Morgunblaðið - 03.06.2007, Qupperneq 33
rískur ríkisborgari. Hann starfaði
m.a. sem ráðgjafi fyrir bandaríska
sjóherinn. Auk þess var hann upp-
finningamaður, hafði fundið upp að-
ferð til að spila margar grammó-
fónsplötur hverja á eftir annarri,
líka peningatalningavél og stykki
sem var síðar notað í bandaríska
geimflug. Hann fékk tvenn verðlaun
fyrir störf sín í þágu bandaríska sjó-
hersins. Síðar flutti hann 1958 til
Bretlands og stofnaði þar tæknifyr-
irtæki sem Bandaríkjamenn fólu
honum að koma á laggirnar. Við það
starfaði hann til dauðadags.“
Myndin í gyllta rammanum sem
mér hafði orðið svo starsýnt á í upp-
hafi var máluð af föður Katrínar
átta ára gömlum og sýnir að hann
hefur verið afar fallegur drengur.
Melabúðin og Fáksárin
Af dótturinni Katrínu, sem ég sit
andspænis og hefur gefið mér kaffi
og fínasta meðlæti, er það að segja
að hún hefur haldið sambandi við
föðurfólk sitt. Vera föðursystir
hennar er löngu látin og Belinda
dóttir hennar dó nú í apríl
„Michael dó aðeins 21 árs úr blóð-
tappa en ég á ennþá frændfólk í
Bretlandi, fjarskyldari ættingja sem
búa í Skotlandi og koma stundum
hingað. Einn frændi minn er mér
mjög minnisstæður. Hann hét Sid-
ney Cotton, hann og faðir minn voru
bræðrasynir. Sidney var mikill æv-
intýramaður og fífldjarfur á stríðs-
árunum, ævisaga hans hefur komið
út. Einu sinni gerði Churchill boð
fyrir hann og ætlaði að ávíta hann
fyrir fífldirfsku í flugi og sagði: „Ert
þú maðurinn sem gerir allan þennan
usla?“ Sidney svaraði: „Nei herra,
hann heitir Adolf Hitler.“
Guðmundur Júlíusson, maður
Katrínar, er af mörgum þekktur
sem verslunarmaður. Hann keypti
Kjörbúð Vesturbæjar á Melhaga 2
og hóf þar verslunarrekstur en síð-
an bætti hann Melabúðinni við. Síð-
ar seldi hann kjörbúðina en Mela-
búðin er í dag þekkt sem ein besta
sælkeraverslun Reykjavíkur.
„Melabúðin minnir mig stundum
á félagsmiðstöð,“ segir Katrín sem
lengi vel hafði á hendi uppgjör fyrir
verslunina og vann einstaka sinnum
á kassanum þar.
„En strákarnir eru nú alveg búnir
að taka þetta yfir eins og fram kom
áðan,“ bætir hún við.
Þriðja drenginn, Snorra Örn,
eignuðust þau Katrín og Guð-
mundur 1970.
„Ég helgaði mig heimilinu meðan
strákarnir voru litlir. Ég hafði sjálf
alist upp á miklum ferðalögum og af
þeim sökum ekki átt völ á að festa
rætur sem barn og unglingur og
saknaði þess. Ég var líka einbirni,
hvorugt foreldra minna eignuðust
fleiri börn. Öryggi heimilisfestunnar
var mér því frá upphafi búskaparins
mjög ofarlega í huga. Ég vildi að
strákarnir mínir gætu alist upp við
rótfestu í umhverfi þar sem þarfir
fjölskyldunnar sætu í fyrirrúmi.
Þetta tókst og ég er mjög ánægð
með það. Nú eigum við Guðmundur
fjögur barnabörn, allt stelpur, sem
okkur er mjög annt um.
Árin sem ég var í hestamennsk-
unni og starfaði að félagsmálum
Fáks voru ein þau bestu í lífi mínu.
Vinirnir sem ég eignaðist á þeim
vettvangi hafa verið mér mjög mik-
ils virði. Það myndaðist þar sterkur
kjarni sem í raun er eins og ein stór
fjölskylda. Ég er enn í fulltrúaráði
og firmakeppnisnefnd Fáks – það
gefur mér mikið.
Líf mitt hefur verið tilbreyt-
ingaríkt og margsinnis hefur blásið
á móti. En ég hef fengið mikinn
styrk – fyrir það er ég þakklát.
Hver hlekkur tengist í lífinu, líkt
og stórt púsluspil þar sem hvert
stykki fellur inn í myndina. Það er
einsog einhver öfl stýri manni á lífs-
leiðinni og ég trúi að það sé í ein-
hverjum tilgangi gert.“
Tahlia Katrín Stella stillir upp tík-
inni Thaliu fyrir sýningarþjálfun.
Amma Katrín Thorsteinsson móð-
uramma og nafna söguhetjunnar
gudrung@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 33
ferðavernd
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
www.ferdavernd.is
Ferðavernd býður upp á bólusetningar
og ráðgjöf til ferðamanna. Þjónustan er í
umsjón Helga Guðbergssonar, læknis.
Vinnuna annast læknar og hjúkrunarfræðingar.
Mikilvægt er að panta bólusetningu og leita
ráðgjafar tímanlega áður en haldið er utan.
Tímapantanir í síma: 535 77 00