Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Ögurás 3 - Gbæ.
Opið hús í dag frá kl. 16.00 til 18.00
Sérlega falleg 113 fm. 4ra
herb. íbúð á 2. hæð, (efstu)
í litlu fjölbýli, m. sér inn-
gang. Rúmgóð forstofa
með skáp. Sérlega fallegt
eldhús m. vönduðum inn-
réttingum, góður borðkrók-
ur/borðstofa. Björt stofa
(hátt til lofts), útgengi út á
v-svalir. Baðherbergi m.
baðkari/sturtu, vönduð inn-
rétting, flísalagt í hólf og gólf. Rúmgott svefnherb. m. skáp, tvö
rúmgóð barnaherb. m. skáp. Parket á gólfum. Frábær staðsetn-
ing og útsýni. V. 31,9 millj.
Rakel og Haukur bjóða ykkur velkomin, sími 891 8177
Um er að ræða 1.256,8 fm heila húseign á fjórum hæðum á eftirsóttum stað í mið-
borginni. Hótel hefur verið starfrækt um lengri tíma í húsinu og bókanir fyrir sum-
arið eru mjög góðar. Fasteignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum
og er í góðu ásigkomulagi. Eignin selst með öllu innbúi til rekstrar hótels auk við-
skiptavildar.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
TIL LEIGU EÐA SÖLU
25 hótelíbúðir/hótelherbergi í fallegu
steinhúsi í miðbæ Reykjavíkur.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
LYNGHOLT 4 - ÁLFTANESI
Opið hús í dag kl. 16 -17
Einbýlishús á besta stað á Álftanesi. Stór og góður bílskúr. Húsið eru tilbúið til
afhendingar, fullbúið að utan og tilbúið til innrétting að innan. Mjög vandað
224,2 fm hús á einni á hæð. Mjög gott skipulag, mikil lofthæð. Hiti er
kominn. Verð kr. 45 millj.
Verið velkomin.
Sölumaður: Þórhallur, sími 896-8232.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Mjög rúmgóð tveggja herbergja íbúð 71 fm á 3ju hæð í litlu
fjölbýlishúsi í botnlangagötu. Íbúðin er mjög vel umgengin og húsið
nýlega viðgert að utan. Einstaklega rólegt umhverfi. Opið hús í dag
milli kl 15 og 17. Bjalla merkt Sigfús og Margrét.
ÁLAGRANDI 10 - 107 RVK.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15 OG 17
MEÐ frístundakorti er börnum
á aldrinum 6-18 ára tryggð inneign
sem hægt er að nýta til skipulagðs
tómstundastarfs. Nú í haust verð-
ur þessi upphæð 12 þúsund, 25
þúsund krónur árið 2008 og 40
þúsund krónur árið
2008.
Með tilkomu frí-
stundakortsins munu
skapast miklir mögu-
leikar á því að efla
íþrótta-, tómstunda-
og listastarf meðal
barna og unglinga í
borginni og búast má
við því að með til-
komu frístundakorts-
ins muni fjölbreytni
frístundatilboða
aukast. Þetta er með-
al annars reynslan í
Hafnarfirði þar sem
Samfylkingin innleiddi svipað fyr-
irkomulag fyrir nokkrum árum.
Aukinn jöfnuður
Eitt af mikilvægustu mark-
miðum með innleiðingu frí-
stundakortsins er að auka jöfnuð.
Að öllum börnum sé gefinn kostur
á að stunda einhverjar tómstundir
óháð efnahag.
Aukinn jöfnuður leiðir svo aftur
til minni flokkunar og aðgrein-
ingar í samfélaginu og eru allar
aðgerðir í þá átt mjög af hinu
góða. Enda ástæða til að vera á
varðbergi gangvart aukinni mis-
skiptingu og aðgreiningu í okkar
samfélagi. Þetta á ekki hvað síst
við um börn og unglinga, enda
mikilvægt að börn og unglingar
búi við sem jöfnust tækifæri og líti
hvert á annað sem jafningja.
Frístundaheimilin
Síðasta stóra skrefið sem stigið
var í borginni á sviði frítímans var
stofnun frístundaheimila við alla
barnaskóla borgarinnar.
Á frístundaheimilum borg-
arinnar rekur Íþrótta- og tóm-
stundaráð (ÍTR)
framúrskarandi fag-
legt frístundastarf
fyrir börn á aldrinum
6-9 ára, frá því að
skóladegi lýkur, til
klukkan fimm þegar
vinnudegi flestra for-
eldra lýkur.
Tilkoma frístunda-
heimilanna var mikið
framfaraskref enda
samfella í skóla og
tómstundum mikilvæg
þessum aldurshópi.
Frístundaheimilin
hafa verið í sífelldri
þróun og hefur samstarf við
íþróttafélög og veitendur annarra
tómstundatilboða í hverfum borg-
arinnar verið að aukast og þróast.
Notkun frístundakorta
Í þeirri útfærslu sem Íþrótta-
og tómstundaráð hefur nú sam-
þykkt um frístundakortin er ekki
gert ráð fyrir að unnt sé að nýta
kortin á frístundaheimilum borg-
arinnar þó það hafi ekki verið úti-
lokað til framtíðar. Það er von
okkar í Samfylkingunni að sam-
staða náist um að heimila nýtingu
frístundakortanna á frístunda-
heimilum þegar næstu skref verða
tekin.
Í því sambandi bindum við mikl-
ar vonir við að jákvæð umsögn
komi frá starfshópi um heild-
stæðan skóladag sem fengið hefur
það verkefni að fara yfir kosti þess
og galla að heimila nýtingu frí-
stundakortanna á frístundaheim-
ilum.
Heildstæður skóladagur
Það væri til að efla heildstæðan
skóladag, auka notkunarmöguleika
yngstu notenda frístundakortanna
og auka enn á áhrif kortanna til
jöfnunar tækifæra ef hægt væri að
nýta frístundakortin á frístunda-
heimilunum.
Á sama tíma mætti hvetja frí-
stundaheimilin til enn ríkara sam-
starfs við íþróttafélög og veitendur
tómstundaþjónustu í hverfum
borgarinnar.
Hætt er við því að börn á aldr-
inum 6-9 ára eigi erfitt með að
nýta sér frístundakortin til ann-
arra tómstunda eftir að starfi frí-
stundaheimila lýkur klukkan fimm
á daginn. Enda má gera ráð fyrir
því að þá hafi þörfum fyrir upp-
byggilegt tómstundastarf oftar en
ekki verið fullnægt og við taki
mikilvægur samverutími foreldra
og barna.
Frístundakort
Frístundakort munu skapa
mikla möguleika á því að efla
íþrótta-, tómstunda- og lista-
starf meðal barna og unglinga
segir Sigrún Elsa Smáradóttir
» Það er von okkar íSamfylkingunni að
samstaða náist um að
heimila nýtingu frí-
stundakortanna á frí-
stundaheimilum.
Sigrún Elsa
Smáradóttir
Höfundur situr í stjórn ÍTR
fyrir Samfylkinguna.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100