Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 71
stjörnuspá júní
Með sólina í tvíburunum verða samskipti aðalþemað. Eftir
fyrstu vikuna virðist allt ganga þér í hag þegar þú nálgast það
sem þú vilt. En 9. júní birtast einhver ljón á veginum. Mundu þá
að það er alltaf hægt að fara aðra leið. Þann tólfta ættirðu að
taka skapandi áhættu og vinna með hæfileikaríku fólki. Fimm-
tándi júní kemur með nýtt tungl í tvíburum sem ýtir undir já-
kvæð samskipti við vini og listamanninn í sjálfum þér. Þig gæti
langað að gera eitthvað sem skiptir virkilegu máli. Forðastu
rifrildi og reyndu að semja við fólk. Í kringum 21. júní verða
fjölskyldan og heimilið í aðalhlutverki. Farðu varlega með
vökva svo ekki verði slys. Rafmagn og vatn fer ekki saman.
Hrútur 21. mars - 20. apríl
Peningar setja svip sinn á mánuðinn og þú munt tala um þá.
Ekki verða hissa þótt hitni í kolunum, bæði í byrjun mánaðar
og um hann miðjan. Einhverjar breytingar munu hins vegar
koma þér virkilega á óvart. Einhverjir lenda í mjög erótísku
sambandi og aðrir eiga í ástarsambandi við mat eða veraldlega
hluti. Frá og með 5. júní verður heimilið undir smásjánni. Gest-
ir og einhver kaup munu koma til sögunnar, auk þess sem fjár-
málin komast á hreint. Starfið mun líka sýna á sér nýja mynd
og taka þeim breytingum sem þú óskaðir eftir. Mars kemur inn
í merkið þitt hinn 23. júní og það gefur þér orku. Þú verður að
höndla hana rétt svo ekki myndist spenna milli þín og annarra.
Naut 20. apríl - 21. maí
Sólin er í merkinu þínu. Til hamingju með afmælið, tvíburi! Þig
mun langa að leggja áherslu á sjálfan þig nú í byrjun mánaðar.
Sólin heimtar það. Og ýmislegt mun gerast hjá þér í einkalífinu.
Það er líklegt að ástin taki völdin og þá kemur einhver á óvart
sem þú þekkir nú þegar, jafnvel vinnufélagi. Venus kemur inn í
ljónið þann 5. júní og þá verður gaman! Passaðu þig samt að
bregast ekki of hart við bæði 5. og 9. júlí. Þá gætu orðið uppá-
komur og breytingar sem koma á óvart. Nýtt tungl kemur inn í
merkið þitt 15. júní. Þá munu ný sambönd ráða ríkjum í lífi þínu
og þú ættir að rækta þau upp á framtíðina. Vertu varkár þann
19. þegar samskiptin verða ekki þau bestu milli þín og vinanna.
Tvíburi 21. maí - 20. júní
Hlutirnir verða ekki eins og þeir eiga að sér að vera fyrstu viku
mánaðarins. Andrúmsloftið er strekkt og þú lendir í próf-
raunum eða leiðinlegu fólki. Eftir það ættir þú að fá nýjar frétt-
ir en skalt bíða til 9. júlí til að taka ákvörðun í sambandi við
þær. Þú verður nefnilega að fara yfir hlutina áður og þarft jafn-
vel að breyta vinnuaðferðum. Þú ættir að líta inn á við þegar
nýtt tungl kemur inn í tvíburamerkið 15. júní. Listræn tjáning
þarf að fá pláss í lífi þínu og athugaðu hvort heilsan er jafn góð
og þú áleist. 21. júní verða sumarsólstöður og sólin í þínu merki.
Til hamingju með afmælið, krabbi! Vertu með vinum og gerðu
eitthvað skemmtilegt, eins og að skipuleggja ferðalag.
Krabbi 21. júní - 22. júlí
Með sólina í tvíburum einbeitir þú þér að vinum, hópum og
sameiginlegum áhugamálum. Þegar Venus smeygir sér inn í
merkið þitt hinn 5. júní verður þú í essinu þínu, út um allt að
skemmta þér og skemmta öðrum, en mest að lifa lífinu. Vertu
viss um að vera ekki útkeyrður í mánaðarlok. Í annarri viku
júní verður þú frekar ýktur og hvatvís, og spurning hvort þú
getur nýtt þá orku á jákvæðan hátt. Hvað finnst þér skipta
máli? Hlustaðu á hjartað! Þú kemst á ið með nýju tungli í tví-
burum 15. júní og ferð jafnvel í ferðalag með vinum eða að
heimsækja vini. Fullt tungl kemur inn í steingeit á síðasta degi
mánaðarins. Þá geta faldar tilfinningar komið upp á yfirborðið.
Ljón 23. júlí - 23. ágúst
Frami og ábyrgð eru þér ofarlega í huga nú þegar sólin er í tví-
buramerkinu. Í því sambandi gætir þú þurft að hafa einhver
samskipti við yfirboðara. Þú munt endurskipuleggja skyldur
þínar eða taka þér ný verkefni á hendur sem fela í sér aukna
ábyrgð. Málglatt fólk kemur einnig við sögu og það skiptir
gjarna oft um skoðun. Heimilið og fjölskyldan skipa stóran sess
í upphafi mánaðar, og þú ættir að búa þig undir gestagang og
fréttir er varða þá sem þér þykir vænst um. Þú verður mögu-
lega tilfinningaríkur, en munt horfa til framtíðar. Nýtt tungl í
tvíburum 15. júní muna koma á breytingum á framabrautinni,
og þá borgar sig að gera eitthvað í málunum.
Meyja 23. ágúst-23. september
Sólin er komin í tvíburamerkið og það fær þig til að beina sjón-
um þínum að því besta í lífinu: ástinni, lífsnautn, börnum og
sköpun. Einhver leiðindaæsingur gæti látið á sér kræla í upp-
hafi mánaðar og líklegt að hann tengist peningum. Viðskipta-
félagar munu koma þar að, en þú skalt bíða eftir 9. júní til að
gera út um málin, en þá mun samruni sólar og Úranusar styðja
þig. Sólin kemur inn í krabbamerkið 21. júní, á sumarsól-
stöðum. Þá mun áherslan aukast á heilsu og vinnu. Það getur
verið að þú takir að þér ný verkefni. Fullt tungl verður í stein-
geit á síðasta degi mánaðarins. Þá er líklegt að tilfinningarnar
taki yfirhöndina. Reyndu að hemja þig eins og þú getur.
Vatnsberi 21. janúar - 19. febrúar
Fyrir Vogina þýðir sól í tvíburum að sambönd við útlönd, ferða-
lög og nám eru þeim ofarlega í huga. Vogin gæti líka þurft að
eiga við æst og tilfinningaríkt fólk, kannski systkini eða ná-
granna. Það gæti tekið sinn tíma fyrir það að róast, en Vogin
kann á það. Vogin á marga vini og þeir komast öll í stuð þegar
Venus fer inn í Ljónsmerkið 5. júní. Þá verður mikið um veislu-
höld fram yfir miðjan mánuð. Skapandi kona sem veit hvað hún
vill mun hafa mikil áhrif á fólk. 12. júní munt þú leita nýrrar
leiðar og takast það með hjálp ástvina. 15. júní er nýtt tungl
fullt af orku sem smitar út frá sér. Þú þarft að breyta aðstæðum
og nú hefurðu tækifærið og orkuna sem þú þarft.
Vog 23. september-22. október
Nú er sólin í tvíburum sem þekktir eru fyrir samskiptahæfi-
leika. Þá munt þú sýna vinum og samstarfsmönnum sérstaka
athygli. Það verða einhver átök heima við. Fólk er yfirhöfuð
æst og þú ert það líka. Búðu þig undir að komast að einhverju
mikilvægu um vin sem þú áleist þig þekkja mjög vel.
Frá og með 5. júní kemurðu hreinlega öllu í verk, en reyndu
samt að monta þig ekki af því. Við samruna sólar og Úranusar
9. júní virðist þér skyndilega ljóst hvað þú vilt gera næst í lífinu.
Ef þú þarft að stofna til sambanda þá skaltu gera það 12. júní.
Reyndu samt að ýta ekki á eftir fólki. Góðir hlutir – og vel und-
irbúnir – gerast af sjálfu sér.
Bogmaður 22. nóvember-21. desember
Nú ætlar þú að einbeita þér að fjölskyldunni, heimilinu og lífinu
þar. Ekki síst þar sem samskipti þín við vinnuna og yfirmenn
eru ekki að gera sig þessa dagana. Aldrei að vita nema það verði
til að þú skiptir um stefnu á þeirri braut. Ef þú þarft að semja
um stöðu þína skaltu bíða með það til 9. júní þegar samruni
verður milli sólar og Úranusar. Þetta ætti allt að vera komið á
hreint 12. júní. Þremur dögum seinna er nýtt tungl í tvíburum
og þá ríður á að byrja á einhverju nýju og spennandi með fjöl-
skyldunni sem helst tengist heimilinu beint. Börn og elskhugar
gætu orðið treg í taumi. Nú skaltu sýna hversu fær þú ert í sam-
skiptum. Vertu þolinmóður og þá verður allt eins og þú vilt.
Fiskar 20. febrúar - 20. mars
Með sólina í tvíburum munu fjármálin vera ofarlega á baugi hjá
þér, með áherslu á samvinnu og samruna. Ef til vill er nú rétti
tíminn til að gera alvöru úr sambandi sem lengi hefur verið
duflað við. Svolítil óreiða er í kringum þig sem nær hámæli 9.
júní við samruna sólar og Úranusar. Það gæti mögulega tengst
leyndarmáli sem kemur í ljós. Bíddu þar til um hægist og farðu
þá yfir peningamálin. Frami og ábyrgð koma einnig til sög-
unnar. Leggðu eins mikið af mörkum og þú getur og þú munt fá
viðurkenningu fyrir það. Ef þú þarfnast aðstoðar, þá færðu
hana 12. júní. Gáfulegt er að gera nýjar áætlanir í fjármálum
með nýju tungli í tvíburum 15. júní.
Sporðdreki 23. október-21. nóvember
Vinnan, dagleg rútína og heilsan verða í brennidepli hjá þér
þennan mánuðinn. Þú ert kannski þreyttur og minniháttar
kvillar að hrjá þig, en búðu þig undir að tilfinningarnar muni
taka yfirhöndina, bæði líkamlega og andlega. Kannski það
tengist gömlu leyndarmáli sem kemur upp á yfirborðið. Þú
munt finna til þarfar að sinna skapandi og andlegum málum. Þú
ætti að hlýða því kalli og fá þannig útrás. Hinn 15. júní kemur
nýtt tungl inn í tvíburamerkið og þá er upplagt að hefja nýja
rútínu sem bæði snýr að peningum og heilsu. Hlustaða þá á fé-
laga sem hafa reynslu á þessu sviði, fáðu hjá þeim ráð og til-
einkaðu þér þau. Þá er bara ósköp bjart framundan.
Steingeit 22. desember - 20. janúar
Fellihýsi
Mjög vel með farið fellihýsi til
sölu. Coleman Cheyanne, árg. 2000.
Stór sólarsella, heitt vatn, fortjald,
geymslukassi að framan, ferða-
klósett, útvarp og cd spilari. Eitt með
öllu. Uppl í síma 863 6103.
Til sölu Eagle Talon 4WD
Turbo, beinskiptur, leður, topplúga.
Góður bíll í fínu standi. Verðhugmynd
690 þús. Upplýsingar í síma 891 9293.
Suzuki jimny árg. '99
ek. 77 þús. km. Mjög vel með farinn
Suzuki jimny og vel útlítandi. Einstak-
lega lítið keyrður miðað við árgerð.
Er að flytja til útlanda og vantar að
losna við bílinn sem fyrst.
Uppl. í síma 861 7927.
Range Rover, dísel, árg. 06/2004.
Ek. 84 þús. eyðsla 11.9 L, vel útbúinn
ferðabíll með krók. Verð 8.400.000
kr., tilboð 7.990.000 kr., skipti. Einnig
hugsanlega á íbúðarhúsnæði í Rvk.
Uppl. í síma 663 0644.
Opel Astra OPC, árg. '06, ek. 14
þús. km Opel Astra OPC til sölu.
Upplýsingar í sima 698 7808.
Opel Astra 1,8 árg. 2005,
ek. 49 þús. Verð 1,550 þúsund.
Upplýsingar í síma 660-1022
Húsbíll til sölu
Einn með öllu. Sími 893 9857
Gott verð! Ford Explorer XLT.
Árg 04/04, ek. 65 þ. km. Nýsölu-
skoðaður án ath., næsta skoðun '09.
Ásett 2.500 þ. en fæst gegn yfirtöku
láns, 1980 þ.+sþ. Afb. láns 38 þ., m.
Bílasala Íslands, 510 4900.
Ford F-150
Til sölu árg. 2005, ekinn 27.000 km.
Verð: tilboð, áhv. 2.800 þús. Ath. öll
skipti. Upplýsingar í síma 867 1335.
19” VW Touareg felgur.
Hef til sölu felgur fyrir VW Touareg,
275/45 R19. Felgurnar eru sem nýjar
en dekkin slitin. Verð aðeins 139 þús.
S: 899 9377 eða ingof@simnet.is.
Dísel, sjálfskiptur KIA Sportage
2005. Svartur, ekinn 38 þús.
Topp ástand. Uppl. í síma 861 3840.
Bílar
Til sölu Ford Explorer XLT.
Árg. ´04, ekinn 69 þ. km. 31" dekk, 7
manna, sjálfsk., leðuráklæði, dráttar-
kúla, cruise control, loftkæling o.fl.
Skoðaður ´09. Verð 2.790 þús.
Uppl. í síma 694 8710.
Fréttir í
tölvupósti
FRÉTTIR
Byggðaþing á Hvanneyri
SAMTÖKIN Landsbyggðin lifi efnir til byggðaþings á Hvann-
eyri í samvinnu við Landbúnaðarháskólann, laugardaginn 9.
júní kl. 14–18. Magnús B. Jónsson, prófessor, verður ráð-
stefnustjóri.
Framsöguerindi flytja: Jafnrétti til náms um allt land:
Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Nýt-
ing landsins: Jónatan Hermannsson, lektor við Landbún-
aðarháskóla Íslands. Nytjar sjávarfangs og vatna, fjölbreyti-
leiki í ferðaþjónustu: Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla.
Mikilvægi háhraðanets og upplýsingatækni fyrir allar byggð-
ir: Jón Baldur Lórenz, forstöðumaður tölvudeildar Bænda-
samtaka Íslands. Þjóðlendumálið, staða þess og framhald:
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grenivík.
Pallborð verður í gangi mest allan þingtímann þar sem
skiptast á framsöguerindi og fyrirspurna- og umræðutímar.
Þinginu lýkur með hátíðarsamkomu um kvöldið.
Frekari upplýsingar á heimasíðu Landsbyggðin lifi
www.landlif.is
Sunnudaginn 10. júní, kl. 10–13, verður aðalfundur Lands-
byggðin lifi haldinn með venjulegum aðalfundarstörfum,
stjórnarkosningu, starfsáætlun o.s.frv.
Rithöfundar og ráð-
herra á skákmóti í Vin
SUMARÆVINTÝRASKÁKMÓT Skákfélags Vinjar og Hróks-
ins verður haldið mánudaginn 4. júní kl. 13 í Vin, Hverfisgötu
47. Meðal keppenda verða þingmenn, ráðherra og rithöf-
undar, auk skákmeistara og áhugamanna á öllum aldri. Heið-
ursgestur á mótinu er Björgvin G. Sigurðsson, nýskipaður
viðskiptaráðherra.
Tefldar verða 5 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma
og eru veglegir vinningar fyrir alla keppendur frá bóka-
forlaginu Sögum.
Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Boðið verður
upp á veitingar fyrir keppendur og áhorfendur.
Vin er athvarf Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir.
Hrókurinn hefur haldið uppi skáklífi í Vin sl. 4 ár með viku-
legum æfingum. Reglulega eru haldin stórmót og hafa margir
góðir gestir heimsótt athvarfið.
Starf skólagarðanna í
Reykjavík að hefjast
INNRITUN í Skólagarða Reykjavíkur hófst 1. júní. Gróð-
ursetning stendur yfir frá 7.-15. júní og mæta börnin alla
fyrstu dagana og fá aðstoð við að gróðursetja grænmetið.
Ráðlagt er að hverjum garði sé sinnt að minnsta kosti 2-3
sinnum í viku.
Skólagarðarnir hafa að markmiði að kenna börnum um-
gengni við gróður og ræktun. Hverjum einstaklingi er út-
hlutað garði og fræi, útsæði og grænmetisplöntum til rækt-
unar. Með börnunum starfa leiðbeinendur við ræktunina.
Aðaláherslan er á umhirðu garðanna en öðru hverju um sum-
arið eru haldnir leikjadagar eða farið í ferðir, t.d. í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn, bíó o.fl. Haldnar eru sumarhá-
tíðir í hverjum garði með grilli og ýmsum skemmtunum. Í
lokin er afhent viðurkenning fyrir sumarstarfið. Starfsemin
hefst 7. júní og lýkur um 17. ágúst.
Innritað er í hverjum garði fyrir sig. Verðið er 3.000 kr.
Innritun 8-12 ára barna stendur yfir 1. júní og 4.-5. júní. Inn-
ritun eldri borgara: 5. júní.
Morgunblaðið/ÞÖK