Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það er bara sama góði minn hvað ég nudda og skrúbba garmana þína, fangaflugsrend-
urnar fara bara ekki úr.
VEÐUR
Það var vitað meðal stjórnmála-manna, að þeir Guðni Ágústs-
son og Halldór Ásgrímsson voru
engir vinir, en það kemur á óvart,
að það hafi beinlínis verið fjand-
skapur á milli þeirra, eins og ráða
má af lýsingu Guðna á samskiptum
þeirra á miðju síðastliðnu ári í nýrri
samtalsbók hans og Sigmundar
Ernis Rúnarssonar.
Á þeim tímavar fullyrt
innan Framsókn-
arflokksins, að
Guðni Ágústsson
hefði verið tilbú-
inn til að hætta
afskiptum af
stjórnmálum.
Flokksbræðurhans hafa
hins vegar van-
metið Guðna eins
og bezt sést af
því, að hann er
nú formaður
Framsókn-
arflokksins.
Hin rólegaásýnd Halldórs Ásgrímssonar í
fjölmiðlum hefur líklega ekki sagt
alla söguna.
Lýsing Guðna á samskiptumþeirra bendir til að Halldór sé
mikill skapmaður enda herma
áreiðanlegar heimildir Staksteina,
að stólar hafi hreyfzt í Ráð-
herrabústaðnum, þegar Árni Magn-
ússon tilkynnti honum, að hann
hefði ákveðið að hætta afskiptum af
stjórnmálum.
Guðni Ágústsson getur hins vegarvel við unað.
Hann stjórnar Framsókn.
Þeir sem töldu að hann ætti aðhætta eru allir hættir af-
skiptum af stjórnmálum.
STAKSTEINAR
Guðni Ágústsson
Guðni og Halldór
Halldór
Ásgrímsson
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
!
!
!
!
!
!""
!
!
!
!
! !
*$BCD ""
!"
# $ *!
$$
B *!
#$% & " "% " '()'
<2
<! <2
<! <2
#& "* +,"-'.
DE!-
8
# % $
&"'( ) *
6
2
+ ,
)
*
*! "-
# B
+)
"+
.
"-( / "+!
/0"$"'11 '"($"2 '('"* +"3 " "
" Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
María Kristjánsdóttir | 24. nóvember
2007
Gömul/ný orð
Orðið er kannski nokk-
uð stirt í samsetn-
ingum einsog dóms-
málaleyndarráð en
þjálla aftur á móti í
samsetningunni iðn-
aðarleyndarráð. Þá
mætti hugsa sér að færa orðið nær
nútímanum og stytta það einfaldlega
í: leyndó. Forsætisleyndó, utanrík-
isleyndó, fjármálaleyndó, dóms-
málaleyndó, félagsmálaleyndó, iðn-
aðarleyndó, samgöngumálaleyndó
o.s.frv.
Meira: mariakr.blog.is
Þrymur Sveinsson | 24. nóvember
2007
Maður í endur-
komubanni
Við hverju megum við
búast fyrst eftirlitið er
svona lekt?
Þessir afbrotamenn
koma óorði á landa
sína sem hér eru fyrir!
Fólk sem er vinnusamt
og heiðarlegt jafnvel búið að stofna
fjölskyldu og eignast börn. Þeir
koma af stað fordómum sem beinast
að röngum aðilum en illt er að kveða
niður.
Meira: thrymursveinsson.blog.is
Dögg Pálsdóttir | 24. nóvember 2007
Skýrður/óútskýrður
launamunur
… framtíðarspá byggð
á óleiðréttum sam-
anburði á launum karla
og kvenna sýnist því
lítið annað en sam-
kvæmisleikur … Óút-
skýrður launamunur
kynjanna er skv. síðustu rann-
sóknum kringum 10-12% (sjá hér).
Þeim mun þarf að eyða. Ef menn
einbeita sér að því að eyða þeim
launamun tekst það á örfáum árum.
Meira: doggpals.blog.is
Sigurður Kári Kristjánsson | 24. nóv-
ember 2007
Leyndinni af REI-
málinu aflétt?
Í gær bárust fréttir af
því að náðst hefði sam-
komulag um að Orku-
veita Reykjavíkur
myndi kaupa aftur það
hlutafé sem eign-
arhaldsfélög Bjarna
Ármannssonar og Jóns Diðriks
Jónssonar lögðu inn í Reykjavík
Energy Invest (hér eftir nefnt
REI) í september síðastliðnum. Í
kjölfarið mun Bjarni Ármannsson
segja skilið við REI og láta af
stjórnarformennsku um áramót.
Því er ljóst að Bjarni Ármannsson
mun yfirgefa REI og að það mun
vera í 100% eigu Orkuveitu Reykja-
víkur.
Það hlýtur auðvitað að vera
ákveðið áfall fyrir REI og Orku-
veitu Reykjavíkur að Bjarni Ár-
mannsson skuli yfirgefa félagið og
selja allt sitt hlutafé í því, ekki síst í
ljósi þess að hann hefur sjálfur lýst
því yfir að forsvarsmenn Orkuveitu
Reykjavíkur fóru þess sérstaklega
á leit við hann í aðdraganda REI-
málsins svokallaða að hann fjárfesti
í félaginu til þess að taka þátt í
þeirri útrás sem fyrirhuguð var.
En afleiðingar samkomulagsins
eru ekki einungis þær að REI hafi
misst Bjarna Ármannsson fyrir
borð. Í því felst að Orkuveita
Reykjavíkur verður 100% eigandi
REI. Það þýðir að REI verður ekki
rekið eins og hvert annað hluta-
félag, heldur verður það svokallað
opinbert hlutafélag sem hefur
ákveðna þýðingu.
Á 132 löggjafarþingi lagði þáver-
andi iðnaðar- og viðskiparáðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, fram
frumvarp til laga um breytingu á
lögum um hlutafélög, en frumvarp-
inu var ætlað að setja reglur um
hlutafélög sem hið opinbera ætti,
svokölluð opinber hlutafélög.
Frægasta opinbera hlutafélagið er
líklega Ríkisútvarpið ohf. Sam-
kvæmt 1. gr. frumvarpsins merkir
hugtakið opinbert hlutafélag: „félag
sem hið opinbera á að öllu leyti“. Í
athugasemdum með greininni er
inntak hugtaksins ,„opinbert hluta-
félag“ skilgreint nánar en þar segir:
,,Með frumvarpi þessu er lagt til
að sett verði nokkur sérstök ákvæði
um opinber hlutafélög.
Meira: sigurdurkari.blog.is
BLOG.IS
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt fyrirsvarsmann Góu-Lindu
sælgætisgerðar til að greiða 200 þús-
und króna sekt til ríkissjóðs fyrir
brot gegn lögum um atvinnuréttindi
útlendinga. Var hann fundinn sekur
um að hafa ráðið í vinnu til sín þrjár
konur frá Serbíu, á tímabilinu frá
byrjun febrúar 2005 til 30. apríl 2006,
án þess að tilskilin atvinnuleyfi lægju
fyrir og einnig að hafa ekki tilkynnt
Útlendingastofnun um að hann hefði
fengið útlending í þjónustu sína áður
en þær hófu störf.
Maðurinn hélt því m.a. fram að
hann hefði verið ranglega ákærður í
málinu þar sem gerðir þær sem
fjallað væri um hefðu alfarið verið
framkvæmdar í nafni lögaðilans Góu-
Lindu. Í niðurstöðu dómsins kom
hins vegar fram að ákærði væri lög-
um samkvæmt fyrirsvarsmaður fyr-
irtækisins og bæri því refsiábyrgð á
ákvörðunum sem fyrirsvarsmaður.
Einnig hélt fyrirsvarsmaðurinn
því fram að umræddar konur hefðu
haft öll tilskilin leyfi til að hann mætti
ráða þær til vinnu hjá fyrirtæki sínu í
febrúar 2005 og hefðu leyfi þeirra gilt
til ársloka það ár. Þá taldi hann jafn-
framt að honum hefði verið heimilt að
hafa þær áfram í vinnu á árinu 2006 á
meðan vinnsla umsókna um fram-
lengingu leyfa stæði yfir.
Vinnumálastofnun hafnaði um-
sókn Góu-Lindu um áframhaldandi
leyfi í nóvember 2005 en sú niður-
staða var kærð til félagsmálaráðu-
neytisins. Í úrskurði ráðuneytisins,
sem dagsettur er 29. september
2006, segir að knattspyrnudeild
Hauka hafi verið veitt atvinnuleyfi
fyrir konurnar en skömmu eftir
komu þeirra til landsins hafi hins
vegar borist tilkynning til Vinnu-
málastofnunar þar sem tekið hafi
verið fram að samningum við kon-
urnar, sem voru leikmenn Hauka,
hafi verið rift.
Einnig var tekið fram að útlend-
ingi með tímabundið atvinnuleyfi hjá
ákveðnum atvinnurekanda væri
óheimilt að hefja störf hjá öðrum at-
vinnurekanda. Vildi hann skipta um
starf yrði nýi atvinnurekandinn að
sækja um atvinnuleyfi til Vinnumála-
stofnunar og útlendingnum væri
óheimilt að hefja störf fyrr en leyfið
hefði verið veitt.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að maðurinn hefði ekkert gert
til að leyna broti sínu, torvelda rann-
sókn málsins eða draga það á lang-
inn. Nokkuð virðist hins vegar hafa
skort á að yfirvöld gættu leiðbeining-
arskyldu eða fylgdu málinu eftir með
skýrum fyrirmælum til mannsins
sem margsinnis leitaði til yfirvalda
vegna málsins. Auk þess hefði tekið
mjög langan tíma að afgreiða kæru
hans á synjun atvinnuleyfa til æðra
stjórnvalds, eða um tíu mánuði.
Yfirvöld gættu ekki
leiðbeiningaskyldu