Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 45 lýður á fjörur okkar með skotvopn og var þar einkum til nefndur vandræðagemsi úr Borgarnesi, „Fjörulalli“ að viðurnefni. Ásgeir Pétursson hafði verið skipaður sýslumaður í Borgarnesi árið 1961, svo ég lét hann friðlýsa á manntalsþingi allt Álftanesland og tók þá alveg fyrir þennan ágang. V. Við bræður vorum alvanir sveitastörfum, höfðum dvalið í Mývatnssveit sumrin 1936-1941, en Haraldur auk þess hjá Bene- dikt Líndal (1892-1967) á Efra- Núpi í Miðfirði sumarið 1942 og einnig sumarlangt á Álftanesi, þannig að við vorum staðkunnugir þar á bæ. Strax á fyrsta búskap- arári okkar stungum við út úr hesthúsinu og voru það tvær stungur og vel það. Fór það eins og eldur í sinu um allan Borgar- fjörð: „Þeir stungu sjálfir út úr húsunum.“ Ráðskonu hafði Har- aldur Bjarnason haft og varð það að samkomulagi að hún væri hjá honum eitthvað áfram, en hann flutti endanlega til Reykjavíkur árið 1958 til Huldu dóttur sinnar og tengdasonar Jónasar Böðv- arssonar (1900-1988) skipstjóra hjá Eimskip. Þar fór vel um hann hjá þeim heiðurshjónum á Há- teigsvegi 32. VI. Auglýstum við þá eftir ráðskonu og réðum Guðbjörgu Ólafsdóttur (f. 1927) en fyrir var á bænum ráðsmaður okkar Þorkell Gísli Guðbrandsson (f. 1928). Gengu þau síðan í hjónaband og fóru í brúðkaupsferð í febrúar 1959, er Júlíveðrið gekk yfir (togarinn Júlí talinn af 19.2. 1959), en við bræður sinntum öllum bústörfum á meðan. Ég var svo heppinn að hafa aldrei lært að mjólka, svo það kom í hlut Haraldar, en ég gaf heyið og fóð- urbætinn og mokaði að sjálfsögðu flórinn. Auk þess fór ég með mjólkurbrúsana á hestvagni að Miðhúsum, þar sem brúsapall- urinn var og vegurinn endaði. Hitti ég eitt sinn Jón bónda þar Jónsson (1898-1989) og sagðist ekki hafa lent í verra veðri og um tíma haldið að ég mundi ekki hafa þetta heim að Miðhúsum: „Af hverju helltir þú ekki mjólkinni niður, fyrst þú hafðir efni á því?“ voru viðbrögð Jóns. Jón á Mið- húsum var allra manna fyndnastur og orðheppinn með afbrigðum. Man ég best eftir heimsókn Ás- geirs Ólafssonar dýralæknis (1902- 1995), er hann kom að Álftanesi í þeim erindum að gelda níu fola frá okkur og næstu bæjum. Skipaði hann mig 1. aðstoðarlækni sinn við skurðaðgerðir þessar og hafði ég töng mikla í höndum og skyldi halda utan um meðan Ásgeir saumaði. Fyrst voru folarnir svæfðir með eteri, en strax og þeir voru sofnaðir hófst geldingin. Tókst þetta að mestu vel, nema ég féll í túnið í 4. geldingu og svo aft- ur í 9. geldingu. Hlógu félagar mínir ógurlega, er ég féll í síðara skiptið, en ég sagði: „Ég datt nú líka í fyrra skiptið.“ „Já,“ sagði Jón á Miðhúsum, „en síðari byltan var tilkomumeiri.“ VII. Skv. Jarðabók Árna Magn- ússonar og Páls Vídalín á fyrstu áratugum 18. aldar, þá voru um átta hjáleigur í byggð um lengri eða skemmri tíma. Árið 1957, er við bræður keyptum Álftanesið, voru allar í eyði nema Kvíslhöfði. Frændur mínir tveir voru nokkur sumur í sveit hjá þeim heið- urshjónum Bjarna Einarssyni (1869-1944) og Önnu Jónsdóttur (1874-1965) í Fornaseli, en þar bjuggu þau árin 1905-1911. Bald- vin Pálsson Dungal (1903-1969) var annar þeirra og eru fræg við- skipti þeirra Bjarna: Bjarni kallar til Baldvins: „Rektu túnið úr roll- unum strákur.“ „Ha,“ svarar Bald- vin, en Bjarni endurtekur setn- inguna: „Rektu túnið úr rollunum strákur,“ en allt kom fyrir ekki, Baldvin skildi ekki þetta sér- kennilega „Mýramannamál“. Hinn frændinn var Björn Daníel Korn- elíus Haralz (1906-1960) móður- bróðir minn, lengst sjómaður í Boston. Hann kenndi ensku vetr- arlangt 1947-1948 við skóla Ingi- mars Jónssonar (Gagnfræðaskóla Reykjavíkur), en hélt síðan aftur til Bandaríkjanna um vorið. Ók ég honum þá suður á Keflavíkur- flugvöll með viðkomu í Hafnar- firði, þar sem hans gamla hús- móðir í Fornaseli bjó, en hún hét fullu nafni Guðríður Anna Guð- björg, þótt hún væri almennt köll- uð Anna. Miklir kærleikar hafa verið með þeim Konna og Önnu, því hann dvaldist lengi hjá henni, en ég beið í bílnum á meðan. Bjarni varð síðan vinnumaður á Álftanesi til ársins 1920, að hann flutti til Reykjavíkur. VIII. Fjöldi eyja tilheyrir Álftanesi, þeirra merkust Þormóðssker, þar sem viti var reistur 1947. Þangað fór ég eitt sinn með nágrönnum mínum, þeim Magnúsi Guðbjarn- arsyni (f. 1938) í Straumfirði og Gísla á Vogalæk (1893-1973) Þor- kelssyni. Straumfirðingar áttu trilluna og var stefnan þegar sett á Þormóðssker. Þar sýndist mér maður á ferð og stend ég mjög ábúðarfullur í stafni og kalla til hans, er hann leggur frá skeri: „Hvaða lögmæt erindi eigið þér í eyju mína?“ og gaf hann mér besta svar ævi minnar: „Það voru engin egg.“ Við þremenningarnir fengum 80 fiska, bæði ýsu og þorsk, skipti fóru þannig fram, að báturinn fékk einn hlut, þ.e. 20 fiska, en við þremenningarnir 20 hver. Ég gleymi þessum degi aldr- ei, veðrið var frábært, nema að það sást ekki til miða vegna þoku í fjöllum, t.d. ekki Baulumið, sem þóttu fengsæl. Ég gleymi þessum degi aldrei, laugardeginum 24. maí 1958. Engir víxlar, enginn sölu- skattur, enginn sími, ekkert út- varp. Himnaríki á jörðu. IX. Þegar var hafin uppbygging á jörðinni, fjárhús reist, bæði í Kvíslhöfða og Álftanesi, skurðir grafnir og við það starfaði maður einn frá Brúarlandi í Deildardal í Skagafirði. Sögumaður góður og fannst mér besta sagan um hót- elhaldara á Sauðárkróki: „Hann var sendur suður á Bláa-Band, en gleymdi að fara.“ Engin frásögn á Norðurlandi er áttlaus. X. Bílferð frá Reykjavík að Álfta- nesi tók u.þ.b. 3,5 tíma, en í flug- vél u.þ.b. 25 mínútur. Það var því freistandi að skreppa út á Reykja- víkurflugvöll og reyna að hitta þar á flugmann á lausu, sem tilbúinn væri að fljúga vestur með mig á Cessnu sinni. Mjög var þetta óformlegt, hann spurði mig ekki að nafni og ég ekki flugmanninn að nafni: „Hvert er ferðinni heit- ið?“ spurði flugmaðurinn. „Fljúgðu yfir Akranes og þá skal ég sýna þér á kortinu, hvar þú átt að reyna að lenda.“ „Flugvöllurinn“ var skeljasandsfjara vestan við Kúaldarey, hann stakk Cessnunni niður í sandinn með öðru fram- hjólinu, flaug svo í sveig til baka til þess að skoða hve djúpt far hjólið hefði gert. Síðan sneri hann enn við og lenti með þessum orð- um: „Hér mætti lenda Þristi (Dou- glas DC-3).“ Síðan greiddi ég hon- um fargjaldið og gekk heim að Álftanesi. XI. Hinn 31.12. 1963 seldi ég Har- aldi bróður mínum helming minn í Álftanesinu, og hafði arður sjö og hálfs árs verið þessi: A) ein æð- ardúnssæng, B) 500 krónur fyrir hundinn, sem mjólkurbíllinn ók yf- ir, C) 4.500 krónur fyrir íkveikju, sem átti sér stað í Júlíveðrinu í febrúar 1959, er ábúandinn á Kvíslhöfða hugðist hita vatns- leiðslur með blússlampa, en þær höfðu frosið í hrakviðri þessu, en þær voru einangraðar með reið- ingstorfi, sem eldur komst í. Sam- ið var við Samvinnutryggingar um 5.500 króna bætur, en viðgerðin kostaði aðeins þúsund krónur. Var þá lokið 7½ árs búskap mínum og sannfærðist ég um sannleiksgildi setningar Halldórs Kiljan Lax- ness: „Að búskapur á Íslandi væri dýrasta sportið.“ XII. Örnefni úr Egils sögu Í Egils sögu segir frá því að þrælar Ketils gufu brenndu inni Þórð bónda að Lambastöðum og rændu bæði fé og gripum. Lambi, sonur Þórðar, var ekki heima en kom heim í þann mund er þræl- arnir voru að ljúka við ódáðaverk- ið. Lögðu þeir á flótta en Lamba barst liðsauki og voru þrælarnir eltir. Kóra drápu þeir í nesi því, sem síðan heitir Kóranes: „en Skorri og Þormóður og Svartur gengu á kaf og syntu frá landi. Síðan leituðu þeir Lambi að skip- um og reru þá að leita þeirra og fundu þeir Skorra í Skorraey og drápu hann þar. Þá reru þeir út til Þormóðsskers og drápu þar Þor- móð, er við hann skerið kennt“. Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík. Þormóðssker Vitinn á Þormóðs- skeri á góðviðrisdegi. Á Mýrum Álftaneskirkja Ljósmynd/Friðrik Örn Hjaltested Q7 – náttúrulegir yfirburðir H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 8 5 1 2 HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000, www.hekla.is, hekla@hekla.is Vorsprung durch Technik www.audi.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.