Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 89
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 89
Rafskinna er nýtt sjónrit sem áætlað er að
hefja útgáfu á í júní. Sjónrit er tímarit á
DVD-formi (e. DVD magazine) og verður
Rafskinna ekki aðeins fyrsta ritið sinnar
tegundar hér á landi heldur með þeim
fyrstu í heiminum. Ritstjórar eru Ragn-
heiður Gestsdóttir og Þórunn Hafstað
kvikmyndaleikstjórar, Pétur Már Gunn-
arsson myndlistarmaður og Sigurður
Magnús Finnsson tónlistarmaður. Stúlk-
urnar hafa báðar lært sjónræna mannfræði
í Bretlandi og Ragnheiður hefur áður unn-
ið við álíka rit þar, Specialten. Í Rafskinnu
má finna stuttmyndir, heimildamyndir,
vídeólistaverk og teikniverk og meginefn-
istök tímaritsins eru íslensk samtímalist,
sérstaklega tónlist, með áherslu á gras-
rótina.
Teiknimyndasögur eftir Dr. Gunna
Hverju riti verður valið sérstakt þema
og í fyrsta ritinu er það fórnarlamb þjóð-
aratvinnuvegarins, fiskur. Meðal efnis er
matreiðsluhorn með hljómsveitinni Gho-
stigital, viðtöl við Björk og Skakkamanage,
tónlistarmyndbönd af Ben Frost, Gho-
stigial & Sensation, GusGus, Rass, Scope
og finnska tónlistarmanninum Jimi Tenor.
Tenor á einnig kvikmyndina Tri Aborten-
stein sem hann leikstýrir ásamt Jusu Lou-
nela og þá á Hugleikur Dagsson stutt-
myndina An American Baby. Kristján
Loðmfjörð er búinn að endurklippa Nýtt
líf sem Hvalalíf og þá eru Inga Birg-
Nýir hönnuðir verða fengnir í hvert skipti
en þeir Sigurður Eggertsson og Gunnar
Þór Vilhjálmsson hanna fyrsta ritið. Efnið
er mest á íslensku en oftast verður hægt
að velja enskan texta með.
isdóttir, Finnur Arnar Arnarson og Hikaru
Tota með myndverk á diskinum.
Stefnt er að útgáfu fjórum sinnum á ári
og verður diskinum dreift í bóka- og plötu-
búðir. Með honum fylgir bæklingur þar
sem finna má teiknimyndasögur eftir Dr.
Gunna og Tony Millionaire og framhalds-
sögu eftir Örvar Þóreyjarson Smárason.
Rafskinna Íslensk samtímatónlist, sérstaklega tónlist, með áherslu á grasrótina.
Sjónritið Rafskinna
Fyrsta rit sinnar tegundar á Íslandi
this.is/rafskinna / myspace.com/rafskinna
SJÓNRIT eru enn sem komið er
afar fágæt í hinum enskumælandi
heimi. Helst má nefna hið breska
Specialten og hið bandaríska
Wholpin auk teiknimynda-
sjónritsins Stash. Þá má nefna
The Raw Report sem beinir sjón-
um að hip hop-tónlist og Array
sem sérhæfir sig í verkum svartra
leikara og leikkvenna. Þá fylgja
einnig sjónrit ýmsum hefðbundnum tímaritum.
Specialten er nokkuð tónlistarmiðað og hafa ís-
lenskir listamenn eins og Mugison, Múm, Björk,
Trabant, Sigurrós og Jóhann Jóhannsson komið þar
fram auk þess sem Ragnheiður Gestsdóttir vann áð-
ur við ritið.
Óséðar stuttmyndir
Wholpin (hvalrungur, afkvæmi hvals og höfr-
ungs) er sjónrit fyrir sjaldgæfar og óséðar stutt-
myndir. Þeir hafa birt verk eftir virta leikstjóra á
borð við Alexander Payne, Spike Jonze, David O.
Russell, Miguel Arteta og Steven Soderbergh. Þá
hafa þeir grafið upp rússneska, tyrkneska og jap-
anska gamanþætti og birt bæði með þýddum texta
og skálduðum texta eftir valda höfunda, en þar eru
hæg heimatök þar sem útgefendur Wholpin gefa
einnig út bókmenntatímaritið McSweeney. Þá hafa
undanfarið fylgt með ritinu aukadiskar með BBC-
þáttaröðinni umdeildu The Power of Nightmares,
sem annars fær hvergi dreifingu í Bandaríkjunum.
Fjölbreytt en fá-
gætt úrval sjónrita
www.wholphindvd.com
www.specialten.com
www.stashmedia.tv
Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR
laugardag og sunnudag og mánudagSparBíó* 450kr
PIRATES 3 KL. 2 Í ÁLFABAKKA OG KEFL.
KL 4 Á AKUREYRI. BLADES OF GLORY KL. 1:50 Í ÁLFABAKKA
www.SAMbio.is
GOAL 2 KL. 1:50 Í ÁLFABAKKA, 1 Í KEFL.
MEET ROBINS. KL. 1 Í ÁLFABAKKA
OG KL 6 Á AKUREYRI
SPARBÍÓ 450kr
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK
WWW.SAMBIO.IS
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
eee
S.V. - MBLA.F.B - Blaðið
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Mesta ævintýri fyrr og síðar...
...byrjar við
hjara veraldar
„Besta Pirates
myndin í röðinni!
Maður einfaldlega gæti ekki
búist við meira tilvalinni
afþreyingarmynd
á sumartíma.“
tv - kvikmyndir.is
„SANNUR SUMAR-
SMELLUR... FINASTA
AFÞREYINGARMYND“
Trausti S. - BLAÐIÐ
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
eee
LIB, Topp5.is
HILARY SWANK
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 8 B.i. 10 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 LEYFÐ
ROBINSSON FJÖLSK. m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
PRIATES OF THE CARIBBEAN 3 kl. 2 - 5:30 - 9 B.i. 10 ára
GOAL 2 kl. 2 - 5:30 B.i. 7 ára
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
47.000
GESTIR
POPPARINN George Michael var í
fyrradag dæmdur til 100 klukku-
stunda þegnskylduvinnu og var auk
þess sviptur ökuréttindum í tvö ár.
Michael játaði sök fyrir rétti, að
hafa ekið undir áhrifum lyfja. Hann
sagðist hafa verið mjög þreyttur og
á lyfseðilsskyldum lyfjum.
Michael var
handtekinn í
október síðast-
liðnum. Ökumað-
ur tilkynnti um
annarlegt ástand
Michaels, að hann
lægi hálf-
rænulaus undir
stýri og hindraði
umferð. Michael
harmar atburðinn, segist skammast
sín fyrir að stefna fólki í hættu með
athæfi sínu.
Michael
hlaut dóm
George Michael