Morgunblaðið - 03.06.2007, Page 61

Morgunblaðið - 03.06.2007, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 61 Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is Skipalón 22-26 á Hvaleyrarholti 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir á frábærum stað. www.motas.is Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O T 3 56 41 0 1/ 07 Söluaðili: > Glæsilegar íbúðir, fyrir 50 ára og eldri, í Hafnarfirði Hvaleyrarholti Sölusýning í dag kl. 14:00 – 16:00 Skipalón • Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu. Ótrúlegt útsýni. • Stórar stofur.Tvö baðherbergi, baðherbergi inn af hjónaherbergi. • Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu íbúðunum. • 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og minniháttar tilefni). • Þvottastæði í bílageymslu. • Golfvöllur í göngufæri. Verðdæmi: • 2ja herb. m/ bílskýli 19.000.000 kr. • 3ja herb. m/ bílskýli 26.000.000 kr. • 4ra herb. m/ bílskýli 30.500.000 kr. Klausturhvammur 1 220 Hafnarfjörður --- Tvær íbúðir --- Stærð: 306 fm Fjöldi herbergja: 8 Byggingarár: 1980 Brunabótamat: 38.750.000 Bílskúr: Já Verð: 61.900.000 Glæsilegt endaraðhús sem skiptist í tvær íbúðir. Á jarðhæð er 4ra herbergja íbúð sem er mjög góð til útleigu. Aðalíbúðin er einnig 4ra herbergja sem skiptist í tvennar stofur, stórt unglingaherbergi og rúmgott hjónaherbergi ásamt 29fm innbyggðum bílskúr. Húsið að utan er í mjög góðu ástandi. Glæsileg eign sem mikið hefur verði lagt í. Lítið mál er að sameina íbúðirnar tvær aftur saman. Sjón er sögu ríkari. 5 LIND Brynjar Ingólfsson Sölufulltrúi brynjar@remax.is Opið Hús Opið hús á sunnudaginn kl. 16-17 RE/MAX LIND - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is 823 1990 SJÓVÁR-KVENNAHLAUP ÍSÍ fer fram laugardaginn 16. júní nk. í 18. sinn. Þessi merkilegi íþrótta- og menningarviðburður hefur svo sannarlega fest sig í sessi í hreyfi- dagskrá íslenskra kvenna. ÍSÍ stóð fyrir fyrsta Kvennahlaupinu árið 1990 í tengslum við íþróttahátíð sem þá var haldin. Okkur óraði ekki fyrir viðbrögðunum sem voru frábær strax á fyrsta ári. Sjóvár- kvennahlaup ÍSÍ er ekki bara vett- vangur til að koma saman, hitta aðra þátttakendur og hreyfa sig, heldur er þetta ekki síður sá hvatningarviðburður á Íslandi sem hefur vakið athygli á þýðingu þess að konur, eins og karlar, stundi reglulega hreyfingu og líkams- rækt. Þess ber að geta að vaxt- arbroddurinn í íslenskri íþrótta- hreyfingu er fyrst og fremst vegna aukinnar þátttöku kvenþjóðarinnar í íþróttum. Er nú svo komið að 38% af öllum iðkendum á Íslandi eru konur. Þar hefur Kvennahlaupið komið sterkt inn í hvatningu til frekari framfara. Að þessu sinni fer hlaupið fram á 90 stöðum hérlendis og 10 stöðum erlendis. Búast má við að 15-20.000 konur taki þátt í hlaupinu að þessu sinni og er þessi íþróttaviðburður hér eftir sem hingað til útbreidd- asti og fjölmennasti íþrótta- viðburður á Íslandi. Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands hefur lagt á það áherslu að varpa ljósi á heilsutengd málefni, er snerta konur, í hverju hlaupi. Í því sambandi má nefna samstarf við Samhjálp kvenna, Beinvernd, Geðvernd og UNIFEM. Að þessu sinni er yfirskrift Sjóvár-kvenna- hlaupsins „Hreyfing er hjartans mál“ og í því sambandi hefur ÍSÍ gert samstarfssamning við Hjarta- vernd til að vekja athygli á starfi samtakanna og beina kastljósinu að konum og kransæðasjúkdómum, einkennum og áhættu. Sjóvá hefur frá upphafi verið öfl- ugur styrktaraðili þessa hlaups en Sjóvá hefur jafnframt lagt metnað sinn í að taka þátt í þessum við- burði á ýmsan hátt til þess að vekja athygli á þýðingu hans. Á hverju ári fara þúsundir kvenna inn á heimasíðu Sjóvár, www.sjova- .is, fyrir hlaup og eftir til að fá upplýsingar um hlaupastarfið um allt land og skoða myndir úr hlaup- inu. Ég vil nota tækifærið og þakka Sjóvá fyrir sitt frábæra framlag til þessa góða málefnis. Að lokum er rétt að hvetja konur til að taka þátt í Sjóvár-kvennahlaupi ÍSÍ hinn 16. júní nk. og viðhalda þeirri sterku hefð sem skapast hef- ur í þátttöku og jafnframt að gefa samfélaginu áfram þau skilaboð að holl hreyfing og íþróttaiðkun sé jafnt fyrir konur sem karla. Áfram stelpur! Mikilvægur íþrótta- og menn- ingarviðburður Stefán Konráðsson minnir á Kvennahlaup ÍSÍ Stefán Konráðsson » Þessi merki-legi íþrótta- og menningar- viðburður hefur svo sannarlega fest sig í sessi í hreyfidagskrá íslenskra kvenna. Höfundur er framkvæmdastjóri ÍSÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.