Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UNGMENNAFÉLAG Íslands er
100 ára á þessu ári. Verkefnin fram-
undan, bæði þessa árs og næstu ára,
eru fjölmörg. Ein stærstu verkefni
hreyfingarinnar eru Landsmótin og
eins Unglingalandsmótin ásamt fjöl-
mörgum og fjölbreyttum verkefnum
sem unnið er að um land allt m.a. af
þúsundum sjálfboðaliða. Síðasta
Landsmót var haldið á Sauðárkróki
árið 2004 og er óhætt að segja að það
mót hafi tekist vel og verið öllum til
sóma.
Nú er framundan Landsmót í
Kópavogi. Þetta Lands-
mót verður án efa eitt-
hvað frábrugðið síðasta
móti ekki síst vegna
þess að það er haldið á
höfuðborgarsvæðinu.
Sjálfsagt telja ein-
hverjir að það hafi bæði
galla og kosti eins og
svo margt annað. Við
skulum þó eingöngu
horfa á kostina og vera
jákvæð og spennt yfir
glæsilegu móti sem
framundan er.
Landsmótsnefnd hefur unnið mik-
ið verk og ásamt Kópavogsbæ verð-
ur haldið glæsilegt Landsmót þar
dagana 5.-8. júlí nk. Á
þessu Landsmóti eins
og öðrum er það ekki
einungis íþrótta-
keppni sem allt bygg-
ist á, vissulega skipar
keppnin stærstan sess
en það er svo fjöl-
margt annað sem ger-
ir Landsmótin að því
sem þau eru í raun.
Dagskrá helgarinnar
er stórglæsileg og
mér sýnist að allir eigi
að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, sama á hvaða aldri
þeir eru. Það hefur líka verið sagt að
allir verða ungir á því að mæta á
Landsmót og ég er viss um að svo
verður um þá sem mæta í Kópavog-
inn.
Setningarathöfn Landsmótsins
verður glæsileg enda mun 100 ára
afmæli UMFÍ sérstaklega verða
minnst þar. Hljómleikar, sýningar,
keppni og endalaus dagskrá mun
fylla Kópavoginn þessa daga og það
verður mikil gleði sem þar mun
ríkja.
Ég vil hvetja landsmenn alla til að
fjölmenna á Landsmótið í Kópavogi
og upplifa einstaka stemmningu
Landsmótanna. Ég vil hvetja Ung-
mennafélagsfólk um land allt til að
taka þátt í keppni á Landsmótinu og
fjölmenna með sína sveit í Kópavog-
inn.
Ungmennafélagar, tökum hönd-
um saman, fylkjum liði og fjölmenn-
um á Landsmót UMFÍ í Kópavog-
inum og sýnum þann kraft sem í
okkur býr. Hreyfingin er 100 ára en
ung í anda eins og ætíð.
Hafir þú ekki komið á Landsmót
UMFÍ skaltu ekki sleppa því tæki-
færi að koma í Kópavoginn. Þú munt
ekki gleyma þessari helgi. Lands-
mót UMFÍ eru einstök.
Ómar Bragi Stefánsson.
Ómar Bragi Stefánsson hvetur
fólk til að mæta á Landsmót í
Kópavogi 5.-8. júlí nk.
»Ég vil hvetja lands-menn alla til að fjöl-
menna á Landsmótið í
Kópavogi og upplifa ein-
staka stemmningu
Landsmótanna.
Ómar Bragi Stefánsson
Höfundur vinnur við skipulagningu
Landsmótsins.
Allir á Landsmót
Bréf til
blaðsins
Morgunblaðið Hádegismó-
um 2, 110 Reykjavík Bréf
til blaðsins | mbl.is
Í VÍKVERJA 7. júlí 2007 er gagn-
rýnt að hraustir kappar hafi staðizt
herþjálfunarprógramm nýlega með
því að henda sér í ískaldan sjó, lyfta
þungum drumbum o.fl.
Einhvers staðar stendur skrifað:
„Heilbrigð sál í hraustum líkama“. Á
latínu: „Mens sana in corpore sano“.
Þetta voru kjörorð Hellena á Grikk-
landi í fornöld.
Hvað veldur pirringi Víkverja skil
ég ekki fyllilega. Mér fannst um-
fjöllun um líkamshreysti Íslendinga
mjög ánægjuleg og lofsverð. Nú-
tímaunglingar og margir aðrir eru
að drepa sig á hreyfingarleysi og
óheppilegu mataræði.
Svisslendingar gera það að skyldu
að allir karlar séu í stöðugri þjálfun,
t.d. með árlegri mætingu í herinn
þeirra. Ég veit ekki annað en Sviss-
arar séu friðsöm þjóð en þeir vilja
eiga varalið vel þjálfaðra manna ef
þörf krefur.
Ég blæs á röksemdir Víkverja.
Ég held að það geti ekki skaðað
nokkurn mann að fá erlendan her-
þjálfara til að gera úttekt á hreysti
landans. Ef þeir þurfa upprifjun
geta þeir einfaldlega hent sér í sjó-
inn eða farið í líkamsrækt. Slíkt hef-
ur að öllu jöfnu ekki drepið nokkurn
mann.
PÁLL B. HELGASON,
endurhæfingarlæknir
á eftirlaunum.
Heilbrigð
sál í hraust-
um líkama
Frá Páli B. Helgasyni
Fréttir
í tölvupósti
mbl.is
smáauglýsingar