Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is KARLMAÐUR á sextugsaldri var yfirbugaður eftir umsátursástand við heimili í Hnífsdal aðfaranótt laugardags. Sérsveit ríkislögreglu- stjóra var kölluð til og flutt til bæj- arsins með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar, TF-LIF. Skömmu eftir miðnætti lenti þyrlan og á þriðja tímanum hafði sérsveitin náð stjórn á ástandinu og aflétt viðbúnaðar- stigi. Maðurinn gisti fangageymslur lögreglunnar á Ísafirði en að öllum líkindum verður farið fram á gæslu- varðhald yfir honum. Tilkynning til Neyðarlínunnar barst um klukkan ellefu á föstudags- kvöld. Staðfest hefur verið að í það minnsta einu skoti var hleypt af áður en lögregla kom á vettvang en engan sakaði. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var eiginkona mannsins á heimilinu og í námunda við manninn þegar skotið reið af en hún komst undan og í öruggt skjól hjá nágrönnum sínum. Sömu ná- grannar hringdu í Neyðarlínuna og tilkynntu um atburðinn. Í kjölfar tilkynningarinnar var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð út og Landhelgisgæslan fengin til að fljúga með hana til Hnífsdals. Sam- kvæmt upplýsingum frá Gæslunni fór TF-LIF af stað klukkan 23.41 með níu sérsveitarmenn innanborðs og lenti á Hnífsdalsbryggju kl. 00:43. Konan með áverka í andliti Áður en sérsveitin mætti á vett- vang höfðu lögreglumenn frá Ísa- firði rýmt nærliggjandi hús, og beðið aðra íbúa um að halda sig innandyra. Sjálfir héldu þeir uppi umsáturs- ástandi en fóru ekki nærri húsinu. Sérsveitarmenn umkringdu svo húsið og náðu fljótlega sambandi við manninn. Eftir að hafa rætt við hann í um fimmtán mínútur í dyragætt- inni var hann færður í handjárnum af vettvangi. Hann var rólegur. Ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn skaut að eiginkonu sinni, samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu var hann mjög ölvaður en ljóst er að sama er hvert ástand hans var á umræddum tíma; ekkert réttlætir notkun skotvopna. Að sögn lögreglu bar konan að auki áverka í andliti og þurfti að flytja hana á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Um 250 manns búa í Hnífsdal sem er lítill bær við utanverðan Skut- ulsfjörð. Óhætt er að segja að at- burðirnir hafi hrist upp í íbúum bæj- arins sem margir hverjir urðu afar skelkaðir er þeir sáu viðbúnað lög- reglunnar. Maður vopnaður hagla- byssu skaut að konu sinni Í HNOTSKURN »Tilkynning barst lögregl-unni á Ísafirði k. 22.53 á föstudagskvöld og voru lög- reglumenn þegar sendir á vettvang. »Eftir að ljóst var hvers eðl-is ástandið var leitaði lög- regla til sérsveitar ríkislög- reglustjóra sem flutt var með þyrlu Gæslunnar. »Sérsveitin yfirbugaðimanninn á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags. Hús á Bakkavegi í Hnífsdal voru rýmd á föstudagskvöld vegna umsátursástands sem skapaðist þegar karl- maður hleypti af hagla- byssu á heimili sínu. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Yfirbugaður Sérsveitarmenn leiða manninn til bifreiðar lögreglunnar eftir umsátursástand á Hnífsdal aðfaranótt laugardags. Ekki kom til neinna átaka á milli lögreglu og mannsins sem gafst upp eftir samtal við sérsveit. HERDÍS Þor- valdsdóttir leik- kona er fædd 1923 og bloggar af krafti á mbl.is. Telst Herdís til eldri borgara landsins en ekki fer mikið fyrir þeim í bloggflóru Íslands. Hún bloggar um verndun gróðurs og ágang manns og búfénaðar á gróður Ís- lands. Herdís er fyrrverandi for- maður Lífs og lands, sem eru fé- lagasamtök er stofnuð voru af áhugamönnum um verndun og efl- ingu gróðurs í landinu. Herdís segist hafa í mörg ár skrifað allar sínar greinar sem hún hafi sent inn í Morgunblaðið á tölvu. Hún hafi svo rekið augun í bloggið á mbl.is, séð litlu tilvitn- anirnar og hugsað með sér „þetta verð ég að komast í til að vekja at- hygli“ enda finnst henni að margir séu hættir að lesa blöðin og fari á Netið í staðinn. Gera bloggið að veigameiri umræðuvettvangi Samkvæmt Árna Mattíassyni verkstjóra mbl.is er meðalaldur bloggara á mbl.is 22,77 ár sem er víst hár meðalaldur í bloggheimum miðað við aðra bloggvefi. „Það var meðvituð ákvörðun okk- ar að reyna að laða til okkar eldri bloggara en tíðkast hafði á öðrum íslenskum bloggvefjum. Með því töldum við að við næðum að gera bloggið að veigameiri umræðuvett- vangi sem hefur líka orðið,“ segir Árni. Svo virðist sem aðeins einn virk- ur bloggari á mbl.is sé eldri en Herdís, en hefur hann slóðina mattibjorns.blog.is en hann er fæddur 1921. Árni segir að þessar upplýsingar séu þó með þeim fyrir- vara að fólk noti oft rangar kenni- tölur þegar það skráir sig á mbl.is. Bloggar til að ná til fleira fólks Herdís Þorvaldsdóttir ALLS voru 372 kandídatar brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri í Íþróttahöllinni í gærmorgun, fleiri en nokkru sinni fyrr. Skól- inn verður 20 ára í haust. Þorsteinn Gunnarsson rektor sagðist í brautskráningarræðu sinni talsmaður þess sjónarmiðs að öflugir opinberir háskólar séu starfræktir á Íslandi. „Ástæður þessa liggja annars vegar í kröfunni um jafnrétti til náms og hins vegar í því ríka samfélagshlutverki sem háskólar gegna.“ Hann velti fyrir sér hlutverki íslenskra stjórnvalda í þeim miklu breytingum sem opinberir háskólar ganga nú í gegnum. „Þar skiptir mestu að þessari þróun verði fylgt eftir m.a. með því að skapa háskólum fjárhags- leg skilyrði til áframhaldandi vaxtar. Auknar fjárveitingar þurfa að koma frá ríkisvaldinu, atvinnulífinu í landinu, alþjóðlegum uppbygg- ingarsjóðum og að einhverju leyti frá nemend- um sjálfum. Ég vil þó taka fram að stjórnvöld eiga ekki að freistast til að innheimta skóla- gjöld í grunnámi við opinbera háskóla hér á landi.“ Þorsteinn sagði einkaháskólana njóta mun meira fjárhagslegs frelsis en opinberir háskól- ar og innheimtu skólagjöld af nemendum sín- um til viðbótar greiðslum frá ríkisvaldinu. „Þessi mismunun á fjárhagsumhverfi einkahá- skóla og opinberra háskóla er afar sérstæð og þekkist vart í nálægum löndum.“ Afar sérstæð mismunun í fjárhag Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mikill meirihluti Hluti kandídata á háskólahátíð á Akureyri. „Það er tímanna tákn að konur eru hér í miklum meirihluta. Alls teljið þið 299 konur og 73 karla,“ sagði Þorsteinn rektor. Eftir: Ástu Sóley Sigurðardóttur astasoley@mbl.is KAUPÞING banki hefur ákveðið að styrkja Háskólann á Bifröst um 30 milljónir á næstu þremur árum, einkum vegna meistaranáms í fjármálum og bankastarfsemi. Þetta kom fram í ávarpi rektors, Ágústs Einarssonar, í tilefni af útskrift skólans í gær. „Þetta er höfðinglegt og þannig vil ég að hin öflugu fyrirtæki í landinu styrki skóla því engin væri útrásin og léleg væru lífskjörin ef ekki væru til góðir skólar, þar sem hið framsækna og duglega fólk fær mennt- un sína“ sagði Ágúst í ræðu sinni. Háskólahátíð að vori fór fram á Bifröst í gær og voru þá útskrifaðir tæplega 40 nemendur með BS og BA gráður frá skólanum. Úr meist- aranámi útskrifuðust 4 nemendur, 13 með dip- lómapróf í fjármálum og stjórnun og loks um 50 nemendur úr frumgreinadeild. Háskólinn nú rekinn með hagnaði Ágúst sagði í ræðu sinni að mikil orka hefði farið í að rétta skólann af en fyrrverandi stjórn- endur skólans hafi skilið eftir sig mjög alvar- lega fjárhagsstöðu og verulegt tap síðasta eina og hálfa árið. Það hafi þó tekist og nú sé Háskól- inn á Bifröst rekinn með nokkrum hagnaði. Á þessu ári hafi verið settar upp meistaralínur í samstarfi við virta erlenda háskóla, hafið fjar- nám í frumgreinadeild, aukið rannsóknir, eflt gæði námsins, aukið sérhæfingu meðal annars í verslun, skattarétti, í Mætti kvenna og í menn- ingar- og fjármálum og straumlínulagað rekstur skólans. Mikið sé búið að gera en einnig sé mikið eftir og gaman sé að starfa í slíku umhverfi. Í ræðu sinni sagði Ágúst einnig að markmið skólans í 89 ára sögu hans væri það að útskrifa forystufólk í ís- lensku atvinnulífi og yrði það markmið heiðrað áfram. Sagði hann að Há- skólinn á Bifröst tæki hlutverk sitt alvarlega og að hann hafi áður rætt um háskólakeðju um landið til að halda því saman og tryggja búsetu og fjölbreytni en Háskólinn á Bifröst hafi nú opnað útibú á Egilsstöðum þar sem núverandi, væntanlegir og gamlir nemendur verði í beinu sambandi við námið á Bifröst, meðal annars fjarnámið. Næst myndi háskólinn opna útibú á Ísafirði og síðan í Vestmannaeyjum. Vildi há- skólinn þannig gefa fólkinu á landsbyggðinni tækifæri til að tengjast skólanum betur. Sagði hann að erlendum skiptinemum fjölgaði stöð- ugt og byði háskólinn þá velkomna. Ágúst vakti athygli á því að þakka bæri kenn- urum fyrir framlag sitt og sagði „Þakkið því fólki sem ver hluta eða jafnvel allri ævini í að mennta aðra og færa þekkingu mannsins spöl- korn fram á við. Þetta eru hinir nýju landnáms- menn Íslands, fólkið sem kennir, í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, sérskólum og í háskólum.“ Kaupþing styrkir meistaranám Fyrrverandi stjórnendur Háskólans á Bifröst sagðir hafa skilið eftir alvarlega fjárhagsstöðu Ágúst Einarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.