Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 66
66 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LEIÐTOGAFUNDIR átta
stærstu iðnríkja heims hafa nú þeg-
ar um hríð verið áberandi viðburðir
í sumarvertíð alþjóðastjórnmál-
anna. Sumir kunna að líta á það
sem rökrétta nið-
urstöðu á erfiðu
stjórnmálaástandi;
samantekt á stóru
málunum sem hafa
verið í deiglu al-
þjóðastjórnmálanna á
hverju ári. Þar að auki
eru G8-fundirnir taldir
vera höfuðvígi al-
þjóðavæðingar og lýð-
ræðislegra gilda í
heiminum. Leið-
arstefið sem Angela
Merkel, kanslari
Þýskalands lagði upp
með fyrir fundinn í ár kann að vera
ein sönnun þess: Að þróunarlöndin
verði þátttakendur í kerfi alþjóð-
legrar ábyrgðar. Í mínum huga hef-
ur stefið tvíræða merkingu. Annars
vegar virðist það gera þróuðu lönd-
in ábyrg fyrir misgóðri meðferð á
þróunarlöndunum, en hins vegar
liggur það í orðanna hljóðan að það
eigi að láta þróunarlöndin bera sinn
skerf af fyrrnefndri ábyrgð, og
leggja þannig á þau umframbyrðar
sem óvíst er að þau standi undir.
Því verður seint haldið fram að
viðræður milli forseta Bandaríkj-
anna og Rússlands lofi góðu. Gagn-
kvæmar ásakanir milli þessara
fyrrum bandamanna verða alvar-
legri á eldingarhraða. Ummæli
Bush, um að eldflaugapallarnir sem
Bandaríkjamenn vildu setja upp í
Póllandi beindust gegn „utangarðs-
löndum (e. rogue states), gerðu í
rauninni illt verra. Rússar hafa fyr-
ir sitt leyti hótað úrsögn úr sátt-
málanum um takmörkun herliðs í
Evrópu, gagnrýna mannréttinda-
stefnu Evrópusambandsins (t.d.
notkun gúmmíkúlna og taugalöm-
unargass gegn mótmælendum,
leynifangelsum CIA í bandalags-
ríkjunum, mannfalli
saklausra borgara í
mótmælum í Eistlandi
o.s.frv.) og hafa lýst
sig hið eina sanna lýð-
ræðisríki. Það verður
að viðurkennast að öll
þessi brot áttu sér
stað, rétt eins Rússar
sjálfir beittu sér-
sveitum lögreglunnar
gegn mótmælum
stjórnarandstæðinga í
Moskvu, Nizhnij
Novgorod og á leið-
togafundi Evrópusam-
bandsríkja í Samara. Sérfræðingar
telja reyndar að þessum yfirlýs-
ingum sé einkum beint til rúss-
neskra borgara nú þegar forseta-
kosningarnar árið 2008 nálgast.
Engu að síður eiga þessi átök sér
stað þótt öllum megi ljóst vera að
samstarf myndi skila öllum meiri
ábata en ágreiningur, en þó virðist
enginn tilbúinn til að draga sig í
hlé.
Þetta árið ákvað Angela Merkel
að útvíkka hið hefðbundna snið G8-
fundanna og bauð níu ríkjum til
viðbótar að bætast í hópinn, en öll
eiga þau það sameiginlegt að lofa
góðu á alþjóðavísu. Fimm þeirra
eru afrísk ríki. Kanslarinn leggur
mikla áherslu á að barist verði
gegn fátækt, HIV/alnæmi og smit-
sjúkdómum og friði og öryggi verði
náð fram í álfunni. En hverjir eru
viðbótarþátttakendurnir? Alsír hef-
ur nýlega gengið til liðs við OPEC,
með 60% af þjóðartekjunum af
jarðefnaeldsneyti og 7,5 milljarða
Bandaríkjadala samning um vopna-
kaup af Rússum. Egypski herinn er
talinn sá næstöflugasti í Miðaustur-
löndum á eftir þeim ísraelska og
bein erlend fjárfesting mun senni-
lega verða meiri þar en í Suður-
Afríku á árinu. Nígería hefur leikið
stórt hlutverk í olíuiðnaði frá átt-
unda áratugnum og er einn af
stofnendum OPEC; er 12 stærsti
olíuframleiðandi í heimi og 8.
stærsti útflytjandinn. Senegal er,
samkvæmt lýsingu BBC, eitt af
fyrirmyndarlýðræðisríkjum Afríku
og þar sem það hefur verið í góðu
netsambandi frá árinu 1996 hefur
verið uppsveifla í hátæknigeira
hagkerfisins. Suður-Afríka er
heimsins stærsti útflytjandi á plat-
ínu, gulli og krómi og hefur bestu
boðskiptakerfin í álfunni. Í öllum
þessum ríkjum kosta malaría,
berklar og alnæmi þúsundir
mannslífa árlega og hátt hlutfall af-
brota, fíkniefnaviðskipti og hern-
aðarátök ógna friði og öryggi. Aug-
ljóslega er þó auðveldara að takast
á við þessi vandamál ef hagkerfið
er stöðugt. Auk þess hafa leiðtogar
G8-ríkjanna þó alltaf meira að ræða
við sína hefðbundnu viðskiptafélaga
en við snauðari ríki sem eru háð að-
stoð Alþjóðabankans.
Þjóðverjar, sem eru í forsæti G8-
ríkjanna, hafa einnig lagt áherslu á
vöxt og ábyrgð í alþjóðahagkerfinu,
og vilja að sjónum verði beint ann-
ars vegar að ójafnvægi í fjárlögum
og dreifingu beinnar erlendrar fjár-
festingar, og hins vegar að frum-
kvöðlastarfsemi, bættri skilvirkni í
orkuframleiðslu sem myndi hægja
á umhverfisbreytingum, og auknu
gagnsæi í hráefnisframleiðslu.
Þetta val á umræðuefnum virðist
fyrst og fremst miða að að auka
tekjur ríkjanna á fundinum með því
að biðla til þessara þróunarlanda
sem leika munu lykilhlutverk í hinu
nýja alþjóðahagkerfi. Umræður um
jafnvægi ættu að höfða til Kínverja
sem hafa haft mikinn fjárlaga-
afgang og Bandaríkjamanna sem
hafa þurft að kljást við mikinn fjár-
lagahalla. Efling nýsköpunar snýst
að verulegu leyti um Indland og
hinn ört vaxandi hátæknigeira þar.
Á margan hátt virðist leiðtogafund-
urinn árið 2007 geta orðið þátttak-
endunum hagfelldur, og gæti jafn-
vel stuðlað að gerð margra
milljarðasamninga milli austurs og
vestur. En markmiðin um al-
þjóðavæðingu og lýðræðisgildi, sem
fundirnir eiga að snúast um, ná
varla fram að ganga að þessu sinni.
Getum við raunverulega kallað
þetta alþjóðavæðingu með mann-
legri ásýnd?
Hnattvæðing með
mannlegri ásjónu
Alena Krasovskaya skrifar
í tilefni af G8-fundinum »Markmiðin umalþjóðavæðingu og
lýðræðisgildi, sem fund-
irnir eiga að snúast um,
ná varla fram að ganga
að þessu sinni.
Alena Krasovskaya
Höfundur er 2. árs laganemi í HA.
Sumarbústaðalóðir við Skorradalsvatn
Til sölu sumarbústaðalóðir við Skorradalsvatn (vatnalóðir)
í vel grónu kjarri vöxnu landi, hallandi mót suðri.
Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið
logsol@logsol.is innan 7 daga.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU - SÖLUTURN
Auðveld kaup á spennandi rekstri. Söluturn, grill, ísbúð og vídeóleiga - í rúmgóðu
leiguhúsnæði, samtals 169,5 fm, á góðum stað í Salahverfi í Kópavogi. Nánari lýsing: Um er
að ræða vaxandi rekstur ásamt lager, tækjum og innréttingum. Velta fer vaxandi og góðir
möguleikar eru á aukningu. Reksturinn er staðsettur í hverfi sem hefur verið og er í mikilli
uppbyggingu.
TILBOÐ ÓSKAST Í REKSTURINN ÁSAMT TÆKJUM OG INNRÉTTINGUM. MÖGULEIKI Á
YFIRTÖKU Á LÁNUM SEM HLUTA AF GREIÐSLU.
Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 414 6600.
Svínhagi HS1 - Heklubyggð
Lóð til sölu í landi Svínhaga HS1, u.þ.b. 10-15 mín akstur frá Hellu. Stærðin á skikanum er
15,4 ha. Girðing HS1 liggur að girðingu skógræktarfélags ytra Rangárþings, þetta er
blandað landslag, gróinn sandur sem ekkert mál er að gera iðjagrænan með áburðadreifingu.
Ofboðslega fallegt gamalt gróið hraun með fullt af flottum stöðum. Þarna eru örfáir
landeigendur með þetta frá 15 og upp í 150 ha hver. Óskum eftir tilboðum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 414 6600.
Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali
Opið hús – Eikjuvogi 22
Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
Einstakt tækifæri – 2ja herbergja 73,2 fermetra íbúð í tvíbýli á þessum
skemmtilega stað í hverfi 104. Gott svefnherbergi og rúmgóð stofa.
Verð 17,9 millj. Laus til afhendingar strax.
tákn um traust
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir
á skrifstofu Hóls, Þverholti 14.
Upplýsingar gefur Stefán Bjarni Bjarnason
í s. 694 4388.
Í dag sunnudag frá kl. 14-15 sýnum við
laglega íbúð við Eikjuvog í Reykjavík.
Sími 575 8500 - Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Pálmi Almarsson og Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasalar
ÞARFTU AÐ SELJA?
HÖFUM KAUPENDUR Á SKRÁ
Erum með kaupendur að einb.-, par- eða raðhúsi í hlíða- og höfðahverfi
Mosfellsbæjar. Verð allt að kr. 45,0 millj. Nánari uppl. gefur Þór.
Erum með fjársterkan kaupanda að einbýlishúsi, helst með aukaíbúð.
Verð 60-80 millj. Nánari uppl. gefur Sverrir.
Aðili sem ég er með og er að leita að stórri fasteign með einum
leigutaka sem þarf að vera nokkuð traustur t.d. ríki, borg eða öflugt
fyrirtæki. Verð +500 millj. Nánari uppl. gefur Pálmi.
Aðili sem vantar 200 m² + í miðbænum, helst með byggingarrétti.
Nánari uppl. gefur Pálmi.
Ung kona á uppleið er að leita að 2ja til 3ja herbergja íbúð á
Reykjavíkursvæðinu. Verð allt að kr. 17,5 millj. Nánari uppl. gefur Þór.
Erum að leita að einbýli-, rað- eða parhúsi á svæði 101, 105, 107 eða 200.
Hámarksverð kr. 45,0 millj. Nánari uppl. gefur Þór.
Erum með kaupanda að sérhæð 125-150 fm á Seltjarnarnesi helst
bílskúr, en ekki skilyrði. Nánari uppl. gefur Brynjar.
Erum með kaupanda að 700–1.000 fm verslunarhúsnæði á
Höfuðborgarsvæðinu. Nánari uppl. gefur Örn.
ÞETTA ER SÝNISHORN ÚR KAUPENDASKRÁ OKKAR.