Morgunblaðið - 03.06.2007, Side 42
borg í deiglu
42 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Gamli tíminn Austurstræti 1898/99, Aðalstræti 6 í götumynninu.
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
M
illi verzlunarhúss
konungsverzlunar-
innar og nyrzta
húss Innrétting-
anna við Aðalstræti
stóð í þann tíma moldarkofi; mó-
geymsla, reistur 1752, en um alda-
mótin 1800 var byggður lítill skúr á
lóðinni númer sex og lóðin að öðru
leyti lögð til kartöflugarðs, sem
náði frá Aðalstræti og þar upp
undir sem Mjóstræti er nú. Grjót
af þessum stað hafði verið flutt
þangað, sem dómkirkjan skyldi
standa við Austurvöll, og var notað
til hennar.
Johanne Sophie Vigfússon, ekkja
Guðbrands Vigfússonar lyfsala,
stóð fyrir lyfsölu að Nesi við Sel-
tjörn eftir mann sinn, en þegar
Oddur Thorarensen tók þar við,
festi hún kaup á lóðinni Aðalstræti
6 og byggði þar íbúðarhús. Til þess
liggja rætur hússins Efstasund 99.
Hús Sophie var 15x9 álnir, grind-
arhús hlaðið múrsteini, borðaklætt
með timburþaki og tjargað. Ekki
er til lýsing á húsinu innanstokks,
en 1838 keypti Þórður Jónasson,
háyfirdómari, húsið og tíu árum
síðar lét hann lengja það um sex
álnir til suðurs. 1850 er Kristján
Kristjánsson, land- og bæjarfógeti,
eigandi hússins. Vestan við það var
garður og 1874 voru tvö geymslu-
hús risin á lóðinni.
Sigurður Jónsson, járnsmiður
eignaðist Aðalstræti 6 1892 og lét
sama ár hækka það um eina hæð
og klæða þak og hliðar með báru-
járni. Sigurður var með smiðju í
bakhúsi og 1903 byggði hann tvö
hús á lóðinni; járnsmiðju og íbúðar-
hús sem hann seldi Bjarnhéðni
Jónssyni, járnsmið. Bjarnhéðinn
keypti svo smiðjuna og rak hana til
1920.
Eftir það var Vélsmiðjan Héðinn
stofnuð og rekin þarna til 1942.
Lóðinni var skipt milli smiðjunnar,
sem fékk efri hlutann, og fram-
hússins, sem Sigurður Jónsson
seldi Guðmundi Bjarnasyni klæð-
skera 1916. Guðmundur bjó á efri
hæðinni, rak verzlun á neðri hæð-
inni og klæðskeraverkstæði í bak-
húsi. Guðmundur lézt 1939 og arf-
leiddi KFUM að húsinu. 1943 er
því lýst svo, að á neðri hæð séu
tvær sölubúðir, saumastofa, skrif-
stofa og gangur og sex íbúðar-
herbergi á efri hæðinni, eldhús,
klósett og gangur. Geymslukjallari
var undir hluta hússins. KFUM
seldi svo Árvakri hf. Aðalstræti 6,
sem sló lóðum saman með Héðni til
að reisa Morgunblaðshöllina.
Valt á leiðinni inn í Efstasund
Öll hús á Aðalstrætislóðinni voru
rifin til að rýma fyrir Morgunblaðs-
húsinu og framhúsið var flutt inn í
Efstasund.
Í apríl 1952 fær Ingólfur Guð-
mundsson, húsasmíðameistari, einn
Hólakotsbræðra, lóð nr. 99 við
Efstasund, samkvæmt ályktun bæj-
arráðs frá 28. september 1951. Ing-
ólfur keypti húsið af lóðinni Aðal-
stræti 6. Sonur Ingólfs, Aðalsteinn,
man vel þegar húsið var flutt á
grunninn við Efstasund. Á leiðinni
varð það óhapp að húsið valt af
vagninum hjá Hörpu við Skúlagötu,
en því var komið á vagninn daginn
eftir og haldið áfram. „Þetta voru
óhemju traustir viðir og húsið lét
ekkert á sjá við veltuna. Það virtist
þola hvað sem var,“ segir Að-
alsteinn.
Í Efstasundi þurfti að fjarlægja
tré af lóðinni og þau setti Ingólfur
niður hjá sumarbústað sínum í Sel-
ási. Aðalsteinn segir endursmíð
hússins á grunninum í Efstasundi
hafa tekið sinn tíma, en sett var á
það viðbygging með herbergi niðri,
stigagangi og eldhúsi uppi. Húsið
er svo tekið út á nýja staðnum í
árslok 1953 og er þess þá ekki get-
ið að það sé aðflutt, heldur sagt
nýtt. Þá eru einnig talin á efri hæð;
fimm íbúðarherbergi og baðher-
bergi með klósetti og niðri tvær
sölubúðir og geymslur. Þegar Ing-
ólfur endurbyggði húsið í Efsta-
sundi var gluggum efri hæðar
breytt, en verzlunargluggar á neðri
hæð héldu sér.
Ingólfur Guðmundsson bjó á efri
hæð hússins með fjölskyldu sína og
rak verzlun á neðri hæðinni. Þann-
ig var það lengi, að búið var á efri
hæðinni en verzlunarrekstur niðri;
m.a. var Matvælabúðin þar til
margra ára. Nú er neðri hæðin líka
íbúð.
Á efri hæðinni í Efstasundi 99
búa Eygló Guðnadóttir og Kristinn
Gunnarsson með þremur drengjum
sínum, en tvö elztu systkinin eru
flogin úr hreiðrinu.
„Þetta var 1998. Okkur lá á að
finna hús, við vorum blönk, með
börn og á götunni. Og ég var
ófrísk,“ segir Eygló, þegar þau
rifja upp samferð sína með húsinu.
„Ég man hvað húsið var hallær-
islegt á myndum fasteignasölunnar,
einhvern veginn svo uppmjór og
asnalegur kofi. Ég fletti oft
framhjá því, en á endanum hugsaði
Morgunblaðið/Ómar
Glöð í gömlu Eygló Guðnadóttir og Kristinn Gunnarsson með þremur sonum sínum; Eysteini, Smára og Hlyni. Á veggnum er gamall bókakápu-
pappír og undir stiganum er „frystikistan hennar ömmu“ enn í fimmtugu fjöri og hefur einskis þarfnast nema affrystingar reglulega.
Morgunblaðið/Ómar
Uppgert Efstasund 99 er nú komið til hálfs til fyrra horfs.
1886 Húsið fremst á myndinni er Aðalstræti 6
Sagan er svo lokkandi
Við Efstasund er gam-
alt hús að skipta um
ham og færast til fyrra
horfs. Flest elztu húsin
í Reykjavík standa í
Kvosinni og þar hjá;
þau sem ekki hafa verið
flutt í Árbæjarsafn.
Elzta hús þess utan er
Efstasund 99, sem áður
stóð í Aðalstræti 6, en
var fært, þegar Morg-
unblaðshúsið reis á
þeirri lóð. Svo seigt var
húsið að það sá hvergi á
því eftir veltu á Skúla-
götunni.
Í HNOTSKURN
»Morgunblaðið var ekkifyrsta blaðið í Aðalstræti
6. Í eldra húsinu var skrifstofa
fyrsta blaðsins sem gefið var
út í Reykjavík; Reykjavíkur-
póstsins, sem hóf göngu sína
1846. Þórður Jónasson var
aðalritstjórinn og kom blaðið
út í þrjú ár.
»Dóttir Þórðar; María, gift-ist Óla Finsen og sonur
þeirra var Vilhjálmur Finsen,
stofnandi Morgunblaðsins
1913 og fyrsti ritstjóri þess.
Vilhjálmur Finsen var löngu
horfinn frá Morgunblaðinu,
þegar Árvakur reisti Morg-
unblaðinu samastað á
bernskuslóð móður hans.