Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Móðir okkar, KIRSTEN F. BJARTMARS, Árbótum, Mosfellsbæ, er látin. Útför hefur farið fram að ósk hinnar látnu. Læknum og starfsfólki á deildum 11B og 11E er þakkað kærlega fyrir góða aðhlynningu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á krabbameinslækningadeild á Landspítalanum við Hringbraut. Sími 543-1159. Hanna Bjartmars Arnardóttir, Kristinn Magnússon, Helga Bjartmars Arnardóttir, Hjördís Bjartmars Arnardóttir, Gunnlaugur Ó. Johnson, Svala Ögn Kristinsdóttir, Gríma Bjartmars Kristinsdóttir, Örn Bjartmars Ólafsson, Helena Bjartmars Toddsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HAUKUR EINARSSON vélfræðingur, Jöklafold 4, Grafarvogi, lést á Landspítalanum Hringbraut miðvikudaginn 30. maí. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju á morgun, mánudaginn 11. júní, kl. 13:00. Guðrún Kristjánsdóttir, Jóna Helga Hauksdóttir, Inga Guðný Hauksdóttir, Bernharð Antoniussen, Einar Birgir Hauksson, Kristín Óskarsdóttir, Edda Kristín Hauksdóttir, Anna Karen Hauksdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, EINAR HALLDÓRSSON frá Vestmannaeyjum, fv. skrifstofustjóri, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt 7. júní, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 14. júní kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á DAS. Sigrún Bjarnadóttir, Þórunn Einarsdóttir Kelley, Richard Kelley, Halldór Einarsson, Esther Magnúsdóttir, Elín Einarsdóttir, Jón Gunnlaugsson, Ingibjörg Einarsdóttir, Birna Einarsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson, Súsanna Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÚN J. EYRBEKK, sem andaðist á Dalbæ, Dalvík, miðvikudaginn 6. júní, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 19. júní kl. 13:30. Stefán Stefánsson, Hulda Ólafsdóttir, Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir, Davíð Stefánsson, Vilborg Björgvinsdóttir, Anna Lísa Stefánsdóttir, Magnús Jónasson, Sigrún Stefánsdóttir, Sveinn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Miðvikudaginn 23. maí kvaddi ég afa minn, Steinar Þor- steinsson, sjóara, knattspyrnukappa, þúsundþjalasmið og grallara, en umfram allt hjarta- hlýjan fjölskyldumann, sem ofar öllu bar hag og hamingju fólksins síns fyr- ir brjósti. Af þeirri hæversku um- hyggjusemi og altumvefjandi ástúð sem afi bar með sér hef ég ríkulega notið alla mína ævi, fyrir það er ég þakklátur. Ég er líka þakklátur fyrir það að börnin mín fengu þó í nokkur ár notið samvista við langafa sinn, að þau kynntust þessum kærleiksríka grallara. Minningin um hann sitjandi flötum beinum á gólfinu í leik eða að lesa með krakkana í fanginu er minn- ing sem hefur yljað mér þessa síðustu daga. Það gera ekki síður allar minn- ingar mínar frá því að það vorum við Elín en ekki Andrea Dís og Þorsteinn Steinar Þorsteinsson ✝ Steinar Þor-steinsson fædd- ist í Reykjavík 28. apríl 1924. Hann andaðist á Landspít- alanum í Fossvogi 23. maí síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey frá Fossvogskapellu 1. júní. Mikael, sem nutum góðs af sprellikallinum og leikjameistaranum, snerum honum stund- um í kringum okkur, hring eftir hring. Ótelj- andi minningar um okkur þrjú sem gerð- um allt mögulegt og ómögulegt saman, um bíóferðir, fótboltaleiki, smíðarnar, hjólaferðir, skautaferðir og ára- mótasprengingar. Og mesta eftirvænting litla afastráksins var að vori ár hvert þegar við nafnarnir þrömmuðum í allar tiltækar sport- vöruverslanir, skoðuðum hinar ýmsu tegundir af græjum, spáðum og spek- úleruðum og festum svo auðvitað kaup á bestu fótboltaskóm í öllum heiminum fyrir komandi keppnis- tímabil. Móður minni var hann ávallt kletturinn í hafinu og vitinn á landinu, fyrir það erum við systkinin ævinlega þakklát. En afi bara fussar og sveiar, það mátti ekkert vera að vesenast með einhverjar þakkir, svo sagði hann eina góða sögu úr siglingunum, flestar ansi krassandi. Hann var boðinn og búinn til að- stoðar hvar og hvenær sem er, alla daga að leggja hönd á plóg og stússast fyrir okkur öll, börn og barnabörn. Það láku kannski allir gluggar heima hjá honum og ekkert verið málað í 13 ár, en það mátti bíða því hjá afa vor- um við alltaf í forgang. Þannig var afi, hann var alltaf til staðar, hann var alltaf í góðu skapi, hann var alltaf með eitthvað á prjónunum. Hann sá líka alltaf það jákvæða í mönnum og mál- efnum og aldrei nokkurn tímann heyrði ég afa hallmæla neinum manni. Steinar afi var mér miklu meira en afi, hann kom mér í föður- stað, hann var vinur minn og félagi. Hann var hetja minnar barnæsku og ekki síður eftir að ég komst til vits og ára. Eins og ég lærði af honum að styðja eina almennilega liðið í enska boltanum þá er það mín von að ég beri gæfu til þess í lífinu að fylgja þeirri góðu fyrirmynd sem hann hefur verið mér, verða börnum mínum sá faðir sem hann var sínum og barnabörnum sá afi sem hann var sínum. Aldrei mun ég gleyma síðustu stundinni með honum þennan mið- vikudagsmorgun, hann gat sig vart hreyft en var samt jákvæður, skemmtilegur og bar sig vel. Tárin í augum afa á kveðjustundinni og sorg- in í augum hans sýndu hug hans, hann var ekkert á leiðinni, hann vildi ekki gefast upp, hann átti enn verk að vinna, okkur öll, en vissi samt að nú var stundin komin. En minningin um yndislega manneskju, Steinar Þor- steinsson, fer aldrei neitt heldur mun ljóslifandi dvelja í hjörtum okkar og huga til síðasta dags. Steinar Þór Guðgeirsson. Einar Sigurvinsson ✝ Einar Sig-urvinsson flug- vélstjóri fæddist í Ólafsvík 6. júlí 1927. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans 31. maí síðastliðinn. Útför Einars var gerð frá Kópavogs- kirkju 8. júní sl. skugginn af þér. Svo komumst við nú að því, að það var vegna þess að þú varst búinn að gefa henni heilan poka af harðfiski sem er uppáhaldið hennar. En þegar þú varst svo bú- inn að bjóða köttinn í næsta húsi velkominn líka með því að moka í hann skinku þá sögðu nú mamma og amma stopp. Það var ekki gott að hafa köttinn í næsta húsi og hundinn á heimilinu í erjum inni á heimilinu akkúrat á meðan þær voru að klára að undirbúa veisluna mína. En svona varst þú afi, gerðir öllum til hæfis, sama hvort það voru menn eða dýr. Vildir alltaf allt fyrir alla gera. Það eru milljón hlutir sem ég gæti rifjað upp í sambandi við þig,m en geri það ekki núna. Þær minningar geymi ég alltaf í hjartanu mínu. Afi, þú varst bestur. Takk fyrir allt, elsku afi minn, fyrir að vera alltaf góður við mig, og vera alltaf skemmtilegur og kátur, og takk fyrir að hafa verið besti afi í heimi. Ég elska þig afi og sakna þín svo mikið og mun alltaf hugsa um þig og ég veit þú fylgist með mér og passar mig. Góða nótt og sofðu rótt. Guð geymi þig í alla nótt og megi englarnir vaka yfir þér. Elsku amma dúlla, þú ert best og ég elska þig líka svo mikið. Þín afastelpa, Íris Huld. Elsku afi. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért dáinn. Ég bara vil ekki trúa því . Fimmtudagurinn 31. maí var erf- iður dagur. Mamma hringdi í mig um hádegið og sagði að þú værir alvar- lega veikur og kominn á spítala. Mig langaði svo að koma og sjá þig og mig langaði svo að koma og vera hjá mömmu. Þú og mamma voruð alltaf svo náin og ég veit að þetta var ekki auðvelt fyrir hana. En því miður þá komst ég ekki frá Eyjum. Ég veit að mamma hvíslaði í eyrað á þér því sem ég vildi segja við þig og ég veit að þú hefur heyrt það. Þegar mamma hringdi svo til Eyja um kl. hálfsjö til að segja okkur að þú værir dáinn þá vildi ég ekki trúa þessu, að þú hefðir farið svona fljótt, ég ætlaði að koma morguninn eftir og hitta þig. Svo um nóttina þá spjölluðum við Elsku afi. Ég trúi ekki að þú sért dáinn. Mér er illt í hjartanu þegar ég hugsa um það að ég eigi aldrei eftir að hitta þig aft- ur. Það er svo margs að minnast þeg- ar ég hugsa um þig. Um góðu minn- ingarnar okkar saman. Þú varst alltaf hress og brosandi og hlóst mikið. Ég trúi ekki að þú sért farinn frá mér. Ég bjóst ekki við þessu, að afi minn færi svona fljótt frá mér. Þegar ég kom heim til ömmu um daginn þá var enginn afi, enginn sat í stólnum hans og hann ekki inni í her- berginu sínu síbrosandi og segir: ,,Ertu komin, snúlla mín.“ Ég veit honum líður miklu betur núna – hugsandi til mín og brosandi og ég veit að hann er ennþá hjá mér. Ég á svo góða minningar um afa. Ógleymanlegu fjöruferðina. Við Sigrún vorum í alveg eins útprjón- uðum peysum og áttum að stilla okk- ur upp fyrir flotta myndatöku. Þá skyndilega urðum við fyrir kríuárás og það endaði með því að það varð engin myndataka heldur vorum við Sigrún Arna organdi af hræðslu við kríurnar. Þú bjargaðir okkur frá krí- unum og fórst með okkur inn í bíl. Það sem þér fannst þetta fyndið, ég man alltaf hvað þú hlóst mikið af þessu. Alltaf þegar ég kom til ömmu og afa fór ég strax til afa og greiddi á honum hárið – lét það alltaf svona upp eins og á lukkutrölli – hann afi var stóra lukkutröllið mitt. Það var alltaf var hægt að stóla á þig, afi, með að skutla okkur ef við þurftum að fara eitthvað. Þó mamma væri búin að segja nei, við hefðum bara gott af því að rölta þetta, þá var bara laumast til að hringja í þig og þú varst kominn eftir smá stund, en þetta var leyndóið okkar sem allir fá að vita núna. Alltaf var gaman að koma í heim- sókn til ömmu og afa. Þá var oft smá- aur stungið í vasann og sagt – usssss. Síðasta skiptið sem þú komst til Eyja var þegar ég fermdist. Þegar við komum úr kirkjunni þá elti Tara hundurinn okkar þig eins og hún væri mamma í símann til kl. að verða 5 um morguninn – og hlógum og rifjuðum upp atvik. Þessa nótt veit ég ekki hvað ég sagði oft … Ég man … Ég man eftir þegar ég var lítil og sat á stólbakinu hjá afa með greiðuna hans og vatnsglas við höndina til að bleyta greiðuna og greiddi honum endalaust og ruglaði í hárinu á hon- um og hann hraut bara í stólnum á meðan. Einu sinni svaf hann svo vel þegar ég var að vesenast þetta í hon- um að ég tók mig til og rakaði af hon- um bartana. Afa brá nú svolítið þegar hann sá það þegar hann vaknaði, en hló bara að því. Ég man eftir ótal skiptum í Ömmu- húsi, sumarbústaðnum þeirra, alltaf jafn gaman þar. Ég man þegar við Ír- is Huld rústuðum heimilið hjá afa og ömmu með því að búa til tjald til að sofa í og var nú afi aðalarkitektinn þar. Og ég man eftir ótal skiptum hjá ömmu og afa í Kópavogi þegar dekr- að var við mann. Þegar ég kom að keppa í fótbolta var ég viss um að amma og afi kæmu að horfa á mig þó þau þyrftu að vakna klukkan 8 og fara út í grenjandi rigningu. Og alltaf gat ég komið með vini mína til afa og ömmu og þau tóku alltaf vel á móti þeim Alltaf var afi tilbúinn að skutla manni hvert sem maður þurfti að fara, sama hvort það var í sund eða alla leið í Þorlákshöfn. Ég man eftir öllum símhringunum frá afa af því hann vildi heyra í mér. Ég man svo ótal ótal margt og allt skemmtilegt sem tengist afa. Ég sakna þín mikið, elsku afi. Þú varst bestur. Ég veit að nú líður þér vel og vakir yfir okkur. Ég er búin að hlæja mikið og gráta mikið síðustu daga en þá koma upp í hugann orðin: ,,Mundu að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Elsku amma dúlla. Þinn missir er mikill en þú ert sterk og ég veit að afi vakir yfir þér Elsku mamma, ég veit hvað þið afi voruð rosalega náin og þú saknar hans mikið. Elsku Addi frændi, þú átt hrós skilið hvað þú ert búinn að vera frá- bær við ömmu og afa. Allir aðrir í fjölskyldunni, samúð- arkveðjur, við söknum öll afa því hann var frábær. Ég elska þig, elsku afi, og hafðu bestu þökk fyrir allt og þú munt alltaf vera í hjarta mínu Ég var heppin að eiga besta afa í heimi. Minning þín mun lifa að eilífu. Góða nótt og sofðu rótt. Guð geymi þig í alla nótt og megi englarnir vaka yfir þér. Þín afastelpa Sigrún Arna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.