Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Örn Ólafsson | 8. júní Kreddufesta um yfirlitsverk UNDARLEGT var að lesa grein Önnu Bjark- ar Einarsdóttur í Les- bók Mbl. 2. júní. Vita- skuld er réttmæt gagnrýni hennar á tvö- feldni þá þegar fólk þykist meðvitað um tilgangsleysi verks sem það þó vinnur. En er þetta ekki nokkuð ýkt? Er ekki hugsunin frekar sú, að þetta verk hafi vissulega sínar takmarkanir, en jafnframt geri það gagn að vissu marki, og í rauninni sé ekki betra kostur? Meira: oernolafs.blog.is Gylfi Guðjónsson | 8. júní Morðin í Mexíkó ÁRIÐ 1979 fyrir páska lagði ég leið mína til Nýju Mexíkó í Banda- ríkjunum ásamt eig- inkonu minni og tveim- ur sonum. Erindið var að heimsækja bæinn Alamogordo, en þar hafði kona mín sem ung stúlka unnið á veitingastað við þjóðveginn í eitt ár, átti hún því góða vináttu við fólk í Alamogordo. Ferð okkar um Bandaríkin varði 6 vikur, allt til Mexíkó og endaði norð- ur í Bridgeport í Connecticut, þar sem móðursystir eiginkonu minnar bjó ásamt manni sínum og fjöl- skyldu. Meira: gylfigudjonsson.blog.is Jakob Björnsson | 9. júní Leyfum skynseminni að komast að Í ÞESSARI grein bendir Jakob Björns- son, fyrrverandi orku- málastjóri, á að því fari víðsfjarri að Ísland verði náttúrulaust þótt við nýtum vatnsorku okkar og jarðhita eftir því sem efna- hagsleg rök eru til. Aðeins tæplega fjórðungur vatnsorku á Íslandi er efnahagslega nýtanlegur svo að það verður nóg um fossa til að horfa á og árnið til að hlusta á þótt við nýtum orkuna sem borgar sig að nýta. Meira: jakobbjornsson.blog.is NETGREINAR NÚ LIGGJA fyrir hugmyndir Hafrannsóknastofnunar á næsta fiskveiðiári um aflamark þorsks. Ættu þær að koma fáum á óvart í ljósi frétta af ástandi stofnsins. Sú aflaregla sem hefir verið til viðmið- unar ku hafa verið fjórðungur veiði- stofns, sem í ljósi fræðanna er í hærra lagi. Þar sem talið er að kjörsókn sé nær því að vera nokkuð innan við fimmtungur veiðistofns hverju sinni. Ef horft er fram hjá náttúrlegri dán- artölu getur í raun hver sem er gefið sér forsendur um nýliðun og veiðar úr hverjum árgangi. Náttúrlega dánartalan gerir dæmið reyndar nokkru flóknara, eins ef farið er út í það mikla nákvæmni að gefa sér sérstaklega forsendur um meðalþyngd hvers árgangs en slíkar tölur liggja fyrir og einnig þau föll sem notuð eru til að reikna út stofnstærð og jafnstöðuafla mið- að við mismunandi sókn. Sé þumalfingursreglan notuð kemur í ljós samband á milli sókn- ar stofnstærðar og afla. Hægt er að gefa sér að hver nýr árgangur sem kemur inn í veiðina sé um 1.000 fiskar og skoða hvernig ald- urssamsetning stofns og afla breytist með breyttri sókn. Aug- ljóst er að ef gefið er til einföld- unar að náttúrlega dánartalan sé ekki nein verður árlegur afli ávallt 1.000 fiskar en það sem skiptir höf- uðmáli er á hvaða aldri fiskurinn er veiddur vegna þess að hann bætir við þyngd sína á milli ára en á móti eru nokkur náttúrleg af- föll. Annað sem kemur einnig í ljós við ein- falda könnun er ald- urssamsetning stofns- ins og þar með stærð hrygningarstofnsins í hlutfalli við veiðistofn- inn. Munar því miklu á niðurstöðunum hvort dánartalan er hverju sinni fjórð- ungur veiðistofns sem getur slegið upp í þrjá tíundu við verstu aðstæður eða ein- ungis um átján af hundraði eins og lesa má út úr línuritum Hafrann- sóknastofnunar að sé kjörsókn. Við slíkar aðstæður eykst vænt- anlega þrýstingur frá útvegi að auka aflaheimildir þar sem tilfinn- ingu vantar að sé það gert megi búast við að til lengdar hafi það í för með sér aukið óhagræði veið- anna. Afli gæti aukist en aukinn kostaður við veiðarnar gerir meira en að vega upp tekjur af auknum afla. Þannig að þótt hagur ein- stakra gæti vænkast versnaði hag- ur heildarinnar. Eins og ástand þorskstofnsins er nú, er því hreinn akkur í því til frambúðar að draga verulega úr sókninni þar sem það eykur afla er fram líða stundir auk þess að styrkja hrygningarstofninn, eink- um elsta hluta hans en eins og oft hefir komið fram eru seiði gömlu hrygnanna talin hæfari til að lifa af heldur en seiði þeirra sem yngri eru. Auk þess er talið mikilvægt fyrir viðgang stofnsins að hrygningin dreifist yfir sem lengst tímabil og að hún eigi sér ekki öll stað á skömmum tíma. Vel getur verið að vergt tekju- tap, sem fylgja myndi í kjölfar þess að farið yrði í einu og öllu eft- ir tillögum Hafrannsóknastofnunar um aflahlutdeild, eigi við rök að styðjast. Er það talið nema tugum milljarða króna. Á móti kemur væntanlega minni kostnaður en ella vegna minni sóknar auk þess sem fjárfesting í fiski í sjó er ef- laust einn besti kostur þjóðarinnar sem nú er fyrir hendi. Fjárfesting eða óbætanlegt tap Eins og ástand þorskstofnsins er nú, er því akkur í því að draga verulega úr sókninni segir Kristjón Kolbeins » Fjárfesting í fiski ísjó er eflaust einn besti kostur þjóðarinnar sem nú er fyrir hendi. Kristjón Kolbeins Höfundur er viðskiptafræðingur. Business property in Tórshavn, Faroe Islands for sale It is a business building at the address Yviri við Strond 3 in central Tórshavn (close to the harbour). It is a building of 3 storeys. The total floor area is approx 730 square meters. The ground area is approx 550 square meters. The building can be used for office and retail purposes. The building has a good location and a good view. The building is sold if a satisfactory offer is received. The building can be seen after agreement. More information at our web page www.lawfirm.fo Interested can also contact lawyer Ingi Højgaard, mobile 00 298 511709 or email ih@lawfirm.fo Advokatfelagið við Strond 4 Yviri við Strond 4 100 Tórshavn Faroe Islands Tlf. 311260, fax. 311261 e-mail: lawfirm@lawfirm.fo heimasíða: www.lawfirm.fo Tormóður Djurhuus Jógvan Páll Lassen Petur Even Djurhuus Jógvan E. Ellefsen Anna Dam Ingi Højgaard Jóhan J. Lamhauge Gunn Ellefsen Mimi Steintórsdóttir FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Tvær ibúðir: Aðalhús er 187,6 fm einbýli á 2 hæðum. 4 svefnh. Nýtt eldhús og 42 fm sólpall- ur. Aukahús er 89,9 fm m/ góðri 64,5 fm 2ja herb. íbúð m/ lofti og 25,4 fm bílskúr við hliðina. SPENNANDI EIGN FYRIR STÓRA FJÖLSKYLDU. VERÐ 59,0 millj. Jón og Hjördís bjóða þig og þína velkomna, s. 557 6410. OPIÐ HÚS! HRAUNBERG 23 – 111 RVK í DAG MILLI KL. 14:00 OG 16:00 , Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 180 fm einbýli á einni hæð, þar af 42,3 fm bílskúr. Húsið sem er mjög vel staðsett í botnlangagötu skiptist í forstofu, eldhús með borðkrók, stofu, borðstofu, hol, sjónvarpshol, þvottahús, þrjú svefnh. og baðherbergi. Stór verönd með skjólvegg í suður. Gróinn og skjólgóður garður. V 55,0 m. Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 16.00 Krosshamrar 8 - opið hús 58,8 fm góð 3ja herberja íbúð í kjallara með sérinngangi á þessum vinsæla stað í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymslu. V. 15,9 m. Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 16.00 Bakkastígur 5 – Opið hús – Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! – Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is tákn um traust Lyklar á skrifstofu Hóls fasteignasölu. Opið í dag, sunnudag. Björn Daníelsson lögg.fast.sali í síma 849-4477 sér um að sýna. Til sölu 2ja og 3ja herb. íbúðir við Háteigsveg 3, Reykjavík Hóll fasteignasala hefur fengið til sölumeðferðar tvær glæsilegar íbúðir með sameiginlegan inngang við Háteigsveg 3, Reykjavík. Íbúðirnir afh. við kaupsamning. Um er að ræða 2ja og 3ja herb. íbúðir á 1. hæð í endurbyggðu húsi í miðb. Stærðir: 78,3 fm og 79,3 fm. Bílastæði fylgir. Ásett verð pr. íbúð er 25.000.000 kr. Dæmi um fjármögnun: 1. Greiðsla við kaupsamning: 1.000.000 kr. 2. Lán frá lánastofnun (80%) 20.000.000 kr. 3. Lán frá seljanda (10%) 2.500.000 kr. 4. Greiðsla 6 mán. eftir afhendingu 1.500.000 kr. 25.000.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.