj.sk., samlitt pallhús.
Uppl. 893 4409. einar@bel.is
Dodge RAM 1500, árg. 2003, ek. 85
þús.,, næsta skoðun 2007. Skráður 6
manna. HEMI Magnum V8 5.7 ltr, 345
hestöfl. Heilsársdekk á 20”
krómfelgum, pallhús og vetrardekk á
17” felgum fylgja. Verð 2.640 þ.kr.
Ath. skipti á 38" jeppa.
Nánari upplýsingar:
Nýja Bílahöllin, s. 567-2277
Audi A6 2.4 árg. ‘06. Ek. 12 þús.
km. Mikið af aukabúnaði. Eins og nýr
að öllu leyti. Verð 4.950 þús., 4.450
þús. stgr. Ath sk. á ód. Sími 863 9443.
Aldrei betra verð!
Verðhrun á dollar og þú gerir reyfara-
kaup: 2006-2007 bílar: Jeep Grand
Cherokee frá 2.600, Ford Explorer frá
2.690, Porsche Cayenne frá 5.990,
Toyota Tacoma frá 1.990, Ford F150
frá 1.750, F350/RAM3500 dísel 4x4
frá 3190, Toyota Fjcruiser
torfærujeppi frá 3.390. Benz ML350
frá 4.190. Nýr 2007 Benz ML320
Dísel! Þú finnur hvergi lægra verð.
Nýjir og nýlegir bílar frá USA og
Evrópu allt að 30% undir mar-
kaðsverði. 30 ára traust innflutnings-
fyrirtæki. Íslensk Ábyrgð. Bílalán.
Fáðu betra tilboð í síma 552 2000
eða á www.islandus.com
Bílar óskast
Óska eftir bíl á ca 100 þús. staðgr.
Óska eftir góðum sparneytnum bíl á
ca 100 þús. kr. staðgreitt, verður að
vera í góðu lagi, mog@veidi.is og
sími 896 9496.
Bílar
Subaru árg. '99, ek. 130 km. Subaru
Legacy Station '99, ek. 130 þús. km,
bsk., 4x4, dráttarkrókur, fullkominn
fjölskyldubíll. Mjög vel með farinn.
Fæst á 700 þús. á sama stað BMW
730IA '89 á 150 þús. S. 823 3175.
Vinnuvélar
Til sölu múrbrotstæki. Til sölu
Brokk robot 180 á beltum með fjar-
stýringu, sagir, brotvélar og kjarna-
borsvélar. Lítill flutningabíll með
lyftu. Einnig mini-grafa ásamt kerru.
Uppl. í síma 893 2963.
Þjónustuauglýsingar 5691100
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
Fréttir
á SMS
FRÉTTIR
Pera vikunnar:
Meðaltal þriggja talna er 23. Tvær talnanna hafa meðaltalið 27.
Hver er þriðja talan?
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 5. mars.
Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is,
en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi hinn
26. febrúar. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16 þann sama dag
ásamt lausn síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
BANDALAG íslenskra náms-
manna (BÍSN) fagnar ákvörðun
menntamálaráðherra um aukið
framlag til rannsókna við Há-
skóla Íslands. Ljóst er að það er
löngu tímabært að auka framlag
ríkisins til háskólastigsins og
styrkja þannig enn betur eina
mikilvægustu stoð samfélagsins,
segir í ályktun.
„BÍSN kallar á sama tíma eftir
auknu framlagi til annarra há-
skóla í landinu, enda er það ekki
á nokkurn hátt réttlætanlegt að
mismuna háskólum með þessum
hætti. Sitjandi ríkisstjórn hefur
engan veginn sinnt skyldu sinni
gagnvart háskólasamfélaginu á
undanförnum misserum. Á sama
tíma og stúdentum í landinu hef-
ur fjölgað verulega hefur fjár-
framlag til skólanna ekki aukist
að sama skapi. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir ráðherra til að
halda öðru fram með villandi
framsetningu upplýsinga og stað-
reynda.
Stjórn BÍSN væntir þess að það
skref sem nú hefur verið stigið til
móts við fjárhagsvandræði HÍ sé
hið fyrsta af mörgum til þess að
leysa vandamál háskólastigsins.
Ekki er séð að það sé á nokkurn
hátt réttlætanlegt að mismuna
háskólum með þessum hætti. Rík-
isvaldið ákvað á sínum tíma að
fara áður ókunnar leiðir í upp-
byggingu háskólastigsins og ber
því vissulega ábyrgð á því að sjá
til þess að allir aðilar sitja við
sama borð er kemur að fjár-
framlagi hins opinbera til starf-
seminnar,“ segir í ályktuninni.BÍSN vill aukið
framlag til há-
skólastigsins
FUNDUR í Verkalýðsfélaginu Hlíf
skorar á Alþingi að samþykkja
hækkun á skattleysismörkum þann-
ig að tekjuskattur komi ekki á um-
samin lágmarkslaun stéttarfélaga
innan Alþýðusambands Íslands.
Þau laun eru nú kr. 125.000 á mán-
uði.
Í ályktun frá Hlíf segir: Sívax-
andi skuldabyrði og versnandi hag-
ur láglaunafólks krefst þess að
þessi hækkun taki sem fyrst gildi,
helst eigi síðar en í ársbyrjun 2008.
Fundurinn hvetur verkafólk og
aðra láglaunamenn til að kjósa
þann stjórnmálaflokk í alþing-
iskosningunum í vor sem gerir
þessa nauðsynlegu skattabreytingu
að stefnumáli sínu.
Þá samþykkti fundurinn ályktun
þar sem skorað er á Alþingi að full-
gilda á yfirstandandi þingi ILO-
samþykkt nr. 158 sem tryggir
launafólki lágmarksmannréttindi
við uppsagnir úr starfi, en slík
ákvæði vantar í íslenska löggjöf.
Fullgildi Alþingi ekki fyrrgreinda
samþykkt mun Hlíf leggja til að
sambærileg ákvæði og í henni eru
verði sett í kröfugerð verkalýðs-
félaganna við gerð næstu heild-
arkjarasamninga.
Hvetja til
hækkunar
skattleysis-
marka
ÍÞRÓTTABANDALAG Reykjavík-
ur og Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis standa saman að sjóði
sem hefur það að markmiði að
styrkja ungt og efnilegt íþrótta-
fólk í Reykjavík. Úthlutað var úr
sjóðnum í fjórða skiptið fyrir
skemmstu. Veittir voru styrkir
vegna nítján afreksverkefna
íþróttafélaganna í Reykjavík.
Heildarupphæð styrkjanna að
þessu sinni var 2.230.000 krónur.
Þá var einnig skrifað undir
samning við sundkonuna Ragn-
heiði Ragnarsdóttur úr sunddeild
KR sem veitir henni 50.000 króna
styrk á mánuði út árið til und-
irbúnings fyrir Ólympíuleikana
2008. Ragnheiður stefnir mark-
visst að þátttöku á Ólympíu-
leikunum í sundi 2008. Hún tekur
þátt í mörgum mótum á erlendri
grundu á árinu til að vinna sér
inn þátttökurétt og undirbúa sig
fyrir Ólympíuleikana og heims-
meistaramótið. Styrkurinn léttir
vonandi undir í þeim mikla kostn-
aði sem hlýst af slíkri mótaþátt-
töku, segir í fréttatilkynningu.
Á heimslistanum er Ragnheiður
í 44. sæti í 50 metra skriðsundi
og 28. sæti á Evrópulistanum í
sömu grein. Í 100 metra skrið-
sundi er hún í 49. sæti á heims-
listanum og í 32. sæti á Evrópu-
listanum.
Afrekssjóður SPRON og ÍBR
veitti auk þess af þessu tilefni
rúmlega 400 reykvískum íþrótta-
mönnum og konum á aldrinum
13–22 ára viðurkenningu fyrir Ís-
landsmeistaratitla sína. Alls
fengu íþróttamenn frá 42 fé-
lögum og deildum í Reykjavík
viðurkenningu.
Úthlutað úr
afrekssjóði
SPRON og ÍBR
NÝVERIÐ var dregið í jólaleik
MasterCard, Draumaferðin, en
hann stóð frá 15. október til 31. des-
ember 2006 og til að taka þátt í
honum þurfti aðeins að nota Mast-
erCard-kort á tímabilinu.
Aðalvinningshafinn er Guðlaug
Þorsteinsdóttir, Reykjavík. „Guð-
laug hefur mjög gaman af því að
ferðast þó að hún hafi ekki getað
látið alla sína ferðadrauma rætast
frekar en aðrir. Hún segist þó
reyna að ferðast sem mest, hefur
t.d. farið í tvær helgarferðir á síð-
ustu fjórum árum,“ segir í frétt frá
MasterCard.
Við sama tækifæri voru dregnir
út 5 aukavinningar, en það voru
100.000 króna MasterCard-
ferðaávísanir. Þá hlutu:
Áslaug Sigurðardóttir,
Reykjavík
Ásta Nína Benediktsdóttir,
Kópavogi
Guðmundur Símonarson,
Reykjavík
Ingunn Óladóttir,
Bessastaðahreppi
Sigrún Dóra Bergsdóttir,
Reykjavík
Hægt er að lesa meira um vinn-
ingshafana á www.kreditkort.is.
Hrepptu ferða-
ávísanir í jólaleik
Dráttur F.v.: Gunnlaugur Sveinsson, útibússtjóri hjá Glitni Hafnarfirði,
Linda Óskarsdóttir, þjónustustjóri hjá Glitni Hafnarfirði, Guðlaug Þorsteins-
dóttir vinningshafi, Helga S. Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður þjónustusviðs
MasterCard og Hermann J. Hjartarson, markaðsfulltrúi hjá MasterCard.
GUÐSÞJÓNUSTA verður kl. 11 í
dag í Árbæjarkirkju. Fyrir altari
þjónar sr. Þór Hauksson – Krizstina
Kalló Szklenár orgelleikari, kirkju-
kórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng. Sunnudagaskólinn á sama
tíma í safnaðarheimilinu. Á eftir er
boðið upp á hressingu. Sjá nánar
www. arbaejarkirkja.is
Í blaðinu í gær sagði ranglega að
þessi guðsþjónusta færi fram í Borg-
arneskirkju og er beðist velvirðingar
á því.
LEIÐRÉTT
Árbæjarkirkja en
ekki Borgarneskirkja
VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands,
VÍS, og bifreiðaumboðið Hekla
hafa undirritað samstarfssamning
um forvarnarmál sem miðar að
því að fækka atvikum sem leiða
til óhappa eða tjóna í starfsemi
Heklu.
Samningurinn felur í sér að á
næstu mánuðum mun vinnuhópur
með fulltrúum beggja fyrirtækja
gera úttekt á starfsemi Heklu og
greina umfang og ástæður
óhappa sem orðið hafa hjá félag-
inu á síðustu misserum. Þegar sú
greining liggur fyrir mun hóp-
urinn gera tillögur um og inn-
leiða breytingar á vinnufyr-
irkomulagi og starfsferlum sem
eru til þess fallnar að draga úr
eða fyrirbyggja óhöpp á næstu 12
mánuðum samkvæm þeim mark-
miðum sem sett verða. Það er
síðan verkefni í framtíð-
arsamskiptum VÍS og Heklu að
fylgjast reglulega með þeim ár-
angri sem næst í öryggismálum
og hvort hann er samkvæmt þeim
markmiðum sem sett hafa verið.
Hekla semur
við VÍS um
forvarnastarf